Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
3. febrúar 2005 /
Heilbrigðisráðuneytið
Ráðstefna um börn með hegðunarvanda og geðraskanir
Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur ákveðið að efla geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni á landsbyggðinni og mun á þessu ári leggja fram hátt í 20 milljónir króna til viðbótar því sem er bundið við einstakar stofnanir. Þetta kom fram í ávarpi ráðherra á ráðstefnu um hegðunarvanda og geðraskanir barna og unglinga í dag.