Mál nr. 406/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 406/2026
Fimmtudaginn 27. ágúst 2026
A gegn Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 2. júní 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 1. apríl 2026, um að synja beiðni hans um endurupptöku máls.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 15. október 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um húsnæðisbætur væri synjað á grundvelli a. liðar 2. mgr. 9. gr. laga nr. 75/2026 um húsnæðisbætur. Með erindi, dags. 16. mars 2026, óskaði kærandi eftir endurupptöku á þeirri ákvörðun. Beiðni kæranda var synjað með ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 1. apríl 2026.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. júní 2026. Með bréfi, dags. 5. júní 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð barst 3. júlí 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 6. júlí 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 9. júlí 2026 og voru þær kynntar Húsnæðis- og mannvirkjastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 14. júlí 2026. Frekari athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi telji að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi brotið á rétti hans til að fá húsnæðisbætur á tímabilinu september 2025 til febrúar 2026. Auk þess sem stofnunin hafi gefið misvísandi upplýsingar.
Forsaga málsins sé sú að kærandi og eiginkona hans hafi flutt saman inn í leiguíbúð í júní 2025 stuttu eftir að hafa gift sig. Í kjölfarið hafi kærandi sótt um húsnæðisbætur, auk þess sem eiginkona hans hafi sótt um dvalarleyfi en hún sé B ríkisborgari. Vegna þessa hafi ekki verið hægt að hafa hana með á umsókninni en í athugasemdum samningsins hafi kærandi minnst á að eiginkona hans væri að leigja með honum þó hún gæti ekki verið á samningnum.
„C: X aðili að leigusamningi þessum sem leigjandi og mun undirrita hann rafrænt um leið og hún fær kennitölu.“
Það hafi tekið talsverðan tíma að fá umsóknina í gegn þar sem leigusalinn hafi gert samninginn fyrst á röngu formi, auk þess sem fyrri leigjendur hafi enn verið með skráð lögheimili í íbúðinni svo það hafi þurft að bíða eftir að andmælafresturinn rynni út svo hægt væri að fjarlægja þau. Umsóknin hafi fengist samþykkt í lok ágúst 2025 og 1. september hafi kærandi fengið greiddar húsnæðisbætur fyrir júní, júlí og ágúst.
Í september hafi eiginkona kæranda loksins fengið vinnu og þá hafi hún getað sótt um kerfiskennitölu sem maki íslensks ríkisborgara. Kerfiskennitala sé ekki fullgild kennitala en hana megi nota til að stofna bankareikning. Kærandi hafi ekki verið viss um að þetta hafi þýtt að hann gæti bætt konu sinni á umsóknina um húsnæðisbætur og hafi því sent póst á Húsnæðis- og mannvirkjastofnun til að fá það skýrt.
Umsóknin hafi þá skyndilega verið fryst því það hafi vantað upplýsingar þó kærandi hafi alltaf verið skýr með þetta. Eftir að eiginkona kæranda hafi fengið kerfiskennitölu og verið komin með ráðningarsamning hafi starfsmaður hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun tilkynnt kæranda að kerfiskennitala væri ekki nóg heldur þyrfti alvöru kennitölu til að bæta konu kæranda á umsóknina.
„Já sé að kerfiskennitalan er orðin virk en því miður er ekki hægt að skrá hana á umsóknina fyrr en kennitalan er orðin alveg virk þá ekki aðeins kerfiskennitala, veistu hvað er langt í það?“
Kærandi hafi svarað að það myndu líklega líða margir mánuðir þangað til þar sem biðlisti vegna dvalarleyfis væri langur. Líklega yrði það ekki fyrr en í janúar til mars árið 2026. Þá hafi starfsmaðurinn sagt að það þyrfti að bíða með umsóknina en kærandi gæti óskað eftir endurupptöku þegar kennitalan væri orðin virk.
„Við þurfum þá að bíða með umsóknina því miður þar til kennitalan er orðin virk, ef umsóknin verður synjað áður þá getur þú óskað eftir endurupptöku ef ekki of langur tími er liðinn frá synjun.“
Kærandi hafi aftur haft samband í október með bæði síma og tölvupósti eftir að umsókn hans hafi verið synjað til að fá alveg úr þessu skorið því honum hafi fundist undarlegt að þurfa að bíða fram á næsta ár til að fá bætur, sérstaklega þar sem kærandi hafi alltaf verið með allt uppi á borðum og stofnunin hafi ekki mælst til þess að kærandi ætti að gera eitthvað ákveðið. Þá hafi kærandi rætt við annan starfsmann Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem hafi sagt að endurupptökufrestur stofnunarinnar væri þrír mánuðir en við afar sérstakar aðstæður mætti taka mál upp eftir allt að ár.
„Í framhaldi af símtali í dag, sendi ég eftirfarandi upplýsingar varðandi endurupptökufrest á húsnæðisbótum. Almennt er endurupptökufrestur á húsnæðisbótum þrír mánuðir og eitt ár við afar sérstakar aðstæður. Ef viðkomandi telur að um sérstakar aðstæður sé að ræða, þarf að berast greinargóð skýring vegna málsins, ásamt gögnum ef það á við.“
Kærandi hafi rekið það í löngu máli af hverju honum hafi fundist þetta afar sérstakar aðstæður þar sem stofnunin hafi ekki virst geta gefið neinar lausnir til þess að fá úr málinu leyst og hafi sagt að það væri ekki hægt að leysa úr málinu fyrr en eiginkona kæranda fengi raunverulega kennitölu sem yrði ekki fyrr en löngu eftir að þriggja mánaða fresturinn myndi renna út. Þá hafi starfsmaðurinn svarað því að kærandi gæti gert nýja umsókn, auk þess að sækja um beiðni um endurupptöku eftir að kennitala konu kæranda væri orðin virk. Starfsmaðurinn hafi einnig sagt að kærandi gæti sótt um endurupptöku í sama þræði þar sem allar upplýsingar kæmu þar skýrt fram.
„Takk fyrir skýringuna og gögnin.
Þegar umsókn um dvalarleyfi hefur verið afgreidd og kennitala konu þinnar orðin virk, getur þú sent inn beiðni um endurupptöku á umsókn þinni um húsnæðisbætur. Beiðni þín verður þá lögð fyrir Lána- og húsnæðisbótanefnd þar sem málið verður metið útfrá fyrirliggjandi gögnum ásamt skýringu þinni.
Upplýsingar mótteknar, það er velkomið að senda umrædda beiðni í framhaldi af þessum þræði. Þegar kennitalan er orðin virk – sendir þú inn nýja umsókn um húsnæðisbætur, í framhaldi sendir þú umrædda beiðni (hér í þessum þræði) um endurupptöku á eldri umsókninni.
