26. mars 2026 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Uppfært samkomulag um byggingu hjúkrunarheimilis við Mosaveg í Reykjavík

Inga Sæland og Heiða Björg Hilmisdóttir.
Inga Sæland og Heiða Björg Hilmisdóttir.

Inga Sæland og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, hafa endurnýjað samkomulag um uppbyggingu 117 rýma hjúkrunarheimilis við Mosaveg í Reykjavík í takt við breytta ábyrgðarskiptingu við uppbyggingu hjúkrunarheimila sem fest var í lög á síðasta ári. Með því færðist ábyrgð á fjármögnun vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila alfarið yfir til ríkisins.

Fyrirhugað er að nýja hjúkrunarheimilið verði reist á lóð við Mosaveg 23 í Reykjavík sem borgin leggur til. Hjúkrunarheimilið verður byggt af þriðja aðila á grundvelli útboðs og gegn langtímaleigusamningi við ríkið.

„Hjúkrunarheimili við Mosaveg hefur verið í undirbúningi um árabil án þess að komast til framkvæmda. Með þessu samkomulagi, sem byggir á sögulegri sátt ríkis og sveitarfélaga, er verkefnið komið aftur á skrið. Ég hlakka til að sjá glæsilegt hjúkrunarheimili rísa við Mosaveg í Reykjavík. Uppbygging hjúkrunarheimila er á fleygiferð og stjórnvöld hafa sannarlega tekið málefni eldra fólks föstum tökum,“ segir Inga Sæland en uppbygging hjúkrunarheimila heyrir undir hana.

„Það er mikið fagnaðarefni að ná þessu gríðarlega hagsmunamáli í höfn með ríkisstjórninni. Ég veit að nýja hjúkrunarheimilið sem rísa mun á Mosavegi á eftir að skipta sköpum fyrir fólk í Reykjavík. Við erum ekki bara að tryggja að þarna verði byggt hús; við erum að tryggja umönnun, öryggi, félagsskap og bæta lífsgæði,“ segir Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur.

 

Var efnið hjálplegt?