Aðgerðir til að efla virka ferðamáta: Verkefnastjórn hefur hafið störf
Verkefnastjórn sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra skipaði um aðgerðir til að efla virka ferðamáta hefur hafið störf. Hlutverk hennar verður að forgangsraða, fylgja eftir og stuðla að innleiðingu mikilvægra aðgerða á þessu sviði.
Grundvöllur vinnunnar eru tillögur starfshóps sem lagði í fyrra fram drög að stefnu um virka ferðamáta og smáfarartæki. Stefnudrögin voru lögð til grundvallar þegar ný samgönguáætlun fyrir tímabilið 2026-2040 var samþykkt á Alþingi í sumar. Markmið starfshópsins var að móta skýran ramma fyrir þróun samgöngukerfis þar sem gangandi, hjólandi og notendur smáfarartækja njóta öruggs, aðgengilegs og sjálfbærs umhverfis allt árið um kring.
Öryggi, aðgengi og gagnkvæmur skilningur
Þær aðgerðir sem liggja fyrir til að efla virka ferðamáta eru þrískiptar og falla undir eftirtalin meginmarkmið:
- Að auka öryggi óvarinna vegfarenda
- Bæta aðgengi að virkum ferðamátum
- Auka gagnkvæman skilning og virðingu á milli notenda ólíkra ferðamáta.
Aðgerðirnar eru fjölbreyttar og felast m.a. í því að bæta innviði, efla vetrarþjónustu, samræma hönnunarviðmið og skipulag og styðja við fræðslu og upplýsingagjöf. Þá voru settar fram tillögur um hagræna hvata, greiningarverkefni og mótun samgöngustefnu hjá opinberum vinnustöðum. Stefnt er að því að koma sem flestum aðgerðum til framkvæmd fyrir lok árs 2028.
Í verkefnastjórninni sitja eftirtalin:
- Ragnheiður Jónsdóttir, formaður, tilnefnd af innviðaráðuneytinu
- Valgerður Gréta Benediktsdóttir, tilnefnd af innviðaráðuneytinu
- Bryndís Friðriksdóttir, tilnefnd af Vegagerðinni
- Finnur Ricart Andrason, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Gunnar Geir Gunnarsson, tilnefndur af Samgöngustofu
Nánar um vinnu fyrri starfshóps
Skýrsla fyrri starfshóps um virka ferðamáta og smáfarartæki var afhent innviðaráðherra í júní 2025 og í henni voru annars vegar kynnt drög að stefnu og hins vegar tillögur að aðgerðaáætlun.