Gangi ykkur vel.“
Þar sem þetta hafi hljómað eins og þetta yrði ekki neitt vandamál hafi kærandi látið kyrrt við liggja þangað til að eiginkona hans hafi loksins fengið dvalarleyfisumsóknina samþykkta í febrúar og dvalarleyfiskort og lögheimili þar sem þau leigi í mars. Kærandi hafi þá aftur haft samband við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þar sem annar starfsmaður hafi tekið við. Kærandi hafi einnig sent inn nýja umsókn eins og þeim hafi verið sagt að gera og hafi hún verið samþykkt. Starfsmaðurinn hafi þá beðið kæranda um að lista af hverju umsóknin hafi tekið svona langan tíma, þó það hafi staðið ofar í sama þræði, svo kærandi hafi útskýrt allt aftur í þriðja sinn.
„Til þess að líta á liðinn tíma frá því að umsókn þín kom fyrst í júní árið 2025 þarf ég að biðja þig um stuttlega greinargerð um umsóknarferlið og lista þá hvers vegna það tók svona langan tíma til dæmis. Þegar ég hef fengið það frá þér þá get ég farið með málið fyrir nefnd um hvort greiðslur verði leiðréttar aftur í tímann.“
Starfsmaðurinn hafi útskýrt fyrir kæranda að hann hafi gert þetta rétt og að kærandi hafi sent inn gott svar.
„Varðandi vinnulag um þetta þá gerðir þú rétt með að láta okkur vita í kjölfarið að kennitala hjá C var komin, þá biðjum við um stutta útskýringu eða greinargerð til að lýsa aðstæðum ef tíminn er lengri en 3 mánuðir frá því að umsókn var synjað. Þú hefur sent inn gott svar við því og málið verðu tekið fyrir í næstu viku eins og áður sagði.“
Það hafi því komið eins og þruma úr heiðskýru loftið þegar kærandi hafi svo aftur fengið synjun fyrir upphaflega umsókn þar sem heimilismann hafi vantað á umsókn. Þetta hafi verið eftir að stofnunin hafi sagt kæranda oftar en einu sinni að þau hafi ekki getað bætt konu kæranda við á umsóknina og að kærandi ætti að útbúa nýja umsókn og biðja um endurupptöku eftir að eiginkona kæranda hefði fengið „alvöru“ kennitölu þó það yrði eftir meira en þrjá mánuði.
Að mati kæranda séu alvarlegir ágallar á þessu máli. Til að byrja með telji kærandi að leiðbeiningarnar sem hann hafi fengið hafi beint honum á ranga braut. Kærandi hafi alltaf gefið upp allar þær upplýsingar sem hann hafi haft af fyrra bragði og hafi fylgt leiðbeiningum stofnunarinnar í góðri trú. Ef stofnunin hefði ekki sagt honum í skýrum orðum að bíða marga mánuði og fá ekkert greitt á meðan hefði kærandi beðið um endurupptöku eða gengið harðar að stofnuninni fyrr. Mögulega hafi orðið einhver misskilningur þeirra á milli í málinu en það hafi endað á því að kærandi hafi ekki fengið greiddar neinar bætur fyrir hálft ár.
Það sem kæranda finnist þó vera aðalatriði í þessu máli, eins og kærandi hafi hamrað á í mörgum tölvupóstum og símtölum, að það sé algerlega glórulaust að hafna umsókn á grunni upplýsinga sem þau geti svo ekki tekið við eða breytt í sínu kerfi. Annað hvort teljist kærandi búa einn í íbúðinni þar sem enginn annar með kennitölu búi hjá honum og fái þá greitt samkvæmt því, eins og hafi gilt um fyrstu þrjá mánuðina, eða þá að stofnunin taki allar upplýsingar til greina, þar með talið þær sem séu í húsaleigusamningi, símtölum, póstum og kerfiskennitölu og greiði eins og um tvo íbúa sé að ræða. Ef kærandi hefði ekki sagt neitt um konu sína þar til að hún hafi fengið dvalarleyfi hefði ekkert af þessu gerst. Kærandi upplifi að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sé að refsa honum fyrir að gera hreint fyrir sínum dyrum og gefa stofnuninni upplýsingar sem hún hafi ekki verið tilbúin að taka við. Í synjunarbréfi endurupptöku komi fyrst fram:
„Samkvæmt ákvæðinu verða húsnæðisbætur ekki veittar þegar heimilismann vantar á umsókn.“ og svo seinna „Lána- og húsnæðisbótanefnd synjar tillögu vinnsluaðila um að leiðrétta greiðslur frá júní 2025 þar sem réttur til húsnæðisbóta er ekki virkur fyrr en heimilismaður fær útgefna kennitölu. Réttur getur aðeins náð frá þeim tíma er kennitala verður virk.“
Kærandi hafi samt aldrei verið að sækja um húsnæðisbætur fyrir konu sína og hafi verið alveg klár á því frá upphafi. Kærandi hafi verið að sækja um bætur fyrir sjálfan sig og hafi aldrei gert ráð fyrir því að eiginkona sín væri á umsókn akkúrat af því að hún hafi ekki verið með kennitölu. Kærandi hafi bara viljað fá sínar bætur og það hafi verið undir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun komið hvort þau myndu reikna þær samkvæmt einum eða tveimur íbúum. Kærandi hafi að minnsta kosti alltaf veitt allar upplýsingar sem stofnunin hafi beðið um og meira til.
Þegar umsókn um endurupptöku hafi verið synjað hafi kærandi haft samband við Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna, sem hafi verið sammála um mistök Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar við vinnslu á þessu máli.
Vegna málsatvika þeirra eins og þeim hafi verið lýst að framan hafi kærandi sent erindi á Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þann 16. mars 2026 og óskað eftir endurupptöku málsins. Þann 1. apríl 2026 hafi því erindi verið hafnað með þeim rökum að skilyrði 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 væru ekki uppfyllt.
Lána- og húnsæðisbótanefnd Húsnæðis- og Mannvirkjastofnunar hafi byggt niðurstöðu sína á því að ekki væri um nýjar upplýsingar að ræða sem sýndu fram á að ákvörðun stofnunarinnar hafi byggt á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum, eða að íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hafi byggt á atvikum sem hafi breyst verulega frá því að ákvörðun hafi verið tekin. Kærandi telji skilyrði 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga fyrir endurupptöku málsins vera uppfyllt.
