Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1251–1300 af 3887
    Raða eftir:
    17. jún. 2022Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra flutti þjóðhátíðarávarp á Austurvelli

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti þjóðhátíðarávarp á Austurvelli í dag á 78 ára afmæli lýðveldisins. Hún sagði lýðveldið bera aldurinn vel líkt og margir Íslendingar á sama aldri.

    16. jún. 2022Forsætisráðuneytið

    Fimm þingmál forsætisráðherra afgreidd fyrir þinglok

    Tvö frumvörp forsætisráðherra, annars vegar um fjölgun mismununarþátta í lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna og hins vegar um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna, voru samþykkt á Alþingi í gær. Þrjú þingmál ráðherra til viðbótar voru afgreidd áður en fundum Alþingis var frestað aðfararnótt fimmtudags.

    14. jún. 2022Rit og skýrslur, Covid-19, Forsætisráðuneytið

    Áhrif heimsfaraldurs COVID-19 á viðkvæma hópa - Tillögur starfshóps um félags- og heilsufarslegar aðgerðir

    Í skýrslu starfshópsins eru settar fram tillögur að sértækum aðgerðum sem hafa að markmiði að draga úr neikvæðum langtímaáhrifum faraldursins á viðkvæma hópa í íslensku samfélagi. Tillögurnar ráðast af vísbendingum um að áhrif faraldursins geti orðið langvinn ef ekki er brugðist við til skamms tíma.

    13. jún. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Fyrsta aðgerðaáætlunin í málefnum hinsegin fólks samþykkt á Alþingi

    Þingsályktunartillaga Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir tímabilið 2022 til 2025 var samþykkt samhljóða á Alþingi í dag. Um er að ræða fyrstu aðgerðaáætlunina sem snýr eingöngu að málefnum hinsegin fólks.

    13. jún. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Fyrsta aðgerðaáætlunin í málefnum hinsegin fólks samþykkt á Alþingi

    Þingsályktunartillaga Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir tímabilið 2022 til 2025 var samþykkt samhljóða á Alþingi í dag. Um er að ræða fyrstu aðgerðaáætlunina sem snýr eingöngu að málefnum hinsegin fólks.

    13. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Covid-19, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Skýrsla starfshóps um félags- og heilsufarslegar aðgerðir vegna áhrifa heimsfaraldurs á viðkvæma hópa

    Starfshópur sem ríkisstjórnin fól að vinna tillögur um félags- og heilsufarslegar aðgerðir vegna áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru á viðkvæma hópa hefur skilað skýrslu til forsætisráðherra.

    10. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Aðgerðir í kjölfar snjóflóða á Flateyri almennt gengið vel

    Flestum þeirra 15 aðgerða sem starfshópur lagði til í kjölfar snjóflóða á Flateyri í janúar 2020 er nú lokið eða komnar vel á veg. Þetta kemur fram í samantekt verkefnisstjórnar sem skipuð var til að fylgja eftir tillögum starfshópsins og var kynnt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

    10. jún. 2022Efnahagsmál og opinber fjármál, Forsætisráðuneytið

    Þrír óháðir sérfræðingar gera úttekt í samræmi við ákvæði laga um Seðlabankann

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur valið þrjá óháða sérfræðinga til að gera úttekt um hvernig Seðlabankanum hefur tekist að uppfylla markmið um stöðugt verðlag, fjármálastöðugleika og framkvæmd fjármálaeftirlits. Umrædd úttekt er í samræmi við ákvæði laga um Seðlabankann og skal framkvæma þá fyrstu fyrir lok árs 2022.

    09. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fjármálaáætlun

    Aðgerðir gegn þenslu og verðbólgu: Tillögur að breytingum á fjármálaáætlun lagðar fyrir fjárlaganefnd

    Ríkisfjármálunum verður beitt til þess að vinna gegn þenslu og verðbólgu í hagkerfinu með breytingum á fjármálaáætlun sem fjármála- og efnahagsráðherra kynnti á fundi með fjárlaganefnd Alþingis síðdegis, fyrir síðari umræðu á Alþingi. Á fundi sínum miðvikudaginn 8. júní samþykkti ríkisstjórnin að ráðherra skyldi leggja tillögurnar fyrir nefndina.

    09. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1082/2022. Úrskurður frá 1. júní 2022

    Kærandi óskaði eftir upplýsingum frá Orkustofnun, en fyrir lá að hann var meðal umsækjenda um starf hjá stofnuninni. Þar sem ráðning í opinbert starf væri ákvörðun um rétt eða skyldu í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, var óhjákvæmilegt með vísan til 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, að vísa henni frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    09. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1081/2022. Úrskurður frá 1. júní 2022

    Kæranda var synjað um aðgang að tveimur tölvupóstum frá framkvæmdastjóra sænska fyrirtækisins Swerec til framkvæmdastjóra Úrvinnslusjóðs á þeim grundvelli að þeir innihéldu upplýsingar um mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni tiltekinna þjónustuaðila Úrvinnslusjóðs og fyrirtækisins Swerec og innihéldu persónulegar hugleiðingar framkvæmdastjóra Swerec, sem hefðu verið settar fram undir því fororði að efni hans kæmi einungis fyrir augu framkvæmdastjóra Úrvinnslusjóðs. Úrskurðarnefndin taldi að hvorugur pósturinn félli undir takmörkunarákvæði 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og lagði fyrir Úrvinnslusjóð að veita kæranda aðgang að þeim.

