Nauðsynlegt að undirbúa vernd menningarverðmæta áður en hætta skapast
Þriðjudaginn 10. nóvember síðastliðinn stóð menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið fyrir vinnustofu með varðveislustofnunum um vernd menningarverðmæta og viðbragðsáætlanir.
Tilefni vinnustofunnar er vinna við innleiðingu á Haag-samningnum frá 1954 um vernd menningarverðmæta í vopnuðum átökum sem öðlaðist gildi hér á landi árið 2023.
Með vinnustofunni vill ráðuneytið styðja stofnanir við að búa sig undir áföll og styrkja sameiginlega þekkingu á því hvernig best megi verja menningararfinn til framtíðar. Markmiðið er að efla viðbúnað vegna náttúruhamfara, sem íslenskar varðveislustofnanir hafa sannarlega reynslu af, sem og ógna af mannavöldum, þar á meðal hugsanlegra vopnaðra átaka. Þessi vinna kallar á samstarf stjórnvalda og stofnana sem bera ábyrgð á menningararfinum og þess vegna var á vinnustofunni lögð áhersla á faglegt samtal, miðlun reynslu og samstarf stofnana.
Sérfræðingar frá öllum varðveislustofnunum sem undir ráðuneytið heyra tóku þátt í vinnustofunni auk sérfræðinga frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, utanríkisráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, Minjastofnun, Safnaráði, Almannavörnum ríkislögreglustjóra auk Íslandsdeildar Bláa skjaldarins. Reynsla og þekking þátttakenda er mikilvægur grunnur að áframhaldandi samstarfi um vernd menningarverðmæta.
Nefnd sem menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra skipaði fyrr á þessu ári vinnur að frekari innleiðingu Haag-samningsins. Jafnframt er að störfum stýrihópur Stjórnarráðsins sem vinnur að eflingu áfallaþols og viðbúnaðar stjórnvalda.