Mál nr. 431/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 431/2026
Miðvikudaginn 9. september 2026
A gegn Tryggingastofnun ríkisins
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Unnþór Jónsson lögfræðingur og Kristinn Tómasson læknir.
Með kæru, móttekinni 15. júní 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 23. maí 2026 þar sem umsókn kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur var synjað.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um örorkulífeyri og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins með umsókn 11. maí 2026. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 23. maí 2026, var umsókn kæranda synjað á þeim forsendum að endurhæfing/viðurkennd meðferð væri ekki talin fullreynd.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 15. júní 2026. Með bréfi, dags. 18. júní 2026, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Viðbótargagn barst frá kæranda 23. júní 2026 og var það sent Tryggingastofnun ríkisins til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 25. maí 2026. Með bréfi, dags. 29. júní 2026, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 30. júní 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 30. júní 2026 og voru þær sendar Tryggingastofnun ríkisins til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 1. júlí 2026. Efnislegar athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru kemur fram að kærð sé ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn kæranda á þeim grundvelli að endurhæfing væri ekki fullreynd. Þessu sé mótmælt, fyrirliggjandi læknisfræðileg gögn og upplýsingar um endurhæfingu bendi til þess að endurhæfing kæranda sé fullreynd. Í 16 mánuði hafi kærandi tekið þátt í starfsendurhæfingu hjá VIRK. Niðurstaða VIRK hafi verið sú að starfsendurhæfing sé fullreynd. Þrátt fyrir þátttöku kæranda og viðleitni hafi einungis náðst takmarkaður árangur og starfsgeta hans hafi ekki aukist mikið. Heimilislæknir staðfesti að ástandið muni áfram valda kæranda miklum skerðingum. Þá komi fram í skýrslu bæklunarlæknis að umfangsmikill varanlegur skaði sé á báðum höndum sem rekja megi til alvarlegra [sára]. Í skýrslunni sé einnig m.a. greint frá breytingum á beinum og liðum, skertri hreyfifærni, verkjum við notkun handa, ofurnæmi, verulega skertum gripkrafti og langvarandi skerðingu á virkni.
Með vísun til framangreinds sé það mat kæranda, lækna og VIRK að endurhæfing sé fullreynd.
Í athugasemdum kæranda frá 30. júní 2026 er greint því að ákvörðun Tryggingastofnunar sé ekki studd læknisfræðilegum gögnum. Stofnunin haldi því fram að frekari meðferð eða skurðaðgerð geti mögulega aukið færnigetu kæranda Það samrýmist ekki áliti B bæklunarlæknis, dags. 4. maí 2026, þar sem segi:
„Surgeries to try to improve flexibility... are questionable. I do not see any obvious ways to improve the condition of his hands and feel it is fully time to perform a disability assessment (örorkumat) for him.”
Samkvæmt þessu muni aðgerð að öðru leyti ekki auka getu kæranda og því eigi að meta hann til örorku.
Í tölvupósti C sjúkraþjálfara 23. júní 2026 segi:
„You have had a disability from an early age and physical therapy is not going to change that.”
Álit þessara sérfræðinga sé ekki í samræmi við niðurstöðu Tryggingastofnunar. Kærandi hafi verið í endurhæfingu hjá VIRK í um 16 mánuði sem hafi lokið 28. október 2025. Niðurstaða VIRK hafi verið sú að endurhæfing væri fullreynd og að hann væri óvinnufær vegna skertrar hreyfifærni.
Ástand kæranda sé varanlegt og tilkomið vegna alvarlegra [sára] sem hann hafi hlotiðX. Þau hafi valdið varanlegum skaða […], þar á meðal umfangsmiklum örvefsmyndunum, stirðleika, breytingum á beinum og liðum ásamt skerðingu á hreyfifærni. Samkvæmt læknisfræðilegum gögnum, hafi ástand hans verið óbreytt í mörg ár.
Með hliðsjón af niðurstöðu bæklunarlæknis, sjúkraþjálfara og VIRK, sé það mat kæranda að engar líkur séu á að frekari endurhæfing geti aukið vinnugetu hans.
Farið sé fram á að ákvörðun Tryggingstofnunar verði felld úr gildi og að fallist verði á umsókn um örorku.
III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins
Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kæra varði synjun á umsókn kæranda um örorku- og hlutaörorkulífeyri.
