10. jan. 2018Skipulagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Auðlindir, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Umhverfis- og auðlindaráðherra á ferð um Vestfirði
Þriggja daga ferð Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra, um Vestfirði hófst í dag. Í ferðinni hittir ráðherra m.a. fulltrúa sveitarstjórna, atvinnulífs, umhverfisverndarsamtaka, starfsmenn stofnana og heimafólk.