Í 1. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga sé tiltekið að aðili máls eigi rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef að ákvörðun hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik. Kærandi telji að ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um að synja honum um húsnæðisbætur hafi byggt á röngum upplýsingum um málsatvik. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vísi í ákvörðun sinni frá 15. október 2025 til þess að fleiri heimilismenn séu með skráð lögheimili í leiguhúsnæði heldur en fram komi í umsókn kæranda. Líkt og að framan greini hafi kæranda ekki verið fært að skrá eiginkonu sína á umsóknina þar sem hún hefði ekki fengið úthlutaðri kennitölu. Í því skyni að tryggja að allar upplýsingar hafi komið fram á umsókninni hafi kærandi tekið það sérstaklega fram í athugasemdum með umsókninni að réttur fjöldi heimilismanna væri tveir. Ástæður fyrir því að ekki hafi verið hægt að skrá konu kæranda með á umsóknina væru kæranda óviðkomandi og varði eingöngu innra kerfisskipulag Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Í 9. gr. laga um húsnæðisbætur sé fjallað um skilyrði húsnæðisbóta. Þar komi fram í a. lið 2. mgr. 9. gr. að skilyrði húsnæðisbóta sé meðal annars að umsækjandi og aðrir þeir sem umsækjandi tilgreini sem heimilismenn í umsókn séu búsettir í íbúðarhúsnæðinu.
Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi staðfest það með fyrri úrskurðum sínum að hafi Húsnæðis- og mannvirkjastofnun lagt til grundvallar rangan fjölda heimilismanna en raun hafi borið vitni sé sú ákvörðun byggð á röngum upplýsingum í skilningi 24. gr. stjórnsýslulaga. Hér megi til að mynda vísa til úrskurðar nefndarinnar í máli nr. 246/2024.
Af þessum sökum telji kærandi að ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um synjun á húsnæðisbótum hafi byggt á röngum upplýsingum um málsatvik, þar sem í umsókninni hafi komið fram að fleiri en einn heimilismaður væri búsettur í umræddu húsnæði. Kærandi fái ekki séð hvernig hann hafi átt að koma þessum upplýsingum annars á framfæri. Þar sem ekkert sé minnst á þetta í ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar frá 15. október 2025 fáist ekki betur séð en að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi ekki verið meðvitað um að kærandi hafi raunverulega tilgreint eiginkonu sína sem heimilismann á umsókninni og því sé ákvörðun stofnunarinnar byggð á röngum og ófullnægjandi upplýsingum um málsatvik.
Á grundvelli ólögfestrar reglna stjórnsýsluréttar hafi verið talið að aðili máls eigi rétt á því að mál verði endurupptekið ef ákvörðun stjórnvalds hafi verið haldin efnislegum annmarka. Kærandi telji ýmsa annmarka hafa verið á málsmeðferð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar við afgreiðslu umsóknarinnar.
Í fyrsta lagi sé það álit kæranda að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga með fullnægjandi hætti. Með tilkynningu frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þann 18. september 2025 hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans um húsnæðisbætur hefði verið frestað. Sú ákvörðun hafi verið rökstudd á þann veg að fleiri heimilismenn væru búsettir í húsnæðinu en fram hafi komið í umsókn.
Líkt og einnig hafi verið vikið að hér að framan hafi kærandi tiltekið það í upprunalegri umsókn að honum væri ófært að skrá maka sinn á umsóknina þar sem hún hefði ekki fengið útgefna kennitölu og því væri ekki hægt að skrá hana sem meðumsækjanda. Kærandi líti svo á að það sé honum óviðkomandi hvernig skráningarkerfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sé háttað. Það að stofnunin geti ekki tekið við umsóknum frá aðilum sem hafi ekki fengið útgefna kennitölu geti ekki leitt til réttindamissis til handa kæranda þar sem frá upphafi hafi hann veitt réttar upplýsingar.
Hvergi sé minnst á þá staðreynd í tilkynningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar frá 18. september 2025 og síðan í ákvörðun stofnunarinnar um synjun húsnæðisbóta frá 15. október 2025 að kærandi hafi raunverulega tilgreint réttan fjölda heimilismanna í umsókn sinni og fái kærandi því ekki betur séð en að rannsóknarskylda Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hafi ekki verið uppfyllt til hlítar því að öðrum kosti hefði sú staðreynd legið í augum uppi.
Í öðru lagi telji kærandi að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi brugðist leiðbeiningarskyldu sinni samkvæmt 7. gr. stjórnsýslulaga og að afgreiðsla stofnunarinnar hafi ekki verið í nægjanlega góðu samræmi við þá grunnreglu stjórnsýsluréttar að upplýsingar þær sem stjórnvöld veiti skuli vera réttar og nægilega ítarlegar svo aðili máls geti gætt hagsmuna sinna.
Líkt og sjá megi af samskiptum kæranda við fulltrúa Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hafi kæranda ítrekað verið gefið í skyn að hann ætti fremur að bíða með að sækja um húsnæðisbætur þangað til að maki hans fengi útgefna kennitölu og að mati kæranda hafi það gefið sterklega í skyn að það yrði lítið mál.
Af þeim sökum hafi kærandi ekki samstundis kært upprunalega synjun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á grundvelli 26. gr. stjórnsýslulaga og hafi því ekki fengið færi á að hnekkja hinni efnislegu ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um að synja kæranda um húsnæðisbætur.
Að lokum vilji kærandi vísa til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga en sú regla mæli fyrir um að stjórnvald skuli aðeins taka íþyngjandi ákvarðanir þegar lögmætu markmiði, sem stefnt sé að, verði ekki náð með öðru og vægara móti. Þess skuli þá gætt að ekki sé farið strangar í sakirnar en nauðsyn beri til.
Synjun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á umsókn kæranda til húsnæðisbóta stefni að því lögmæta markmiði að umsækjandi uppfylli skilyrði laga nr. 75/2016 og sjái til þess að bætur séu réttilega greiddar út.
Afgreiðsla Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hafi hins vegar leitt til þess að í staðinn fyrir að kærandi og maki hans hafi fengið greiddar húsnæðisbætur í samræmi við réttan fjölda heimilismanna hafi kærandi ekki fengin neinar bætur greiddar.
Í ljósi þess að uppspretta vandans stafi frá kerfislægum ómöguleika af hálfu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til þess að skrá réttan fjölda heimilismanna telji kærandi það ekki í samræmi við meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýsluréttar að fella alfarið niður rétt hans til húsnæðisbóta.
Kærandi telji að það hefði verið í betra samræmi við stjórnsýslulög að veita honum húsnæðisbætur annað hvort á grundvelli þess að fjöldi íbúa væri einn eða þá að leggja réttan fjölda heimilismanna til grundvallar í samræmi við upplýsingagjöf kæranda í umsókn sinni.
Krafa kæranda sé sú að fá húsnæðisbætur leiðréttar fyrir þessa sex mánuði, september 2025 til febrúar 2026, ásamt útreikningum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar með vöxtum frá september 2025 í samræmi við neðangreind lög. Aðalkrafa kæranda sé sú að fá greitt fyrir einn íbúa þar sem eiginkona hans hafi ekki getað átt lögheimili eða kennitölu á tímabilinu og samkvæmt kerfi stofnunarinnar eigi hún því ekki rétt á húsnæðisbótum en til vara að kærandi fái greitt fyrir tvo íbúa þar sem þau hafi raunverulega búið tvö saman.
