Mál nr. 231/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 231/2026
Miðvikudaginn 26. ágúst 2026
A
gegn
Tryggingastofnun ríkisins
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Unnþór Jónsson lögfræðingur og Kristinn Tómasson læknir.
Með kæru, móttekinni 23. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 18. desember 2025 þar sem umsókn kæranda um örorkulífeyri var synjað.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um örorkulífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins með umsókn 27. október 2025. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 18. desember 2025, sem var birt 22. desember 2025, var umsókn kæranda synjað á þeim forsendum að endurhæfing/viðurkennd meðferð væri ekki fullreynd.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. mars 2026. Með bréfi, dags. 27. mars 2026, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 10. apríl 2026, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. apríl 2026. Viðbótargagn og athugasemdir bárust frá kæranda 16. júní 2026 sem voru sendar Tryggingastofnun ríkisins til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. júní 2026. Frekari athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru kemur fram að kærð sé ákvörðun Tryggingastofnunar, dags. 18. desember 2025, um að hafna umsókn um örorkubætur, sem hafi borist í stafrænt pósthólf á Ísland.is þann 22. desember 2025. Í ákvörðuninni komi fram að umsókninni hafi verið hafnað á þeirri forsendu að endurhæfing/viðurkennd meðferð hafi ekki verið fullreynd. Gerð sé sú krafa að úrskurðanefndin snúi við ákvörðun Tryggingastofnunar og samþykki umsókn hans um örorkulífeyri.
Kærandi hafi árið X fótbrotnað í slysi til sjós. Í kjölfarið hafi hann verið í meðferð og hafi farið í fleiri en eina aðgerð á fæti bæði á Landsspítalanum og á stofu hjá B bæklunarskurðlækni sem hafi ekki borið árangur. Kærandi hafi farið í endurhæfingu hjá C sjúkraþjálfari hjá D og hafi verið í meðferð hjá honum síðast 2012 sem hafi ekki heldur borið árangur. Bæði B og C hafi talið ljóst á þeim tíma að endurhæfing væri fullreynd. Síðar hafi kærandi farið til D sjúkraþjálfara 2015 vegna sama vanda en meðferð hjá honum hafi ekki borið árangur.
Eftir ákvörðun stofnunarinnar hafi kærandi haft samband við C til að fá hjá honum gögn. Á þessu ári hafi kærandi farið í nokkra tíma hjá honum í janúar til mars en meðferðin hafi ekki borið árangur nú frekar en áður. Það sé enn mat C að engar líkur séu á að kærandi fái frekari bata og því sé endurhæfing vegna slyssins 2010 fullreynd. Kærandi hafi einnig fengið tíma hjá E bæklunarskurðlækni 19. febrúar 2026. E hafi skoðað kæranda og lesið sér til um málið í gögnum bæði frá C og öðrum læknum og meðferðaraðilum sem kærandi hafði verið í meðferð hjá eftir slysið. E hafi talið að inngrip myndi ekki breyta stöðunni og það væri ekkert frekar hægt að gera. Staðan sé því sú að kærandi sé óvinnufær vegna verkja sem séu afleiðingar slyssins 2010. Samkvæmt upplýsingum frá meðferðaraðilum hafi Tryggingastofnun aðgang að sjúkragögnum frá þeim.
Kærandi hafi skilað inn umsókn til Tryggingastofnunar haustið 2025 og hafi svarað spurningalista stofnunarinnar. Við meðferð málsins hafi kæranda ekki borist skilaboð um að stofnuninni hefði vantað gögn til að geta framkvæmt sérfræðimat sitt heldur hafi umsókninni verið hafnað með bréfi, dags. 18. desember 2025. Það hljóti að teljast eðlileg afgreiðsla, sérstaklega í ljósi ríkrar skyldu stofnunarinnar til upplýsingaöflunar og ríkrar skyldu heilbrigðisstarfsmanna sem beri ábyrgð á vörslu sjúkraskráa að veita Tryggingastofnun upplýsingar sem nauðsynlegar séu vegna ákvarðanatöku stofnunarinnar, að stofnunin gefi umsækjanda færi á að afla frekari gagna áður en íþyngjandi ákvörðun um rétt til lífeyrisgreiðslna sé tekin. Rétt sé að taka fram að tryggingalæknir hafi hvorki skoðað kæranda né verið í sambandi við hann varðandi umsóknina áður en henni hafi verið hafnað.
