Mál nr. 549/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 549/2026
Fimmtudaginn 24. september 2026
A gegn Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.
Með kæru, móttekinni 6. ágúst 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála úrskurð Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu frá 9. júlí 2026 um að hafna kröfu kæranda um sérstakt framlag vegna tannréttinga sonar hennar.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með beiðni, dags. 23. desember 2025, til Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu óskaði kærandi eftir sérstöku framlagi vegna tannréttinga sonar hennar. Með úrskurði, dags. 9. júlí 2026, hafnaði sýslumaður beiðni kæranda með þeim rökum að hún hefði komið of seint fram þar sem meira en þrír mánuðir hafi liðið frá lokum meðferðar með föstum tækjum þar til beiðnin hafi verið lögð fram hjá sýslumanni.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 6. ágúst 2026. Með bréfi, dags. 11. ágúst 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dagsettu sama dag, bárust gögn málsins frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og voru þau kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. ágúst 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru kemur fram að kæranda hafi verið synjað um endurgreiðslu á sérstöku framlagi vegna tannréttinga sonar hennar en faðir hans sé látinn. Kærandi og barnsfaðir hennar hafi verið skilin og hún hafi fengið meðlög frá honum og eftir andlát hans hafi hún fengið barnalífeyri. Kærandi hafi sótt um helming af kostnaði við tannréttingar sonar hennar þ.e. 433.568 kr. Hún hafi sótt um endurgreiðslu 23. desember 2025 þegar tannlæknirinn hafi útskrifaði son hennar en þá hafi hann enn átt eftir að fara þrisvar sinnum til tannlæknisins. Í júní 2025 hafi föstu tækin verið tekin af en tannréttingunum hafi ekki verið lokið alveg fyrr en í júlí 2026 þegar hann hafi verið útskrifaður. Kærandi hafi sótt um á sama tíma í ferlinu eins og hún hafði gert árið 2019 þegar elsti sonur hennar hafði lokið sínum tannréttingum og þess vegna hafi hún haldið að það væri nóg að sækja um eins og þá. Umsókn hennar hafi verið synjað vegna þess að hún hefði átt að sækja um endurgreiðslu innan þriggja mánaða frá því að föst tæki hafi verið tekin af. Kærandi hafi ekki vitað af þessari reglu, enginn hafi sagt henni frá þessu og hún hafi ekki fengið bréf sent um þetta eða neitt. Kærandi hafi því ekki vitað að það væri búið að breyta endurgreiðsluferlinu. Auk þess sé tannréttingunum ekki lokið fyrr en búið sé að útskrifa drenginn frá tannlækninum.
III. Sjónarmið Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu
Í kærðri ákvörðun kemur fram að Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu hafi þann 23. desember 2025 borist beiðni kæranda um að úrskurðað yrði um framlag á grundvelli 41. gr. laga um almannatryggingar en faðir drengsins sé látinn. Nánar tiltekið hafi verið óskað eftir að úrskurðað yrði um kröfu að fjárhæð 433.568 kr. vegna tannréttinga barnsins. Til stuðnings kröfunni hafi kærandi lagt fram skýrslu frá tannlækni, dags. 8. desember 2025, yfirlit yfir reikninga vegna tannréttinga frá 28. nóvember til 8. desember 2025 og greiðslukvittanir vegna tannréttinga frá 28. nóvember 2018 til 14. nóvember 2025.
Samkvæmt 41. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar um barnalífeyri vegna sérstakra útgjalda geti Tryggingastofnun ríkisins greitt sérstakt framlag vegna útgjalda við skírn barns, fermingu, gleraugnakaup, tannréttingar, vegna sjúkdóms, greftrunar eða af öðru sérstöku tilefni. Framlagið sé einungis heimilt að greiða vegna barna sem greiddur sé barnalífeyrir með og annað hvort foreldra sé látið, barn ófeðrað eða móður njóti ekki við vegna sérstakra eða óvenjulegra aðstæðna. Um viðmiðunarfjárhæðir vegna krafna um sérstök framlög gildi sömu reglur og um úrskurði vegna sérstakra útgjalda samkvæmt 60. gr. barnalaga nr. 76/2003.
Framlag samkvæmt 41. gr. laga um almannatryggingar verði aðeins ákveðið ef sýslumaður hafi úrskurðað um slíkt framlag samkvæmt beiðni sem honum skuli send innan þriggja mánaða frá því að svara varð til útgjalda nema eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með slíka kröfu. Beri sýslumanni að úrskurða um kröfu kæranda.
Skilyrði fyrir rétti til framlags sé að barnalífeyrir sé greiddur með barninu og hafi sýslumaður aflað upplýsinga frá Tryggingastofnun ríkisins um að svo sé, enda sé faðir barnsins látinn.