Í 3. mgr. 26. gr. laga nr. 75/2016 segi: „Hafi umsækjandi ekki fengið húsnæðisbætur sem honum bar eða fengið lægri húsnæðisbætur en honum bar skal framkvæmdaraðili greiða umsækjanda þá fjárhæð sem vangreidd var ásamt vöxtum fyrir það tímabil sem féð var í vörslu framkvæmdaraðila. Skulu vextirnir vera jafnháir vöxtum skv. 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu. Hafi húsnæðisbætur verið vangreiddar vegna skorts á upplýsingum frá umsækjanda falla vextir niður.“
Kærandi óski þess að mál hans verði tekið vandlega til athugunar.
Í athugasemdum við greinargerð kemur fram að í stuttu máli sé ekkert sem skjóti skökku við í greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þegar komi að atvikalýsingu, enda byggist hún á sömu gögnunum. Hins vegar sé ýmislegt við röksemdarfærslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem eigi sér enga stoð og sumu sneiði stofnunin alveg hjá.
Fyrir um viku síðan hafi kærandi fengið skeyti frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þar sem honum hafi verið tilkynnt að stofnunin hefði breytt röksemdarfærslu sinni um synjun við greiðslu húsnæðisbóta. Kærandi hafi verið talsvert svekktur yfir að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun telji enn að þau hafi staðið rétt að verki þrátt fyrir að hafa þurft að breyta röksemdum fyrir synjun nánast ári seinna. Því hafi kærandi spurt ráðgjafa Leigjendaaðstoðarinnar út í ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og þetta hafi hann haft að segja:
„Þessi ákvörðun frá HMS skýtur töluvert skökku við. Heimild 2. mgr. 23. gr. stjórnsýslulaga veitir stjórnvöldum heimild til þess að leiðrétta bersýnilegar villur svo sem misritun á orði, nafni eða tölu og reikningsskekkju, svo og aðrar bersýnilegar villur er varða form ákvörðunar. Heimildin tekur hins vegar ekki til leiðréttingar á efni ákvörðunar.
Með þessari ákvörðun sé HMS í raun að breyta grundvelli ákvörðunarinnar og myndi ég ekki telja það geta fallið innan ramma 2. mgr. 23. gr. stjórnsýslulaga.“
Með þessari breytingu hafi grunnrök kæranda um rétt hans á húsnæðisbótum þó ekki breyst og í raun svari Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þeim ekki í þeirra greinargerð. Stofnunin minnist ítrekað á að eiginkona kæranda hafi ekki talist vera með búsetu í íbúðinni þar sem hún hafi ekki verið með kennitölu. Í synjunarbréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar standi:
„Í 3. tölulið 3. gr. laganna eru heimilismenn skilgreindir sem allir þeir sem búsettir eru í hinu leigða íbúðarhúsnæði. Með búsetu er átt við alla þá einstaklinga sem búa í leiguhúsnæðinu og eiga þar skráð lögheimili.“
Þetta sé akkúrat það sem kærandi hafi verið að tala um. Kærandi hafi aðeins sótt um húsnæðisbætur fyrir sjálfan sig, ekki fyrir sig og eiginkonu sína svo fjöldi heimilismanna, einn, hafi verið réttur alveg þangað til í mars, þegar hann hafi gert nýja umsókn. Í greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar standi:
„Jafnframt var honum leiðbeint að kanna stöðu á kennitöluskráningu fyrir maka sinn svo hægt væri að skrá hana á umsóknina sem allra fyrst. Frekari tölvupóstssamskipti áttu sér stað á milli kæranda og sérfræðings HMS, þar sem kærandi var m.a. upplýstur um að ekki væri fullnægjandi að maki hans væri með kerfiskennitölu heldur þyrfti að bíða með umsóknina þar til að kennitala hennar væri orðin virk sem kennitala einstaklings skráð í þjóðskrá.“
Þetta sé nákvæmlega það sem að kærandi hafi gert og samkvæmt hans könnun hafi hún ekki átt að fá kennitölu og lögheimili fyrr en í janúar til mars árið 2026 eða fjórum til sex mánuðum eftir að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi hafnað umsókninni. Þetta komi skýrt fram á blaðsíðu 12 í greinargerð stofnunarinnar og hafi gengið eftir. Þangað til hafi eiginkona kæranda ekki verið heimilismaður í skilningi laganna og því enginn grundvöllur til að frysta og svo synja umsókn kæranda á þessum tíma. Ef Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefði ekki trúað kæranda varðandi dagsetninguna hefði kærandi auðveldlega getað útvegað fleiri gögn eins og flugmiða og staðfestingu móttöku gagna frá Útlendingastofnun, auk biðtíma dvalarleyfa en Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi ekki beðið um þau.
Eftir því sem kærandi best sjái hafi ekki verið nein ástæða fyrir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að frysta umsóknina sérstaklega eftir að kærandi hafi svarað öllum spurningum stofnunarinnar og gefið öll gögn. Kærandi hefði allt eins getað tilkynnt um þegar eiginkona hans fengi kennitölu án þess að umsóknin væri fryst á meðan. Ef Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefði ekki treyst kæranda eða þá að eitthvað hefði misfarist við tilkynningu hefði verið hægt að leiðrétta húsnæðisbætur eftir á en það að synja greiðslu húsnæðisbóta hafi verið verulega íþyngjandi og ónauðsynlegt miðað við fyrirliggjandi gögn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
„Fyrir liggur að kærandi upplýsti HMS um að eiginkona hans byggi í húsnæðinu þrátt fyrir að hún væri ekki komin með kennitölu eða skráð lögheimili þar. HMS tók mið af þeim upplýsingum og leiðbeindi kæranda um þau gögn og þær forsendur sem þyrftu að liggja fyrir svo hægt væri að meta umsóknina og afgreiða hana miðað við réttar forsendur.
Samkvæmt upplýsingum frá þjóðskrá fékk eiginkona kæranda kennitölu 5. mars 2026. Frá þeim tíma var unnt að skrá lögheimili hennar í hinu leigða húsnæði og leggja fram þær upplýsingar sem nauðsynlegar voru til að ákvarða rétt kæranda til húsnæðisbóta með réttum hætti. Í kjölfarið var umsókn kæranda samþykkt þann 24. mars 2026. HMS leiðbeindi á grundvelli fyrirliggjandi gagna á hverjum tíma í samræmi við leiðbeiningarskyldu skv. 7. gr. stjórnsýslulaga.“
Hér segi að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi tekið mið af þeim upplýsingum sem hafi legið fyrir til að afgreiða umsóknina miðað við réttar forsendur. Samkvæmt þeim upplýsingum sem kærandi hafi gefið Húsnæðis- og mannvirkjastofnun myndi eiginkona kæranda ekki fá kennitölu, og þar með lögheimili, fyrr en eftir marga mánuði, löngu eftir að fresturinn til að taka málið upp á ný hefði runnið út. Þangað til hún fengi kennitölu hafi Húsnæðis- og mannvirkjastofnun verið með allar reikniforsendur sínar byggðar á einum íbúa og engar upplýsingar hafi vantað. Þetta sé svipað og að synja umsókn um húsnæðisbætur því umsækjandi hefði sagt Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að frænka hans myndi flytja inn til sín eftir fjóra til sex mánuði. Þangað til væri hún ekki búsett á heimilinu rétt eins og eiginkona kæranda hafi ekki verið búsett með honum í skilningi laganna. Ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hafi aðeins verið byggð á grundvelli tölvuskeyta kæranda og samræðna í síma. Kærandi spyrji hvort hann hefði ekki fengið neinar húsnæðisbætur greiddar ef eitthvað hefði breyst og eiginkona hans hefði ekki fengið dvalarleyfi eða þau flutt því Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi grunað að reikniforsendur gætu breyst í framtíðinni.
Kæranda finnist rétt að taka aftur fram að 24. mars 2026 hafi ný umsókn um húsnæðisbætur verið samþykkt sem hafi bara náð frá marsmánuði. Þau hafi bæði verið á umsókninni og kærandi hafi einungis útbúið umsóknina því Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi ráðlagt honum að gera nýja umsókn þegar eiginkona hans myndi fá kennitölu. Gömlu umsókninni, sem kærandi hafi aðeins verið á, hafi verið hafnað og kærandi hafi ekki fengið neinar bætur fyrir hálfs árs leigu. Ef stofnunin hefði ekki sagt kæranda að bíða með að biðja um endurupptöku langt umfram þrjá mánuði hefði niðurstaðan getað verið önnur. Því telji kærandi ekki að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi gefið bestu leiðbeiningar á hverjum tíma.
„Ákvörðunin var byggð á þeirri staðreynd að eiginkona kæranda uppfyllti ekki bæði lögbundin skilyrði um búsetu skv. 2. tölul. 3. gr. laga um húsnæðisbætur, þar sem hún átti ekki skráð lögheimili í hinu leigða. Því voru skilyrði a-liðar 2. mgr. 9. gr. laganna ekki uppfyllt á þeim tíma sem ákvörðunin var tekin.
Þær upplýsingar sem kærandi lagði síðar fram um útgáfu kennitölu sem skráð var í þjóðskrá og skráningu lögheimilis eiginkonu sinnar fela ekki í sér að fyrri ákvörðun hafi verið röng þegar hún var tekin. Um var að ræða breytingu á aðstæðum eftir að ákvörðun var tekin en ekki nýjar upplýsingar um atvik sem voru fyrir hendi við töku hennar.“
…
„Samkvæmt breytingaskrá þjóðskrár fær eiginkona kæranda kennitölu þann 5. mars 2026 og gat því frá þeirri dagsetningu skráð lögheimili sitt í hinu leigða. Umsókn um húsnæðisbætur var því samþykkt þann 24. mars 2026 þar sem bæði skilyrði um búsetu voru þá fyrst uppfyllt skv. 2. tölul. 3. gr. laganna. Réttur til húsnæðisbóta gat því fyrst stofnast frá þeim tíma, enda voru þá jafnframt uppfyllt skilyrði a-liðar 2. mgr. 9. gr. laganna.“
Enn og aftur spyrji kærandi af hverju sú staðreynd að eiginkona hans hafi ekki verið með búsetu ætti að hafa valdið synjun á hans eigin húsnæðisbótum þegar ákvörðun hafi verið tekin. Fyrri ákvörðun hafi verið bersýnilega röng og síðan þegar kærandi hafi gert nýja umsókn um húsnæðisbætur sem bæði hann og eiginkona hans hafi verið á, eftir að hún hafi fengið kennitölu, hafi umsóknin verið samþykkt. Það þýði ekki að skilyrði hafi skyndilega verið uppfyllt en hafi ekki verið það áður, heldur hafi kærandi uppfyllt öll skilyrði fyrir húsnæðisbótum allan tímann með upphaflegri umsókn en hafi svo gert nýja umsókn fyrir sig og eiginkonu sína, eins og stofnunin hafi sagt honum að gera, sem hafi verið samþykkt. Ef kærandi hefði haft minnsta grun um að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun myndi alfarið neita að borga húsnæðisbætur frá september hefði hann beðið um endurupptöku innan þriggja mánaða.
III. Sjónarmið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
Í greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að kærandi hafi hinn 25. ágúst 2025 fengið samþykkta umsókn um húsnæðisbætur. Í bréfinu hafi komið fram að athygli væri vakin á því að það væri á ábyrgð umsækjanda að upplýsa stofnunina um allar þær breytingar sem verði á aðstæðum sem kunni að hafa áhrif á rétt til húsnæðisbóta. Þann 26. ágúst 2025 hafi kærandi haft samband og látið vita að eiginkona hans byggi einnig í íbúðarhúsnæðinu. Hún væri að sækja um dvalarleyfi og væri þar af leiðandi ekki komin með kennitölu og því ekki með skráð lögheimili í hinu leigða.
Þann 18. september 2025 hafi kæranda verið tilkynnt að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefði fjallað um rétt hans til húsnæðisbóta og frestað afgreiðslu umsóknar um bætur þar sem samkvæmt upplýsingum frá kæranda væru fleiri heimilismenn búsettir í leiguhúsnæðinu en fram kæmu á umsókn um húsnæðisbætur. Samhliða bréfinu hafi kæranda borist tölvupóstur þar sem hann hafi verið upplýstur um að umsókninni hafi verið frestað þar sem heimilismann vanti á umsókn sem hafi gert það að verkum að forsendur fyrir útreikningi væru ekki réttar. Jafnframt hafi honum verið leiðbeint að kanna stöðu kennitöluskráningar fyrir maka sinn svo hægt væri að skrá hana á umsóknina sem allra fyrst. Frekari tölvupóstssamskipti hafi átt sér stað á milli kæranda og sérfræðings Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þar sem kærandi hafi meðal annars verið upplýstur um að ekki væri fullnægjandi að maki hans væri með kerfiskennitölu heldur þyrfti að bíða með umsóknina þar til að kennitala hennar væri orðin virk sem kennitala einstaklings skráð í þjóðskrá.
Þann 15. október 2025 hafi umsókn kæranda verið hafnað þar sem fleiri heimilismenn væru með skráð lögheimili í leiguhúsnæði en fram kæmi á umsókn, sbr. a. liður 2. mgr. 9. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur. Um bersýnilega villu hafi verið að ræða þar sem leigutaki hafi upplýst Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að eiginkona kæranda byggi einnig í hinu leigða húsnæði en væri ekki með skráð lögheimili þar. Kæranda hafi síðar verið tilkynnt með bréfi að ákvörðunin hefði verið leiðrétt á grundvelli 2. mgr. 23. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Leiðréttingin feli ekki í sér breytingu á atvikum, lagagrundvelli eða niðurstöðu málsins, aðeins sé um leiðréttingu á bersýnilegri villu að ræða.
