Tekið á móti fyrsta áætlunarfluginu frá Kína
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra var viðstaddur á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun þegar tekið var á móti fyrsta áætlunarfluginu frá Kína til Íslands.
Air China er fyrsta kínverska flugfélagið til að halda úti reglubundnu farþegaflugi til Íslands. Flogið verður frá Peking þrisvar í viku, á mánudögum, fimmtudögum og laugardögum, allan ársins hring, með viðkomu í Kaupmannahöfn.
Komu flugvélarinnar var fagnað með hátíðlegum hætti og meðal annars var vatni sprautað í boga yfir flugvél Air China við komuna til Keflavíkurflugvallar. Auk innviðaráðherra voru viðstaddir He Rulong, sendiherra Kina á Íslandi, Högni Kristjánsson, settur ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og fleiri gestir.
„Fyrir eyþjóð í Norður-Atlantshafi skiptir hver ný flugleið máli og koma Air China er því mikið fagnaðarefni. Kínverskir ferðamenn eru okkur mikilvægir og sérstaklega jákvætt að sjá áhuga þeirra á að heimsækja Ísland að vetri til, sem styrkir ferðaþjónustuna allt árið um kring. Flugleiðin opnar jafnframt öfluga viðskiptagátt fyrir íslenska útflytjendur. Þegar kemur að útflutningi á fersku sjávarfangi skiptir tíminn öllu máli og reglubundið flug milli Íslands og Kína skapar þar dýrmæt tækifæri,“ sagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra í ávarpi sínu af þessu tilefni.
Nýja flugleiðin eykur fjölbreytni í flugsamgöngum til og frá Íslandi og skapar tækifæri til að efla ferðaþjónustu, viðskipti og samskipti þjóðanna. Hún greiðir jafnframt fyrir samstarfi á sviði menningar og vísinda og gagnkvæmum heimsóknum.