Samkvæmt 3. mgr. 41. gr. laga um almannatryggingar skuli beiðni um framlag send sýslumanni innan þriggja mánaða frá því að svara varð til útgjalda nema eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með slíka kröfu.
Litið sé svo á að sjónarmið sem beitt hafi verið við ákvarðanir sýslumanna á sérstöku framlagi samkvæmt 60. gr. barnalaga eigi við um ákvarðanir samkvæmt 41. gr. laga um almannatryggingar, eftir því sem við geti átt.
Um sé að ræða kröfu um framlag vegna tannréttinga. Viðurkennt sé við meðferð mála samkvæmt 60. gr. barnalaga nr. 76/2006 að eðlilegt kunni að vera að bíða með kröfu vegna samfelldrar meðferðar, svo sem tannréttinga, þar til meðferð sé lokið. Þegar um tannréttingar sé að ræða sé litið svo á að samfelldri meðferð ljúki þegar föst tæki séu fjarlægð af tönnum. Beiðni um framlag þurfi því að leggja fram áður en þrír mánuðir séu liðnir frá því tímamarki. Fram komi í beiðni kæranda og framlögðum reikningum að meðferð hafi lokið með föstum tækjum þann 16. júní 2025. Beiðni kæranda hafi verið lögð fram þann 23. desember 2025 og því ekki verið komin innan þriggja mánaða tímamarka samkvæmt 3. mgr. 41. gr. laga um almannatryggingar, enda hafi þá verið liðnir rúmlega sex mánuðir frá því að föst tæki hafi verið fjarlægð af tönnum barnsins. Komi þá til skoðunar hvort eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með framlagningu kröfunnar.
Kærandi taki fram í beiðni sinni að ástæðan fyrir framlagningu beiðninnar eftir þriggja mánaða frestinn sé sú að sonur hennar hafi fengið góm eftir að teinar hafi verið fjarlægðir og að hann hafi verið í eftirliti eftir það. Ekki verði fallist á skýringar kæranda fyrir því að beiðnin hafi verið lögð fram eftir þriggja mánaða frestinn, en gómur sé ekki talinn til fastra tækja í tannréttingameðferð. Fram komi í reikningi tannréttingalæknis, dags. 16. júní 2025, skýringin „Brottnám fastra tækja, hvor gómur.“ Að mati sýslumanns verði því ekki séð að eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með framlagningu kröfunnar þar sem föst tæki hafi sannanlega verið fjarlægð af tönnum barnsins þann 16. júní 2025. Miðað sé við að lok samfelldrar meðferðar vegna tannréttinga sé það tímamark er föst tæki hafi verið fjarlægð af tönnum, samkvæmt staðfestingu tannréttingalæknis, líkt og komi fram í athugasemdum með greinargerð með frumvarpi til barnalaga nr. 76/2003. Telja verði að kærandi hefði getað lagt erindi sitt fram innan tímafresta 3. mgr. 41. gr. laga um almannatryggingar
Beiðnin sé því of seint fram komin þar sem meira en þrír mánuðir hafi liðið frá lokum meðferðar með föstum tækjum og þar til beiðnin hafi verið lögð fram hjá sýslumanni. Samkvæmt framansögðu verði beiðninni hafnað þar sem að hún sé of seint fram komin.
IV. Niðurstaða
Mál þetta varðar úrskurð Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu frá 9. júlí 2026 um að hafna beiðni kæranda um greiðslu sérstaks framlags vegna tannréttinga sonar hennar.
Um sérstakt framlag er fjallað í 41. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Ákvæðið hljóðar svo:
„Tryggingastofnun getur greitt sérstakt framlag vegna útgjalda við skírn barns, fermingu, gleraugnakaup, tannréttingar, vegna sjúkdóms, greftrunar eða af öðru sérstöku tilefni.
Framlag skv. 1. mgr. er einungis heimilt að greiða vegna barna sem greiddur er barnalífeyrir með skv. 40. gr. og annað hvort foreldra er látið, barn ófeðrað eða móður nýtur ekki við vegna sérstakra eða óvenjulegra aðstæðna.
Framlag skv. 1. mgr. verður aðeins ákveðið ef sýslumaður hefur úrskurðað um slíkt framlag samkvæmt beiðni sem honum skal send innan þriggja mánaða frá því að svara varð til útgjalda nema eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með slíka kröfu.
