27. nóvember 2026 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fjárhagsstaða heimila sterk og lítið breytt samkvæmt lífskjararannsókn Hagstofunnar

Jöfnuður ráðstöfunartekna á Íslandi á mælikvarða Gini-stuðuls var sá mesti í Evrópu 2025 samkvæmt tölum úr lífskjararannsókn Hagstofunnar sem voru birtar í vikunni. Hlutfallsleg fátækt var sú minnsta í álfunni og innan við 1% fólks býr við efnis- eða félagslega fátækt á mælikvarða rannsóknarinnar. Fjárhagsstaða heimila og útbreiðsla fjárhagserfiðleika á Íslandi breyttist heilt yfir lítið frá 2021 og fram á þetta ár en þróunin var ólík milli hópa. Í hópi ungs fólks og fólks með íbúðalán eiga nú fleiri erfitt með að ná endum saman en árið 2021 en meðal eldra fólks eiga færri erfitt með það.

Mikilvægar niðurstöður sem beðið hefur verið eftir

Lífskjararannsókn Hagstofunnar veitir einstaka innsýn í stöðu íslenskra heimila. Í rannsókninni eru heimili spurð um hag sinn með hætti sem er samanburðarhæfur þvert á Evrópulönd og svörin keyrð saman við upplýsingar sem Hagstofan hefur þegar undir höndum. Niðurstöður eru jafnframt birtar samkvæmt gæðastöðlum hagtalna, ólíkt flestum könnunum um hag heimila, en hagsmunaaðilar og aðrir láta oft gera kannanir um svipað efni sem ekki uppfylla slíkar kröfur. Niðurstöðurnar eru sérlega athyglisverðar þar sem sumir hagvísanna höfðu ekki verið uppfærðir í mörg ár.

Þar sem rannsóknin er úrtakskönnun eru niðurstöður birtar með óvissubili sem er þeim mun stærra eftir því sem smærri hópur er til skoðunar. Sökum tölfræðilegrar óvissu geta niðurstöður jafnframt sveiflast nokkuð milli ára og geta sveiflur, sem oft eru tölfræðilega ómarktækar, verið ólíkar milli misjafnra mælikvarða á fjárhagsstöðu. Af því leiðir að þeir sem fjalla um niðurstöðurnar komast stundum að ólíkri niðurstöðu um sama viðfangsefni og skauta á tíðum fram hjá tölfræðilegum óvissumörkum.

Hlutfallsleg fátækt sú minnsta í Evrópu – afar fáir búa við skort

Nýju tölurnar ná allt fram á þetta ár og miðar umfjöllunin hér við árið 2026 nema annað sé tekið fram. Með fáeinum undantekningum benda tölurnar til þess að lífskjör og fjárhagserfiðleikar íslenskra heimila hafi ekki breyst mikið undanfarin ár; breytingar síðan 2021 eru almennt innan tölfræðilegra öryggismarka.

Í tölunum eru ýmsir mælikvarðar á fátækt og fjárhagserfiðleika. Í umræðu um fátækt á Íslandi er oft fjallað um svokallað lágtekjuhlutfall, en það er hlutfall þeirra sem hafa ráðstöfunartekjur undir 60% af miðgildi ráðstöfunartekna í landinu að teknu tilliti til heimilisstærðar. Þetta er því mælikvarði á hlutfallslega fátækt sem þróast í takt við ráðstöfunartekjur yfir tíma; kaupmáttur þeirra sem teljast undir lágtekjumörkum er að öðru óbreyttu meiri í löndum þar sem meðalkaupmáttur er mikill, eins og á Íslandi, en þar sem hann er lítill.

9% einstaklinga á Íslandi teljast undir lágtekjumörkum árið 2026 og var hlutfallið það lægsta í Evrópu í fyrra sem rímar við það að jöfnuður tekna var hér sá mesti. Þróun bæði Gini-stuðuls og lágtekjuhlutfalls hér á landi síðan 2021 er innan tölfræðilegra skekkjumarka. Jöfnuður tekna er raunar enn meiri en áður var talið því áður birtar tölur um Gini-stuðul voru endurskoðaðar niður á við.

