Tilraunaverkefni hafið: Talþjálfun veitt í grunnskólum
Talmeinafræðingar frá Heyrnar- og talmeinastöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) taka til starfa í fjórum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Þetta er tilraunaverkefni til tveggja ára sem efnt er til að frumkvæði heilbrigðisráðuneytisins og felur í sér nýja nálgun í talmeinaþjónustu.
Löng bið hefur verið eftir þjónustu talmeinafræðinga undanfarin ár. Til að bregðast við þeirri stöðu ákvað heilbrigðisráðuneytið að efna til tilraunaverkefnis þar sem talmeinafræðingar starfa í grunnskólum og veita börnum þar þjónustu í nærumhverfi þeirra. Til að byrja með taka fjórir grunnskólar þátt í verkefninu og verður einn talmeinafræðingur frá Heyrnar- og talmeinastöð HH staðsettur í hverjum skóla. Til stendur að ráða fleiri talmeinafræðinga til að taka þátt í tilraunaverkefninu og útvíkka verkefnið þannig að það nái til fleiri skóla.
Anna Ósk Sigurðardóttir talmeinafræðingur sem leiðir verkefnið segir áætlað að um tíu til tólf prósent barna á grunnskólaaldri þurfi á þjónustu talmeinafræðinga að halda.
Verkefnið nær til barna með tal- og málmein sem falla undir viðmið Sjúkratrygginga Íslands. Þessi börn eru með alvarleg frávik í málþroska og framburði og hafa mörg hver beðið lengi á biðlistum eftir þjónustu.
„Það er mikið í húfi að börn í þessari stöðu fái snemmtæka þjónustu sem hefur því miður ekki verið raunin. Ég hef væntingar um að þetta tilraunaverkefni eigi eftir að þroskast hratt og verða liður í bættri þjónustu við börn um allt land“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.