11. sep. 2011Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál, Úrskurðir
Mál nr. 202/2011
Kærendur töldu fasteignamat fasteignar sinnar of hátt og vildu að miðað yrði við lægra verð en skráð fasteignamat. Af ákvæði 4. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 leiðir að við afgreiðslu mála er varða niðurfærslu veðkrafna Íbúðalánasjóðs verður ekki miðað við lægri fjárhæð en sem nemur fasteignamati enda ber að miða við það sem er hærra, fasteignamat eða matsverð. Hin kærða ákvörðun staðfest.