20. nóvember 2026 /

Mál nr. 34/2026. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 1. október 2026

í máli nr. 34/2026:

Sjóklæðagerðin hf.

gegn

Isavia ohf.

 

Lykilorð

Kærufrestur. Reglugerð nr. 950/2017. Sérleyfissamningur. Fjárhagslegt hæfi. Bindandi samningur. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað.

Útdráttur

S kærði útboð I um rekstrarleyfi til að reka gjafavöruverslun á Keflavíkurflugvelli. I hafnaði S um þátttöku í útboðinu á þeim grundvelli að S uppfyllti ekki lágmarkskröfur útboðsskilmála um fjárhagslegt hæfi, nánar tiltekið kröfur um skuldahlutfall og lausafjárhlutfall. Kröfur S um að felld yrði úr gildi ákvörðun I að þessu leyti og varakröfu um að útboðið yrði fellt úr gildi í heild sinni og varnaraðila gert að auglýsa það að nýju var hafnað með vísan til þess að komist hefði á bindandi samningur, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016. Kom því einungis til skoðunar krafa um álit kærunefndarinnar á skaðabótaskyldu I gagnvart S. Nefndin taldi liggja fyrir að skuldahlutfall og lausafjárhlutfall S hefði ekki verið í samræmi við kröfur útboðsins. Þá var ekki fallist á með S að I hefði borið að óska eftir frekari gögnum og rökstuðningi frá honum um hvernig hann uppfyllti fyrrgreindar kröfur eða að I hefði borið að rannsaka nánar einstaka liði í ársreikningi hans líkt og S bar við. Loks var ekki fallist á með S að brotið hefði verið gegn jafnræðisreglu útboðsréttar, samkeppnisgrundvelli hefði verið raskað eða að unnt væri að líta svo á að S hefði sérstaklega verið útilokaður frá þátttöku í útboðinu í því skyni að veita samkeppnisaðilum hans brautargengi. Kröfu S um álit á skaðabótaskyldu I var því hafnað.

 

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 4. júní 2026 kærði Sjóklæðagerðin hf. (hér eftir „kærandi“) útboð Isavia ohf. (hér eftir „varnaraðili“)  nr. U26010 auðkennt  „Gift Shop Opportunity at KEF Airport“.

Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála stöðvi innkaupaferli varnaraðila nr. U26010, auðkennt „Gift Shop Opportunity KEF Airport“, um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru hans, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Þá krefst hann þess að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila frá 15. maí 2026 um að hafna þátttöku kæranda í útboðinu, sbr. 1. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016. Til vara að útboðið verði fellt úr gildi í heild sinni og varnaraðila gert að auglýsa það að nýju, sbr. 1. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016. Þá krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart honum, sbr. 2. mgr. 111. gr. og 119. gr. laga nr. 120/2016. Loks krefst kærandi þess að varnaraðila verði gert að greiða honum hæfilegan kostnað við að hafa kæruna uppi að mati nefndarinnar, sbr. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.

Varnaraðili krefst þess í greinargerð 11. júní 2026 að öllum kröfum kæranda verið vísað frá eða hafnað. Þá krefst hann þess að kæranda verði gert að greiða málskostnað í ríkissjóð samkvæmt heimild í 2. málslið 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.

Með ákvörðun 25. júní 2026 hafnaði kærunefnd útboðsmála stöðvunarkröfu kæranda.

Varnaraðila var veittur frestur til 6. júlí 2026 til að leggja fram frekari athugasemdir til nefndarinnar sem og hann gerði þann dag.

Í kjölfarið var kæranda veittur frestur til að skila viðbótarathugasemdum sem og hann gerði 10. sama mánaðar.

Kærunefnd útboðsmála óskaði eftir upplýsingum frá varnaraðila 31. ágúst 2026 um hvort kominn væri á bindandi samningur í málinu. Svar barst degi síðar og upplýsti varnaraðili að tilkynnt hefði verið um töku tilboðs Drífu ehf. 26. júní 2026 og að rekstur hefði hafist 17. næsta mánaðar. Samningur var undirritaður af hálfu beggja aðila 18. september 2026.

