Kvískerjasjóður
Kvískerjasjóður var stofnaður 15. janúar 2003 af umhverfisráðuneytinu til heiðurs Kvískerjasystkinum fyrir framlag þeirra til öflunar þekkingar og rannsókna á náttúru og sögu Austur-Skaftafellssýslu. Systkinin á Kvískerjum voru einstök í sinni röð. Á fræðisviðinu urðu þau sín eigin Akademía svo annálað þykir.
Kvísker voru með afskekktari bæjum á landinu, en með bættum samgöngum og fjarskiptum hefur sú einangrun verið rofin. Kvískerjasjóði er ætlað að stuðla að því að framhald verði á því umfangsmikla fræða- og rannsóknarstarfi sem stundað hefur verið á Kvískerjum undanfarna áratugi.
Sumarið 2026 undirrituðu umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, menningar, nýsköpunar- og háskólaráðherra, formaður Kvískerjasjóðs og sveitarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar viljayfirlýsingu um að Menningarmiðstöð Hornafjarðar taki við hlutverki Kvískerjasjóðs.