Með vísan til framangreinds telji kærandi að forsendur Tryggingastofnunar fyrir höfnun umsóknar um örorkulífeyri eigi sér hvorki stoð í lögum né í gögnum málsins. Í IV. kafla laga um almannatryggingar sé kveðið á um rétt til örorkulífeyris, sbr. 24. gr. laganna. Í 26. gr. sé fjallað um samþætt sérfræðimat sem Tryggingastofnun beri ábyrgð á að gera en samkvæmt ákvæðinu sé matið forsenda fyrir greiðslu örorkulífeyris samkvæmt 24. gr. Tryggingastofnun sé heimilt að víkja frá skilyrði um samþætt sérfræðimat ef slíkt mat sé bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar. Samkvæmt 2. mgr. 26. gr. skuli endurhæfing eða viðurkennd meðferð sem hafi það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða hluta vera fullreynd. Í 3. mgr. 26. gr. laganna sé kveðið á um að Tryggingastofnun skuli við framkvæmd samþætts sérfræðimats byggja á fyrirliggjandi gögnum um færni umsækjanda til atvinnuþátttöku og árangur endurhæfingar eftir því sem við eigi. Skuli matið vera byggt á þáttum sem lúti að færni, aðstæðum (umhverfis- og einstaklingsbundnum þáttum) og heilsu í víðum skilningi. Í ákvæðinu sé einnig kveðið á um að stofnunin skuli afla annarra nauðsynlegra gagna og upplýsinga í samræmi við V. kafla laganna, eftir því sem við eigi og óska eftir umsögnum sérfræðinga ef þörf sé á. Í V. kafla sé kveðið á um leiðbeiningar- og upplýsingaskyldu og eftirlitsheimildir Tryggingastofnunar. Þar segi m.a. í 3. málsl. 1. mgr. 45. gr. að stofnunin skuli leiðbeina umsækjanda um réttarstöðu hans og þau gögn sem þurfi að fylgja umsókn hans. Í 46. gr. sé kveðið á um að stofnunin skuli sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun um bótarétt sé tekin þ. á m. að öll nauðsynleg gögn og upplýsingar liggi fyrir.
Með vísan til framangreinds telji kærandi ljóst að ákvörðun Tryggingastofnunar eigi sér hvorki stoð í lögum né í gögnum málsins. Enn fremur telji kærandi að Tryggingastofnun hefði átt að afla gagna frá meðferðaraðilum og/eða leiðbeina honum hafi stofnunina vantað gögn til að upplýsa málið áður en ákvörðun hafi verið tekin. Gerð sé sú krafa að úrskurðanefndin snúi við ákvörðun Tryggingstofnunar og samþykki umsókn hans um örorkulífeyri.
Í athugasemdum kæranda frá 15. júní 2026 kemur fram að læknisvottorð sem heimilislæknir kæranda hafi sent til Tryggingastofnunar hafi annars vegar að geyma upplýsingar varðandi veikindi/brjósklos árið 2001 og hins vegar upplýsingar varðandi slys sem kærandi hafi orðið fyrir til sjós sem séu e.t.v. ekki fullnægjandi varðandi upplýsingar um málsatvik og tilvísanir til læknismeðferðar.
Í framangreindri umsögn Tryggingastofnunar sé m.a. vísað til þess að ekki hafi verið látið reyna á endurhæfingu og að kærandi hafi ekki fullreynt öll þau meðferðar- og endurhæfingarúrræði sem honum hafi staðið til boða. Einnig segi að endurkoma á á vinnumarkað sé enn talin raunhæf og að heildræn meðferð eða endurhæfing sem taki markvisst á heilsuvanda geti enn skilað árangri. Þá sé einnig vísað til fyrirliggjandi upplýsinga og telji sérfræðingar Tryggingastofnunar rétt að láta reyna á frekari endurhæfingu áður en til samþætts sérfræðimats komi. Niðurstaða stofnunarinnar sé því sú að skilyrði 2. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar séu ekki uppfyllt þar sem endurhæfing eða viðurkennd meðferð hafi ekki verið fullreynd.
