15. október 2026 /
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni gefin út

{image.Description}

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur gefið út aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Áætlunin markar fyrsta áfanga í innleiðingu á stefnu Íslands um líffræðilega fjölbreytni til ársins 2030 sem samþykkt var í upphafi árs.

Aðgerðaáætlunin setur fram forgangsaðgerðir sem stjórnvöld leggja sérstaka áherslu á að hrinda í framkvæmd, með skýra ábyrgð og tryggða fjármögnun. Forgangsaðgerðirnar ná til verndaraðgerða, beitingu ýmissa stjórntækja og hvata til endurheimtar, verndar, sjálfbærrar nýtingar og landbúnaðar. Þá endurspegla aðgerðirnar áherslur ríkisstjórnarinnar í stefnuyfirlýsingu Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins um að efla líffræðilega fjölbreytni og ráðast í aðgerðir til verndar hafsvæðum og ósnortnum víðernum. Forgangsaðgerðirnar eru:

  • Verndarsvæði í hafi
  • Virk svæðisvernd á landi
  • Átak í gerð stjórnunar- og verndaráætlana
  • Landbúnaður og náttúruvernd
  • Innleiðing hvata fyrir vernd og endurheimt vistkerfa og sjálfbæra nýtingu

Aðgerðir áætlunarinnar falla undir fimm kjarnaviðfangsefni. Þau eru:

  • Verndun lífríkis: Skilgreina og efla svæðisbundna vernd líffræðilegrar fjölbreytni á landi og hafi sem styður við markmið Íslands um að 30% landsvæða og 30% hafsvæða verði undir skipulagðri vernd og stjórnun fyrir árið 2030.
  • Endurheimt vistkerfa: Skilgreina, kortleggja og meta umfang hnignaðra vistkerfa á Íslandi og hrinda í framkvæmd markvissum aðgerðum til endurheimtar raskaðra vistkerfa í ferskvatni og á haf- og strandsvæðum.
  • Þekking gagna og vöktun: Auka áreiðanleika gagna sem notuð eru í skipulags-, landnotkunar- og verndarvinnu.
  • Atvinnulíf og samfélag: Efla líffræðilega fjölbreytni í landbúnaði með samþættingu náttúruverndar og búskaparhátta, þróun þekkingar og innleiðingu hvetjandi styrkjakerfa og styrkja samstarf hins opinbera við atvinnulífið hvað varðar fræðslu, upplýsingamiðlun og ráðgjöf sem tengist líffræðilegri fjölbreytni.
  • Stjórnsýsla og samhæfing: Efla hlutverk og aðkomu sveitarfélaga að verkefnum er varða líffræðilega fjölbreytni.

Aðgerðirnar styðja við sex leiðarljós stefnunnar sem samþykkt var í upphafi árs og leggja grunn að áframhaldandi framkvæmd hennar.

 

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Aðgerðaáætlunin er mikilvægur liður í því að auka vernd líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Svona fylgjum við stefnunni eftir sem við samþykktum fyrr á árinu, höldum áfram að gera vísindunum hátt undir höfði eftir að ríkisstjórnin gerði Ísland að fullgildum aðila að IPBES og lögfestum samninginn um vernd líffræðilegrar fjölbreytni á úthöfum – BBNJ.

Nú tekur við að koma aðgerðum áætlunarinnar hratt í framkvæmd. Þá er lykilatriðið að forgangsraða – rétt eins og við höfum gert í loftslagsmálum. Þar hefur skýr forgangsröðun þegar borið árangur, til dæmis með því að rjúfa kyrrstöðuna í endurheimt votlendis. Með þessari aðgerðaáætlun færist enn meiri þungi í það verkefni, enda margþættur ávinningur sem fylgir þeirri aðgerð, þar á meðal fyrir líffræðilega fjölbreytni, náttúruvernd og viðnámsþol gagnvart loftslagsbreytingum.“

Frekari aðgerðir á öðrum sviðum geta bæst við þegar útfærsla þeirra, ábyrgð og fjármögnun liggja fyrir.

Líffræðilega fjölbreytni - Aðgerðaáætlun 2026-2030