Örorkulífeyrir greiðist samkvæmt 24. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Réttur til örorkulífeyris sé bundinn því skilyrði að geta umsækjanda til virkni á vinnumarkaði samkvæmt samþættu sérfræðimati sé metin 25% eða minni til langframa vegna langvarandi eða alvarlegs heilsubrests eða fötlunar.
Í 1. mgr. 26. gr. laganna komi fram að Tryggingastofnun beri ábyrgð á gerð samþætts sérfræðimats sem sé forsenda fyrir greiðslu örorkulífeyris samkvæmt 24. gr. og hlutaörorkulífeyris samkvæmt 25. gr. Þó sé Tryggingastofnun heimilt að víkja frá skilyrði um samþætt sérfræðimat ef slíkt mat sé bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar. Í niðurstöðu matsins skuli koma fram hver geta viðkomandi einstaklings til virkni á vinnumarkaði sé. Í 2. mgr. 26. gr. komi fram að áður en til samþætts sérfræðimats komi skuli endurhæfing eða viðurkennd meðferð sem hafi það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta vera fullreynd. Þó sé Tryggingastofnun heimilt að víkja frá því skilyrði ef það er bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar.
Kveðið sé á um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í 27. gr. um almannatryggingar. Í 1. mgr. komi fram:
„Heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur þegar einstaklingur, sem býr við langvarandi eða alvarlegan heilsubrest, eða fötlun, sem talinn er geta haft áhrif til frambúðar á getu hans til virkni á vinnumarkaði, fær viðurkennda meðferð eða tekur virkan þátt í endurhæfingu með það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta. Forsenda fyrir greiðslum er að heilsubrestur einstaklings sé afleiðing af sjúkdómi, slysi eða áfalli og skal við það miðað að heilsubrestur eða fötlun valdi því að hlutaðeigandi einstaklingur geti hvorki stundað vinnu né nám. Heimilt er þó að líta á þátttöku á vinnumarkaði eða nám sem lið í endurhæfingu eða viðurkenndri meðferð að því tilskildu að atvinnuþátttakan eða námið þjóni markmiði viðurkenndrar meðferðar eða endurhæfingar samkvæmt fyrirliggjandi endurhæfingaráætlun.“
Samkvæmt 5. mgr. sé heimilt að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að 60 mánuði, þó aðeins 12 mánuði í senn, með mögulegri framlengingu um allt að 24 mánuði í undantekningartilvikum eða í allt að þrjá mánuði eftir lok endurhæfingar meðan beðið sé niðurstöðu sérfræðimats.
Nánar sé kveðið á um sjúkra- og endurhæfingarlífeyri í reglugerð nr. 933/2025 um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur.
Þá sé í 45. gr. laga um almannatryggingar m.a. kveðið á um að Tryggingastofnun ríkisins skuli kynna sér aðstæður umsækjenda og greiðsluþega og gera þeim grein fyrir rétti þeirra samkvæmt lögum þessum og öðrum lögum er stofnunin starfi eftir, reglugerðum settum á grundvelli laganna og starfsreglum stofnunarinnar. Við meðferð máls skuli staða og réttindi umsækjanda eða greiðsluþega skoðuð heildstætt. Stofnunin skuli jafnframt leiðbeina umsækjanda um réttarstöðu hans, um þau gögn sem þurfi að fylgja með umsókn og um framhald málsins og hafi því öllu verið sinnt í þessu máli.
Kærandi hafi lokið 18 mánuðum á endurhæfingarlífeyri/sjúkra- og endurhæfingargreiðslum á tímabilinu 1. ágúst 2024 til 31. janúar 2026.
Kæranda hafi verið synjað um örorku- og hlutaörorkulífeyri með ákvörðun, dags. 26. mars 2026. Kærandi hafi óskað eftir rökstuðningi sem hafi verið veittur 13. apríl 2026.
Kærandi hafi sótt aftur um örorku- og hlutaörorku með umsókn, dags. 11. maí 2026, sem Tryggingastofnun hafi synjað á þeim grundvelli að endurhæfing væri ekki fullreynd með bréfi, dags. 23. maí 2026.
