Mikilvægt að sannreyna stafræn ökuskírteini
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi í gær frá rannsókn á sölu falsaðra stafrænna skilríkja til ungmenna. Stafrænt Ísland birti af því tilefni tilkynningu um það hvernig megi sannreyna stafræn ökuskírteini með skanna í Ísland.is appinu.
Stafrænt ökuskírteini er jafngilt hefðbundnu ökuskírteini hér á landi. Ríkislögreglustjóri gefur það út í gegnum Ísland.is á grundvelli reglugerðar nr. 830/2011 um ökuskírteini.
Skanninn í Ísland.is appinu er opinn öllum og sannreynir á öruggan hátt hvort ökuskírteini sé ósvikið og gilt. Ef vafi leikur á gildi þess má óska eftir hefðbundnu ökuskírteini eða öðrum gildum skilríkjum.
Nánari upplýsingar um skannann eru á vef Ísland.is.
Í tilkynningu Stafræns Íslands er einnig áréttað að einungis sé til ein útgáfa af Ísland.is appinu sem megi finna án endurgjalds í App Store og Google Play Store.