Umsóknin varði afleiðingar slyss sem kærandi hafi orðið fyrir […] 2011 um borð í fiskiskipi. Kærandi hafi ekki komist undir læknishendur fyrr en skipið hafi komið til hafnar viku eftir slysið, hann hafi þá verið lagður inn til aðgerðar á ökkla og hafi legið á Landsspítala 5.–7. maí 2011 vegna þess. Í kjölfarið hafi kærandi verið undir eftirliti og til meðferðar hjá læknum og sjúkraþjálfara. Við aðgerðina á Landsspítala hafi brotið verið sett í réttar skorður, fest með plötu og skrúfum og gifsspelka sett á. Skrúfur hafi verið fjarlægðar 22. júlí 2011 og beinfestibúnaður hafi verið fjarlægður í lok október 2011.
Læknisvottorð og gögn frá F og G bæklunarlækni staðfesti þetta. G hafi 17. janúar 2012 sent kæranda til til B bæklunarlæknis í Orkuhúsinu. Kærandi hafi verið í meðferð hjá B í nokkurn tíma, hann hafi meðal annars farið í speglun og sterasprautur, sem hafi ekki borið árangur og hafi hann metið að meðferð væri fullreynd.
Kærandi hafi einnig verið í meðferð hjá C sjúkraþjálfara í tvígang á þessum tíma eða frá júní 2011 til maí 2012, en sú meðferð hafi ekki heldur borið árangur.
Í kjölfar synjunar Tryggingastofnunar hafi kærandi farið til C sjúkraþjálfara sem hafi tekið hann aftur til skoðunar og niðurstaða hans sé enn sú sama.
Kærandi hafi einnig komist að hjá E bæklunarlækni í Orkuhúsinu eftir áramótin. Niðurstaða hans hafi verið sú samkvæmt meðfylgjandi læknabréfi, dags. 2. júní 2026, að ekki sé hægt að aðhafast meira og meðferð sé fullreynd.
Í málinu sé til nokkuð mikið af gögnum og rétt sé að hafa til hliðsjónar læknisvottorð F og G bæklunarlæknis, sem hafi starfað á Landsspítala 2011, læknisvottorð B bæklunarlæknis og C sjúkraþjálfara. Einnig sé rétt að hafa hliðsjón af niðurstöðum E bæklunarlæknis sem staðfesti það sem fram komi hjá B og C.
Staða kæranda sé sú að hann sé með verki í ökkla sem hafi farið versnandi, sbr. læknisvottorð H heimilislæknis.
Þeirri staðhæfingu í umsögn Tryggingastofnunar um að meðferð hafi ekki verið fullreynd sé mótmælt og vísað sé til læknisvottorða og gagna frá framangreindum meðferðaraðilum. Það sé mat tveggja bæklunarlækna og sjúkraþjálfara sem hafi haft kæranda til meðferðar að meðferð komi ekki til með að bera árangur og að meðferð sé fullreynd.
Með vísan til framangreinds sé farið fram á að ákvörðun Tryggingastofnunar verði felld úr gildi og umsókn um örorku verði samþykkt.
III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins
Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kæra varði synjun á umsókn kæranda um örorku- og hlutaörorkulífeyri.
Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar sé réttur til örorkulífeyris bundinn því skilyrði að geta umsækjanda til virkni á vinnumarkaði samkvæmt samþættu sérfræðimati sé metin 25% eða minni til langframa vegna langvarandi eða alvarlegs heilsubrests eða fötlunar.
Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laganna sé réttur til hlutaörorkulífeyris bundinn því skilyrði að geta umsækjanda til virkni á vinnumarkaði samkvæmt samþættu sérfræðimati sé metin 26–50% vegna langvarandi eða alvarlegs heilsubrests eða fötlunar.
Samkvæmt 1. mgr. 26. gr. laganna beri Tryggingastofnun ábyrgð á gerð samþætts sérfræðimats sem sé forsenda fyrir greiðslu örorkulífeyris samkvæmt 24. gr. og hlutaörorkulífeyris samkvæmt 25. gr. Þá segi að í niðurstöðum matsins skuli koma fram hver geta viðkomandi einstaklings til virkni á vinnumarkaði sé.
