Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Rekstur og eignir ríkisins
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 651–700 af 1120
    Raða eftir:
    10. sep. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Almenn eigandastefna fyrir félög í eigu ríkisins endurskoðuð

    Endurskoðuð almenn eigandastefna fyrir félög í eigu ríkisins hefur tekið gildi. Í kjarna stefnunnar felst að félögin séu rekin á faglegan og gagnsæjan hátt þannig að almennt traust ríki um stjórn og starfsemi þeirra.

    10. sep. 2021Rit og skýrslur, Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Viðauki við eigandastefnu ríkisins - Isavia ohf.

    september 2021 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Viðauki við eigandastefnu ríkisins - Isavia ohf. Viðauki við eigandastefnu ríkisins - Isavia ohf

    10. sep. 2021Rit og skýrslur, Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Almenn eigandastefna ríkisins fyrir félög í eigu ríkisins

    september 2021 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Almenn eigandastefna ríkisins fyrir félög í eigu ríkisins Almenn eigandastefna ríkisins fyrir félög í eigu ríkisins

    07. sep. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hvernig er hægt að komast úr læstri stöðu í opinberum samningum? – Leiðbeiningar til stofnana

    Opinberir aðilar nýta hugbúnaðarkerfi og tæknivörur frá mörgum mismunandi birgjum í samræmi við útvistunarstefnu og lög um opinber innkaup. Fyrir kemur þegar líður á samningstíma, að aðilar uppgötva að þeir eru í þröngri samningsstöðu gagnvart birgjum og teljast læstir í núverandi fyrirkomulagi. Slík staða getur til lengri tíma reynst mjög kostnaðarsöm og þrengt þá stöðu sem rekstraraðilar hafa til umbóta og fjárfestinga í betri þjónustu.

    04. sep. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Mat á árangri efnahagsaðgerða vegna heimsfaraldurs

    Sterk þjóðarútgjöld og einkaneysla benda til þess að efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru hafi reynst árangursríkar.

    03. sep. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Skýrsla um stöðu lífeyrissjóða í hagkerfinu

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skilað til Alþingis skýrslu sem Þorgerður K. Gunnarsdóttir og fleiri alþingismenn óskuðu eftir að yrði unnin um stöðu lífeyrissjóða í hagkerfinu.

    03. sep. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Skýrsla um lántökur ríkissjóðs

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skilað til Alþingis skýrslu sem Þorgerður K. Gunnarsdóttir og fleiri alþingismenn óskuðu eftir að yrði unnin um lántökur ríkissjóðs á næstu árum, líklega vaxtaþróun og áhrif á peningahagkerfið.

    03. sep. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Skýrsla um yfirtöku á Spkef sparisjóði

    Fjármála- og efnahagsráðherra birti í dag skýrslu um yfirtöku á SpKef sparisjóði, samkvæmt beiðni Birgis Þórarinssonar o.fl. Í skýrslunni er fjallað um eiginfjár- og lausafjárstöðu Sparisjóðsins í Keflavík þar til Fjármálaeftirlitið tók ákvörðun um að ráðstafa eignum og skuldum hans til SpKef sparisjóðs.

    03. sep. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Samantekt um tæknilega innviði og rafræna þjónustu hins opinbera

    Í samræmi við ályktun Alþingis frá árinu 2019 um að stórefla vinnu í upplýsingatækni hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið unnið samantekt um verkefni sem unnin hafa verið þvert á stofnanir ríkis og sveitarfélaga.

    30. ágú. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Framkvæmdasýslan og Ríkiseignir sameina krafta sína

    Frá og með 15. september sameinast Ríkiseignir og Framkvæmdasýsla ríkisins (FSR) undir heitinu Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir. Ákvörðunin um sameininguna byggist á niðurstöðum vinnu ráðuneytis og beggja stofnana, sem staðið hefur frá síðastliðnu hausti.

