Opið er fyrir umsóknir í Ask mannvirkjarannsóknarsjóð 2026
Opið er fyrir umsóknir í Ask mannvirkjarannsóknarsjóð 2026. Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember.
Askur mannvirkjarannsóknarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna á sviði húsnæðis- og mannvirkjagerðar. Alls eru 187,5 milljónir króna til úthlutunar. Sjóðurinn er fjármagnaður af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og HMS.
Háskólasamfélagið, rannsókna- og nýsköpunargeirinn, opinberir aðilar og atvinnulífið eru hvött til samstarfs um metnaðarfull verkefni sem leiða til hagnýtra lausna, bæta ákvarðanatöku og auka skilvirkni með nýsköpun og tækni. Áhersla er lögð á að niðurstöður séu hagnýtar og skili ávinningi fyrir mannvirkjagerð á Íslandi og samfélagið í heild.
Við úthlutun 2026 verður lögð sérstök áhersla á þrjá flokka innan rannsóknaþarfar í húsnæðis- og mannvirkjagerð:
- Viðhald og endurbætur - verkefni sem styðja markvissara viðhald, endurbætur og lengri líftíma þegar byggðra mannvirkja.
- Byggingarvörur, byggingarhlutar og byggingaraðferðir - verkefni um eiginleika byggingarvara, byggingarhluta og tæknilausna miðað við íslenskar aðstæður.
- Sjálfbærni - verkefni sem draga úr umhverfisáhrifum, styðja hringrásarhagkerfið og bæta orkunýtni.
Athygli er vakin á sameiginlegum viðburði Burðar og Rannís um styrkjaumhverfi mannvirkjageirans, sem fer fram 16. nóvember kl. 13:00–15:30 í Borgartúni 21.
Markmiðið er að gera styrkjaumhverfið aðgengilegra og gefa þátttakendum betri yfirsýn yfir þau tækifæri sem standa til boða, bæði hér á landi og í Evrópu. Þar verða meðal annars kynnt tækifæri í Aski, innlendir styrkir Rannís og evrópsk styrktækifæri á borð við Horizon Europe og LIFE. Að kynningum loknum verður vinnustofa þar sem þátttakendur geta fengið leiðsögn við að greina hvaða sjóðir henta ólíkum verkefnum og rætt umsóknir. Nánari upplýsingar og skráning