Mál nr. 444/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 444/2026

Miðvikudaginn 9. september 2026

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Unnþór Jónsson lögfræðingur og Kristinn Tómasson læknir.

Með kæru, móttekinni 22. júní 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 11. júní 2026 þar sem umsókn kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur var synjað.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um örorkulífeyri og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins með umsókn 28. apríl 2026. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 11. júní 2026, var umsókn kæranda synjað á þeim forsendum að endurhæfing/viðurkennd meðferð væri ekki fullreynd.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. júní 2026. Með bréfi, dags. 23. júní 2026, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 1. júlí 2026, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi hafi verið í endurhæfingu í að verða sjö ár. Kærandi hafi farið fjórum sinnum til VIRK og niðurstaðan hafi verið sú að það væri ekki raunhæft fyrir hann að fara á út á vinnumarkaðinn. Málið hafi farið fyrir samhæfingarteymi VIRK og þar hafi niðurstaðan verið sú að óska eftir starfshæfnismati. Kærandi hafi í kjölfarið óskað eftir örorku sem hafi verið synjað á þeim forsendum að endurhæfing væri ekki fullreynd. Kærandi sé ósáttur við þessa niðurstöðu og því sé hún kærð.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærð sé ákvörðun, dags. 11. júní 2026, um að synja umsókn kæranda um örorkulífeyri á þeim grundvelli að endurhæfing hafi ekki verið talin fullreynd.

Ágreiningur málsins lúti að því hvort kærandi eigi rétt á örorkulífeyri samkvæmt 24. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar.

Örorkulífeyrir greiðist samkvæmt 24. gr. laga um almannatryggingar. Réttur til örorkulífeyris sé bundinn því skilyrði að geta umsækjanda til virkni á vinnumarkaði samkvæmt samþættu sérfræðimati sé metin 25% eða minni til langframa vegna langvarandi eða alvarlegs heilsubrests eða fötlunar.

Í 1. mgr. 26. gr. laganna komi fram að Tryggingastofnun beri ábyrgð á gerð samþætts sérfræðimats sem sé forsenda fyrir greiðslu örorkulífeyris samkvæmt 24. gr. og hlutaörorkulífeyris samkvæmt 25. gr. Þó sé Tryggingastofnun heimilt að víkja frá skilyrði um samþætt sérfræðimat ef slíkt mat sé bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar. Í niðurstöðu matsins skuli koma fram hver geta viðkomandi einstaklings til virkni á vinnumarkaði sé. Í 2. mgr. 26. gr. komi fram að áður en til samþætts  sérfræðimats komi skuli endurhæfing eða viðurkennd meðferð sem hafi það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta vera fullreynd. Þó sé Tryggingastofnun heimilt að víkja frá því skilyrði ef það sé bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar.

Kveðið sé á um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í 27. gr. laga um almannatryggingar. Í 1. mgr. komi fram:

„Heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur þegar einstaklingur, sem býr við langvarandi eða alvarlegan heilsubrest, eða fötlun, sem talinn er geta haft áhrif til frambúðar á getu hans til virkni á vinnumarkaði, fær viðurkennda meðferð eða tekur virkan þátt í endurhæfingu með það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta. Forsenda fyrir greiðslum er að heilsubrestur einstaklings sé afleiðing af sjúkdómi, slysi eða áfalli og skal við það miðað að heilsubrestur eða fötlun valdi því að hlutaðeigandi einstaklingur geti hvorki stundað vinnu né nám. Heimilt er þó að líta á þátttöku á vinnumarkaði eða nám sem lið í endurhæfingu eða viðurkenndri meðferð að því tilskildu að atvinnuþátttakan eða námið þjóni markmiði viðurkenndrar meðferðar eða endurhæfingar samkvæmt fyrirliggjandi endurhæfingaráætlun.“

Nánar sé kveðið á um sjúkra- og endurhæfingarlífeyri í reglugerð nr. 933/2025 um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur.

