8. október 2026
/
Innviðaráðuneytið

Ný skýrsla ITF: Samhæfing almenningssamgangna, gjaldtöku og skipulags gerir samgöngur skilvirkari

{image.Description}
Haraldur Jónasson / Hari

International Transport Forum (ITF) er samráðsvettvangur fjölda ríkja í Afríku, Asíu, Evrópu, Suður-, Norður- og Mið-Ameríku á sviði samgangna. ITF hefur nýlega sent frá sér skýrslu um hvernig stuðla megi að skilvirkari samgöngum á þéttbýlum svæðum og efla þær samhliða. Skýrslan nefnist á ensku Demand Management to Facilitate Efficient Urban Transport (2026). Í skýrslunni er m.a. fjallað um álagningu kílómetragjalds hér á landi í upphafi þessa árs.

Helsta ályktunin sem dregin er í skýrslunni er að bestum árangri megi ná með því að tengja saman í eina stefnu ólíkum þáttum eins og gjaldtöku, almenningssamgöngum, skipulagsbreytingum og fleira.

Í skýrslunni er í grófum dráttum fjallað um hvernig stjórnvöld geta stýrt eftirspurn fólks eftir samgöngum og þannig nýtt innviði betur, dregið úr umferðartöfum og neikvæðum umhverfisáhrifum, auk þess að bæta aðgang. Eftirspurnarstýring (e. demand management) felst hvort tveggja í því að draga úr ferðum og að færa þær milli ferðamáta, staða og tíma. Í skýrslunni er lögð áhersla á að hverfa frá hefðbundinni „spá og byggja“ nálgun yfir í stefnu þar sem fyrst er skilgreint hvers konar borg og samgöngukerfi stjórnvöld vilja skapa og síðan ákveðið hvernig innviðir og stjórntæki styðja þá framtíðarsýn.

Í skýrslunni er sýnt fram á að þéttari og blönduð byggð með góða tengingu við almenningssamgöngur og heimili nálægt vinnustöðum og þjónustu geti dregið úr þörf fyrir langar bílferðir. Fyrir Ísland bendir þetta til þess að fjárfestingar í almenningssamgöngum og virkum ferðamátum skili mestum árangri ef uppbygging íbúða og atvinnustarfsemi fylgir sömu stefnu. Slík nálgun gæti átt vel við Ísland, m.a. á höfuðborgarsvæðinu þar sem fólksfjöldi er mestur og umferð mest.

Fjallað er sérstaklega um veggjöld sem lögð eru á eftir ekinni vegalengd. Þar kemur meðal annars fram að Ísland hafi í janúar 2026 orðið fyrsta ríkið til að leggja slíkt gjald á öll ökutæki. Í skýrslunni er það sett í samhengi við rafvæðingu bílaflotans. Minni eldsneytisnotkun hafi dregið úr tekjum ríkisins af bensín- og olíugjöldum. Lágur rekstrarkostnaður rafbíla hafi einnig hvatt til meiri aksturs. Með veggjöldum væri því bæði hægt að tryggja fjármögnun og stýra eftirspurn. Til lengri tíma litið gæti Ísland þróað kerfið þannig að gjaldtaka endurspegli betur tíma, staðsetningu og samfélagslegan kostnað umferðar.

Í skýrslunni er varað við því að verðlagning geti lagst hlutfallslega þyngra á tekjulægri hópa og fólk sem hefur fáa raunhæfa valkosti við einkabílinn. Til að draga úr þeim áhrifum megi til dæmis beina tekjum af gjaldtöku í bættar almenningssamgöngur. Þetta er sérstaklega mikilvægt á Íslandi vegna dreifðrar byggðar og mismunandi möguleika fólks á að velja ferðamáta.

Meginlærdómurinn er því að líta ekki á einstök úrræði — veggjöld, almenningssamgöngur, hjólreiðar eða skipulagsbreytingar — sem aðskildar lausnir. ITF leggur áherslu á samræmda langtímastefnu þar sem ólíkar aðgerðir styðja hver aðra, samvinnu innan stjórnsýslunnar og stöðugt mat á árangri. Því felist stærsta tækifærið í því að tengja fjármögnun, skipulag og fjölbreyttari ferðamáta saman í eina stefnu. Þannig megi bæta nýtingu innviða, aðgengi og lífsgæði án þess að kostnaður vegna breytinganna falli ójafnt á landsmenn.