19. nóvember 2026 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Leggja til einföldun á skattalegri umgjörð íþróttastarfsemi

Andri Stefánsson, Hlynur Ingason, Willum Þór Þórsson, Daði Már, Jónas Gestur Jónasson og Ingibjörg Helga Helgadóttir
Andri Stefánsson, Hlynur Ingason, Willum Þór Þórsson, Daði Már, Jónas Gestur Jónasson og Ingibjörg Helga Helgadóttir

Starfshópur sem fjármála- og efnahagsráðherra skipaði til að fara yfir skattaleg réttindi og skyldur aðila sem standa að íþróttastarfsemi hefur skilað skýrslu með tillögum að úrbótum. Hópnum var falið að leggja mat á hvaða leiðir væru færar til að efla og tryggja enn frekar skilvirkni, gagnsæi og jafnræði í skattskilum íþróttafélaga. Í skýrslunni eru lagðar fram tillögur sem eiga að skýra og einfalda skattalega umgjörð íþróttahreyfingarinnar.

Íþróttir spila mikilvægt hlutverk í lýðheilsu, tómstunda­starf­semi almennings og forvarnastarfi hjá börnum og ungmenn­um. Þar sem íþróttafélög eru almennt rekin  til almannaheilla og byggja að stórum hluta á starfi sjálfboðaliða taldi starfshópurinn mikilvægt að regluverkið sé bæði einfalt og fyrirsjáanlegt. Tillögurnar bætast við þær úrbætur sem tóku gildi í ársbyrjun 2026 þegar frítekjumark barna var hækkað úr 180.000 kr. í 300.000 kr., fjárhæðarmörk launa einstaklinga við sjálfstæða starfsemi voru hækkuð úr 450.000 kr. í 700.000 kr. og 60% endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna mannvirkjagerðar almannaheillafélaga var gerð varanleg.

Einfaldari framtalsskil vegna minni háttar tilfallandi starfa

Starfshópurinn leggur til breytingar til að einfalda og festa í sessi skattalegt hagræði einstaklinga og ungmenna sem afla takmarkaðra tekna af minni háttar tilfallandi störfum tengdum íþróttastarfsemi. Þannig myndu þau sem eru með tekjur undir ákveðnu árlegu fjárhæðarmarki, sæta einfaldara fyrirkomulagi við framtalsskil.

Skýrari og rýmri afmörkun íþróttastarfsemi í virðisaukaskatti

Starfshópurinn leggur til að undanþágur frá virðisaukaskatti verði skýrðar og tryggt að þær nái til fleiri þátta íþróttastarfsemi. Undir það fellur meðal annars að formfest verði að skipulagt starf í hugaríþróttum (skák og bridds) og rafíþróttum falli undir undanþáguna. Sömuleiðis æfingagjöld, mótsgjöld og leiga á sérútbúinni aðstöðu í því skyni.

Jafnframt eru lagðar fram tillögur um skýrari skilgreiningar á íþróttamannvirkjum, annarri sérútbúinni aðstöðu til íþróttaiðkunar og þeim búnaði sem telst eðlilegur hluti af slíkri starfsemi. Til að mynda að íþróttafélög þurfi ekki að greiða virðisaukaskatt af leigu ef aðstaðan er í húsnæði sem er ekki formlega skráð sem íþróttamannvirki og að tekin verði af tvímæli um að afnot af nauðsynlegum íþrótta- og aðstöðubúnaði teljist ekki skattskyld lausafjárleiga.

Þá leggur hópurinn til að mótsgjafir á barnamótum skerði ekki skattfrelsi þátttökugjalda eða aðgangseyris.

Tillögur um styrki, kostun og auglýsingar

Starfshópurinn leggur einnig til að reglur geri skýrari greinarmun á styrkjum til íþróttafélaga sem eru ekki skattskyldir og greiðslur sem fela í sér auglýsinga- eða kynningarþjónustu.

Þá eru lagðar fram tillögur um að heimilt verði að skipta greiðslum sem fela bæði í sér stuðning og tiltekið mótframlag í annars vegar óskattskyldan styrk og hins vegar skattskylda þjónustu, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Með því yrði komið í veg fyrir að virðisaukaskattur leggist á alla greiðsluna.

Fræðsla og samstarf

Loks leggur starfshópurinn til að Skatturinn og ÍSI verði í reglubundnu og markvissu samstarfi um fræðslu til íþróttafélaga um skattaleg málefni, bókhald og skattskil. Þannig verði unnt að efla þekkingu innan íþróttahreyfingarinnar, styrkja rétta framkvæmd reglna og auka gagnkvæmt traust milli íþróttafélaga og skattyfirvalda.

Starfshópurinn hafði til hliðsjónar leiðbeiningar Skattsins um skattskyldu íþróttastarfsemi og skoðaði framkvæmd á öðrum Norðurlöndum. Starfshópurinn var skipaður fulltrúum fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ). Formaður hópsins var Helga Jónsdóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu skattamála.

Var efnið hjálplegt?