Mun færri búa við það sem kalla má efnis- eða félagslega fátækt, þ.e. verulegan skort á efnis- eða félagslegum gæðum, en hlutfallslega fátækt. Innan við 1% fólks telst búa við efnis- eða félagslega fátækt á þennan mælikvarða, hvort sem litið er á meðaltal áranna 2021-2026 eða tölur ársins í ár. Meðal þeirra hópa sem Hagstofan birtir er hlutfallið hæst hjá þeim sem búa í félagslegu leiguhúsnæði en jafnvel þar er það aðeins 2-3%.

75% heimila eiga auðvelt með að ná endum saman og hafa aldrei verið fleiri

Einn af þeim mælikvörðum sem lengst hefur verið mældur eru svör heimila við þeirri spurningu hversu erfitt er að ná endum saman. 75% heimila segja það nú auðvelt og hefur hlutfallið ekki mælst marktækt hærra síðan könnunin hófst 2004, þótt punktmatið árið 2022 hafi verið lítið eitt hærra (77%). Marktækt fleiri segjast nú eiga auðvelt með að ná endum saman en t.d. á góðærisárunum fyrir fjármálahrunið. Að sama skapi segjast marktækt færri eiga „mjög erfitt“ með það nú en þá; aðeins 4% heimila eru í þeim hópi. Þetta hlutfall hefur ekki mælst marktækt lægra en í ár, en hefur lítið breyst síðan 2020.

Einstæðir foreldrar eiga erfiðast með að ná endum saman

Um 21% heimila eru þarna á milli, þ.e. segja að það sé erfitt að ná endum saman en ekki mjög erfitt. Einstæðir foreldrar eru sá hópur, af þeim sem Hagstofan birtir, þar sem áberandi flestir segjast eiga erfitt eða mjög erfitt með að ná erfitt saman. 57% einstæðra foreldra segjast í þeirri stöðu samanborið við 44% heimila í neðsta fimmtungi tekjudreifingarinnar og 28% heimila þar sem fleiri en einn fullorðinn búa með börnum.

Ungt fólk á erfiðara með að ná endum saman en 2021 – eldra fólk auðveldara

Þróunin í hlutfalli einstæðra foreldra sem segjast eiga erfitt með að ná endum saman er innan tölfræðilegra skekkjumarka síðan 2021. Aftur á móti á marktækt fleira fólk á aldrinum 18-44 ára og marktækt færra fólk 60 ára og eldri erfitt með að ná endum saman nú en þá. Miðað við punktmat eiga jafnframt fleiri heimili með börn erfitt með að ná endum saman nú en árið 2021 á meðan færri heimili án barna eiga erfitt með það. Það rímar að einhverju leyti við það að hlutfallslega fleiri börn en fullorðnir búa nú á heimilum undir lágtekjumörkum. Í Danmörku, Noregi og Finnlandi er þessu öfugt farið.

Byrði húsnæðiskostnaðar lítið breyst hjá leigjendum, aukist hjá fólki með íbúðalán

Niðurstöður um þróun húsnæðiskostnaðar eru í takt við niðurstöður vinnuhóps um tekjuþróun og fjárhagsstöðu samfélagshópa sem kynnt var Þjóðhagsráði í september. Sú greining byggði á skattagögnum sem náði yfir þýði allra landsmanna og er að því leyti áreiðanlegri. Báðar benda þessar greiningar til þess að síðan 2021 hafi húsnæðiskostnaður aukist einna mest hjá 30-39 ára fólki og hjá fólki með húsnæðislán. Hlutfall þeirra sem greiða yfir 40% af ráðstöfunartekjum í húsnæðiskostnað er nú svipað hjá leigjendum eins og að meðaltali á tímabilinu síðan 2007 og um tvöfalt hærra meðal þeirra en meðal fólks með húsnæðislán, samkvæmt lífskjararannsókninni.

Í rannsókninni eru heimili einnig spurð hvort þau telji byrði húsnæðiskostnaðar vera þunga. Um 20% heimila telja svo vera. Hlutfall heimila sem svara þannig hækkaði milli 2021 og 2023 en hefur lítið breyst síðan þá og mælist nú svipað og um miðjan síðasta áratug. Hlutfallið er svipað meðal heimila á leigumarkaði og heimila með íbúðalán en áberandi hærra hjá ungu fólki en því eldra.

Var efnið hjálplegt?