ATHUGIÐ: Þessi grein er eldri en fimm ára.
21. september 2007
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Sérkennsla á framhaldsskólastigi
Auglýst er eftir sérkennara, þroskaþjálfa eða sérfræðingi með sambærilega menntun til að kenna fötluðum nemanda á framhaldsskólastigi. Kennsla fer fram í sérúrræði í Reykjavík. Umsækjandi þarf að hafa reynslu af starfi með einhverfum. Einnig er auglýst eftir stuðningsfulltrúa, þarf að hafa reynslu af starfi með einhverfum. Nánari upplýsingar veitir Ásgerður Ólafsdóttir, netfang: asgerdur.olafsdottir@mrn.stjr.is eða í síma 545 9500. Umsóknarfrestur er til 10. október 2007.