    27. ágú. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Ársfjórðungsuppgjör

    Afkoma ríkissjóðs 27 milljörðum betri en áætlað var - horfur um bætta afkomu á árinu

    Afkoma ríkissjóðs fyrstu sex mánuði ársins er 27 milljörðum króna betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Afkomubatinn skýrist af sterkari tekjuvexti en búist hafði verið við. Þetta kom fram í nýbirtu hálfsársuppgjöri Fjársýslunnar.

    27. ágú. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Drög að opinberri skýjastefnu í samráðsgátt

    Drög að skýjastefnu hins opinbera hafa verið lögð í samráðsgátt. Þetta er í fyrsta sinn sem stefna er unnin um notkun skýjalausna, en hún er mikilvægur hluti stafrænna umskipta og er markmið stefnunnar að samræma markmið í notkun slíkra lausna og útfærslu þeirra.

    23. ágú. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Ráðstefnan Tengjum ríkið haldin í annað sinn

    Ráðstefnan Tengjum ríkið, þar sem fjallað er um stafræna framtíðarsýn hins opinbera og nýjungar sem unnið er að til að stórefla stafræna þjónustu, verður haldin 26. ágúst næstkomandi. Þetta er í annað sinn sem ráðstefnan er haldin, en hún fór fram í fyrsta sinn á síðasta ári.

    20. ágú. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Moody‘s

    Moody's staðfestir A2 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Alþjóða matsfyrirtækið Moody's Investors Service („Moody's“) hefur í dag staðfest A2 lánshæfiseinkunn ríkissjóðs í innlendum og erlendum gjaldmiðli. Horfur eru áfram stöðugar.

    12. ágú. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Lykiltölur um rekstur hins opinbera á opinberumsvif.is

    Hvaðan koma peningarnir í sameiginlega sjóði og hvernig er þeim varið. Á nýjum vef, opinberumsvif.is, er hægt að skoða lykiltölur um hvernig ríkið og sveitarfélög, sem saman mynda hið opinbera, eru rekin.

    09. júl. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hvernig er hægt að komast úr læstri stöðu í opinberum samningum? – Leiðbeiningar til stofnana

    Opinberir aðilar nýta hugbúnaðarkerfi og tæknivörur frá mörgum mismunandi birgjum í samræmi við útvistunarstefnu og lög um opinber innkaup. Fyrir kemur þegar líður á samningstíma, að aðilar uppgötva að þeir eru í þröngri samningsstöðu gagnvart birgjum og teljast læstir í núverandi fyrirkomulagi. Slík staða getur til lengri tíma reynst mjög kostnaðarsöm og þrengt þá stöðu sem rekstraraðilar hafa til umbóta og fjárfestinga í betri þjónustu.

    09. júl. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Hvernig er hægt að komast úr læstri stöðu í opinberum samningum? – Leiðbeiningar til stofnana

    Opinberir aðilar nýta hugbúnaðarkerfi og tæknivörur frá mörgum mismunandi birgjum í samræmi við útvistunarstefnu og lög um opinber innkaup. Fyrir kemur þegar líður á samningstíma, að aðilar uppgötva að þeir eru í þröngri samningsstöðu gagnvart birgjum og teljast læstir í núverandi fyrirkomulagi. Slík staða getur til lengri tíma reynst mjög kostnaðarsöm og þrengt þá stöðu sem rekstraraðilar hafa til umbóta og fjárfestinga í betri þjónustu.

    07. júl. 2021Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Framtíðarhúsnæði Tækniskólans rísi í Hafnarfirði

    Fulltrúar stjórnvalda, bæjaryfirvalda í Hafnarfirði og Tækniskólans undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um byggingu framtíðarhúsnæðis fyrir skólann við Suðurhöfnina í Hafnarfirði.

    02. júl. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins

    Ríkissjóður eignast allt hlutafé í Auðkenni ehf.

