Utanríkisráðherra fundaði með framkvæmdastjóra afvopnunarmála hjá SÞ
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í gær fund með Izumi Nakamitsu, framkvæmdastjóra afvopnunarmála hjá Sameinuðu þjóðunum. Nakamitsu heimsótti Ísland til að taka þátt í friðarráðstefnunni Imagine Forum sem fór fram í Hörpu í gær.
Á fundinum voru öryggisógnir sem heimurinn stendur frammi fyrir til umræðu, annars vegar vegna vaxandi vígbúnaðarkapphlaups og nýjar áskoranir sem fylgja notkun gervigreindar í hernaði.
„Við áttum gott samtal þar sem við ræddum meðal annars þá alvarlegu stöðu sem upp er komin í tengslum við kjarnorkuvá. Við stöndum frammi fyrir allt annarri stöðu en ríkti á tímum kalda stríðsins og því er brýnt að endurbyggja það traust sem hefur rofnað innan alþjóðakerfisins á undanförnum árum,“ segir Þorgerður Katrín.
Þó gervigreindin hafi nú þegar skapað fjölmörg tækifæri sé mikilvægt að fara varlega varðandi notkun hennar.
„Við megum ekki missa stjórn á þeirri þróun sem nú á sér stað,“ segir Þorgerður Katrín. „Það eru blikur á lofti, en Ísland mun styðja við samtalið enda er öflugt alþjóðlegt regluverk á sviði afvopnunar og vopnaeftirlits ein af undirstöðum öryggis okkar allra. Til að byggja upp traustið sem hefur glatast þarf samtalið að halda áfram."