Við mat á örorku hafi verið stuðst við umsókn, dags. 11. maí 2026, læknisvottorð, dags. 14. janúar 2026, sjálfsmat vegna örorku, dags. 29. janúar 2026, göngudeildarnótu, dags. 4. maí 2026, og þjónustulokaskýrslu VIRK, dags. 28. október 2025.
Í læknisvottorði, dags. 14. janúar 2026, sé greint frá sjúkdómsgreiningunni síðkomnum afleiðingum ótilgreinds X. Í greinargerð Tryggingastofnunar er greint frá því sem fram kemur í fyrri heilsufarssögu kæranda ásamt upplýsingum um stöðu kæranda í dag.
Í þeim hluta vottorðsins þar sem fjallað sé um líkamlegar og vitrænar skerðingar sé öllum spurningum svarað á þann hátt að ekki sé hægt að meta.
Í sjálfsmati kæranda komi fram að kærandi hafi ekki gott vald á íslensku, hann sé ekki með neina þátttöku á vinnumarkaði vegna heilsubrests eða fötlunar. Hann hafi síðast verið í launuðu starfi árið 2019 sem ritari í […] á D. Kærandi hafi lokið masters- eða doktorsnámi í háskóla og telji mjög mikilvægt að vera í vinnu. Hann hafi verið í endurhæfingu á vegum VIRK en sú endurhæfing hafi ekki skilað miklum árangri. Kærandi telji að takmörkuð hreyfigeta á höndum og tungumálahindranir sé sinn helsti vandi.
Í greinargerð Tryggingstofnunar er greint frá svörum kæranda við spurningalista vegna færniskerðingar sem er hluti af sjálfsmati hans.
Í þjónustulokaskýrslu VIRK, dags. 28. október 2025, komi fram að heilsubrestur sé til staðar sem valdi óvinnufærni. Starfsendurhæfing hjá VIRK sé talin fullreynd. Kærandi hafi verið hjá VIRK í 16 mánuði og lítill framgangur hafi verið, færni til vinnu hafi ekki aukist verulega. Hann sé enn verulega hamlaður af líkamlegum afleiðingum […] og ekki enn náð þeirri færni í íslensku sem hann hafi vonast til að myndi auka vinnufærni sína. Ekki verði unnið frekar með hamlandi einkenni innan starfsendurhæfingar sem sé talin fullreynd, hann hafi verið metin óvinnufær og vísað í heilbrigðiskrefið til frekari þjónustu.
Í göngudeildarnótu frá Landspítalanum, dags. 4. maí 2026, komi eftirfarandi m.a. fram:
„Um að ræða ástand frá því í barnæsku. Umfangsmiklar aðgerðir með flipum frá lærum og það eru þarna að sjá á rtg.myndum mörg metalclips í og umhverfis […]. […] eru að virka hjá honum við alla léttari iðju en hann vantar allan styrk og það eru þarna hreyfiskerðingar beggja vegna. Allar aðgerðir eru að mínu leyti frekar tvísýnar. Það er hægt að gera örvefsplastik eins og til dæmis á greipinni milli dig IV og V á vinstri hendi en hann er ekkert að hafa finnst mér nein teljandi óþægindi frá því. Aðgerðir til þess að reyna að bæta lipurleika í MCP liðnum tel ég hæpnar. Ég sé því ekki neinar augljósar leiðir til þess að bæta ástand handanna hjá honum og finnst fyllilega tímabært að gera hjá honum örorkumat.“
Tryggingastofnun ítreki að stofnuninni sé heimilt að setja það skilyrði að umsækjandi um örorkulífeyri gangist undir sérhæft mat á möguleikum til endurhæfingar og viðeigandi endurhæfingu áður en til samþætts sérfræðimats komi, sbr. 2. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar.
Við mat á færniskerðingu leggi Tryggingastofnun sjálfstætt mat á fyrirliggjandi gögn, þar sem meðal annars sé litið til sjúkdómsgreininga, heilsufarssögu, meðferðar og endurhæfingar sem umsækjandi hafi lokið. Tryggingastofnun sé því ekki bundin af niðurstöðum eða ályktunum einstakra meðferðaraðila um örorku eða óvinnufærni heldur leggi sjálfstætt mat á öll gögn málsins í heild.