Í 45. gr. laga um almannatryggingar sé m.a. kveðið á um að Tryggingastofnun ríkisins skuli kynna sér aðstæður umsækjenda og greiðsluþega og gera þeim grein fyrir rétti þeirra samkvæmt lögum þessum og öðrum lögum er stofnunin starfi eftir, reglugerðum settum á grundvelli laganna og starfsreglum stofnunarinnar. Við meðferð máls skuli staða og réttindi umsækjanda eða greiðsluþega skoðuð heildstætt. Stofnunin skuli jafnframt leiðbeina umsækjanda um réttarstöðu hans, um þau gögn sem þurfi að fylgja með umsókn og um framhald málsins og hafi því öllu verið sinnt í þessu máli.

Kærandi hafi verið með samþykkt tímabundið örorkumat á tímabilinu 1. maí 2017 til 31. maí 2019. Síðar hafi kærandi verið í endurhæfingu og hafi verið með samþykktar endurhæfingargreiðslur vegna tímabilanna 1. apríl 2020 til 31. janúar 2022, 1. október 2022 til 31. janúar 2023, 1. maí 2023 til 31. mars 2025 og 1. júní 2025 til 31. ágúst 2025 og í kjölfarið sjúkra- og endurhæfingargreiðslur vegna tímabilsins 1. september 2025 til 28. febrúar 2026. Kærandi hafi þá lokið 58 mánuðum á sjúkra- og endurhæfingargreiðslum.

Kærandi hafi sótt um örorkulífeyri 28. apríl 2026. Með umsókn hafi fylgt læknisvottorð, dags. 24. apríl 2026, starfsgetumat frá VIRK, dags. 3. september 2025, og sjálfsmat. Ekki hafi verið til staðar færnimat utan húss þar sem sjúkraþjálfari, sem hafi áður sinnt endurhæfingu kæranda, hafi hætt störfum og félagsráðgjafi hafi ekki talið sig hafa forsendur til að gera færnimat.

Kæranda hafi verið synjað um örorkulífeyri með bréfi, dags. 11. júní 2026, á þeim grundvelli að endurhæfing væri ekki fullreynd.

Í greinargerð Tryggingastofnunar er greint frá sjúkdómsgreiningum sem tilgreindar eru í læknisvottorði, dags. 24. apríl 2026, ásamt upplýsingum um fyrri heilsufarssögu. Í vanda sem valdi skerðingu á getu einstaklings til atvinnuþátttöku hafi læknir skrifað að heilsubresturinn sé afleiðing af slysi. Þá telji læknir að stöðugleika hafi verið náð og að ekki sé talið að færni geti aukist. Í lista yfir líkamlegar skerðingar hafi læknir merkt í að viðkomandi líkamsstarfsemi eigi ekki við í tilviki kæranda nema verkjatilfinning, þar sem læknir hafi merkt í „mikil skerðing“ og vöðvakraftur, þar sem læknir hafi merkt í „miðlungs skerðing“. Í vitrænni skerðingu hafi læknir merkt í að vitræn skerðing eigi ekki við í tilviki kæranda nema vegna orkustigs, þar sem merkt hafi við „mikil skerðing“, og í tilfinningalíf/andlegt jafnvægi/tilfinningastarfsemi, þar sem merkt hafi verið í „miðlungs skerðing“.

Færnimat vegna umsóknar um örorku, sem hafi verið skilað inn af félagsráðgjafa, hafi verið óútfyllt, þar sem hún hafi merkt við að hún hefði ekki forsendur til að svara færnimati.

Í starfsgetumati VIRK, dags. 3. september 2025, segi í tilvísandi spurningu:

„Einstaklingur með fjórðu beiðni til VIRK. Fór í mat læknis hjá VIRK 2023, ekki metinn raunhæfur. Staðan í raun óbreytt hvað varðar andlega og líkamlega þætti. Hefur reynt endurhæfingu í Hæfi með litlum árangri. Óvíst með áhugahvöt til vinnu og hvort einstaklingur er móttækilegur fyrir endurhæfingu. Tungumálaörðugleikar hafa t.d. hindrað möguleika á endurhæfingu á Reykjalundi. Meta raunhæfi starfsendurhæfingar.“

Í spurningalista vegna færni einstaklings sé farið yfir þætti sem geti haft áhrif á færni til atvinnuþátttöku. Þar sé m.a. litið til áhugahvatar/seiglu, en þar komi fram að það hafi veruleg áhrif á færni til atvinnuþátttöku og að áhugahvöt virðist ekki vera til staðar.

