29. október 2026 /
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Norrænt samstarf: Ráðherra leggur áherslu á jafnræði Færeyja, Grænlands og Álandseyja

{image.Description}

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda er staddur á 78. þingi Norðurlandaráðs í Helsinki. Þar koma saman 87 þingmenn ráðsins, ráðherrar og aðrir þátttakendur til að fjalla um norrænt samstarf.

„Norrænt samstarf byggist á sterkri samstöðu og sameiginlegum hagsmunum. Nú þurfum við að ná saman um endurskoðun Helsingforssamningsins og tryggja þátttöku Færeyja, Grænlands og Álandseyja á jafnræðisgrundvelli. Ísland styður það og ég hef lagt áherslu á að við finnum sameiginlega leið að því markmiði,“ segir Logi.

Samstarfsráðherrar kynntu jafnframt greinargerð um starfið og svöruðu spurningum þingmanna. Logi tók einnig þátt í fundum með forsætisnefnd Norðurlandaráðs og forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins. Þá sat hann fund samstarfsráðherra og hljóp í skarðið fyrir utanríkisráðherra Íslands við skýrslugjöf utanríkisráðherra Norðurlanda.

Menningin var einnig ríkjandi í ferðinni og var ráðherra viðstaddur afhendingu [verðlauna Norðurlandaráðs](verðlauna Norðurlandaráðs ) en að þessu sinni fóru öll fimm verðlaunin til Noregs.

Logi sótti einnig listasýninguna Arcana Borealis – Northern Women and Esotericism í Ateneum-listasafninu. Á sýningunni eru verk fjögurra íslenskra listakvenna, þeirra Gerðar Helgadóttur, Kristínar Gunnlaugsdóttur, Nínu Sæmundsson og Nínu Tryggvadóttur. Sýningin fjallar um tengsl myndlistar norrænna listakvenna við dulspeki, andlega leit og náttúruna og spannar tímabilið frá 19. öld til samtímans. Sýningin stendur út febrúar 2027.

Um norrænt samstarf

Um þing Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndina:

Opinbert samstarf Norðurlanda fer fram á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs, með þátttöku Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs, Svíþjóðar, auk Færeyja, Grænlands og Álandseyja. Norðurlandaráð er vettvangur þingmanna í samstarfinu og einn af hápunktum norrænna stjórnmála er Norðurlandaráðsþingið ár hvert. Norræna ráðherranefndin er opinber samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna þar sem unnið er að sameiginlegum lausnum á þeim viðfangsefnum sem samstarf Norðurlandanna getur skilað hvað mestum árangri.

Um verðlaun Norðurlandaráðs:

Menningarverðlaun Norðurlandaráðs (kvikmynda-, bókmennta-, barna og unglingabókmennta og tónlistarverðlaunin) hafa það að markmiði að auka sýnileika og áhuga á hinu norræna menningarsamstarfi auk þess að verðlauna framlag framúrskarandi listamanna. Verðlaunin eru mikils metin í menningarheimi Norðurlandanna og hafa þýðingu fyrir listamenn og menningarheim Norðurlandanna í heild sinni. Verðlaunin eru einnig mikilvægur hluti af því að vekja athygli á Norðurlöndunum sem sýnilegu og skapandi svæði. Að þessu sinni komu verðlaunahafar frá Noregi í öllum flokkum.