 

I

Hinn 10. apríl 2026 auglýsti varnaraðili eftir tilboðum í að hljóta rekstrarleyfi til að reka gjafavöruverslun í skilgreindu rými á annarri hæð norðurbyggingar Keflavíkurflugvallar. Þann dag voru útboðsskilmálar gerðir aðgengilegir. Gert var ráð fyrir að gerður yrði sérleyfissamningur með áætluðum gildistíma frá 6. ágúst 2026 til 30. september 2028 en með heimild til framlengingar í eitt ár í senn í allt að fimm ár frá upphafstíma. Samningsdrög voru birt á útboðsvef 14. apríl 2026 og kynningarfundur haldinn í flugstöðinni 20. sama mánaðar.

Í útboðsgögnum, nánar tiltekið 5. hluta í viðauka 1, voru í samræmi við 39. gr. reglugerðar nr. 950/2017, um sérleyfissamninga um verk eða þjónustu yfir viðmiðunarfjárhæðum Evrópska efnahagssvæðisins, gerðar kröfur um að skuldahlutfall bjóðanda skyldi vera lægra en 2,00 fyrir árið 2024, sbr. krafa r, og lausafjárhlutfall bjóðanda að lágmarki 1,25 fyrir sama ár, sbr. krafa s. Meðal þeirra gagna sem skila átti í tengslum við framangreindar kröfur voru ársreikningar fyrir viðkomandi ár, sbr. 6. hluta í sama viðauka.

Frestur til að skila tilboði var til 11. maí 2026 og bárust tilboð frá fjórum aðilum. Kærandi var meðal þeirra.  Með bréfi varnaraðila 15. maí 2026 var kæranda hafnað um þátttöku í útboðinu. Í bréfinu kom fram að varnaraðili teldi kæranda ekki uppfylla lágmarkskröfur útboðsskilmála um fjárhagslegt hæfi, þ.e. fyrrgreindar kröfur r og s um skuldahlutfall og lausafjárhlutfall. Var í þeim efnum sérstaklega vísað til innsends ársreiknings kæranda fyrir árið 2024.

Varnaraðili tilkynnti 15. júní 2026 að fyrirhugað væri að taka tilboði Drífu ehf. Þann 26. sama mánaðar var jafnframt tilkynnt um að tilboði Drífu ehf. hefði verið tekið og að kominn væri á bindandi samningsskuldbinding milli aðila.

 

II

Kærandi byggir á því að með ákvörðun varnaraðila 15. maí 2026 og innkaupaferlinu sjálfu hafi verið brotið gegn meginreglum stjórnsýsluréttar og útboðsréttar, einkum rannsóknarreglu og jafnræðisreglu sem og ákvæðum laga nr. 120/2016 um opinber innkaup, meðal annars 15. gr. um jafnræði og gagnsæi, 66. gr. um skýringar tilboða og 79. gr. um valforsendur.

Hvað varðar ákvörðun varnaraðila 15. maí 2026 um höfnun um þátttöku kæranda í útboðinu vísar kærandi til þess að mat varnaraðila á fjárhagslegu hæfi hans hafi verið haldið verulegum annmörkum. Varnaraðili hafi með mikilli einföldun framkvæmt útreikning á skuldahlutfalli og lausafjárhlutfalli kæranda árið 2024 án þess að gæta þess að gefa kæranda kost á að veita frekari skýringar og gögn til stuðnings því að lágmarksþröskuldi útboðs væri náð að þessu leyti. Engra skýringa hafi verið óskað eða viðbótargagna til að rannsaka nánar einstaka liði í ársreikningi varnaraðila, svo sem hvort skuldsetning gagnvart tengdum aðilum ætti heima undir skammtímaskuldum við útreikning, sem og um eðli ójafnaðs taps. Varnaraðili hafi gengið eins skammt í rýningu og skoðun tilboðsgagna og mögulegt hafi verið og ekki gefið kæranda færi á að bregðast við fyrirhugaðri höfnun eða rökstyðja nánar tilboð sitt. Með framangreindu hafi verið brotið gegn rannsóknarskyldu, sbr. 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016. Þá hafi hin þrönga og óréttmæta túlkun varnaraðila á tölulegum viðmiðum byggt á tveggja ára gömlum ársreikningi félagsins, án þess að veita svigrúm til nánari skýringa eða rökstuðnings fyrir fjárhagslegu hæfu tilboðsins. Slíkt feli í sér brot gegn meðalhófsreglu 15. gr. sömu laga.