    09. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1080/2022. Úrskurður frá 1. júní 2022

    Í málinu lá fyrir að Sveitarfélagið Ölfus hafði afgreitt þær gagnabeiðnir sem kærandi beindi að sveitarfélaginu og lágu til grundvallar kærum hans til úrskurðarnefndarinnar. Samkvæmt upplýsingum til úrskurðarnefndarinnar lágu ekki fyrir frekari gögn hjá sveitarfélaginu sem það teldi að féllu undir beiðnir kæranda. Þar sem ekki teldist um synjun að ræða í skilningi 20. gr. upplýsingalaga var kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

    09. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1079/2022. Úrskurður frá 1. júní 2022

    Seðlabanki Íslands synjaði kæranda um aðgang að tilteknum gögnum um Eignasafn Seðlabanka Íslands ehf. og Hildu ehf. Ákvörðun bankans var byggð á því að það væri ekki bankans að svara beiðnum um upplýsingar og gögn um starfsemi Eignasafns Seðlabanka Íslands og Hildu, því félögin hefðu verið aðskilin frá Seðlabanka Íslands. Úrskurðarnefndin taldi að það hefði ekki þýðingu í málinu þar sem beiðnum kæranda hefði sannarlega verið beint að Seðlabankanum, sem hefði borið að taka beiðnir hans til efnislegrar meðferðar á grundvelli IV. kafla upplýsingalaga, nr. 140/2012. Var beiðnum kæranda því vísað til Seðlabankans til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    09. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1078/2022. Úrskurður frá 1. júní 2022

    Kæranda var synjað um aðgang að gögnum sem sýndu fram á hvað tvö hópbílafyrirtæki greiddu til Isavia ohf. í gjöld vegna afnota af svonefndum nær- og fjarstæðum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Synjun Isavia studdist fyrst og fremst við 9. gr. upplýsingalaga, þar sem upplýsingarnar vörðuðu mikilvæga virka fjárhags- og viðskiptahagsmuni þeirra fyrirtækja sem upplýsingarnar vörðuðu. Úrskurðarnefndin taldi að Isavia hefði ekki fært fullnægjandi rök fyrir því hvernig afhending gagnanna kynni að vera til þess fallin að valda fyrirtækjunum tjóni. Var félaginu því gert að afhenda kæranda gögnin.

    09. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1077/2022. Úrskurður frá 1. júní 2022

    Kærandi óskaði eftir tilteknum gögnum við Ísafjarðarbæ. Ísafjarðarbær taldi beiðnina vera svo til samhljóða beiðni sem kærandi hefði áður sent bænum, sem hefði verið svarað með fullnægjandi hætti. Úrskurðarnefndin taldi að beiðni kæranda væri a.m.k. að hluta til beiðni um gögn sem ekki hafði verið óskað eftir áður. Ekki lá fyrir að Ísafjarðarbær hefði afgreitt beiðnina með fullnægjandi hætti, svo sem með því að afmarka beiðnina við fyrirliggjandi gögn í vörslum sveitarfélagsins og meta rétt kæranda til aðgangs að þeim með hliðsjón af takmörkunarákvæðum laganna og hvort veita skuli aðgang að gögnum að hluta til. Var því ekki hjá því komist að vísa beiðni kæranda til Ísafjarðarbæjar til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    08. jún. 2022Forsætisráðuneytið

    Skýrsla um undirbúning rannsóknar á aðbúnaði og meðferð fullorðins fatlaðs fólks með þroskahömlun og fullorðinna með geðrænan vanda

    Nefnd sem falið var að undirbúa rannsókn á aðbúnaði og meðferð fullorðins fatlaðs fólks með þroskahömlun og fullorðinna með geðrænan vanda hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sinni.

    07. jún. 2022Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Þróunarsamvinna, Dómsmálaráðuneytið

    Utanríkisráðherra Namibíu í heimsókn á Íslandi

    Netumbo Nandi-Ndaitwah aðstoðarforsætisráðherra og utanríkisráðherra Namibíu er í heimsókn hér á landi ásamt sendinefnd. Hún átti fundi í dag með utanríkisráðherra og forsætisráðherra þar sem svonefnt Samherjamál var meðal annars til umræðu. Síðdegis átti hún svo fund með aðstoðarmanni ráðherra og starfsfólki í dómsmálaráðuneytinu.

    03. jún. 2022Forsætisráðuneytið, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ríkisstjórnin styrkir verkefnið Í fótspor Árna Magnússonar í Vesturheimi

    Ríkisstjórnin hefur ákveðið að styrkja Stofnun Árna Magnússonar og Heiðursráð Þjóðræknisfélags Íslendinga um 5 m.kr. af ráðstöfunarfé sínu vegna vinnu við uppbyggingu gagnagrunns um handrit og önnur vestur-íslensk menningarverðmæti.