    Ríkissjóður og eigendur Auðkennis ehf., sem gefur út rafræn persónuskilríki, hafa náð samkomulagi um að eignarhald félagsins verði fært til ríkisins. Bankar, Síminn og sparisjóðir voru stærstu eigendur Auðkennis og náðist samkomulag um að kaupverðið myndi nema bókfærðu hlutafé félagsins, um 948 m.kr., sem er um 80% af því fjármagni sem eigendur félagsins hafa hingað til lagt því til í formi hlutafjár til að þróa lausnina. Samhliða samkomulagi um kaupin var undirrituð yfirlýsing um fyrirkomulag rekstrar og framþróunar lausnar félagsins í samstarfi við stærstu þjónustuveitendur, sem í dag eru auk ríkis og sveitarfélaga aðallega viðskiptabankarnir þrír.

    02. júl. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Skipulagsmál

    Samkomulag um aukna íbúðabyggð á Vatnsendahæð

    Fjármála- og efnahagsráðherra og bæjarstjóri Kópavogsbæjar hafa undirritað samkomulag um skipulag og uppbyggingu á landi í eigu ríkis og sveitarfélagsins á Vatnsendahæð í Kópavogi undir aukna íbúðabyggð.

    01. júl. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins

    Félag stofnað um fasteignarekstur Háskóla Íslands

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands gengu í gær formlega frá stofnun sérstaks fasteignafélags sem fær það hlutverk að fara með eignarhald og umsýslu á þeim fasteignum sem nýttar eru í þágu Háskólans.

    30. jún. 2021Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Skýrsla eftirlitsnefndar með lánum með ríkisábyrgð skv. ákvæði til bráðabirgða II í lögum um ríkisábyrgðir, nr. 121/1997, sbr. lög um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020.

    júní 2021 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Skýrsla eftirlitsnefndar með lánum með ríkisábyrgð skv. ákvæði til bráðabirgða II í lögum um ríkisábyrgðir, nr

    30. jún. 2021Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Sjávarútvegur, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Græn skref í sjávarútvegi - Skýrsla starfshóps

    Starfshópur var skipaður af fjármála- og efnahagsráðherra í tengslum við aðgerð B.1 í aðgerðaáætlun Íslands í loftslagsmálum um að dregið verði úr losun gróðurhúsalofttegunda frá sjávarútvegi með blönduðum aðgerðum.

    29. jún. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Ríkisreikningar

    Afkoma ríkissjóðs lituð af áhrifum faraldurs

    Uppgjör ríkisreiknings fyrir árið 2020 hefur nú verið birt og ríkisreikningur sendur Alþingi. Samkvæmt ríkisreikningi var afkoma ársins neikvæð um 144 ma.kr. samanborið við jákvæða afkomu upp á 42 ma.kr. árið 2019. Tekjur án fjármunatekna námu 802 ma.kr. og rekstrargjöld námu 990 ma.kr. Hrein fjármagnsgjöld námu 46 ma.kr. og hlutdeild í afkomu félaga í eigu ríkisins nam 90 ma.kr.

    25. jún. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Umskipti á vinnumarkaði: Færri án atvinnu og meirihluti auglýstra starfa á einkamarkaði

    Umskipti eru að verða á vinnumarkaði. Í maí komu aðeins 400 ný inn á atvinnuleysisskrá og hafa ekki verið færri frá því farið var að safna tölum þar um árið 2014. Mikið er einnig um afskráningar. Alls hafa næstum 6.500 manns farið af atvinnuleysisskrá síðustu tvo mánuði og flestir þeirra án aðkomu Vinnumálastofnunar.

    15. jún. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Mikið hagræði fólgið í leigu á húsnæði fyrir Skattinn og Fjársýsluna

    Leiga á nýju húsnæði fyrir Skattinn og Fjársýslu ríkisins hefur í för með sér aukið hagræði og minni áhættu fyrir ríkissjóð. Með flutningunum verður unnt að reka starfsemina í um þriðjungi minna húsnæði en nú er, og tækifæri skapast til að selja óhagkvæmt húsnæði á dýru markaðssvæði.