Í samantekt og áliti í skýrslu VIRK segi m.a. eftirfarandi:

„Öllum inngripum er lokið og sömuleiðis endurhæfingu á vegum heilbrigðiskerfisins. Æskilegt hefði þó verið að hann færi í endurhæfingu á Reykjalundi en tungumálaörðugleikar eru hindrandi hvað það varðar. Verið í endurhæfingu í B í ein 5 ár og með litlum árangri, ekki síst þar sem áhugahvöt er óljós og A sér sig ekki aftur á vinnumarkaði. Hann hefur áður verið metin ótækur í starfsendurhæfingu af lækni VIRK. Maðurinn virðis búa við mikið skerta starfsgetu og sér undirritaður engin þau úrræði sem VIRK hefur úr að spila sem gætu aukið starfsgetu hans. Mikil meðferð og endurhæfingin hefur farið fram undir hatti heilbrigðiskerfisins með hverfandi árangri. Ekki verður séð að starfsendurhæfing hafi eitthvað við að bæta.“

Tryggingastofnun hafi synjað kæranda um örorkumat á þeim grundvelli að endurhæfing væri ekki fullreynd. Í bréfi stofnunarinnar segi m.a.:

„Skilyrði fyrir greiðslu örorkulífeyris byggjast á mati sem metur getu til virkni á vinnumarkaði. Ávallt skal jafnframt meta hvort frekari endurhæfing eða viðurkennd meðferð geti mögulega aukið virkni á vinnumarkaði.

Fram kemur að um samsettan vanda er að ræða og að megin hindrun sérhæfðar endurhæfingar sé tungumálaerfiðleikar. Endurhæfing sem tekur heildstætt á vanda umsækjanda er því ekki fullreynd.

Að mati Tryggingastofnunar telst endurhæfing/viðurkennd meðferð ekki fullreynd.“

Síðasta samþykkta endurhæfing kæranda hafi verið vegna sjúkraþjálfunar hjá C. Kærandi hafði fengið samþykkt tímabilið 1. júní 2025 til 28. febrúar 2026. Í áætlun sjúkraþjálfara komi fram að kærandi myndi sinna sjúkraþjálfun einu sinni í viku ásamt úthalds, styrktar og liðleikaæfingum í æfingasal og/eða heima. Samkvæmt rafrænu kerfi Tryggingastofnunar hafi kærandi mætt fjórum sinnum í sjúkraþjálfun á því tímabili.

Tryggingastofnun ítreki að stofnuninni sé heimilt að setja það skilyrði að umsækjandi um örorkulífeyri gangist undir sérhæft mat á möguleikum til endurhæfingar og viðeigandi endurhæfingu áður en til samþætts sérfræðimats komi, sbr. 2. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar.

Við mat á færniskerðingu leggi Tryggingastofnun sjálfstætt mat á framlagðar upplýsingar, þar sem m.a. sé horft til sjúkdómsgreininga, heilsufarssögu og upplýsinga um meðferðir og endurhæfingu sem kærandi hafi gengist undir. Tryggingastofnun sé því ekki bundin af ályktunum meðferðaraðila um meinta örorku eða óvinnufærni. Þá skipti máli hvort gögn séu rökstudd og frá hlutlausum aðilum, auk þess sem metið sé hvort lýst einkenni fái stoð í atvikum daglegs lífs og samrýmist því sem almennt gerist vegna sambærilegra áverka, sjúkdóma eða fötlunar.

Samkvæmt gögnum málsins glími kærandi við fjölþættan vanda, þ. á m. verkjavanda, áfallastreituröskun og þunglyndislotur. Kærandi hafi verið með samþykktar endurhæfingargreiðslur vegna tímabilanna 1. apríl 2020 til 31. janúar 2022, 1. október 2022 til 31.október 2023, 1. maí 2023 til 31. mars 2025 og 1. júní 2025 til 31. ágúst 2025 og í kjölfarið sjúkra- og endurhæfingargreiðslur vegna tímabilsins 1. september 2025 til 28. febrúar 2026.

Í síðustu samþykktu endurhæfingaráætlun, dags. 10. júní 2025, hafi kærandi verið í sjúkraþjálfun og samkvæmt henni hafi hún átt að vera í henni einu sinni í viku, næstu níu mánuði. Kærandi hafi fengið samþykktar greiðslur á tímabilinu 1. júní 2025 til 28. febrúar 2026. Samkvæmt rafrænu kerfi Tryggingastofnunar virðist sem kærandi hafi einungis mætt fjórum sinnum í sjúkraþjálfun.

Í starfsgetumati VIRK segi að óvíst sé með áhugahvöt og hvort einstaklingur sé móttækilegur fyrir endurhæfingu. Þá segi að tungumálaörðugleikar hafi t.d. hindrað möguleika á endurhæfingu á Reykjalundi, en æskilegt hefði verið að hann færi í endurhæfingu þar.

Tryggingastofnun hafi synjað kæranda á þeim grundvelli að endurhæfing sé ekki fullreynd. Fram komi að kærandi væri með samsettan vanda og að meginhindrun sérhæfðrar endurhæfingar séu tungumálaerfiðleikar. Stofnunin hafi talið að endurhæfing sem taki heildstætt á vanda kæranda sé því ekki fullreynd.

Tryggingastofnun telji að tungumálaerfiðleikar séu ekki forsenda þess að einstaklingar teljist hafa lokið endurhæfingu og skilyrði örorku séu uppfyllt, þegar talið sé að sérhæfð endurhæfing muni geta hjálpað viðkomandi. Stofnun telji að sérhæfð endurhæfing, þar sem tekið sé heildrænt á vanda kæranda, geti aðstoðað hann og telji því að endurhæfing sé ekki fullreynd. Þá komi fram í gögnum málsins að áhugahvöt kæranda væri lítil, hann hafi mætt í fá skipti í sjúkraþjálfun á síðasta endurhæfingartímabili samkvæmt kerfum stofnunarinnar og hafi því ekki sinnt endurhæfingu sem skyldi. Það sé því mat Tryggingastofnunar að endurhæfing/viðurkennd meðferð sé ekki fullreynd og taka þurfi markvisst og heildrænt á heilsufarsvanda kæranda áður en til tímabært sé að meta varanlega starfsgetu.

Það sé því mat Tryggingastofnunar að kærandi uppfylli ekki skilyrði fyrir því að vera sendur í samþætt sérfræðimat að svo stöddu til þess að meta örorku, þar sem endurhæfing hafi ekki verið fullreynd og sé talið að enn sé hægt að vinna með heilsufarsvanda kæranda til þess að auka vinnuhæfni. Á þeim forsendum telji Tryggingastofnun það vera í fullu samræmi við gögn málsins að hafna örorkumati í tilviki kæranda að svo stöddu.

Í því sambandi skuli þó áréttað að það sé ekki hlutverk Tryggingastofnunar að leggja til meðferðar- eða endurhæfingarúrræði, heldur sé sú ábyrgð lögð á lækna kæranda, þ.e. að koma umsækjendum um sjúkra- og endurhæfingagreiðslur og/eða örorkulífeyri í viðeigandi endurhæfingarúrræði sem taki mið af vanda einstaklingsins hverju sinni.

Að öllu framangreindu virtu sé það niðurstaða Tryggingastofnunar að endurhæfing kæranda sé ekki fullreynd. Kærandi hafi því ekki uppfyllt skilyrði 2. mgr. 26. gr. og 24. gr. laga um almannatryggingar.

Mikilvægt sé að þeir einstaklingar sem mögulega geti endurheimt vinnuhæfni fullnýti þau endurhæfingarúrræði sem í boði séu áður en til örorkumats komi. Af gögnum málsins verði ekki ráðið að heilsufarsvandi kæranda sé þess eðlis að endurhæfing geti ekki komið að gagni. Með vísan til framangreinds hafi í samræmi við lög og fyrri úrskurðaframkvæmd umsókn kæranda um örorkulífeyri verið synjað. Tryggingastofnun fari því fram á að kærð ákvörðun verði staðfest.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 11. júní 2026, þar sem kæranda var synjað um örorkulífeyri. Ágreiningur málsins lýtur að því hvort heimilt hafi verið að synja kæranda um örorkulífeyri samkvæmt 24. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar á þeim grundvelli að endurhæfing/viðurkennd meðferð hafi ekki verið fullreynd.

Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. laga um almannatryggingar er réttur til örorkulífeyris bundinn því skilyrði að geta umsækjanda til virkni á vinnumarkaði samkvæmt samþættu sérfræðimati sé metin 25% eða minni til langframa vegna langvarandi eða alvarlegs heilsubrests eða fötlunar.