Þann 14. nóvember 2025 hafi kæranda verið leiðbeint um að þegar dvalarleyfi hefði verið afgreitt og kennitala orðin virk væri hægt að sækja um endurupptöku á umsókninni. Jafnframt hafi verið upplýst um að slík beiðni yrði metin út frá fyrirliggjandi gögnum ásamt skýringu.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi borist beiðni um endurupptöku þann 16. mars 2026 vegna ákvörðunar stofnunarinnar frá 15. október 2025. Í tölvupóstinum hafi kærandi upplýst að eiginkona hans hefði fengið dvalarleyfi í febrúar 2026 og staðfest lögheimili í byrjun mars 2026. Hún væri þar af leiðandi komin með kennitölu sem væri skráð í þjóðskrá ásamt því að vera með skráð lögheimili í hinu leigða.
Þann 24. mars 2026 hafi umsókn kæranda um húsnæðisbætur verið samþykkt. Sama dag hafi borist greinargerð frá kæranda þar sem hann hafi rökstutt endurupptöku í málinu.
Með bréfi, dags. 1. apríl 2026, hafi beiðni um endurupptöku verið hafnað þar sem réttur til húsnæðisbóta hafi ekki verið virkur fyrr en heimilismaður fái útgefna kennitölu sem sé annað skilyrðið af tveimur sem þurfi að vera uppfyllt, sbr. framangreint. Réttur til húsnæðisbóta gæti því í fyrsta lagi miðast við þann tíma sem kennitala hafi orðið virk. Í ákvörðuninni hafi komið fram að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun teldi þær upplýsingar sem fram kæmu í beiðni kæranda ekki leiða til þess að skilyrði fyrir endurupptöku væru uppfyllt, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Ekki hafi verið um nýjar upplýsingar að ræða sem hafi sýnt fram á að ákvörðun stofnunarinnar hafi byggt á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum, eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hafi byggt á atvikum sem hafi breyst verulega frá því að ákvörðun hafi verið tekin.
Þann 2. júní 2026 hafi ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um synjun á endurupptöku verð kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Mál þetta varði beiðni kæranda um endurupptöku á ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar vegna húsnæðisbóta fyrir tímabilið júní 2025 til febrúar 2026.
Samkvæmt 2. tölul. 3. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur sé með búsetu átt við að einstaklingur búi í hinu leigða húsnæði og eigi þar skráð lögheimili samkvæmt lögum nr. 80/2018 um lögheimili og aðsetur. Í 3. tölul. sama ákvæðis sé orðið heimilismenn skilgreint sem allir sem séu búsettir í hinu leigða íbúðarhúsæði, sem taki þá jafnframt til búsetu og lögheimilisskráningar.
Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpinu segi meðal annars um hugtakið búseta:
„Með búsetu er átt við að einstaklingur búi sannanlega í viðkomandi íbúðarhúsnæði og eigi þar skráð lögheimili samkvæmt lögum nr. 21/1990, um lögheimili, með síðari breytingum. Þurfa þannig tvö skilyrði að vera uppfyllt til að um búsetu sé að ræða í skilningi frumvarpsins. Um síðarnefnda skilyrðið vísast til ákvæða laga um lögheimili en í fyrrnefnda skilyrðinu um að einstaklingur búi sannanlega í viðkomandi íbúðarhúsnæði felst að um sé að ræða heimili hans, þ.e. þann stað þar sem hann geymir eigur sínar, á sér svefnstað og hefst við þegar hann er ekki fjarverandi til skamms tíma vegna atvinnu, tómstunda, ferðalaga, veikinda eða annarra sambærilegra ástæðna.“
Af orðalagi ákvæðisins og athugasemdum með frumvarpi því sem hafi orðið að lögum nr. 75/2016 leiði að tvö sjálfstæð og ófrávíkjanleg skilyrði þurfi að vera uppfyllt svo einstaklingur teljist hafa búsetu í skilningi laganna. Annars vegar að viðkomandi búi sannanlega í húsnæðinu og hins vegar að hann eigi þar skráð lögheimili. Þannig teljist ekki nægilegt að einstaklingur dvelji eða búi í húsnæðinu heldur verði hann jafnframt að eiga þar skráð lögheimili til að teljast búsettur í skilningi laga um húsnæðisbætur. Þessi skilyrði tengist beint rétti til húsnæðisbóta. Samkvæmt a. lið 2. mgr. 9. gr. laga um húsnæðisbætur skuli bætur einungis veittar að því skilyrði uppfylltu að umsækjandi og aðrir þeir sem umsækjandi tilgreini sem heimilismenn í umsókn séu búsettir í íbúðarhúsnæðinu. Við mat á því hvort skilyrði a. liðar 2. mgr. 9. gr. sé uppfyllt verði því að líta til skilgreiningar laganna á hugtakinu búseta. Sé annað hvort þeirra skilyrða sem mælt sé fyrir um í 2. tölul. 3. gr. laganna ekki uppfyllt teljist viðkomandi ekki búsettur í skilningi laganna og skilyrði 9. gr. séu þá heldur ekki uppfyllt.
Í málinu sé óumdeilt að eiginkona kæranda hafi dvalið í hinu leigða húsnæði á því tímabili sem um ræði. Hins vegar hafi jafnframt legið fyrir að hún hafi hvorki fengið kennitölu sem væri skráð í þjóðskrá né verið með skráð lögheimili í húsnæðinu fyrr en í mars 2026. Af þeim sökum hafi hún ekki uppfyllt bæði skilyrði laganna um búsetu á því tímabili sem ágreiningur málsins lúti að.
Samkvæmt 6. gr. reglugerðar um húsnæðisbætur nr. 1200/2016 skuli umsækjandi meðal annars tilgreina nafn og kennitölu annarra heimilismanna í umsókn sinni. Þar sem eiginkona kæranda hafi hvorki fengið skráða kennitölu í þjóðskrá né skráð lögheimili í hinu leigða fyrr en í mars 2026 hafi ekki verið unnt að skrá hana með þeim hætti sem áskilinn sé fyrr en frá þeim tíma.
Réttur til húsnæðisbóta og fjárhæð þeirra ráðist af þeim upplýsingum sem liggi fyrir um umsækjanda og heimilismenn á hverjum tíma. Í 8. gr. laga um húsnæðisbætur segi að húsnæðisbætur séu mánaðarlegar greiðslur sem greiðist til umsækjanda og skuli ákvarðaðar og reiknaðar út miðað við grunnfjárhæðir sem miðist meðal annars við fjölda heimilismanna, sbr. 3. tölul. 3. gr. að teknu tilliti til tekna, sbr. 17. gr., eigna, sbr. 18. gr. og greiðsluþátttöku í húsnæðiskostnaði, sbr. 19. gr. Rétt skráning heimilismanna sé því grundvallarforsenda þess að unnt sé að ákvarða rétt til húsnæðisbóta og fjárhæða þeirra með lögmætum hætti.