    15. jún. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Aukið hagræði og betri þjónusta með stafrænu pósthólfi

    Skilvirkni og gagnsæi eykst og opinber þjónusta batnar með nýsamþykktum lögum Alþingis um stafrænt pósthólf. Þau fela í sér að allir með íslenska kennitölu fá slíkt pósthólf sem hið opinbera nýtir til að koma gögnum til fólks. Með lögunum verður meginreglan sú að gögnum sé miðlað til einstaklinga og lögaðila með stafrænum hætti í gegnum miðlæga gátt, sem Ísland.is er þegar vísir að.

    11. jún. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    8 milljarðar endurgreiddir aukalega af virðisaukaskatti – mest greitt vegna íbúðarhúsnæðis

    Um átta milljarðar króna hafa verið endurgreiddir aukalega af virðisaukaskatti í tengslum við aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, Endurgreiðsluhlutfall VSK af vinnu vegna nýbyggingar eða endurbóta á íbúðarhúsnæði var hækkað úr 60% í 100% og endurgreiðsluheimildir voru jafnframt rýmkaðar en breytingarnar gilda til ársloka 2021.

    10. jún. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Loftslagsmál, Sjávarútvegur

    Yfirlýsing stjórnvalda og SFS um losun gróðurhúsalofttegunda vegna olíunotkunar íslensks sjávarútvegs

    Íslensk stjórnvöld ásamt Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi stefna í sameiningu að a.m.k. 50% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda vegna olíunotkunar íslensks sjávarútvegs frá 2005 til 2030. Unnið verður sameiginlega að skilgreindum aðgerðum sem stuðla eiga að því að markmiðið náist. Þetta er inntak yfirlýsingar sem gefin var út í dag.

    10. jún. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Loftslagsmál, Sjávarútvegur

    Skýrsla starfshóps um græn skref í sjávarútvegi

    Starfshópur fjármála- og efnahagsráðherra um græn skref í sjávarútvegi leggur til að Ísland stefni að 50% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda vegna fiskiskipa sem kaupa eldsneyti á Íslandi til ársins 2030 miðað við árið 2005.

    09. jún. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Nýsköpun

    1.000 störf skapast vegna fjárfestingarátaks

    Áætlað er að fjárfestingarátak sem ráðist var í með fjáraukalögum í fyrravor til að mæta heimsfaraldri kórónuveiru hafi skapað um 1.000 störf, sem samsvarar um 0,5% af fjölda fólks á vinnumarkaði. Framhaldsfjárfestingarátak fyrir 100 milljarða króna til ársins 2025 hefst á þessu ári.

    08. jún. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Reglubundinni umræðu um Ísland lokið í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

    Föstudaginn 4. júní fór fram árleg umræða um stöðu og horfur í íslenskum efnahagsmálum í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), en sérfræðingar á hans vegum gera úttekt á efnahagslífi aðildarlanda á eins til tveggja ára fresti á grundvelli 4. greinar stofnsáttmála um sjóðinn (e. Article IV Consultation). Sendinefnd frá AGS átti fjarfundi með íslenskum stjórnvöldum og ýmsum hagaðilum í lok mars og byrjun apríl.

    07. jún. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Íslandsbanki

    Hlutafjárútboð Íslandsbanka hafið

    Útboð á rúmlega 636 milljón hlutum af hlutafé ríkissjóðs í Íslandsbanka hófst í dag og stendur til 15. júní. Til viðbótar munu söluráðgjafar úthluta 10% af útboðsmagninu ef umfram eftirspurn verður í útboðinu. Þeir hlutir sem verða boðnir út nema þannig að hámarki 35% af heildarhlutafé bankans.