Samkvæmt 1. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ábyrgð á gerð samþætts sérfræðimats sem er forsenda fyrir greiðslu örorkulífeyris samkvæmt 24. gr. og hlutaörorkulífeyris samkvæmt 25. gr. Í 2. mgr. 26. gr. er tilgreint að áður en til samþætts sérfræðimats komi skuli endurhæfing eða viðurkennd meðferð sem hafi það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta vera fullreynd. Tryggingastofnun er heimilt að víkja frá því skilyrði ef það er bersýnilega óþarft að mati stofnunarinnar.

Í 27. gr. laga um almannatryggingar er fjallað um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur. Svohljóðandi eru 1. og 5. mgr.:

„Heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur þegar einstaklingur, sem býr við langvarandi eða alvarlegan heilsubrest, eða fötlun, sem talinn er geta haft áhrif til frambúðar á getu hans til virkni á vinnumarkaði, fær viðurkennda meðferð eða tekur virkan þátt í endurhæfingu með það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta. Forsenda fyrir greiðslum er að heilsubrestur einstaklings sé afleiðing af sjúkdómi, slysi eða áfalli og skal við það miðað að heilsubrestur eða fötlun valdi því að hlutaðeigandi einstaklingur geti hvorki stundað vinnu né nám. Heimilt er þó að líta á þátttöku á vinnumarkaði eða nám sem lið í endurhæfingu eða viðurkenndri meðferð að því tilskildu að atvinnuþátttakan eða námið þjóni markmiði viðurkenndrar meðferðar eða endurhæfingar samkvæmt fyrirliggjandi endurhæfingaráætlun.

[…]

Heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að 60 mánuði en þó að hámarki í 12 mánuði í senn. Heimilt er að framlengja greiðslutímabilið um allt að 24 mánuði ef um er að ræða einstakling í mjög viðkvæmri stöðu sem vegna fjölþætts vanda er talinn þarfnast frekari viðurkenndrar meðferðar eða endurhæfingar. Þá er auk þess heimilt að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að þrjá mánuði eftir að endurhæfingu lýkur, að því tilskildu að greiðsluþegi sé skráður í atvinnuleit hjá Vinnumálastofnun eða öðrum þjónustuaðila og samþætt sérfræðimat liggi ekki fyrir sem sýni getu til virkni á vinnumarkaði 50% eða minni.“

Í reglugerð nr. 933/2025 er fjallað nánar um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur.

Fyrir liggur læknisvottorð D, dags. 24. apríl 2026, vegna umsóknar um örorku þar sem greint er frá sjúkdómsgreiningunum brot á öðrum og ótilgreindum hlutum úlnliðs og handar, þrengslaheilkenni í öxl, verkur í mjóbaki, ótilgreind sykursýki án fylgikvilla, ótilgreindur axlarmeinsemd, ofreynsla og tognun í hálshrygg, áfallastreituröskun og ótilgreind geðlægðarlota.

Um fyrra heilsufar segir meðal annars:

„Lendir í bílslysi X þegar það er bíll sem keyrir aftan á bifreið hans þegar hann er á umferðarljósum á leið frá vinnu. Glímdi við langvarandi verki í hálsi, mjóbaki, og hægri öxl. Tók hann langan tíma að jafna sig. Eftir X ár frá slysi hóf hann aftur störf, þrátt fyrir verki en endurhæfing hafði virkað vel að hans sögn. Fer m.a í aðgerð á öxl. Greinist með sykursýki 2015 Lendir í öðru bílslysi X þegar keyrt inn í hlið bifreið hans. Bæði slys var hann í rétti að hans sögn. Eftir seinna slys versnuðu verkir og orkutap var mikið. Getur ekki unnið eftir þetta slys.“

Varðandi vanda sem veldur skerðingu á getu einstaklings til atvinnuþátttöku skrifar læknir að heilsubresturinn sé afleiðing af slysi. Þá telur læknir að stöðugleika sé náð og að ekki sé talið að færni geti aukist.

Í vottorðinu kemur fram að kærandi hafi verið óvinnufær frá 1. maí 2019.

Í fyrirliggjandi sjálfsmati kemur fram að kærandi hafi ekki verið á vinnumarkaði síðan 2019. Þá kemur fram að það sé alls ekki mikilvægt fyrir kæranda að vera í vinnu og að hann hafi ekki fengið neinn árangur hjá VIRK. Í svari kæranda við því hver sé hans helsti vandi sem leiði til óvinnufærni segir: „Líkamlega verkir andlega vanlíðan ut af heilsuni“

Í starfsgetumati VIRK, dags. 7. september 2025, segir í samantekt og áliti:

„X ára kk. sem hefur lent í umferðarslysum á Íslandi í tvígang, X og X. Alveg óvinnufær frá seinna slysi vegna verkja í baki, hálsi og hægri öxl. Eftir fyrra slysið var hann óvinnufær í um X ár og fór í aðgerð á hægri öxl. Læknisfræðilegum inngripum er lokið, hann fór aðgerð hjá bæklunarlækni á hægri öxl og uppvinnsla hefur verið hjá taugalækni vegna verkja í hálsi. Hann telur sig óvinnufæran og þurfi á örorku. TR óskaði eftir raunhæfismati og niðurstaða VIRK frá 2022 var að frekari inngrip þyrftu að eiga sér stað til að hann kæmist að nýju á vinnumarkað.

Reykjalundur hefur gert mat og ekki talið hann henta þar inn vegna tungumálavanda.

Áður vísað frá B af sömu orsökum. Hefur var þó í endurhæfingu hjá B frá júní 2023 en því lauk í mars 2025, engar breytingar á urðu á verkjunum og litlar breytingar á líðan.

Ítrekaðar endurhæfingartilraunir sl. ár sem hafa ekki skilað nokkrum árangri, en maðurinn virðist ekki mótiveraður fyrir endurkomu á vinnumarkað.

ICF prófíll sýnir hátt útslag bæði á líkamlegum og sálfélagslegum þáttum. Samkvæmt GAD-7 kvíðakvarðanum og PHQ-9 þungyndiskvarðanum er um að ræða meðal alvarleg kvíða- og depurðareinkenni og skv. SpA telur hann vinnugetu sína vera litla sem enga í dag og engar líkur á að hann komist aftur út á vinnumarkaðinn á næstu 6-12 mánuðum. A er kvæntur, á X ára stelpu og býr í leiguhúsnæði á almennum markaði.

Hann er í stöðugum framfærsluvanda, er nú á endurhæfingarlífeyri.

Eiginkona er […] og þau eru með eitt barn á framfæri. Hann kemur til Íslands fyrir X árum frá E og eiginkona er samlandi hans. Hann talar ekki íslensku og er ekki búinn að aðlaga sig að íslensku samfélagi. Hann er með uppgert bótamál og hefur sótt um örorku.

Ekki lokið grunnskólaprófi og þarfnast túlks í samskiptum sínum við heilbrigðiskerfið.

Telur sig ekki geta unnið vegna verkja í hálsi, baki og hægri öxl. Fyrir utan það sem fram kemur í sjúkrasögu hefur hann verið almennt hraustur, er þó með DM týpu 2. Unnið hér á Íslandi mest við þrif, en ekki unnið eftir síðara bílslysið árið X. Vann við leigubílaakstur í E og rak þar búð.

Niðurstaða ICF prófíls, sértækra spurningalista og Sp. Á er nokkuð svipað og fram kemur við viðtal og skoðun.

A er áður hraustur kk. þar til hann lendir í tveim bílslysum, fyrst X, var þá frá í 2 ár og síðan árið X og hefur hann verið frá vinnumarkaði eftir það seinna. Verið að slást við erfiða stoðkerfisverki sem eru verstir Í baki hálsi og öxl. Hefur verið í eftirliti og meðferð hjá bæði taugalækni og bæklunarskurðlækni. Öllum inngripum er lokið og sömuleiðis endurhæfingu á vegum heilbrigðiskerfisins. Æskilegt hefði þó verið að hann færi í endurhæfingu á Reykjalundi en tungumálaörðugleikar eru hindrandi hvað það varðar. Verið í endurhæfingu í B í ein X ár og með litlum árangri, ekki síst þar sem áhugahvöt er óljós og A sér sig ekki aftur á vinnumarkaði. Hann hefur áður verið metin ótækur í starfsendurhæfingu af lækni VIRK. Maðurinn virðis búa við mikið skerta starfsgetu og sér undirritaður engin þau úrræði sem VIRK hefur úr að spila sem gætu aukið starfsgetu hans. Mikil meðferð og endurhæfingin hefur farið fram undir hatti heilbrigðiskerfisins með hverfandi árangri. Ekki verður séð að starfsendurhæfing hafi eitthvað við að bæta.

