3. nóvember 2025 /
Dómsmálaráðuneytið

Ráðherra heimsótti lögregluna á Suðurnesjum

Ragna Bjarnadóttir skrifstofustjóri, Ómar Annisius aðstoðaryfirlögregluþjónn, Margrét Kristín Pálsdóttir settur lögreglustjóri, Þorbjörg Gunnlaugsdóttir ráðherra, Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri og Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögfræðingur
Birgir Ísleifur
Ragna Bjarnadóttir skrifstofustjóri, Ómar Annisius aðstoðaryfirlögregluþjónn, Margrét Kristín Pálsdóttir settur lögreglustjóri, Þorbjörg Gunnlaugsdóttir ráðherra, Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri og Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögfræðingur

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra heimsótti á dögunum lögregluna á Suðurnesjum þar sem hún kynnti sér starfsemi embættisins og nýtt komu- og brottfararkerfi Schengen-svæðisins (Entry/Exit System – EES).

Á fundi með fulltrúum embættisins var fjallað um stöðu mála í tengslum við uppbyggingu og rekstur landamæraeftirlits og áhrif innleiðingar kerfisins á daglega starfsemi. Nýja kerfið mun skrá rafrænt komur og brottfarir ríkisborgara þriðju ríkja yfir ytri landamæri Schengen-svæðisins og er ætlað að styrkja öryggi, bæta eftirlit og gera ferla skilvirkari.

Innleitt samtímis í öllum Schengen-ríkjum

Innleiðing á kerfinu hófst þann 12. október og fór fram samtímis í öllum Schengen-ríkjum, að Kýpur undanskildu. Annar fasi innleiðingarinnar hefst svo í næstu viku en gert er ráð fyrir því að kerfið verði að fullu tekið í notkun á öllum ytri landamærum Schengen-ríkjanna í lok mars 2026.

Margrét Kristín Pálsdóttir settur lögreglustjóri á Suðurnesjum og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra

„Alþjóðlegt lögreglusamstarf er gríðarlega mikilvægt í baráttunni við skipulagða glæpastarfsemi. Með þessu nýja kerfi taka Schengen ríkin mikilvægt skref í átt að öruggari landamærum,“ sagði dómsmálaráðherra að heimsókn lokinni.

Var efnið hjálplegt?