Fyrir liggi að kærandi hafi lokið starfsendurhæfingu hjá VIRK og að þar sé starfsendurhæfing talin fullreynd. Sú niðurstaða feli þó ekki sjálfkrafa í sér að öll endurhæfing í skilningi 2. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar teljist fullreynd.
Samkvæmt gögnum málsins hafi kærandi verið í skoðun hjá bæklunarsérfræðingi vegna afleiðinga [áverka] á höndum. Í læknisvottorði komi fram að læknir hafi verið að meta mögulegar aðgerðir til að auka styrk í handleggjum og að beðið hafi verið eftir frekara mati sérfræðings. Þótt í göngudeildarnótu frá 4. maí 2026 komi fram að sérfræðingur telji takmarkaðar líkur á árangri af skurðaðgerðum verði ekki séð að allar mögulegar meðferðar- og endurhæfingarleiðir hafi verið fullreyndar eða að endanlegt mat liggi fyrir um að ekki verði unnt að bæta færni kæranda með frekari heilbrigðisþjónustu.
Þá verði jafnframt litið til þess að kærandi hafi sjálfur lýst því að starfsendurhæfingin hafi skilað ákveðnum árangri, meðal annars auknum styrk í höndum, auk þess sem tungumálafærni hafi verið talin hafa áhrif á atvinnumöguleika hans. Að mati Tryggingastofnunar bendi gögn málsins því til þess að enn séu fyrir hendi þættir sem kunni að hafa áhrif á starfsgetu kæranda og rétt sé að þeir verði fullreyndir áður en varanleg örorka til 67 ára aldurs verði metin.
Með hliðsjón af framangreindu telji Tryggingastofnun að skilyrði 2. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar séu ekki uppfyllt að svo stöddu, enda verði ekki talið að endurhæfing hafi verið fullreynd. Á þeim grundvelli hafi umsókn kæranda um örorkulífeyri réttilega verið synjað að svo stöddu.
Að öllu framangreindu virtu sé það niðurstaða Tryggingastofnunar að endurhæfing kæranda sé ekki fullreynd. Kærandi hafi því ekki uppfyllt skilyrði 2. mgr. 26. gr. og 24. gr. laga um almannatryggingar. Tryggingastofnun fari því fram á að ákvörðun frá 23. maí 2026, um að synja kæranda um örorkulífeyri, verði staðfest.
IV. Niðurstaða
Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 23. maí 2026, þar sem kæranda var synjað um örorkulífeyri. Ágreiningur málsins lýtur að því hvort heimilt hafi verið að synja kæranda um örorkulífeyri samkvæmt 24. gr. laga nr. 100/2007 eða hlutaörorkulífeyri samkvæmt 25. gr. laganna á þeim grundvelli að endurhæfing/viðurkennd meðferð hafi ekki verið fullreynd.
Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. laga um almannatryggingar er réttur til örorkulífeyris bundinn því skilyrði að geta umsækjanda til virkni á vinnumarkaði samkvæmt samþættu sérfræðimati sé metin 25% eða minni til langframa vegna langvarandi eða alvarlegs heilsubrests eða fötlunar.
Samkvæmt 1. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ábyrgð á gerð samþætts sérfræðimats sem er forsenda fyrir greiðslu örorkulífeyris samkvæmt 24. gr. og hlutaörorkulífeyris samkvæmt 25. gr. Í 2. mgr. 26. gr. er tilgreint að áður en til samþætts sérfræðimats komi skuli endurhæfing eða viðurkennd meðferð sem hafi það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta vera fullreynd. Tryggingastofnun er heimilt að víkja frá því skilyrði ef það er bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar.
Í 27. gr. laga um almannatryggingar er fjallað um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur. Svohljóðandi eru 1. og 5. mgr.:
„Heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur þegar einstaklingur, sem býr við langvarandi eða alvarlegan heilsubrest, eða fötlun, sem talinn er geta haft áhrif til frambúðar á getu hans til virkni á vinnumarkaði, fær viðurkennda meðferð eða tekur virkan þátt í endurhæfingu með það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta. Forsenda fyrir greiðslum er að heilsubrestur einstaklings sé afleiðing af sjúkdómi, slysi eða áfalli og skal við það miðað að heilsubrestur eða fötlun valdi því að hlutaðeigandi einstaklingur geti hvorki stundað vinnu né nám. Heimilt er þó að líta á þátttöku á vinnumarkaði eða nám sem lið í endurhæfingu eða viðurkenndri meðferð að því tilskildu að atvinnuþátttakan eða námið þjóni markmiði viðurkenndrar meðferðar eða endurhæfingar samkvæmt fyrirliggjandi endurhæfingaráætlun.