07.09.2025 13:40 – E

Niðurstaða:

Heilsubrestur til staðar sem veldur óvinnufærni. Starfsendurhæfing hjá VIRK er talin óraunhæf.

A er að slást við afleiðingar tveggja bílslysa. Hann er með hamlandi líkamleg einkenni í formi slæmra stoðkerfisverkja í baki og hálsi auk geðrænna einkenna s.s. svefnvanda, kvíða og depurðar með skertu orkustigi og streituþoli. Starfsendurhæfing metin óraunhæf þar sem slæmt og versnandi heilsufar hans gefur ekki tilefni til að hann snúi aftur á almennan vinnumarkað. Vísa á heimilislækni til að finna úrræði við hæfi í heilbrigðiskerfinu og/eða samtryggingarkerfinu.“

Úrskurðarnefnd velferðarmála, sem meðal annars er skipuð lækni, leggur sjálfstætt mat á öll fyrirliggjandi gögn. Samkvæmt 2. mgr. 26. gr. laga um almannatryggingar skal endurhæfing eða viðurkennd meðferð sem hefur það að markmiði að stuðla að aukinni færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta vera fullreynd áður en til samþætts sérfræðimats kemur. Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að endurhæfing/viðurkennd meðferð hafi ekki verið fullreynd. Þá var kæranda leiðbeint að fá ráðgjöf hjá fagaðila um þau endurhæfingarúrræði sem væru í boði.

Fyrir liggur að kærandi býr við ýmis vandamál af líkamlegum og andlegum toga og fékk greiddan endurhæfingarlífeyri í 58 mánuði á tímabilinu 1. apríl 2020 til 31. janúar 2022, 1. október 2022 til 31. janúar 2023, 1. maí 2023 til 31. mars 2025 og 1. júní 2025 til 31. ágúst 2025 og í kjölfarið sjúkra- og endurhæfingargreiðslur vegna tímabilsins 1. september 2025 til 28. febrúar 2026. Í fyrrgreindu læknisvottorði D, dags. 24. apríl 2026, kemur fram að kærandi sé að glíma við heilsubrest eftir tvö umferðarslys. Læknirinn telur að stöðugleika sé náð og færni geti ekki aukist. Í starfsgetumati VIRK, dags. 7. september 2026, kemur fram að kærandi sé með hamlandi líkamleg einkenni í formi slæmra stoðkerfisverkja í baki og hálsi auk geðrænna einkenna, s.s. svefnvanda, kvíða og depurðar með skertu orkustigi og streituþoli. Starfsendurhæfing hjá VIRK er talin óraunhæf. Þá segir að æskilegt hefði verið að hann færi í endurhæfingu á Reykjalundi en tungumálaörðugleikar séu hindrandi hvað það varði. Einnig segir að kærandi virðist ekki „mótiveraður“ fyrir endurkomu á vinnumarkað.

Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ekki verði ráðið af upplýsingum í framangreindum gögnum að frekari endurhæfing geti ekki stuðlað að aukinni færni til atvinnuþátttöku. Ráða má af gögnum málsins að kærandi hafi ekki sinnt endurhæfingu sem skyldi og úrskurðarnefndin telur að taka þurfi markvisst og heildrænt á heilsufarsvanda kæranda áður en til örorkumats kemur. Þá liggur fyrir að kærandi hefur fengið greiddan endurhæfingarlífeyri og sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í 58 mánuð en heimilt er að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að 84 mánuði samkvæmt 5. mgr. 27. gr. laga um almannatryggingar. Í ljósi framangreinds telur úrskurðarnefnd velferðarmála rétt að kærandi láti reyna á frekari endurhæfingu áður en til örorkumats kemur.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 11. júní 2026, um að synja kæranda um örorkulífeyri.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn A, um örorkulífeyri, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 
 
 
 
 

Var efnið hjálplegt?