3. nóvember 2026 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Lykill að samfélaginu: Morgunverðarfundur innflytjendaráðs og afhending styrkja

Innflytjendaráð stendur fyrir morgunverðarfundi miðvikudaginn 11. nóvember næstkomandi kl. 8:30-11:00. Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík og flutt verða margvísleg erindi sem öll tengjast málefnum innflytjenda.

Dagskránni lýkur með því að Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhendir styrki úr Þróunarsjóði innflytjendamála.

Morgunverðarfundurinn er ókeypis og öllum opinn en gestir eru beðnir um að skrá sig fyrir fram:

Skráning á morgunverðarfund

 

Lykill að samfélaginu

Morgunverður hefst 8:30 og dagskrá byrjar 8:40

Setning

Tomasz Chrapek, formaður innflytjendaráðs

New in Iceland – aðgengileg og hagnýt samfélagsfræðsla fyrir innflytjendur

Árni Sveinsson, verkefnastjóri Vinnumálastofnunar í JL-húsinu kynnir nýtt námsefni í samfélagsfræðslu sem ætlað er öllum innflytjendum á Íslandi.

Íslenskuspor – tengsl í gegnum tungumál

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum kynnir niðurstöður verkefnis sem unnið var í samstarfi við Reykjanesbæ og hlaut styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála árið 2025.

Spjallað um orðræðu kærleikans

Fanny Sanne Sissoko og Martyna Karolina Daniel frá Borgarbókasafni kynna niðurstöður úr verkefnum Borgarbókasafns í þágu innflytjenda og ræða hlutverk bókasafna í inngildingu.

Afhending styrkja úr Þróunarsjóði innflytjendamála 2026

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhendir styrki úr Þróunarsjóði innflytjendamála.

Fundarlok eru kl. 11:00

Var efnið hjálplegt?