Þá byggir kærandi á því að beiting fjárhagslegra hæfniskrafna hafi falið í sér skýrt brot á jafnræðisreglu samkvæmt 1. mgr. 15. gr. laga nr. 120/2016, sbr. 2. mgr. 69. gr. sömu laga, um að skilyrði fyrir þátttöku skuli vera í hæfilegu hlutfalli við efni samnings. Skilmálar varnaraðila að þessu leyti hafi bersýnilega verið úr hófi og ómalefnalegir miðað við þá eðlilegu fjárhagslegu áhættu sem fylgi því að reka gjafavöruverslun á Keflavíkurflugvelli. Kærandi vísar jafnframt til 39. gr. reglugerðar nr. 950/2017 í þessu samhengi. Tilgreint sérleyfi varði leigu á verslunarrými á Keflavíkurflugvelli en kærandi sé þegar með sérleyfissamning við varnaraðila um rekstur verslunar á flugvellinum og hafi haft um árabil. Varnaraðila sé því vel kunnugt um rekstur og rekstrarhæfni kæranda. Varnaraðili hafi með fyrrgreindum lágmarkskröfum útboðsins og beitingu viðmiðanna markvisst útilokað kæranda frá útboðinu og tryggt að aðrir, einkum samkeppnisaðili kæranda, gætu tekið þátt í útboðinu.

Óhjákvæmilegt sé að horfa til þess að téð útboð sé til komið vegna nýafstaðins ágreinings milli varnaraðila og Rammagerðarinnar ehf., félags sem sé nátengt kæranda, um sama leigurými á Keflavíkurflugvelli og hið kærða útboð taki til. Hvorki í fyrra útboði um sama verslunarrými né í öðrum útboðum síðastliðin ár um sérleyfissamninga um verslunarrými á Keflavíkurflugvelli hafi viðlíka kröfu um skuldahlutfall eða lausafjárhlutfall verið að finna. Tilkoma þessara krafna, framsetning í útboðsgögnum og beiting þeirra beri markvisst með sér að vera sett fram í þeim tilgangi að raska samkeppnisgrundvelli kæranda í óhag og stuðla að því að hann geti ekki tekið þátt í útboðinu í trássi við meginreglur laga nr. 120/2016. Engin málefnaleg ástæða hafi verið fyrir því að stilla lágmarksviðmiðum upp með þeim hætti sem gert var og ganga hefði mátt skemur í ákvörðun þeirra í útboðsferlinu án þess að koma niður á áhættu varnaraðila af samningsgerðinni.

Kærandi vísar einnig til þess að hafa hvorki vitað né mátt vita að eðli framsettra krafna í útboðsgögnum sem og túlkun varnaraðila á þeim myndi gagngert vera beitt til að mismuna honum í útboðsferlinu fyrr en hin kærða ákvörðun var tekin og honum í framhaldinu gert viðvart um að samkeppnisaðilar hans hefðu lagt fram tilboð. Við það tilefni hafi kærandi skoðað rekstrarreikninga þeirra félaga og áttað sig á hvernig landið lægi. Kæran hafi því verið lögð fram innan tilgreinds frests samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016.