Í 3. mgr. 26. gr. laganna segi að við framkvæmt samþætts sérfræðimats skuli Tryggingastofnun byggja á fyrirliggjandi gögnum um færni umsækjanda til atvinnuþátttöku og árangur endurhæfingar eftir því sem við eigi. Þá segi að matið skuli m.a. vera byggt á þáttum sem lúti að færni, aðstæðum (umhverfis- og einstaklingsbundnum þáttum) og heilsu í víðum skilningi. Að lokum segi að stofnunin skuli afla annarra nauðsynlegra gagna og upplýsinga, í samræmi við V. kafla, eftir því sem við eigi og óska eftir umsögnum sérfræðinga ef þörf sé á.
Í 2. mgr. 26. gr. segi að áður en til samþætts sérfræðimats komi skuli endurhæfing eða viðurkennd meðferð sem hafi það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta vera fullreynd.
Kærandi hafi hvorki þegið endurhæfingarlífeyri né sjúkra- og endurhæfingargreiðslur. Kærandi hafi sótt um örorkulífeyri með umsókn 27. október 2025, auk þess sem stofnuninni hafi einnig borist læknisvottorð, dags. 2. október 2025, og spurningalisti vegna færniskerðingar, dags. 11. nóvember 2025.
Með bréfi, dags. 18. desember 2025, hafi umsókn kæranda um örorku- og hlutaörorkulífeyri verið synjað þar sem endurhæfing hafi ekki verið talin fullreynd. Samþætt sérfræðimat hafi verið talið óþarft.
Í greinargerð Tryggingastofnunar er greint frá sjúkdómsgreiningum sem tilgreindar eru í læknisvottorði H, dags. 2. október 2025, ásamt upplýsingum um heilsuvanda og færniskerðingu nú.
Að lokum segi í vottorðinu að það sé mat læknisins að kærandi hafi verið óvinnufær frá 29. janúar 2024 og að ekki megi búast við að færni muni aukast.
Í greinargerð Tryggingastofnunar er greint frá svörum kæranda við spurningalista vegna færniskerðingar, dags. 11. nóvember 2025.
Þá segir að samkvæmt 2. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar skuli endurhæfing eða viðurkennd meðferð sem hafi það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta vera fullreynd áður en til samþætts sérfræðimats komi.
Við mat á mögulegum árangri af frekari meðferð eða endurhæfingu hafi verið litið til þess að kærandi glími við heilsubrest sem sé talinn endurhæfanlegur. Af fyrirliggjandi gögnum verði ekki séð að kærandi hafi látið reyna á endurhæfingu. Kærandi hafi þar af leiðandi ekki fullreynt öll þau meðferðar- eða endurhæfingarúrræði sem honum standi til boða og endurkoma kæranda á vinnumarkað sé þess vegna enn talin raunhæf.
Niðurstaða mats á mögulegum árangri af frekari meðferð eða endurhæfingu hafi verið sú að heildræn meðferð eða endurhæfing sem taki markvisst á heilsuvanda kæranda geti enn skilað árangri. Endurhæfing sé því ekki talin fullreynd. Ekki verði ráðið af fyrirliggjandi upplýsingum að frekari endurhæfing geti ekki stuðlað að aukinni færni til atvinnuþátttöku. Sérfræðingar Tryggingastofnunar telja því rétt að kærandi láti reyna á frekari endurhæfingu áður en til samþætts sérfræðimats komi.
Kærandi uppfylli því ekki skilyrði 2. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar um að endurhæfing eða viðurkennd meðferð, sem hafi það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta, skuli vera fullreynd.
Kærð ákvörðun sé í samræmi við lög og reglur sem gildi um rétt til örorku- og hlutaörorkulífeyris.
Með hliðsjón af framangreindu fari Tryggingastofnun því fram á að ákvörðun frá 18. desember 2025 um synjun á umsókn kæranda um örorku- og hlutaörorkulífeyri verði staðfest.
IV. Niðurstaða
Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 18. desember 2025, þar sem kæranda var synjað um örorkulífeyri. Ágreiningur málsins lýtur að því hvort heimilt hafi verið að synja kæranda um örorkulífeyri samkvæmt 24. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar á þeim grundvelli að endurhæfing/viðurkennd meðferð hafi ekki verið fullreynd.
Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. laga um almannatryggingar er réttur til örorkulífeyris bundinn því skilyrði að geta umsækjenda til virkni á vinnumarkaði samkvæmt samþættu sérfræðimati sé metin 25% eða minni til langframa vegna langvarandi eða alvarlegs heilsubrests eða fötlunar.
Samkvæmt 1. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ábyrgð á gerð samþætts sérfræðimats sem er forsenda fyrir greiðslu örorkulífeyris samkvæmt 24. gr. og hlutaörorkulífeyris samkvæmt 25. gr. Í 2. mgr. 26. gr. er tilgreint að áður en til samþætts sérfræðimats komi skuli endurhæfing eða viðurkennd meðferð sem hafi það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta vera fullreynd. Tryggingastofnun er heimilt að víkja frá því skilyrði ef það er bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar.
Í 27. gr. laga um almannatryggingar er fjallað um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur. Svohljóðandi eru 1. og 5. mgr.:
„Heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur þegar einstaklingur, sem býr við langvarandi eða alvarlegan heilsubrest, eða fötlun, sem talinn er geta haft áhrif til frambúðar á getu hans til virkni á vinnumarkaði, fær viðurkennda meðferð eða tekur virkan þátt í endurhæfingu með það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta. Forsenda fyrir greiðslum er að heilsubrestur einstaklings sé afleiðing af sjúkdómi, slysi eða áfalli og skal við það miðað að heilsubrestur eða fötlun valdi því að hlutaðeigandi einstaklingur geti hvorki stundað vinnu né nám. Heimilt er þó að líta á þátttöku á vinnumarkaði eða nám sem lið í endurhæfingu eða viðurkenndri meðferð að því tilskildu að atvinnuþátttakan eða námið þjóni markmiði viðurkenndrar meðferðar eða endurhæfingar samkvæmt fyrirliggjandi endurhæfingaráætlun.
[…]
Heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að 60 mánuði en þó að hámarki í 12 mánuði í senn. Heimilt er að framlengja greiðslutímabilið um allt að 24 mánuði ef um er að ræða einstakling í mjög viðkvæmri stöðu sem vegna fjölþætts vanda er talinn þarfnast frekari viðurkenndrar meðferðar eða endurhæfingar. Þá er auk þess heimilt að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að þrjá mánuði eftir að endurhæfingu lýkur, að því tilskildu að greiðsluþegi sé skráður í atvinnuleit hjá Vinnumálastofnun eða öðrum þjónustuaðila og samþætt sérfræðimat liggi ekki fyrir sem sýni getu til virkni á vinnumarkaði 50% eða minni.“
Í reglugerð nr. 933/2025 er fjallað nánar um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur.
Fyrir liggur læknisvottorð H, dags. 2. október 2025, þar sem greint er frá eftirfarandi sjúkdómsgreiningum:
„NEURALGIA AND NEURITIS, UNSPECIFIED
PAIN IN JOINT
VERKUR Í ÚTLIM
FRACTURE OF LATERAL MALLEOLUS“
Um fyrra heilsufar segir að kærandi hafi lengst af verið hraustur. Um heilsuvanda og færniskerðingu nú segir:
„Í janúar 2001 kvartar A um verki á vi. trochanter svæði sem thann taldi álagstengda. Kvaðst hann hafa verið slæmur á þessu svæði e. að hafa skollið […] við vinnu 1990. Tekin var Rtg af lærlegg en þar sáust minimal degenaratifar breytingar í mjaðmarlið og engar mjúkpatakalkanir. Var einnig gerð TS af lendhrygg sem sýndi slit í facettuliðum, bungandi diska, einkum L4-L5 og L5 og L5-S1 vinstra megin og í L5-S1 í bilinu náði þetta að mynda lítilsháttar focal útbungun, þannig lítil breiðbasa hernia þarna. Spinal stenosa í L3-L4 bilinu.
Reynt var að sprauta í triggerpunkta en ekkert dugði. Var sendur til sj. þjálfara en lagaðist lítið. 17.7.2002 var svo gerð MRI af baki.
Svar: Töluverð afturbungun á disci, liggur meira yfir til vi. og þrýstir á sekk og vi. S1 rótina. Er þetta að sjá meira en sást á síðustu rannsókn 2001.
Miklar slit- og disc- deg. breytingar, prolaps L5-S1 sin., nú meira áberandi samanborið við rannsókn í mars 2001. Endaði svo með op. hjá I 18. sept. 2002. Varð verkjalaus og hélst svo þar til hann dettur á rassinn eða bakið í des 2002. Fór þá að finna verki aftur. Myndir sýndu engar nýtilkomnar breytingar í hrygg aðrar en óreglu á mótum coccyx og sacrum sem gæti bent til nýlegs brots. Þurfti J. verkjalyf í mismiklu mæli allt árið 2003, ýmist Parkodin forte eða Nobligan. Var með verkjaleiðni í vi. ganglim niður að hné af og til, álagstengt, verst eftir vinnu. Þann 12. mars 2004 er enn gerð MRI af lendhrygg. Svar : Sagittal T1 og T2 frá Th 10 niður fyrir mitt sacrum. Til samanburðar er rannsókn frá 23.07.02. Eins og fyrr eðlilegt útlit á conus - regio og almennt óbreytt eðlilegt signal frá beini. Það er deg. breytingar í öllum lenddiskum. Þá hafa tilkomið örbreytingar á L5-S1 bilinu, en annað er óbreytt með deg. breytingum í hryggnum, mest deformeraður og þrengt er hryggurinn í hæð við L3-L4 en það hefur ekkert aukist.
NIÐURSTAÐA:
Óbreytt frá síðast.
Nýtilkomnar örbreytingar á bilinu L5-S1 vinstra megin.
Má þá segja að stoðkerfisleg heilsufarssaga A. fram að vinnuslysi […] 2011 sé tæmd. Hann mun hafa orðið fyrir einhverju hnjaski um borð í J þennan dag. Ekki hef ég fengið nein gögn um þetta óhapp annað en nótur frá G bæklunarlækni sem gerði aðgerð á A. þann 6. maí 2011. Þar kemur fram að hann hafi misstigið sig. Hann var svo tekinn til aðgerðar vegna gruns um syndesmosurofs sem þó er ekki getið í aðgerðarlýsingu sbr neðan.
"Lega: 05.05.2011 - 07.05.2011:
Sjúkdómsgreining/-ar:
Fracture of lateral malleolus, S82.6
Aðgerðir/Meðferðir:
06.05.2011: Internal fixation of fracture of ankle or foot using plate and screws; lateral malleolus, NHSJ60 (G)
06.05.2011: Open reduction of fracture of ankle or foot; lateral malleolus, NHSJ10 (G)
06.05.2011: Custom moulded splint; ankle and foot, NHXX32 (G)
Left side, ZXXA05
Sjúkrasaga: Sjómaður sem missteig sig illa úti á sjó rúmri vikur fyrir komu á slysadeild þar sem hann var nýkominn í land. Eftir yfirferð á myndum er ákveðið að taka hann til aðgerðar vegna brots á lateral malleolus og gruns um syndesmosu slits. Aðgerð er framkv. 06.05. af undirrituðum.
Post op.:
Fær hann sýklalyf í sólarhring þar sem þetta er gamalt brot sem er farið inná. Er hann án ástigs og endurkoma til G eftir tvær vikur með rtg. Fær hann per os sýklalyf sent rafrænt. Skrifuð rtg. beiðni.
Pre-op mat:
Sjómaður sem missteig sig úti á sjó fyrir rúmri viku síðan, en fyrst að koma í land í gær og settur upp til aðgerðar vegna lateral brots og gruns um syndesmosuslit.