[…]
Heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að 60 mánuði en þó að hámarki í 12 mánuði í senn. Heimilt er að framlengja greiðslutímabilið um allt að 24 mánuði ef um er að ræða einstakling í mjög viðkvæmri stöðu sem vegna fjölþætts vanda er talinn þarfnast frekari viðurkenndrar meðferðar eða endurhæfingar. Þá er auk þess heimilt að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að þrjá mánuði eftir að endurhæfingu lýkur, að því tilskildu að greiðsluþegi sé skráður í atvinnuleit hjá Vinnumálastofnun eða öðrum þjónustuaðila og samþætt sérfræðimat liggi ekki fyrir sem sýni getu til virkni á vinnumarkaði 50% eða minni.“
Fjallað er um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í samnefndri reglugerð nr. 933/2025.
Fyrir liggur læknisvottorð E, dags. 14. janúar 2026, vegna örorkumats þar sem greint er frá sjúkdómsgreiningunni eftirstöðvar ótilgreinds […], ætingar og kals. Um fyrra heilsufar segir:
„Í stuttu máli. A er X ára maður frá F sem lendir í […] árið 2004 og hlýtur við það víðtæk [sár]. Var á gjörgæslu í viku og í lífshættu. Eftirstöðvar eru miklar örmyndanir og það sem hamlar mest er skaði og takmörkuð hreyfigeta á höndum. Er með takmarkaðan gripkraft í báðum höndum. Ástand varðandi notagildi á höndum hefur verið óbreytt síðustu 10 árin. Við skoðun þá eru miklar örmyndanir á höndum og framhandleggjum. Nær ekki fingrum inn í lófa. Aflögun á litlafingri vi. handar. Hann var síðast í vinnu sem ritari […]i í F en var sagt upp og ekki fengið vinnu síðan. Hann fór í aðgerðir þar sem tekin voru transplönt úr lærum og það er valda honum erfiðleikum í dag vegna verkja og máttminnkunar. Hann telur starfsendurhæfingu hafa hjálpað sér og sérlega hvað varðar hendur þar sem styrkur hefur aukist en samt ekki nóg til að geta sinnt líkamlega erfiðu starfi. Læknir er að velta fyrir sér aðgerð til að auka styrk í handlegg. Mætti í tíma hjá bæklunarsérfræðingi 29. sept. (B bæklunarlæknir). Ekki borist læknabréf frá honum. Hann er búin að fara fjórum sinnum í laser aðgerð á örum í andliti og á eftir að fara í fleiri auk þess sem hann hefur farið í skurðaðgerð á andliti vegna örmyndunar. A hefur verið í 16 mánuði í VIRK, lítill framgangur og svo virðist sem færni til vinnu hafi ekki aukist verulega. Hann er enn verulega hamlaður af líkamlegum afleiðingum […] og ekki enn náð þeirri færni í íslensku sem hann vonaðist til að myndi auka vinnufærni sína. Ekki verður unnið frekar með hamlandi einkenni innan starfsendurhæfingar sem telst fullreynd og hann metin óvinnufær og er vísað í heilbrigðiskerfið til frekari þjónustu. Von er á greinargerð frá G einnig sem mun þá liggja í kerfinu.“
Um gildi segir að ástand sveiflist og þá kemur fram að ekki séu líkur á að breytingar verði á getu.
Í göngudeildarnótu B læknis, dags. 4. maí 2026, segir:
„Orthopaedic follow-up care, unspecified, Z47.9
Sequelae of unspecified burn, corrosion and frostbite, T95.9
Vísa líka í eldri gögn hér af lýtalækningadeildinni til dæmis.
A varð fyrir mjög alvarlegum [áverka] í […] sem hefur skilið eftir mjög miklar varanlegar afleiðingar meðal annars á höndum og í andliti.
Ég sá hann hér í september sl. og ætlaði þá að reyna að afla mér aðeins meiri gagna um stöðu hans hér á landi en lítið varð úr því. Skilst að það vanti gögn frá þeirri komu varðandi hans örorkumat. Við skoðun á þeim tíma var kannski ekki þess eðlis að ég væri með örorkumat í huga. Kallaði hann því aftur hér núna.
