18. nóvember 2025 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Mælti fyrir frumvarpi um eina öfluga stofnun á sviði húsnæðis og skipulagsmála

{image.Description}
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í dag fyrir frumvarpi sem felur í sér að starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) sameinist. Með sameiningunni verður allur ferillinn, frá skipulagi til fullbúins mannvirkis, á höndum einnar stofnunar.  


Um 150 manns starfa hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á þremur stöðum á landinu og um 25 manns hjá Skipulagsstofnun. Lagt er til að starfsemin verði sameinuð þannig að verkefni Skipulagsstofnunar renni inn í Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og að heiti stofnunarinnar verði breytt í Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Stofnanirnar eru nú þegar farnar að vinna að samrunanum. 


Sameiningunni er ætlað að auka bolmagn hins opinbera í skipulagsmálum og ná bæði fram samlegðaráhrifum og meiri samþættingu málaflokka á sama sviði. Sameiningunni er einnig ætlað að mæta auknu ákalli um yfirsýn yfir þróun byggðar, sjálfbæra landnotkun, húsnæðisþörf og nýtingu auðlinda. 


„Við í ríkisstjórninni höfum lagt ríka áherslu á hagsýni í ríkisrekstri. Að sameina fámennar stofnanir við aðrar stærri er liður í því. En við viljum ekki bara sameina til að sameina heldur til að ná fram því besta í hverjum málaflokki. Sameiningin mun einfaldlega skila okkur enn öflugri stofnun á sviði húsnæðis og skipulagsmála,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra. 


„Almenn sátt er um tillöguna og mig langar sérstaklega nefna að starfsmenn stofnananna hafa undirbúið sameininguna af áhuga og eftirvæntingu og sýnt gott fordæmi fyrir aðra starfsmenn hins opinbera.“


 


 

Var efnið hjálplegt?