    04. jún. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Umfang stærstu aðgerða vegna heimsfaraldurs 95 milljarðar króna

    Umfang stærstu stuðningsaðgerða ríkisstjórnarinnar vegna heimsfaraldurs kórónuveiru er nú ríflega 95 milljarðar króna. Hlutabætur eru þar umfangsmestar en næst kemur frestun skattgreiðslna, stuðnings- og viðbótarlán, greiðsla launa á uppsagnarfresti, tekjufalls-, viðspyrnu og lokunarstyrkir. Undanfarna mánuði hafa rúmir 15 milljarðar króna verið greiddir í tekjufalls- og viðspyrnustyrki, sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þ.m.t. einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Um 2,5 milljarðar króna hafa verið greiddir í lokunarstyrki.

    03. jún. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Reglur um greiðslu ferðakostnaðar og önnur starfskjör ráðherra

    Í haust tóku gildi reglur um greiðslu ferðakostnaðar og önnur starfskjör ráðherra. Þær leysa af hólmi eldri ferðareglur og hafa víðtækara gildissvið.

    03. jún. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Loftslagsmál

    Stofnanir sameinast um örútboð á rafbílum

    Farið verður i sameiginlegt örútboð stofnana í haust á rafbílum. Útboðið er þáttur í aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum og framkvæmd heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og er í samræmi við þá ríku áherslu sem stjórnvöld leggja á að hraða orkuskiptum í samgöngum. Í fjármálaáætlun 2021-2025 er það markmið sett að hlutfall skráðra nýorkubifreiða af nýskráningum verði orðið 60% árið 2025.

    31. maí 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Álagning opinberra gjalda á einstaklinga fyrir 2020

    Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga sbr. frétt á vef Skattsins í dag og tilkynningu frá Fjársýslu ríkisins. Álagningin 2021 tekur mið af tekjum einstaklinga árið 2020 og eignastöðu þeirra 31. desember 2020.

    31. maí 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Alþjóðamál, Covid-19

    Tók þátt í fundi fjármálaráðherra OECD og ræddi viðbrögð við heimsfaraldri

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tók í dag þátt í árlegum fundi fjármálaráðherra Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Fundurinn, sem í ár er fjarfundur, stendur í dag og á morgun. Þar er einkum rætt um viðbrögð og lærdóma aðildarríkjanna af heimsfaraldri kórónuveiru en einnig er fundurinn kveðjufundur Angel Gurría, fráfarandi framkvæmdastjóra OECD, sem lætur af embætti 1. júní.

    31. maí 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Upplýsingatæknimál ríkisins

    Umgjörð stafrænnar þjónustu bætt með fullri aðild Íslands að NIIS

    Stórum áfanga í átt að betri umgjörð stafrænnar þjónustu er náð með fullri aðild Íslands NIIS-stofnuninni (Nordic Institute for Interoperability Solutions), sem tekur gildi 1. júní, en Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur undirritað samning um aðildina. Stofnuninni var komið á fót árið 2017 af eistneskum og finnskum stjórnvöldum. Hún er óhagnaðardrifin og vinnur að framþróun Straumsins (X-Road) – gagnaflutningskerfis sem gerir stofnunum kleift að veita örugga stafræna þjónustu.

    28. maí 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Hægt að skoða hvert skattarnir fara á nýjum álagningarseðli

    Einstaklingar geta nú séð á myndrænan hátt hvernig sköttum sem lagðir eru á tekjur þeirra er skipt á milli ríkis og sveitarfélags og í hvaða málaflokka þeir renna. Þetta má sjá á nýjum og breyttum álagningarseðlum einstaklinga, sem eru nú aðgengilegir á vef Skattsins.

    26. maí 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Áætlun um langtímahorfur í efnahagsmálum og opinberum fjármálum til 30 ára birt í fyrsta sinn

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur birt áætlun um langtímahorfur í efnahagsmálum og opinberum fjármálum til 30 ára í samræmi við lög um opinber fjármál. Þetta er í fyrsta sinn sem slík áætlun er birt en gert er ráð fyrir að hún verði uppfærð ekki sjaldnar en á þriggja ára fresti.