Það eru líka til ljósmyndir af höndum í gögnum og vísa ég í þær varðandi útbreiddan örvef um handleggina. Mín skoðun takmarkast við hendurnar og neðri hluta framhandleggja. Þarna er umfangsmikill örvefur og einnig mjög umfangsmiklir flipagraftar, sérstaklega á handarbökum þar sem að eru svolítið þykkir flipar sem að voru teknir frá lærum á sínum tíma.
Hann er betri ef svo má segja í sinni vinstri hendi en er rétthentur. Munurinn liggur annars vegar í verkjum við beitingu og síðan er hann stífari í hnúaliðum hægri handar. Hreyfilega séð þá hreyfast fingurnir saman í extension og flexion hægra megin á nokkuð eðlilegan hátt en vinstra megin þá er hann með verulegan extensions defect í PIP lið á litlafingri og hann hefur Boutonniere deformitet þar þegar hann hreyfir þann fingur.
Það er líka ansi stíft ör í greipinni milli dig IV og V dorsalt á vinstri hendi en það er ekki jafn stífur örvefur í öðrum greipum. Munurinn milli handa liggur líka að einhverju leyti í þumalfingrum hjá honum. Hann á auðveldara með að beita þumalfingrinum vinstra megin.
Ég sendi hann í rtg. núna og vísa í svarið þaðan. Hann er með umfangsmiklar breytingar í liðum og beinum.
Það er þó sjónarmunur á hægri og vinstri og enn og aftur þá er sú hægri verri. Það eru meiri slitbreytingar og skemmdir í beinum þeim megin. Í hægri úlnlið sjást til dæmis arthrosubreytingar og hann er alltaf með verki í þeim lið af og til sem hann er ekki að finna fyrir að sama skapi vinstra megin. Þetta er að miklu leyti álagstengt.
Það gerist líka iðulega að hann einhvern veginn missir mátt í hægri hendi. Þetta gildir til dæmis þegar hann vaknar að þá getur hann oft ekki lyft upp hendinni fyrr en eftir nokkurn tíma.
Úlnliðshreyfingar beggja vegna eru með nokkuð eðlilega flexion- og extensionsgetu sem og radial og ulnar deviation en það er vægt skert supination í vinstri úlnlið og hann lýsir þá verkjaleiðni út í vinstri litlafingur og aðeins upp fyrir úlnlið. Fæ ekki fram óstöðugleika í DRU liðnum.
Ef við höldum áfram með hægri hendi þá eru þarna liðskemmdir í MCP I liðnum hægra megin en hann er ekki að finna verki þar nema við álag og liðurinn er tiltölulega mobill.
Hnúaliðir II - V hægra megin eru án teljandi verkja segir hann. Nær að rétta að fullu úr þeim en beygjugetan eingöngu um 35°. Það verður þó að segjast eins og er að það er erfitt að mæla hreyfigetu þar sem flipar á báðum handarbökum eru það umfangsmiklir að það er erfitt að fá kannski markverða mælingu þar. Hann hins vegar réttir að fullu úr þessum liðum.
PIP liðir hægri handar þá nær hann að rétta að fullu úr þeim en síðan er flexionsgetan í PIP II - IV 45° en alveg 90° í PIP lið á litlafingri. Í DIP lið þá er hreyfigetan þannig að hann nær að rétta úr þeim en í DIP II beygir hann í 70°, í DIP III og IV beygir hann 25-30° og í DIP á litlafingri fer hann í 80°.
Þegar hann reynir að kreppa hnefann að þá vantar hann töluvert upp á að koma fingurgómum inn í lófann hægra megin, þetta er um 4 cm á dig III og IV, 1 cm á dig V og 3,5 cm á dig II.
Það er heldur betri hreyfing í vinstri hendi. Hann flecterar í MCP lið II í um 50° en svo fer þetta aðeins minnkandi eftir því sem kemur meira ulnart og hann er með 25° í MCP V.
Í PIP liðum réttir hann að fullu nema í PIP V þar sem að hann er með u.þ.b. 60° extensions defect. Aðra PIP liði beygir hann í ríflega 90° og réttir að fullu. DIP liðir heldur betri en á hægri.
