13. feb. 2025Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið
Frumvarp um Matsferil og ný samræmd próf lagt fyrir Alþingi
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, lagði fram frumvarp um nýtt námsmat, Matsferil, fyrir Alþingi í gær. Matsferli er m.a. ætlað að koma í stað gömlu samræmdu prófanna sem voru hætt að þjóna sínum tilgangi. Í þeirra stað verða ný samræmd próf í íslensku og stærðfræði lögð fyrir í öllum grunnskólum skólaárið 2025–2026.