23. október 2026
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Forsætisráðuneytið

Fátækt á ekki að ráða framtíð barna: Málþing um fátækt barna 29. október

{image.Description}

Ekkert barn á Íslandi á að þurfa að líða skort, fara svangt að sofa eða þurfa að sitja heima þegar hin fara á æfingu. Öll börn eiga rétt á að vera með, njóta sín og fá tækifæri til að láta drauma sína rætast.

Samt búa um 10.500 börn á Íslandi á heimilum undir lágtekjumörkum. Á bak við þá tölu eru börn sem eiga sömu vonir og önnur börn. Við getum ekki sætt okkur við að fjárhagur foreldra ráði tækifærum þeirra.

Hvað þarf að breytast – og hvernig látum við það gerast?

Mennta- og barnamálaráðuneytið, forsætisráðuneytið og Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands boða til málþings fimmtudaginn 29. október kl. 8:30–10:30 í Veröld – húsi Vigdísar við Háskóla Íslands. Allir eru velkomnir.

Þar verða kynntar helstu niðurstöður skýrslunnar Fátækt barna og staða barnafjölskyldna – samfélagslegur kostnaður vegna fátæktar, skýrsla III. Samkvæmt henni búa um 30% barna einstæðra foreldra við fátækt, samanborið við um 8% barna sem búa með tveimur foreldrum. Niðurstöðurnar sýna jafnframt tengsl fjárhagsstöðu við heilsu barna, líðan og félagslegar aðstæður.

Til umræðu verða einnig drög að fyrstu heildstæðu stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna á Íslandi, sem Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, kynnti til samráðs í september.

Hvernig náum við betur til barnanna sem þurfa á stuðningi að halda? Hvaða breytingar létta undir með fjölskyldum og tryggja að börn geti tekið þátt?

Að loknum erindum verður opið samtal um niðurstöðurnar og næstu skref.

Börn geta ekki beðið eftir betri tíð. Mætum, tökum samtalið og finnum leiðir til að jafna tækifæri allra barna.

Dagskrá

08:30-09:00:
Móttaka og morgunkaffi

09:00-09:10:
Ávarp mennta- og barnamálaráðherra Inga Sæland

09:10-09:35:
Fátækt barna og staða barnafjölskyldna, helstu áskoranir og niðurstöður nýlegrar skýrslu: Kolbeinn Stefánsson og Halldór S. Guðmundsson

09:35-09:50:
Þátttaka barna og ungmenna á Íslandi í skóla- og frístundastarfi: Misjöfn tækifæri - Ragný Þóra Guðjohnsen og Hans Haraldsson

09:50-10:00:
Aðgerðir gegn fátækt barna: Stefna, framkvæmd og framtíðarsýn - Kolbrún Áslaug Baldursdóttir

10:00-10:20:
Samtal við hagaðila um leiðir til að draga úr fátækt barna. Frá rannsóknum til aðgerða.

  • EAPN á Íslandi – Samtök gegn fátækt og félagslegri einangrun - Hildur Oddsdóttir
  • Stattu með sjálfri þér – Hjálparstarf Kirkjunnar - Birgitta Baldvinsdóttir og Eva Björk Jónsdóttir
  • Varða – rannsóknastofnun vinnumarkaðarins - Kristín Heba Gísladóttir

Samantekt og lokaorð:
Salvör Nordal – Umboðsmaður barna

Var efnið hjálplegt?