27. nóvember 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið

Styrkir úr Lýðheilsusjóði fyrir árið 2027 lausir til umsóknar

Mynd: Stjórnarráðið
Mynd: Stjórnarráðið

Sérstök áhersla verður lögð á verkefni sem snúa að lýðheilsuáskorunum ungmenna við úthlutun styrkja úr Lýðheilsusjóði árið 2027 sem nú eru lausir til umsóknar. Áherslan er á andlega líðan (kvíða, vanlíðan og einmanaleika), skjánotkun, koffíndrykkju, hreyfingarleysi, ofbeldi, tóbaks- og nikótínnotkun, áfengi og önnur vímuefni, spilavanda, holdafar, næringu og svefn.

Hlutverk lýðheilsusjóðs er að styrkja lýðheilsustarf sem samræmist markmiðum laga um landlækni og lýðheilsu. Heilbrigðisráðherra ráðstafar fé úr sjóðnum að fengnum tillögum stjórnar sem skipuð er samkvæmt ákvæðum laganna. Embætti landlæknis annast daglega umsýslu Lýðheilsusjóðs samkvæmt reglugerð um sjóðinn.

Frestur til að sækja um styrk er til 17. desember næstkomandi.

Var efnið hjálplegt?