15. feb. 2019Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðismál, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið
Samkeppni um hönnun nýs hjúkrunarheimilis í Hornafirði
Hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili í Hornafirði fyrir 30 íbúa verður auglýst um helgina. Heimilið mun leysa af hólmi hjúkrunarheimilið Skjólgarð þar sem búa 24 einstaklingar, flestir í tvíbýli. Áætlað er að niðurstöður hönnunarsamkeppni liggi fyrir í lok maí og að heimilið verði fullbyggt og tilbúið til notkunar vorið 2021.