Ráðherra undirritaði 56 reglugerðir
Samræmdara og skilvirkara eftirlit um land allt og skýrari ábyrgð á framkvæmd þess eru markmið 56 reglugerða sem Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur undirritað. Reglugerðirnar fylgja eftir lögum um einföldun eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og taka gildi 1. janúar 2027, samhliða nýju fyrirkomulagi eftirlits.
Með lögum nr. 82/2026, sem Alþingi samþykkti í sumar, eru heilbrigðisnefndir sveitarfélaga lagðar niður og framkvæmd eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og útgáfa starfsleyfa í meginatriðum færð til Umhverfis- og orkustofnunar. Reglugerðirnar laga gildandi regluverk að þessum breytingum og nýrri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
Markmið breytinganna eru í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um aukna skilvirkni í stjórnsýslu og einföldun leyfisveitinga og ferla.
Breytingarnar ná meðal annars til reglugerða um hollustuhætti, meðhöndlun úrgangs, varnir gegn mengun vatns, loftgæði og fráveitur og skólphreinsun. Flestar fela í sér að verkefni heilbrigðisnefnda færast til Umhverfis- og orkustofnunar, en tiltekin verkefni færast til sveitarfélaganna sjálfra. Jafnframt eru ákvæði og tilvísanir uppfærð til samræmis við nýtt fyrirkomulag.
Með sameiningu verkefna hjá Umhverfis- og orkustofnun skapast betri forsendur fyrir samræmdum vinnubrögðum og fyrirsjáanlegri þjónustu við fólk og fyrirtæki. Samhliða innleiðir stofnunin samræmt form eftirlitsskýrslna og með uppfærðu áhættumati er gert ráð fyrir að eftirlitsferðum til fyrirtækja sem standa sig vel fækki. Eftirlitinu verður áfram sinnt um allt land, enda kveða lögin á um að stofnunin hafi starfsfólk í öllum landshlutum.
Víðtæk einföldun á málefnasviði ráðuneytisins
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og ríkisstjórnin í heild hafa lagt ríka áherslu á einföldun regluverks, eins og meðal annars kemur fram í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og atvinnustefnu Íslands til 2035. Breytingarnar á eftirliti sem nú eru gerðar eru hluti af víðtækri einföldun á málefnasviði ráðuneytisins. Meðal annarra áfanga sem nú hafa náðst eru:
Í febrúar 2026 samþykkti Alþingi umfangsmestu breytingar á lagaumgjörð rammaáætlunar frá upphafi, með föstum tímafrestum og færri samráðsferlum.
Í mars 2026 voru gerðar breytingar á tólf lagabálkum til að einfalda og samræma leyfisferla í umhverfis- og orkumálum. Umhverfis- og orkustofnun getur nú sameinað ólík leyfi í eina leyfisveitingu, verkefni í orkunýtingarflokki fá forgangsmeðferð og ekki þarf lengur starfsleyfi fyrir hverja borframkvæmd.
Í júní samþykkti Alþingi frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits). Með lögunum eru heilbrigðisnefndir lagðar niður og framkvæmd eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum í meginatriðum færð til Umhverfis- og orkustofnunar.
Í október afgreiddi ríkisstjórnin frumvarp þar sem lagt er til að virkjunarleyfi, nýtingarleyfi, starfsleyfi og heimild til breytingar á vatnshloti verði gefin út sem eitt leyfi á innan við 18 mánuðum frá því að fullnægjandi umsókn berst.
Í október samþykkti Alþingi breytingu á lögum um menningarminjar og lögum um mannvirki sem felur í sér einföldun á umsýslu Minjastofnunar vegna mannvirkja sem byggð voru fyrir 1940.
Í nóvember var frumvarp um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða birt í samráðsgátt. Þar er meðal annars stefnt að því að ágreiningur um eignarnám verði að jafnaði leiddur til lykta á innan við tólf mánuðum, aflmörk rammaáætlunar hækkuð og dregið úr tvíverknaði í ferli umhverfismats.
Í nóvember mælti Jóhann Páll fyrir frumvarpi um breytingar á ýmsum lögum á sviði orkumála til innleiðingar á RED II-tilskipuninni um aukna notkun endurnýjanlegrar orku, sem m.a. felur í sér einföldun og styttingu leyfisferla vegna virkjana.
Þessu til viðbótar má nefna að starfsleyfisskyldu hefur verið létt af veitingastöðum og 16 öðrum flokkum atvinnurekstrar, til dæmis húðflúrstofum og íþróttahúsum, og nægir nú að skrá starfsemina. Einnig hefur krafan um auglýsingu starfsleyfa og fjögurra vikna umsagnartíma verið felld brott fyrir starfsemi sem heilbrigðisnefndir veita starfsleyfi fyrir fram til áramóta, sem flýtir afgreiðslu um allt að fjórar vikur.