Börn fá aukna fræðslu um gervigreind og netöryggi
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, undirrituðu sl. föstudag samstarfssamning um rekstur Netvís – Netöryggismiðstöðvar Íslands til þriggja ára. Samningurinn tengist aðgerðum í aðgerðaáætlun stjórnvalda í gervigreind og aðgerðaáætlun um málefni fjölmiðla
Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands heyrir undir Fjölmiðlanefnd og fer með samhæfingarhlutverk íslenskra samstarfsaðila á sviði netöryggis- og velferðarmála barna og ungmenna. Netvís hlaut nýlega vilyrði fyrir 55 millj. kr. árlegum styrk frá Evrópusambandinu, til þriggja ára, vegna þátttöku Íslands í verkefninu Safer Internet Centre. Verkefnið miðar að því að efla örugga, ábyrga og jákvæða netnotkun barna og ungmenna á Íslandi.
Verkefnastyrkirnir eru fjármagnaðir af styrkjaáætlun Evrópusambandsins Digital Europe Programme (DIGITAL-2025-BESTUSE-08) sem styrkir sambærileg verkefni í öðrum Evrópulöndum. Forsenda þess að styrkur fáist er að aðildarríki fjármagni 50% af heildarkostnaði verkefnis. Verkefnið er nú þegar fjármagnað að hluta á fjárlögum og 20 milljón króna viðbótarframlag á ári tryggir því fulla þátttöku Íslands í evrópsku samstarfi um netöryggi og vernd barna á netinu.
„Það er mikil eftirspurn eftir fræðslu á þessu sviði og Netvís hefur þar unnið gott starf. Fræðsla og upplýst umræða leiðir af sér gagnrýna hugsun sem er lykilinn að heilbrigðu samfélagi. Markmiðið með starfinu er að auka vitund, efla hugtakaskilning og valdefla notendur til þess að nota netið og mismunandi miðla á jákvæðan, öruggan og uppbyggilegan hátt," segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Aukinn kraftur og mikil eftirspurn
Með þessum stuðningi verður Netvís kleift að setja aukinn kraft í fræðsluverkefni sem efla munu upplýsinga- og miðlalæsi og netöryggi barna og ungmenna um allt land. Hlutverk Netvís er jafnframt að stuðla að vitundarvakningu meðal almennings og miðla fræðslu til allra aldurshópa um upplýsinga- og miðlalæsi. Starfsemi Netvís má kynna sér hér.
Með stuðningi stjórnvalda er sérstaklega horft til þess að:
- Tryggja fulla þátttöku Íslands í evrópsku netöryggis- og barnaverndarstarfi á netinu.
- Auka getu Netvís og samstarfsaðila til að fylgjast með þróun, veita stuðning, fræðslu og viðbrögð við nýjum áskorunum í stafrænu umhverfi barna, m.a. vegna örrar þróunar á sviði gervigreindar.
- Styrkja forvarnarstarf gegn neteinelti, kynferðisofbeldi og kynferðislegri áreitni, skaðlegu efni og mögulegum neikvæðum áhrifum gervigreindar á geðheilsu.
- Stuðla að innlendri stefnumótun og menntun í stafrænni borgaravitund.
- Sinna fræðslu um gervigreindarlæsi og áhrif gervigreindar á lýðræðismenningu um allt land.
- Efla alþjóðlegt samstarf og sýnileika Íslands innan ESB og EES í netöryggismálum barna og ungmenna.