Um viðmiðunarfjárhæðir vegna krafna um sérstök framlög gilda sömu reglur og um úrskurði vegna sérstakra útgjalda skv. 60. gr. barnalaga, nr. 76/2003.“
Ágreiningur máls þessa lýtur að því hvort beiðni kæranda um úrskurð um sérstakt framlag hafi borist innan þeirra tímamarka sem fjallað er um í 3. mgr. 41. gr. laga um almannatryggingar. Sambærilegt tímamark er í 2. mgr. 60. gr. barnalaga nr. 76/2003 sem hljóðar svo:
„Framlag skv. 1. mgr. verður því aðeins úrskurðað að krafa um það sé uppi höfð við sýslumann innan þriggja mánaða frá því að svara varð til útgjalda nema eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með slíka kröfu.“
Þar sem um sambærilegt ákvæði er að ræða og sérstaklega er vísað til ákvæðis 60. gr. barnalaga í 41. gr. laga um almannatryggingar telur úrskurðarnefndin rétt við túlkun á 3. mgr. 41. gr laga um almannatryggingar að líta til 2. mgr. 60. gr. barnalaga. Í athugasemdum með 60. gr. í frumvarpi til barnalaga segir meðal annars svo:
„Að því er 2. mgr. varðar er rétt að taka fram að ef meira en þrír mánuðir eru liðnir frá því að svarað var til útgjalda metur sýslumaður hvort eðlilegt hafi verið að bíða með að setja fram kröfu um framlag. Í þessu sambandi má sérstaklega nefna að ekki verður talið skylt að setja fram kröfu um framlag vegna tannréttinga, sem iðulega stendur yfir í nokkurn tíma, innan þriggja mánaða frá því að hver einstök greiðsla var innt af hendi, a.m.k. ekki ef um samfellda meðferð hefur verið að ræða, heldur getur verið eðlilegt að bíða með kröfu vegna slíkra aðgerða, allt þar til innan þriggja mánaða frá því að meðferð lýkur. Með lokum meðferðar er hér átt við það tímamark þegar föst tæki hafa verið fjarlægð af tönnum samkvæmt staðfestingu réttingatannlæknis, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 2. gr. reglna tryggingaráðs um þátttöku Tryggingastofnunar ríkisins í kostnaði við tannréttingar barna og ungmenna, er gildi tóku 1. maí 2002.“
Úrskurðarnefnd velferðarmála fær ráðið af framangreindum athugasemdum að það teljist eðlileg ástæða í skilningi lagaákvæðisins til að bíða með að hafa uppi kröfu þar til föst tæki hafa verið fjarlægð af tönnum. Hefst þriggja mánaða fresturinn þá við það tímamark.
Samkvæmt gögnum málsins barst Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu þann 23. desember 2025 beiðni kæranda um sérstakt framlag vegna tannréttinga sonar hennar. Sýslumaður hafnaði beiðni kæranda um sérstakt framlag með þeim rökum að meira en þrír mánuðir liðu frá lokum meðferðar með föstum tækjum þar til beiðni hafi verið lögð fram hjá sýslumanni. Fram kemur í „sjúrnall“ tannlæknis að föst tæki hafi verið fjarlægð að tönnum barnsins 16. júní 2025 og gefinn var út reikningur vegna þess. Liðu því um um sex mánuðir frá því að meðferð með föstum tækjum lauk þar til kærandi lagði fram beiðni til sýslumanns um sérstakt framlag vegna tannréttinga. Því er ljóst að beiðni um úrskurð sýslumannsins á höfuðborgasvæðinu um sérstakt framlag var ekki send innan þriggja mánaða frá því tannréttingameðferðar kæranda með föstum tækjum var lokið, sbr. 3. mgr. 41. gr. laga um almannatryggingar.
Kemur þá til skoðunar hvort aðrar eðlilegar ástæður hafi verið fyrir hendi til að bíða með slíka kröfu. Kærandi greinir frá því í kæru að hún hafi ekki vitað að hún hefði átt að sækja um endurgreiðslu innan þriggja mánaða frá því að föst tæki væru tekin auk þess sem engin hafi sagt henni frá reglunni. Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur farið yfir athugasemdir kæranda en telur, með hliðsjón af áðurgreindum athugasemdum við 60. gr. barnalaga, að ekki hafi verið fyrir hendi eðlileg ástæða í skilningi 3. mgr. 41. gr. laga um almannatryggingar til að bíða með kröfuna. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur því að beiðni kæranda um sérstakt framlag vegna tannréttinga sonar hennar hafi ekki verið lögð fram innan tilskilinna tímamarka samkvæmt 3. mgr. 41. gr. laga um almannatryggingar.
Að því virtu er úrskurður Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að hafna beiðni kæranda um sérstakt framlag vegna tannréttinga sonar hennar staðfestur.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Úrskurður Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að hafna beiðni A, um sérstakt framlag vegna tannréttinga sonar hennar, er staðfestur.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Rakel Þorsteinsdóttir