Í lokaathugasemdum sínum mótmælir kærandi sjónarmiðum varnaraðila um að lagatilvísanir í kæru hafi torveldað varnir í málinu. Loks mótmælir kærandi kröfu varnaraðila um að kæranda verði gert að greiða málskostnað í ríkissjóð samkvæmt 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016. Kæra málsins sé stutt og skorinorð og úrlausnarefnin afmörkuð. Hún hafi auk þess borist innan kærufrests. Hagsmunir kæranda á þátttöku í útboðinu séu ríkir og kærandi talið ástæðu til að fá úr réttmæti synjunar varnaraðila skorið. Verðmæti undirliggjandi sérleyfissamnings sé mikið og kærandi haft mikla hagsmuni af því að taka þátt í útboðinu. Kæran hafi auk þess ekki haft í för með sér sjálfkrafa stöðvun.

 

III

Varnaraðili byggir á því að vísa beri kæru kæranda frá á þeim grundvelli að kærufrestur samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 hafi verið liðinn þegar hún hafi borist kærunefndinni. Kæran lúti í meginatriðum að þeim lágmarkskröfum sem settar hafi verið fram í útboðsgögnum. Þær lágmarkskröfur hafi verið birtar 10. apríl 2026 en þá hafi 20 daga kærufrestur byrjað að líða. Kæranda hafi mátt vera ljóst við birtingu útboðsgagna að hann uppfyllti ekki fjárhagsleg lágmarksskilyrði útboðsins. Ekkert liggi fyrir í málinu sem réttlæti framlengdan kærufrest.

Þá telur varnaraðili að vísa eigi kærunni frá á þeim grundvelli að málatilbúnaður kæranda sé verulega óljós og vanreifaður. Varnaraðili geti ekki glöggvað sig með fullnægjandi hætti á þeim lagagrundvelli sem kæran byggi á og honum gert erfitt um vik að halda uppi vörnum. Í þessum efnum vísar varnaraðili til þess að lög nr. 120/2016 gildi að takmörkuðu leyti um framkvæmd hins kærða útboðs, nánar tiltekið einungis kaflar XI. og XII. Að öðru leyti gildi reglugerð nr. 950/2017 um sérleyfissamninga um verk eða þjónustu yfir viðmiðunarfjárhæðum Evrópska efnahagssvæðisins. Stjórnsýslulög nr. 37/1993 og óskráðar reglur stjórnsýsluréttar gildi jafnframt ekki um ákvarðanir eða innkaupaferli varnaraðila líkt og kærandi byggi á.

Varnaraðili mótmælir fullyrðingum kæranda um að hæfisskilyrðum hafi verið beitt með það að markmiði að útiloka kæranda frá útboðinu. Þau hafi verið almenns eðlis, málefnaleg og þeim beitt með hlutlægum og samræmdum hætti og án tillits til einstakra bjóðenda. Sérleyfisreglugerðin veiti kaupendum töluvert frjálsræði um hvernig fjárhagslegar hæfiskröfur séu settar fram en í þeim efnum vísar varnaraðili m.a. til 39. gr. hennar. Að mati varnaraðila hafi kröfurnar verið skýrt útfærðar. Þá hafi þær verið í samræmi við aukna reynslu varnaraðila á undanförnum misserum af þeirri rekstrarlegu og fjárhagslegu áhættu sem geti fylgt sérleyfissamningum á flugvelli. Kröfurnar hafi verið settar fram með það markmið að leiðarljósi að draga úr hættu á vanefndum, rekstrarrofi og neikvæðum áhrifum á þjónustustig og tekjur Keflavíkurflugvallar. Öðrum bjóðanda en kæranda hafi einnig verið hafnað á þessum grundvelli og því ljóst að lágmarkskröfunum hafi ekki verið ætlað að útiloka kæranda sérstaklega. Við mat á því hvort fjárhagsleg hæfisskilyrði séu málefnaleg verði jafnframt að líta til sérstöðu sérleyfissamninga, sem feli m.a. í sér að sérleyfishafi beri raunverulega áhættu af sveiflum markaðarins. Hann þurfi því að hafa fjárhagslega burði til að m.a. takast á við áhættu vegna sveiflna í farþegafjölda, sölu og rekstrarkostnaði. Í þessu samhengi skipti einnig máli að rekstur verslana og annarrar þjónustu á Keflavíkurflugvelli hafi verulega þýðingu fyrir þjónustustig, farþegaupplifun og tekjustofna flugvallarins. Enginn vafi sé um að þær kröfur sem settar hafi verið fram hafi bæði verið málefnalegar og eðlilegar.