    26. maí 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Aldrei fleiri fyrirtæki frá því að heimsfaraldur hófst sem hyggjast fjölga starfsfólki á næstunni

    Um 60% íslenskra fyrirtækja eru ánægð með efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, yfir helmingur þeirra telur sig standa vel að vígi til að takast á við næstu mánuði í kjölfar faraldursins og aldrei hafa fleiri haft í hyggju að fjölga starfsfólki á næstu 3 mánuðum, eða um þriðjungur svarenda í nýrri könnun Gallup fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið.

    26. maí 2021Rit og skýrslur, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Langtímahorfur í efnahagsmálum og opinberum fjármálum

    maí 2021 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Langtímahorfur í efnahagsmálum og opinberum fjármálum Langtímahorfur í efnahagsmálum og opinberum fjármálum

    26. maí 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Fjölgun ferðamanna og meiri aukning í notkun erlendra korta

    Flugferðum til og frá landinu og ferðamönnum sem hingað koma fjölgaði hratt í maímánuði. Líkur eru a að fjölgunin verði áfram mikil á næstu vikum ef tekið er mið af flugframboði og áætlunum um nýtingu hótela. Vísbendingar eru um að erlendir ferðmenn á Íslandi verji nú talsvert meira fé en var fyrir heimsfaraldur kórónuveiru en erlend kortavelta hefur aukist hraðar en fjöldi ferðamanna.

    21. maí 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19, Greiðsluafkoma

    Afkoma ríkissjóðs á fyrsta ársfjórðungi betri en áætlanir gerðu ráð fyrir

    Fjársýsla ríkisins hefur birt uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2021. Samkvæmt uppgjörinu hækka skatttekjur og tryggingagjöld um ríflega 9% milli ára og gjöld hækka um 20%. Aukning tekna milli ára skýrist að stórum hluta af frestununum skattgreiðslna og er raunveruleg hækkun minni. Aukningu gjalda má einkum rekja til aðgerða sem ráðist hefur verið í til að mæta áhrifum Covid-19.

    20. maí 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    14,5 milljarðar í tekjufalls- og viðspyrnustyrki

    Um 14,5 milljarðar króna hafa verið greiddir í tekjufalls- og viðspyrnustyrki, sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þ.m.t. einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Um 2,4 milljarðar króna hafa verið greiddir í lokunarstyrki.

    18. maí 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Upplýsingatæknimál ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Sýslumenn

    Nýr vefur sýslumanna á Ísland.is

    Dómsmálaráðherra opnaði í dag nýjan vef sýslumanna á Ísland.is ásamt Kristínu Þórðardóttur formanns Sýslumannaráðs og Andra Heiðari Kristinssyni framkvæmdastjóra Stafræns Íslands.

    17. maí 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Nýsköpun, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Einstakt tækifæri stofnana á Nýsköpunarmóti

    Opinberum stofnunum gefst einstakt tækifæri á að eiga samtal við fyrirtæki með það að markmiði að auka enn frekar nýsköpun, bæta þjónustu og skilvirkni í sínum rekstri, þegar Nýsköpunarmót verður haldið dagana 26. maí til 2. júní.

    14. maí 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Standard og Poor's, Efnahagsmál og opinber fjármál

    S&P Global Ratings staðfestir A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs – horfur eru áfram stöðugar

    Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur staðfest A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands með stöðugum horfum.

    12. maí 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19

    Úttekt séreignar og fleiri úrræði samþykkt á Alþingi

    Framhald og rýmkun viðspyrnu- og lokunarstyrkja, útgreiðsla séreignarsparnaðar, sérstakur barnabótaauki og fleiri aðgerðir til verndar og viðspyrnu vegna heimsfaraldurs kórónuveiru voru samþykktar á Alþingi í gær.

    • First
    • Prev
    • 12
    • 13
    • 14
    • 15
    • 16
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband