30. október 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Föstudagspóstur 30. október 2026

Heil og sæl,

Líkt og greint var frá í síðasta föstudagspósti þá undirritaði Þorgerður Katrín Gunnarsdótttir, utanríkisráðherra, í síðustu viku fríverslunarsamning EFTA-ríkjanna og Víetnam fyrir Íslands hönd í Hanoi, höfuðborg Víetnam. Þaðan lá leiðin til Kína þar sem hún hefur verið í opinberum erindagjörðum og fundaði m.a. í Peking í gær með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína. Tvíhliða samskipti Íslands og Kína voru efst á baugi, þ.á m. vaxandi viðskipti og tækifæri á sviði jarðhita og grænna orkulausna. Alþjóðamálin voru einnig rædd með áherslu á virðingu fyrir alþjóðalögum og mikilvægi alþjóðasamstarfs og var þar innrásarstríð Rússlands í Úkraínu í forgrunni. Ráðherra var heiðursgestur í móttöku í sendiráði Íslands í Peking þar sem því var fagnað að 55 ár eru liðin frá því að ríkin tvö tóku upp stjórnmálasamband.

Ráðherra sótti einnig sjávarútvegssýninguna í Qingdao í Kína í vikunni, en hún fór þar fyrir sendinefnd íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja sem stunda viðskipti í Kína. Gaman er að segja frá því að fiskútflutningur frá Íslandi til Kína fer vaxandi og beint flug milli landanna er hafið á vegum Air China sem opnar frekari tækifæri til útflutnings á ferskum fiski á Kínamarkaði.

Helsinki

Það var nóg um að vera hjá teyminu okkar í Helsinki í vikunni, en 78. þing Norðurlandaráðs fór þar fram undir yfirskriftinni Almennt öryggi á Norðurlöndum. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólamálaráðherra, og Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, sóttu þingið ásamt öðrum íslenskum þingmönnum. Sendiráðið okkar bauð í móttöku í tilefni Norðurlandaráðsþingsins og var fulltrúum hvaðanæva af Norðurlöndum boðið. Nína Björk Jónsdóttir, sendiherra, flutti ávarp um mikilvægi Norðurlandasamstarfs og samstarfs við Eystrasaltsríkin.

Fyrr í vikunni fundaði sendiherra einnig með Toumas Tapio, ráðuneytisstjóra finnska utanríkisráðuneytisins, ásamt öðrum sendiherrum í Helsinki.

Lilongwe

Alþingismennirnir Sigmundur Ernir Rúnarsson og Ingvar Þóroddsson, sem eiga sæti í þróunarsamvinnunefnd, og Þórarinna Söebech, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu, sóttu Malaví heim í vikunni. Þingmennirnir tveir voru í vinnuheimsókn til að kynna sér árangur íslenskrar þróunarsamvinnu, en skýrt dæmi um góðan árangur íslenskrar þróunarsamvinnu mátti sjá við formlega opnun nýs fæðingarspítala í Mangochi-héraði á mánudag. Opnun sjúkrahússins er stór áfangi í þróunarsamvinnu Íslands og Malaví og mun bæta verulega aðgengi um 155,000 íbúa á þessu afskekkta svæði og þá sérstaklega fyrir mæður og nýbura, en landið er eitt hið fátækasta í heimi. Sjúkrahúsið er byggt í samstarfi við íslenskra og malavískra stjórnvalda.

Síðan funduðu þau Sigmundur Ernir, Ingvar, Þórarinna og Davíð Björnsson, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Lilongwe, með utanríkisráðherra Malaví, George T. Chaponda.

Kaupmannahöfn

Alma Möller, heilbrigðisráðherra, stýrði 76. fundi Evrópunefndar Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (e. WHO) sem fór fram í Kaupmannahöfn í vikunni. Pétur Ásgeirsson, sendiherra, og sendiráðsteymið studdu við heimsókn ráðherrans og sat sendiherra einnig í sendinefnd Íslands á fundinum.

Kampala

Sendiráðið okkar í Kampala heimsótti nýlega CLF Uganda og kynntu sér verkefni samtakanna þar í landi. CLF Uganda eru frjáls félagasamtök í Úganda sem styðja við ungar stúlkur þar í landi sem standa höllum fæti í samfélaginu t.a.m vegna fátæktar, foreldramissis, barneigna og styrkja skólagöngu stúlkna.

Svo buðu norrænu sendiráðin í Kampala sendiherrum Afríkuríkja í borginni til hádegisverðar til að undirbúa fyrir fund utanríkisráðherra Norðurlanda og Afríkuríkja (NAFM) sem fer fram í Oslí 19. 20. nóvember.

Nýja-Delí

Benedikt Höskuldsson, sendiherra Íslands á Indlandi, sótti fund sem Sibi George, skrifstofustjóri málefna Evrópu í indverska utanríkisráðuneytinu, skipulagði fyrir sendiherra EFTA og ESB-ríkja á fund í vikunni til þess að ræða samstarf Indlands og Evrópuríkja.

Berlín

Sendiráð Íslands í Berlín og Sendiráð Þýskalands í Reykjavík efna til samkeppni um hönnun afmælismerkis í tilefni af 75 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Þýskalands. Sigurvegari mun hljóta 2,000 evrur eða 280 þúsund krónur og merkið verður notað af báðum löndum fyrir kynningarefni og viðburði!

Ottawa

Stuttmyndahátíð Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, The Bright Night, fór fram  í SAW miðstöðinni í Ottawa á mánudagskvöld. Framlag Íslands til hátíðarinnar var stuttmyndin "Veður ræður akri, en vit syni" eftir Kötlu Sólnes. Stuttmyndahátíðin er sameiginleg hátíð sendiráða Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í Ottawa.

Osló

Sendiráð Íslands í Osló bauð öllum átta kjörræðismönnum Íslands í Noregi til samráðsfundar. Rætt var við kjörræðismenn um starfsemi sendiráðsins, borgaraþjónustu, hagsmuni Íslands, norrænt varnarsamstarf og Evrópusamstarfs o.fl. Kjörræðismenn Íslands víða um heim sinna gríðarlega mikilvægri vinnu í þágu Íslands samhliða sínum daglegu störfum og styðja við Íslendinga í vanda, efla íslenskt menningar- og viðskiptalíf og margt fleira.

Róm

Samnorræna menningarhátíðin Norræni nóvember eða Novembre Nordico var opnuð í vikunni í menningarmiðstöðinni Circolo Scandinavo í Róm. Kynningarefnið í ár var hannað af Sunnevu Thomsen Halldórsdóttir.

Madríd

Kristján Andri Stefánsson, sendiherra okkar í Madríd, tók á mótu fulltrúum frá menningarmiðstöðinni Centro Botín í Santander á Norður-Spáni til að ræða mögulegt samstarf á sviði menningarmála.

Washington D.C.

Norrænu sendiráðin í Washington D.C. fóru í sameiginlega ferð til Chicago í vikunni til þess að ræða fjölmiðlafrelsi í fjölmiðlaskóla Northwestern University Medill háskóla ásamt fjölmiðlafólki frá Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð.

Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York

Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi okkar gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York, tók þátt í samstöðu meira en 70 ríkja í tengslum við umræðu allsherjarþingsins um konur, frið og öryggi.

Fastanefnd/Sendiráð Íslands í Genf

Á alþjóðlegum degi viturvakningar um psoriasissjúkdóminn tók Einar Gunnarsson, sendiherra og fastafulltrúi Íslands í Genf, tók þátt í umræðum sjúkdóminn, mannréttindi og aðgengi að heilbrigðisþjónustu ásamt fulltrúum alþjóðastofnana, samtaka og öðrum fastafulltrúum í Genf.
Var efnið hjálplegt?