F-L diastasi (fingur að lófa) vinstra megin er þetta eiginlega 1,5 í dig II, IV og V en hann nær með dig III inn að lófa.
Vinstra megin lýsir hann öllu skyni sem eðlilegu en hægra megin lýsir hann því sem að hann sé með hypersensibilitet. Forðast mjög að vera úti í kulda og finnur fyrir kuldaóþoli þannig. Hann er sterkur bilateralt í thenar vöðvum og interosseous vöðvar líka. Gripstyrkur mælist hjá honum hægra megin 15.3, 15.0, og 15.9 kg sem er vel undir því sem telst eðlilegt hjá 33 ára karlmanni. Hægri hendi er ríkjandi hjá honum og þar ætti maður von á að meðaltali um 55.2 kg. Hann er heldur sterkari vinstra megin en þar mælist hann 17.7, 18.7 og 18.9 kg. Segir að hann hafi nú mælst hjá sjúkraþjálfa yfir 20 kg í þeirri vinstri. Normal gildi fyrir X ára karlmann í víkjandi hendi er 50.1 kg.
Um að ræða ástand frá því í barnæsku. Umfangsmiklar aðgerðir með flipum frá lærum og það eru þarna að sjá á rtg.myndum mörg metalclips í og umhverfis báða úlnliði. Hendurnar eru að virka hjá honum við alla léttari iðju en hann vantar allan styrk og það eru þarna hreyfiskerðingar beggja vegna.
Allar aðgerðir eru að mínu leyti frekar tvísýnar. Það er hægt að gera örvefsplastik eins og til dæmis á greipinni milli dig IV og V á vinstri hendi en hann er ekkert að hafa finnst mér nein teljandi óþægindi frá því. Aðgerðir til þess að reyna að bæta lipurleika í MCP liðnum tel ég hæpnar. Ég sé því ekki neinar augljósar leiðir til þess að bæta ástand handanna hjá honum og finnst fyllilega tímabært að gera hjá honum örorkumat.“
Í fyrirliggjandi sjálfsmati vegna örorku, dags. 29. janúar 2026, kemur fram að kærandi hafi ekki verið á vinnumarkaði síðan 2019. Þá kemur fram að kærandi meti starfsgetu sína 20% og að það sé mjög mikilvægt fyrir hann að vera í vinnu. Kærandi telji hans helsta vanda sem leiði til óvinnufærni vera takmörkuð hreyfigeta handa og tungumálahindranir. Kærandi svarar spurningu um hvaða árangri endurhæfing/meðferð hafi skilað með því að nefna VIRK.
Í þjónustulokaskýrslu VIRK, dags. 28. október 2025, segir að þjónustulok hafi orðið vegna tilvísunar í meðferð/rannsóknir í heilbrigðiskerfinu.
Í niðurstöðu starfsgetumats segir:
„Heilsubrestur til staðar sem veldur óvinnufærni. Starfsendurhæfing hjá VIRK er talin fullreynd. A hefur verið í 16 mánuði í VIRK, lítill framgangur og svo virðist sem færni til vinnu hafi ekki aukist verulega. Hann er enn verulega hamlaður af líkamlegum afleiðingum […] og ekki enn náð þeirri færni í íslensku sem hann vonaðist til að myndi auka vinnufærni sína. Ekki verður unnið frekar með hamlandi einkenni innan starfsendurhæfingar sem telst fullreynd og hann metin óvinnufær og er vísað í heilbrigðiskerfið til frekari þjónustu.“
Um þjónustuferil hjá ráðgjafa segir:
„A fór í mat læknis hjá VIRK í apríl 2024 til að meta raunhæfni/tímabærni þjónustu. Talið var raunhæft að stefna að fullri atvinnuþátttöku og átti starfsendurhæfing fyrst og fremst að snúa að sjúkraþjálfun, íslenskunámi og aðstoð við atvinnuleit. A hitti í framhaldinu sjúkraþjálfara sem sérhæfir sig í höndum, sem taldi sjúkraþjálfun ekki gagnast A en benti á að togspelka gæti gert það. Sjúkraþjálfari mat hann tilbuinn til léttari starfa. Upplýsingar fengust um að A ætti tíma hjá lýtalækni þar sem ör yrðu löguð. Skv. heimilislækni átti það ekki að hafa nein áhrif á framgang starfsendurhæfingar eða starfsgetu. Íslenskunámskeið var á vegum félagsþjónustu og því ákveðið að VIRK myndi bjóða aðstoð við undirbúning og atvinnuleit í hentugt starf. A afþakkaði það þar sem hann stefnir eingöngu á vinnu við sitt fag. En til þess þarf hann að vera kominn með góða íslenskukunnáttu. Hann vill því verja næstu árum í að læra íslenskuna, helst í Háskóla Íslands. - Skráð: 06.09.2024