Samkvæmt 14. gr. laga um húsnæðisbætur skuli umsækjandi veita Húsnæðis- og mannvirkjastofnun allar þær upplýsingar og gögn þeim til staðfestingar sem óskað sé eftir og nauðsynlegar séu til að staðreyna rétt hans til húsnæðisbóta. Janframt skuli umsækjandi upplýsa um allar þær breytingar sem kunni að verða á högum hans og/eða heimilismanna eða öðrum þeim atriðum sem kunni að hafa áhrif á rétt hans til bóta á þeim tíma sem hann fái greiddar húsnæðisbætur. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun byggi meðal annars útreikninga sína á fjárhæð húsnæðisbóta á þeim upplýsingum sem umsækjandi veiti stofnuninni. Fyrir liggi að kærandi hafi upplýst Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um að eiginkona hans byggi í húsnæðinu þrátt fyrir að hún væri ekki komin með kennitölu eða skráð lögheimili þar. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi tekið mið af þeim upplýsingum og hafi leiðbeint kæranda um þau gögn og þær forsendur sem þyrftu að liggja fyrir svo hægt væri að meta umsóknina og afgreiða hana miðað við réttar forsendur.
Samkvæmt upplýsingum frá þjóðskrá hafi eiginkona kæranda fengið kennitölu 5. mars 2026. Frá þeim tíma hafi verið unnt að skrá lögheimili hennar í hinu leigða húsnæði og leggja fram þær upplýsingar sem nauðsynlegar væru til að ákvarða rétt kæranda til húsnæðisbóta með réttum hætti. Í kjölfarið hafi umsókn kæranda verið samþykkt þann 24. mars 2026. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi leiðbeint á grundvelli fyrirliggjandi gagna á hverjum tíma í samræmi við leiðbeiningaskyldu skv. 7. gr. stjórnsýslulaga.
Hvað varði beiðni kæranda um endurupptöku málsins telji Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi ekki verið uppfyllt. Ákvörðun stofnunarinnar frá 15. október 2025 hafi byggt á þeim upplýsingum sem hafi legið fyrir á þeim tíma og verði ekki séð að hún hafi verið reist á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum um málsatvik eða að aðstæður í málinu hafi breyst þannig að skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga um endurupptöku eigi við. Ákvörðunin hafi verið byggð á þeirri staðreynd að eiginkona kæranda hafi ekki uppfyllt bæði lögbundin skilyrði um búsetu skv. 2. tölul. 3. gr. laga um húsnæðisbætur þar sem hún hafi ekki átt skráð lögheimili í hinu leigða. Því hafi skilyrði a. liðar 2. mgr. 9. gr. laganna ekki verið uppfyllt á þeim tíma sem ákvörðunin hafi verið tekin.
Þær upplýsingar sem kærandi hafi síðar lagt fram um útgáfu kennitölu sem skráð hafi verið í þjóðskrá og skráningu lögheimilis eiginkonu sinnar feli ekki í sér að fyrri ákvörðun hafi verið röng þegar hún hafi verið tekin. Um hafi verið að ræða breytingu á aðstæðum eftir að ákvörðunin hafi verið tekin en ekki nýjar upplýsingar um atvik sem hafi verið fyrir hendi við töku hennar. Þá sé ekki um að ræða slíka breytingu á atvikum máls að réttindi kunni að myndast afturvirkt þannig að skilyrði fyrir endurupptöku skv. 24. gr. stjórnsýslulaga teljist uppfyllt.
Samkvæmt breytingaskrá þjóðskrár hafi eiginkona kæranda fengið kennitölu þann 5. mars 2026 og því getað frá þeirri dagsetningu skráð lögheimili sitt í hinu leigða. Umsókn um húsnæðisbætur hafi því verið samþykkt þann 24. mars 2026, þar sem bæði skilyrði um búsetu hafi þá fyrst verið uppfyllt skv. 2. tölul. 3. gr. laganna. Réttur til húsnæðisbóta hafi því fyrst getað stofnast frá þeim tíma, enda hafi skilyrði a. liðar 2. mgr. 9. gr. laganna þá jafnframt verið uppfyllt.
Að framangreindu virtu telji Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að ákvörðun stofnunarinnar um að hafna beiðni kæranda um endurupptöku hafi verið í samræmi við lög og byggð á fullnægjandi upplýsingum um málsatvik.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun geri kröfu um að hin kærða ákvörðun stofnunarinnar í málinu verði staðfest.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 1. apríl 2026, um að synja beiðni kæranda um endurupptöku ákvörðunar stofnunarinnar frá 15. október 2025. Með þeirri ákvörðun var umsókn kæranda um húsnæðisbætur synjað á grundvelli a. liðar 2. mgr. 9. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur.
Í 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er fjallað um skilyrði fyrir endurupptöku mála. Í 1. mgr. ákvæðisins kemur fram að eftir að stjórnvald hefur tekið ákvörðun og hún verið tilkynnt eigi aðili máls rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef atvik máls eru á þann veg að eitt af eftirfarandi skilyrðum sem fram koma í 1. og 2. tölul. geti átt við:
1. ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, eða
2. íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.
Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að eftir að þrír mánuðir eru liðnir frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðun samkvæmt 1. tölulið 1. mgr., eða aðila var eða mátti vera kunnugt um breytingu á atvikum sem ákvörðun samkvæmt 2. tölulið 1. mgr. var byggð á, verði beiðni um endurupptöku máls ekki tekin til greina nema að fengnu samþykki frá öðrum aðilum málsins. Mál verði þó ekki tekið upp að nýju ef ár er liðið frá fyrrgreindum tímamörkum nema veigamiklar ástæður mæli með því. Aðili máls kann einnig að eiga rétt á endurupptöku máls á grundvelli ólögfestra reglna stjórnsýsluréttar, til að mynda ef efnislegur annmarki er á ákvörðun stjórnvalds.
Í 8. gr. laga nr. 75/2016 kemur fram að húsnæðisbætur séu mánaðarlegar greiðslur sem greiðast til umsækjanda, sbr. þó 4. mgr. 21. gr., og skuli ákvarðaðar og reiknaðar út miðað við grunnfjárhæðir sem miðast við fjölda heimilismanna, sbr. 3. tölul. 3. gr., að teknu tilliti til tekna, sbr. 17. gr., eigna, sbr. 18. gr., og greiðsluþátttöku í húsnæðiskostnaði, sbr. 19. gr. Samkvæmt 3. tölul. 3. gr. eru heimilismenn allir þeir sem búsettir eru í hinu leigða íbúðarhúsnæði en með búsetu er átt við þegar einstaklingur býr í hinu leigða íbúðarhúsnæði og á þar skráð lögheimili samkvæmt lögum um lögheimili og aðsetur, sbr. 2. tölul. 3. gr. laga nr. 75/2016.
Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi til laga nr. 75/2016 segir svo um hugtakið búsetu:
„Með búsetu er átt við að einstaklingur búi sannanlega í viðkomandi íbúðarhúsnæði og eigi þar skráð lögheimili samkvæmt lögum nr. 21/1990, um lögheimili, með síðari breytingum. Þurfa þannig tvö skilyrði að vera uppfyllt til að um búsetu sé að ræða í skilningi frumvarpsins. Um síðarnefnda skilyrðið vísast til ákvæða laga um lögheimili en í fyrrnefnda skilyrðinu um að einstaklingur búi sannanlega í viðkomandi íbúðarhúsnæði felst að um sé að ræða heimili hans, þ.e. þann stað þar sem hann geymir eigur sínar, á sér svefnstað og hefst við þegar hann er ekki fjarverandi til skamms tíma vegna atvinnu, tómstunda, ferðalaga, veikinda eða annarra sambærilegra ástæðna. Miðað skal við að hver einstaklingur búi í einu og sama íbúðarhúsnæðinu á hverjum tíma í þessum skilningi enda er almennt litið svo á að hver einstaklingur haldi heimili á einum stað. Samkvæmt framangreindu verður einstaklingur ekki talinn búsettur í íbúðarhúsnæði í skilningi frumvarpsins á þeim grundvelli einum að hann eigi þar lögheimili, heldur verður hann jafnframt sannanlega að búa í íbúðarhúsnæðinu í framangreindum skilningi. Sem dæmi má nefna að einstaklingur sem á lögheimili á Íslandi en býr tímabundið erlendis verður samkvæmt framangreindu ekki talinn búsettur í skilningi frumvarpsins þar sem hann á lögheimili.“
Þá segir svo um hugtakið heimilismenn:
„Með heimilismönnum er átt við alla þá einstaklinga sem búsettir eru í hinu leigða íbúðarhúsnæði í skilningi 2. tölul., sbr. einnig 10. gr. frumvarpsins, án tillits til innbyrðis tengsla þeirra á milli eða aldurs þeirra. Er því ekki gert að skilyrði að sérstök fjölskyldu- eða hjúskapartengsl séu á milli heimilismanna heldur miðað við að þeir séu sannanlega búsettir í umræddu íbúðarhúsnæði og eigi þar skráð lögheimili samkvæmt lögum um lögheimili eða, eftir atvikum, hafi þar tímabundið aðsetur í skilningi 10. gr. frumvarpsins. Vísast í því sambandi til athugasemda við 2. tölul. þessarar greinar þar sem nánar er fjallað um inntak búsetu í skilningi frumvarpsins.“
Í 9. gr. laga nr. 75/2016 er kveðið á um skilyrði fyrir greiðslu húsnæðisbóta. Þar segir í 1. mgr. að hver sá sem leigi íbúðarhúsnæði eigi rétt til húsnæðisbóta að uppfylltum skilyrðum laganna. Samkvæmt 2. mgr. ákvæðisins skulu húsnæðisbætur einungis veittar að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
a. umsækjandi og aðrir þeir sem umsækjandi tilgreinir sem heimilismenn í umsókn séu búsettir í íbúðarhúsnæðinu, sbr. þó 10. gr.,
b. umsækjandi sé 18 ára eða eldri,
c. um sé að ræða íbúðarhúsnæði hér á landi sem felur í sér venjulega og fullnægjandi heimilisaðstöðu þar sem að lágmarki er eitt svefnherbergi ásamt séreldhúsi eða séreldunaraðstöðu, sérsnyrtingu og baðaðstöðu, sbr. þó 11. gr.,
d. umsækjandi sé aðili að leigusamningi um íbúðarhúsnæðið sem sé til a.m.k. þriggja mánaða og skráður hefur verið í leiguskrá húsnæðisgrunns Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, sbr. þó 12. gr.,
e. fyrir liggi umboð umsækjanda og annarra heimilismanna, 18 ára og eldri, til upplýsingaöflunar, sbr. 2. mgr. 14. gr.
Í hinni kærðu ákvörðun er vísað til þess að samkvæmt a. lið 2. mgr. 9. gr. laga nr. 75/2016 verði húsnæðisbætur ekki veittar þegar heimilismann vanti á umsókn. Þá er vísað til þess að réttur til húsnæðisbóta verði ekki virkur fyrr en heimilismaður fái útgefna kennitölu og að réttur geti aðeins náð frá þeim tíma er kennitala verði virk. Af hálfu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hefur komið fram að eiginkona kæranda hafi á þeim tíma sem umsókn kæranda var synjað ekki uppfyllt skilyrði laga nr. 75/2016 þar sem hún hafi hvorki verið með kennitölu sem væri skráð í þjóðskrá né verið með skráð lögheimili í húsnæðinu. Af þeim sökum hafi hún ekki uppfyllt bæði skilyrði laganna um búsetu á því tímabili sem ágreiningur málsins lúti að.
Að framangreindu virtu virðist Húsnæðis- og mannvirkjastofnun líta svo á að kærandi hafi ekki, á því tímabili sem ágreiningur málsins lýtur að, átt rétt á húsnæðisbótum vegna þess að eiginkona hans hafi ekki átt rétt til þeirra greiðslna.
Úrskurðarnefnd velferðarmála getur ekki fallist á að sú afstaða eigi sér stoð í lögum nr. 75/2016. Kærandi sjálfur er leigjandi íbúðarhúsnæðis og var umsækjandi um húsnæðisbætur en ekki eiginkona hans. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun bar því að leggja mat á hvort framangreind skilyrði 2. mgr. 9. gr. laganna væru uppfyllt í hans tilviki og þá hvort eiginkona hans teldist heimilismaður eða ekki. Í því samhengi telur nefndin rétt að benda á að það virðist óumdeilt að eiginkona kæranda var búsett í leiguíbúð hans þrátt fyrir að henni hafi ekki verið heimilt að skrá lögheimili sitt þar, enda ekki með dvalarleyfi á Íslandi á þeim tíma sem um ræðir. Með vísan til þess verður ekki annað séð en að efnislegur annmarki hafi verið á ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar frá 15. október 2025 og er skilyrði til endurupptöku þeirrar ákvörðunar því uppfyllt í máli kæranda. Hin kærða ákvörðun er því felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 1. apríl 2026, um að synja beiðni A, um endurupptöku ákvörðunar frá 15. október 2025 er felld úr gildi og málinu vísað til nýrra meðferðar stofnunarinnar.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir