Forvörn við RS-veiru hjá ungbörnum fest í sessi
Síðastliðinn vetur stóð foreldrum í fyrsta sinn til boða fyrirbyggjandi ónæmisaðgerð fyrir börn yngri en 6 mánaða. Nærri 90% foreldra þáðu mótefni fyrir börn sín og nú er ljóst að vegna þess varð mikil fækkun á staðfestum sýkingum og sjúkrahúsinnlögnum hjá þessum aldurshópi. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tryggja framhald þessa verkefnis með varanlegri fjármögnun. Þetta er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis um að bæta RS-forvörnum við almenna bólusetningaráætlun barna á Íslandi.
RS-veiran er algeng öndunarfæraveira sem gengur í stórum faröldrum yfir vetrartímann og leggst einkum þungt á börn á fyrsta aldursári. Faraldrar RS veiru ganga oft yfir samtímis árlegum inflúensufaraldri og fylgir því gjarna mikið álag á heilbrigðiskerfið. Sýkingar af völdum veirunnar er algengasta ástæða innlagna barna á sjúkrahús um alla Evrópu.
Mjög góður árangur
Í fyrra, þegar ráðist var í að bjóða forvörn gegn RS vírus fyrir ungbörn, var byggt á mati sóttvarnalæknis sem taldi að reynslan af því myndi leiða í ljós margþættan samfélagslegan ávinning, auk kostnaðarhagkvæmni. Valtýr Stefánsson Thors barnasmitsjúkdómalæknir Barnaspítala Hringsins segir að árangur þessara aðgerða síðastliðinn vetur hafi verið frábær. Mikil fækkun hafi orðið á staðfestum sýkingum og innlögnum hjá þessum aldurshópi barna. Í grein eftir Valtý bendir hann á að undanfarin ár hafi 150-200 börn á fyrsta aldursári leitað á Barnaspítalann og allt að 60 þurft að leggjast inn á spítala, þó mismunandi mörg milli ára. Síðastliðinn vetur hafi aðeins tvö börn yngri en 6 mánaða þurft á innlögn að halda og að þau hafi útskrifast sólarhring síðar.
Byrjað að bjóða forvörn gegn RS-veiru fyrir veturinn
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir árangur liðins árs jafnvel enn betri en vænst var. Þetta skipti gríðarlega miklu máli; að fækka sýkingum og forða litlum börnum frá alvarlegum veikindum af völdum RS-veiru. Með því að koma í veg fyrir þessar sýkingar á fyrstu mánuðum ævinnar megi jafnframt búast við minni þörf fyrir notkun sýklalyfja og innöndunarlyfja: „Við munum áfram fylgjast grannt með árangrinum hér á landi. Ég hvet foreldra að þiggja þessa mikilvægu forvörn fyrir börn sín sem nú er þegar farið að bjóða börnum fyrir veturinn“.