Einstaklingur er búinn að vera í VIRK undanfarna 16 mánuði, hann fór í mat í upphafi ferils þar sem mælt var með stuttum ferli í VIRK. Í upphafi ferils stefndi hann á að reyna að fá vinnu við sitt fag og læra íslensku og ekki var talið að þjónusta VIRK hentaði honum. Hann fékk svo námið sitt metið og var málið hans endurskoðað og mælt var handaþjálfun hjá iðjuþjálfa, líkamleg uppbygging undir handleiðslu sjúkraþjálfara og íslenskunámskeið til að efla möguleika hans á vinnumarkaði. Hann er búinn að vera í þessum úrræðum og finnur að styrkur hans hefur aðeins aukist og þol hans til að nota hendurnar líka aðeins aukist. Hann fór til atvinnulífstengils VIRK til að móta skref varðandi endurkomu á vinnumarkað og útskrifast hann yfir til atvinnulífstengils. Þar sem hann finnur að heilsan hans er þannig að hann treystir sér einungis í hlutastarf þá var ákveðið að vísa honum í mat læknis í lok ferils. - Skráð: 11.09.2025“
Úrskurðarnefnd velferðarmála, sem meðal annars er skipuð lækni, leggur sjálfstætt mat á öll fyrirliggjandi gögn. Samkvæmt 2. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar skal endurhæfing eða viðurkennd meðferð sem hefur það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta vera fullreynd áður en til samþætts sérfræðimats kemur. Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að endurhæfing/viðurkennd meðferð hafi ekki verið fullreynd. Þá var kæranda leiðbeint um að hann gæti átt rétt á sjúkra- og endurhæfingargreiðslum.
Fyrir liggur að kærandi fékk greiddan endurhæfingarlífeyri vegna tímabilsins 1. ágúst 2024 til 1. september 2025 og síðan sjúkra- og endurhæfingargreiðslur vegna tímabilsins 1. september 2025 til 31. janúar 2026. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi meðal annars verið greindur með eftirstöðvar ótilgreinds x, ætingar og kals. Í læknisvottorði E, dags. 14. janúar 2026, kemur fram að ekki séu líkur á að breytingar verði á getu. Þá segir í göngudeildarnótu B læknis, dags. 4. maí 2026, að læknirinn sjái ekki neinar augljósar leiðir til þess að bæta ástand handa kæranda. Í þjónustulokaskýrslu VIRK, dags. 28. október 2025, segir að kærandi sé enn verulega hamlaður af líkamlegum afleiðingum […] og ekki enn náð þeirri færni í íslensku sem hann hafi vonast til að myndi auka vinnufærni sína. Ekki verði unnið frekar með hamlandi einkenni innan starfsendurhæfingar sem teljist fullreynd og hann metinn óvinnufær og vísað í heilbrigðiskerfið til frekari þjónustu.
Úrskurðarnefnd velferðarmála telur ljóst af gögnum málsins að kærandi býr við varanleg mein sem takmarka getu kæranda til álagsbundinna starfa. Ekki verður þó ráðið af upplýsingum í framangreindum gögnum að frekari endurhæfing geti ekki stuðlað að aukinni færni til annars konar atvinnuþátttöku. Þá liggur fyrir að kærandi hefur fengið greiddan endurhæfingarlífeyri og sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í 18 mánuði en heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að 84 mánuði samkvæmt 5. mgr. 27. gr. laga um almannatryggingar. Í ljósi framangreinds telur úrskurðarnefnd velferðarmála rétt að kærandi láti reyna á frekari endurhæfingu áður en til örorkumats kemur.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 23. maí 2026, um að synja kæranda um örorkulífeyri.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn A, um örorkulífeyri, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Rakel Þorsteinsdóttir