20. nóvember 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Dómnefnd skilar umsögn um umsækjendur um tvö embætti héraðsdómara

4. september 2026 auglýsti dómsmálaráðuneytið tvö embætti héraðsdómara laus til umsóknar. Annars vegar er um að ræða skipun í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur og hins vegar setningu í embætti dómara við sama dómstól til og með 31. ágúst 2028.

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni til ráðherra. Það er niðurstaða dómnefndar að Tómas Hrafn Sveinsson sé hæfastur umsækjenda og að Þóra Hallgrímsdóttir standi honum næst að hæfni.

Dómnefndina skipuðu: Sigurður Tómas Magnússon, formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Jóhannes Sigurðsson og Reimar Pétursson.

Umsögn dómnefndar um hæfni umsækjenda

Var efnið hjálplegt?