Þá vísar varnaraðili til þess að skuldahlutfall (e. debt to equity ratio) sé staðlað og viðurkennt hlutfall til að meta fjárhagslega stöðu fyrirtækja. Aðferðafræðin sem lögð hafi verið til grundvallar í útboðinu byggi á staðfestum ársreikningi viðkomandi félags fyrir árið 2024 þar sem litið hafi verið til heildarskulda, óháð eðli þeirra og hver kröfuhafinn sé, sem og upplýsinga um eigið fé. Aðferðin sé einföld, gagnsæ og byggi á jafnræði bjóðenda. Skuldahlutfallið 2,0 sé hóflegt og málefnalegt og samræmist markaðsvenjum og eðlilegu áhættumati. Þá sé lausafjárhlutfall (e. liquidity ratio eða current ratio) notað til að meta greiðsluhæfi fyrirtækja og skilgreint sem hlutfall veltufjármuna af skammtímaskuldum samkvæmt efnahagsreikningi. Almennt sé horft til þess að lausafjárhlutfallið 1,0 gefi til kynna að fyrirtæki hafi nægar skammtímaeignir til að mæta skammtímaskuldbindingum sínum en í fyrirliggjandi tilviki hafi þó verið ákveðið að gera ríkari kröfur og hafa það 1,25 til að tryggja að rekstraraðilinn hafi aukið svigrúm til að mæta sveiflum í rekstri. Skuldir kæranda hafi samkvæmt innsendum gögnum í árslok 2024 numið 5.881.554.697 krónum og eigið fé 1.477.858.137 krónum. Skuldahlutfallið hafi því verið 3,98. Þá hafi veltufjármunir félagsins numið 2.293.210.693 krónum og skammtímaskuldir 3.873.923.893 krónum. Lausafjárhlutfallið hafi því verið lægra en 1,25, eða um 0,59.

Varnaraðili vísar til þess að hann hafi stuðst við gögn sem kærandi hafi sjálfur lagt fram og honum ekki borið að rannsaka fjárhag kæranda umfram það að treysta á að endurskoðaður ársreikningur gæfi glögga og rétta mynd af fjárhagsstöðu bjóðanda. Ársreikningurinn hafi þannig verið fullnægjandi grundvöllur að mati varnaraðila. Á honum hafi engin skylda hvílt til að afla frekari gagna frá bjóðanda enda ekkert í tilboðinu sem hafi gefið tilefni til þess. Varnaraðila hafi raunar verið það óheimilt og honum ekki borið að rýna í efnahag bjóðenda með þeim hætti sem kærandi leggi til og víkja þannig frá upplýsingum í ársreikningi. Slíkt hefði verið andstætt meginreglum sérleyfisreglugerðarinnar um gagnsæi og jafnræði, sbr. 1. og 3. gr. hennar. Kærandi hafi hvorki sýnt fram á að hann uppfylli fyrrgreind skilyrði né útskýrt hvaða forsendur eða leiðréttingar eigi við í málinu eða hvaða aðferðarfræði skuli að öðru leyti beitt í tengslum við skulda- eða lausafjárhlutfall.

Þá hafnar varnaraðili því að á honum hafi hvílt sérstök rannsóknarskylda samkvæmt 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016 enda eigi það ákvæði ekki við um innkaupaferlið. Sambærilegt ákvæði sé ekki að finna í sérleyfisreglugerðinni auk þess sem rannsóknarregla stjórnsýsluréttarins gildi ekki um ferlið. Ársreikningur kæranda sem legið hafi til grundvallar mati varnaraðila hafi sýnt að tilgreind fjárhagsleg hlutföll hafi ekki verið uppfyllt. Ekki hafi verið tilefni til að kalla eftir frekari gögnum sem komið gætu í stað þeirra gagna sem útboðsskilmálar gerðu sérstaklega kröfu um. Kærandi hafi auk þess veitt rangar upplýsingar um að hann stæðist framangreind hæfisskilyrði með því að merkja í þar tilgreindan reit og hann ekki gert tilraun til að sýna fram á með öðrum hætti að þær tölur, sem birtust í framlögðum ársreikningi, gæfu ranga mynd af fjárhagslegu hæfi félagsins m.t.t. skuldahlutfalls og lausafjárhlutfalls. Varnaraðila hafi þannig verið heimilt að útiloka bjóðanda frá þátttöku í útboðinu.

Varnaraðili hafi fylgt lögum og reglum í einu og öllu og skilyrði skaðabótaábyrgðar því ekki uppfyllt. Auk þess hafi einungis verið tekin afstaða til fjárhagslegs hæfis bjóðenda, sbr. 5. hluti í viðauka 1, og ekki lagt mat á tæknilegt hæfi kæranda. Því sé ekki unnt að fullyrða að kærandi hefði staðist þær kröfur eða átt raunhæfa möguleika á að fá samning.

Loks telur varnaraðili kæru kæranda bersýnilega tilgangslausa enda hafi umræddar lágmarkskröfur legið fyrir með afar skýrum hætti í útboðsskilmálum frá 10. apríl 2026. Kærandi hafi haft upplýsingar um fjárhagsstöðu sína löngu áður en útboðsskilmálar útboðsins hafi verið birtir og honum ekki getað dulist hvernig þær upplýsingar yrðu metnar í innkaupaferlinu þegar hann tók þátt í því. Með vísan til þessa beri að úrskurða kæranda til greiðslu málskostnaðar á grundvelli heimildar í 2. málslið 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.

 

IV

A

Af gögnum málsins verður ráðið að með hinu kærða útboði hafi varnaraðili stefnt að gerð sérleyfissamnings í skilningi 23. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og 5. tölul. 2. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 950/2017 um sérleyfissamninga um verk eða þjónustu yfir viðmiðunarfjárhæðum Evrópska efnahagssvæðisins. Af 12. gr. laga nr. 120/2016 leiðir að lögin gildi ekki um sérleyfissamninga sem fyrrgreind reglugerð gildir um að undanskildum ákvæðum XI. og XII. kafla þeirra.

Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 skal kæra borin skriflega undir kærunefnd útboðsmála innan 20 daga frá því að kærandi vissi eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Kærunefnd útboðsmála hefur litið svo á að bjóðendur hafi skamman frest til að kynna sér útboðsgögn eftir að þau hafa verið gerð aðgengileg og þar til kærufrestur vegna athugasemda sem varða efni þeirra byrjar að líða, sbr. úrskurðir kærunefndar útboðmála í málum nr. 21/2020 og 41/2020. Telji bjóðandi í opinberum innkaupum tiltekinn skilmála útboðsgagna ólögmætan verður hann því að beina kæru til nefndarinnar innan kærufrests og getur ekki borið því við eftir opnun tilboða að víkja beri skilmálunum til hliðar, sbr. úrskurð kærunefndar útboðsmála í máli nr. 7/2021.

Svo sem vikið er að í ákvörðun kærunefndar útboðsmála í málinu frá 25. júní 2026 liggur fyrir að varnaraðili auglýsti eftir tilboðum 10. apríl 2026 og þeir skilmálar sem kærandi gerir athugasemdir við í kæru sinni um skuldahlutfall og lausafjárhlutfall honum aðgengilegir þann dag. Ekkert er fram komið á síðari stigum málsins sem hnekkir því mati nefndarinnar að miðað við þann tíma sem leið frá birtingu þeirra og þar til kæra barst nefndinni 4. júní 2026 verði að líta svo á að kærufrestur hafi að þessu leyti verið liðinn. Í þessum efnum er jafnframt ekki fallist á með kæranda að hann hafi hvorki vitað né mátt vita með hvaða hætti þeim yrði beitt fyrr en hin kærða ákvörðun var tekin. Er þannig ekki fallist á að kærufrestur miðist að þessu leyti við 15. maí 2026 er varnaraðili tók ákvörðun um að hafna þátttöku kæranda í útboðinu. Lögmæti umræddra skilmála kemur því ekki til skoðunar í máli þessu og verður lagt til grundvallar við úrlausn málsins að þeir séu gildir.

Varnaraðili byggir á því að vísa eigi kærunni frá á þeim grundvelli að málatilbúnaður kæranda sé verulega óljós og vanreifaður, einkum hvað varðar lagatilvísanir sem kæran byggi á, og honum gert erfitt um vik að halda uppi vörnum.

Í 2. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 segir að í kæru skuli koma fram upplýsingar um kæranda, þann aðila sem kæra beinist að og ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem er kærð. Þá segir í ákvæðinu að í kæru skuli koma fram kröfur kæranda ásamt stuttri lýsingu málsatvika og málsástæðna og rökstuðningur og að kröfugerð kærandi skuli lúta að úrræðum nefndarinnar samkvæmt lögunum. Samkvæmt 3. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 skal kærunefnd útboðsmála, í þeim tilvikum sem kæra fullnægir ekki skilyrðum 2. mgr., beina því til kæranda að bæta úr annmörkum innan hæfilegs frests. Verði kærandi ekki við því skal kærunefndin vísa kærunni frá.

Í kæru málsins er gerð grein fyrir öllum þeim atriðum sem 2. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 tiltekur. Kæran er hnitmiðuð og beinist fyrst og fremst að afmörkuðum skilmálum útboðsins og beitingu þeirra. Þá verður ekki séð að lagatilvísanir í henni séu svo óljósar og málatilbúnaður að öðru leyti svo vanreifaður að komi niður á vörnum varnaraðila. Að þessu gættu verður lagt til grundvallar að kæra málsins uppfylli þær kröfur sem til hennar eru gerðar samkvæmt lögum nr. 120/2016 og að ekki séu efni til að vísa henni frá nefndinni.

 

B

Í málinu liggur fyrir að komist hefur á bindandi samningur milli varnaraðila og Drífu ehf. Samkvæmt 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 verður bindandi samningur ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Þegar af þeirri ástæðu verður að hafna kröfum kæranda sem lúta að því að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila frá 15. maí 2026 um að hafna þátttöku kæranda í útboðinu sem og að útboðið verði fellt úr gildi í heild sinni og varnaraðila gert að auglýsa það að nýju.

Kemur því eingöngu til skoðunar krafa kæranda um að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda sem og krafa hans um málskostnað. Í 1. mgr. 119. gr. laganna kemur fram að kaupandi sé skaðabótaskyldur vegna þess tjóns sem brot á lögunum og reglum settum samkvæmt þeim hefur í för með sér fyrir fyrirtæki. Fyrirtæki þurfi einungis að sanna að það hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valið af kaupanda og möguleikar þess hafi skerst við brotið. Bótafjárhæð skal miðast við kostnað við að undirbúa tilboð og taka þátt í útboði.

Á grundvelli 39. gr. reglugerðar nr. 950/2017 setti varnaraðili fram skilyrði um fjárhagsstöðu bjóðenda. Nánar tiltekið voru gerðar þær kröfur í 5. hluta í viðauka 1 að skuldahlutfall bjóðenda skyldi vera lægra en 2,00 fyrir árið 2024, sbr. krafa r, og lausafjárhlutfall bjóðenda að lágmarki 1,25 fyrir sama ár, sbr. krafa s. Meðal þeirra gagna sem skila bar í þessu samhengi var ársreikningur bjóðenda fyrir árið 2024 og gátu bjóðendur þannig gert ráð fyrir að litið yrði til ársreiknings þeirra fyrir árið 2024 við beitingu krafna r og s. Svo sem að framan greinir kemur lögmæti útboðsskilmála að þessu leyti ekki til skoðunar í máli þessu, sbr. 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016.

Ekki verður annað ráðið af gögnum málsins en að varnaraðili hafi beitt fyrrgreindum kröfum um skuldahlutfall og lausafjárhlutfall með þeim hætti sem skýrlega var kveðið á um í útboðsgögnum. Tiltölulega einfaldar reikniformúlur, sem ráða mátti af útboðsgögnum, hafi legið beitingu þeirra til grundvallar og ársreikningur kæranda fyrir árið 2024 veitt nægar upplýsingar til þess að unnt væri að beita þeim. Fyrir liggur að skuldahlutfall kæranda hafi verið 3,98 og lausafjárhlutfall hans 0,59 og er ekkert fram komið í málatilbúnaði kæranda á síðari stigum málsins sem hnekkir framangreindu mati um að kærandi hafi ekki uppfyllt fyrrgreindar kröfur r og s.

Þá er ekki unnt að fallast á með kæranda að varnaraðila hafi borið að óska eftir frekari gögnum og rökstuðningi frá honum um það hvernig hann uppfyllti fyrrgreindar kröfur eða að varnaraðila hafi borið að rannsaka nánar einstaka liði í ársreikningi hans með þeim hætti sem kærandi vísar til. Þvert á móti gátu bjóðendur gengið út frá því að litið yrði til viðeigandi liða í ársreikningi þeirra fyrir árið 2024 við útreikning fyrrgreindra krafna án þess að frekari gagna eða skýringa yrði óskað. Þá er og til þess að líta að varnaraðili mátti treysta því að endurskoðaður ársreikningur gæfi glögga og rétta mynd af fjárhagsstöðu bjóðanda og að hann væri fullnægjandi grundvöllur til útreiknings þeirra krafna sem um ræðir. Í þessum efnum er einnig til þess að líta að 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016 á ekki við í fyrirliggjandi útboði og að í reglugerð nr. 950/2017 er ekki að finna sambærilega reglu.

Loks eru ekki efni til að fallast á aðrar málsástæður kæranda, svo sem að með beitingu fyrrgreindra krafna hafi verið brotið gegn jafnræðisreglu útboðsréttar, samkeppnisgrundvelli raskað eða að beiting þeirra hafi eins og hér stóð á falið í sér að kærandi hafi sérstaklega verið útilokaður frá þátttöku í útboðinu í því skyni að veita samkeppnisaðilum hans brautargengi.

Samkvæmt framangreindu og að virtum fyrirliggjandi gögnum og málatilbúnaði aðila að öðru leyti er það mat nefndarinnar að varnaraðili hafi ekki brotið gegn lögum nr. 120/2016 eða reglum settum samkvæmt þeim í málinu. Verður kröfu kæranda um að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila því hafnað.

Í ljósi niðurstöðu málsins verður kröfu kæranda um málskostnað hafnað. Varnaraðili hefur einnig uppi kröfu um að kæranda verði gert að greiða málskostnað, sem renni í ríkissjóð. Í 2. málsl. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 er mælt fyrir um að ef kæra er bersýnilega tilefnislaus eða höfð uppi í þeim tilgangi að tefja fyrir framgangi opinberra innkaupa, geti kærunefnd útboðsmála úrskurðað kæranda til að greiða málskostnað sem renni í ríkissjóð. Þótt öllum kröfum kæranda hafi verið hafnað verður ekki litið svo á að kæra málsins hafi verið bersýnilega tilefnislaus. Þykir rétt að málskostnaður falli niður.

 

Úrskurðarorð

Öllum kröfum kæranda, Sjóklæðagerðarinnar hf., í máli þessu er hafnað.

Málskostnaður fellur niður.

 

Reykjavík, 1. október 2026

 

Reimar Pétursson

 

Kristín Haraldsdóttir

 

Hersir Sigurgeirsson

 

Var efnið hjálplegt?