Síðan þetta var hefur A verið með verki frá vi. fæti og ökklasvæði með leiðni upp fótlegginn lat. Hann hefur ekki getað snúið til fyrri starfa v. verkja. Hann reyndi að vinna 100% um tíma en gafst upp. Er nú með öllu óvinnufær .“
Í lýsingu læknisskoðunar segir:
„Merki e. aðgerðir á vi. ökkla. Hann er bólginn yfir ökklalið. Aumur við palp. yfir syndesmosu, svol. vökvaukning í lið. Ekki áberandi hiti, ekki roði“
Í vottorðinu kemur fram að kærandi hafi verið óvinnufær frá 29. janúar 2024 og að ekki megi búast við að færni aukist. Í athugasemdum segir:
„A var metinn til 100% örorku hjá sínum lífeyrissjóði vorið 2024.“
Undir rekstri málsins barst læknabréf E, dags. 2. júní 2026, þar sem segir:
„Undirritaður hefur hitt A í ár vegna áveka sem hann hlaut 2011. Hann hefur síðan þá farið í fjölda aðgerða á ökklanum. Undirritaður fékk beiðni frá sjúkraþjálfara A til að athuga hvort eitthvað væri hægt að gera til að hjálpa A með langvarandi verkjavandamál í ökklanum og í fætinum. Gerð segulómun í apríl til að athuga hvort að hægt væri að sjá hvort taugin "nervus peroneus superficilais" væri einhversstaðar í klemmu eða undir álagi. Ekki var hægt að sýna fram á slíkt með segulómun. Því næst var framkvæmd deyfing á tauginni í hæð við fyrri aðgerðir til að athuga hvort að hugsanlegt væri að fjarlægja taugina á því svæði og létta þá á verknum í ökklanum og fætinum. Taugin var dofin neðan við staðinn þar sem sprautan var gerð en verkur var enn þá ofan við svæðið. Ekki er fýsilegt að fjarlægja taugina ofar en það svæði sem sprautað var vegna hættu á að maður taki þá burtu taugaenda sem virkja hluta vöðvana í sköflungum og myndi þá mögulega geta haft mjög hamlandi áhrif getu til gangs. Því getur undirritaður staðfest að ekki sjáist neitt frekar sem hægt er að aðhafast til að hafa áhrif á verkinn í ökklanum og fætinum af minni hálfu sem bæklunarskurðlæknir. Því er frekari meðferð fullreynd.“
Í fyrirliggjandi spurningalista vegna færniskerðingar, sem kærandi lagði fram með umsókn um örorkumat, svaraði hann spurningum sem snúa að líkamlegri og andlegri færni. Í lýsingu á heilsuvanda er greint frá stöðugum verkjum í vinstri fæti og að kærandi geti ekki gengið langt eða mikið vegna þess. Af svörum kæranda verður ráðið að hann eigi erfitt með sumar hreyfingar vegna verkja.
Úrskurðarnefnd velferðarmála, sem meðal annars er skipuð lækni, leggur sjálfstætt mat á öll fyrirliggjandi gögn. Samkvæmt 2. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar skal endurhæfing eða viðurkennd meðferð sem hefur það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta vera fullreynd áður en til samþætts sérfræðimats kemur. Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að endurhæfing/viðurkennd meðferð hafi ekki verið fullreynd. Þá var kæranda leiðbeint að fá ráðgjöf hjá heimilislækni um þau endurhæfingarúrræði sem væru í boði.
Fyrir liggur að kærandi varð fyrir áverka á vinstri ökkla á árinu 2011 og hefur farið í fjölda aðgerða á ökklanum síðan þá en býr við langvarandi verkjavandamál í ökklanum og í fætinum. Kærandi hefur ekki fengið greiddan endurhæfingarlífeyri. Í fyrrgreindu læknabréfi E, dags. 2. júní 2026, kemur fram að ekkert sé hægt að aðhafast til að hafa áhrif á verkinn í ökklanum og fætinum af hans hálfu. Í læknisvottorði H, dags. 2. október 2025, kemur fram það mat læknis að ekki megi búast við að færni aukist.
Úrskurðarnefnd velferðarmála telur ljóst af gögnum málsins að verkir og stirðleiki í ökkla takmarki getu kæranda til álagsbundinna starfa og verkefna. Ekki verður þó ráðið af upplýsingum í framangreindum gögnum að endurhæfing geti ekki stuðlað að aukinni færni til annars konar atvinnuþátttöku. Þá liggur fyrir að kærandi hefur ekki fengið greiddan endurhæfingarlífeyri en heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að 84 mánuði samkvæmt 5. mgr. 27. gr. laga um almannatryggingar. Í ljósi framangreinds telur úrskurðarnefnd velferðarmála rétt að kærandi láti reyna á endurhæfingu áður en til örorkumats kemur. Verður því ekki talið að skilyrði 2. mgr. 26. gr. laga nr. 100/2007 um að endurhæfing sé fullreynd sé uppfyllt.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 18. desember 2025, um að synja kæranda um örorkulífeyri.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja A, um örorkulífeyri, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Rakel Þorsteinsdóttir