    03. jún. 2022Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar, Flóttafólk, Innflytjendur, Mannréttindi og jafnrétti, Forsætisráðuneytið

    Ráðherranefnd um málefni innflytjenda og flóttafólks

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra um skipun tímabundinnar ráðherranefndar um málefni innflytjenda og flóttafólks.

    02. jún. 2022Forsætisráðuneytið

    Siðareglur ráðherra birtar í Stjórnartíðindum

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur fyrir hönd ríkisstjórnarinnar undirritað siðareglur ráðherra. Með reglunum sem birtar hafa verið í Stjórnartíðindum falla eldri siðareglur frá 2017 úr gildi.

    30. maí 2022Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Aðgerðir sem skila árangri - grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu 26. maí 2022

    30 maí 2022 / Forsætisráðuneytið Aðgerðir sem skila árangri - grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu 26. maí 2022 Á skömmum tíma hafa þær efnahagslegu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir tekið stakkaskiptum. Eftir að hafa glímt við samdrátt og atvinnuleysi í kjölfar heimsfaraldurs þar sem sameiginlegir sjóðir voru notaðir í ríkum mæli til að halda uppi gangverki efnahagslífsins hefur verkefnið breyst yfir í að takast á við þenslu og verðbólgu með tilheyrandi vaxtahækkunum

    29. maí 2022Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tilkynnt um úthlutun styrkja úr Barnamenningarsjóði

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, tilkynntu í dag, á degi barnsins, um úthlutun styrkja úr Barnamenningarsjóði Íslands. Alls hljóta 34 verkefni styrk að þessu sinni en heildarfjárhæð styrkja nemur 92 milljónum króna. Er þetta í fjórða sinn sem styrkjum er úthlutað úr sjóðnum.

    27. maí 2022Forsætisráðuneytið

    Ráðherrar fengu skýrslu barnaþings afhenta

    Sex börn úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna ásamt Salvöru Nordal, umboðsmanni barna, afhentu ráðherrum skýrslu barnaþings 2022 eftir fund ríkisstjórnarinnar í dag. Í skýrslunni eru helstu niðurstöður barnaþingsins sem haldið var í mars sl.

    27. maí 2022Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Jafnlaunavottun nær nú yfir 100 þúsund starfsmenn

    Alls hafa 385 fyrirtæki, stofnanir og aðrir opinberir aðilar innleitt jafnlaunastaðalinn og fengið jafnlaunavottun frá því að lög um jafnlaunavottun tóku gildi 2017. Starfsfólk hjá þessum aðilum telst vera rétt um eitt hundrað þúsund sem telur tæp 70% af þeim starfsmönnum sem lög um jafnlaunavottun ná til.

    23. maí 2022Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Framfylgd þingsályktunar um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni í góðum farvegi

    Stýrihópur um framfylgd þingsályktunar um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni fyrir árin 2021-2025 telur framgang áætlunarinnar í heildina litið í góðum farvegi.

    20. maí 2022Mannréttindi og jafnrétti, Mannréttindi, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Starfshópur skipaður gegn hatursorðræðu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp gegn hatursorðræðu (e. hate speech) til að bregðast við vísbendingum um vaxandi hatursorðræðu í íslensku samfélagi. Forsætisráðherra lagði fram minnisblað þess efnis í ríkisstjórn í dag.

    19. maí 2022Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Aðgerðir kynntar um meira öryggi og aukið framboð á húsnæðismarkaði

    Starfshópur um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði sem skipaður var í febrúar sl. kynnti tillögur sínar á fundi Þjóðhagsráðs í morgun. Á grundvelli tillagnanna munu stjórnvöld nú þegar leggja áherslu á aukna uppbyggingu íbúða, endurbættan húsnæðisstuðning og bætta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda.

    18. maí 2022Forsætisráðuneytið

    Fyrsta opinbera heimsókn íslensks forsætisráðherra til Grænlands síðan 1998

    Áframhaldandi gott samstarf Íslands og Grænlands var efst á baugi í opinberri heimsókn Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra til Nuuk sem fram fór ​í gær og fyrradag. Heimsóknin var í boði Múte B. Egede, formanns grænlensku landsstjórnarinnar, og fyrsta heimsókn íslensks forsætisráðherra til Grænlands síðan árið 1998.

    17. maí 2022Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Mannréttindi, Fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ísland verður gestgjafi IDAHOT+ Forum 2023

    Árlegur samráðsfundur IDAHOT+ Forum verður haldinn á Íslandi í maí 2023 í tengslum við formennsku Íslands í Evrópuráðinu. Þetta verður í tíunda sinn sem efnt er til þessa samráðs sem sameinar evrópskar ríkisstjórnir, aðgerðasinna, borgaralegt samfélag og aðra hagsmunaaðila til að meta framgang réttinda hinsegin fólks í álfunni. Fundurinn er haldinn árlegakringum alþjóðadag gegn fordómum gagnvart hinsegin fólki (IDAHOT) 17. maí.

    16. maí 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Flóttafólk, Dómsmálaráðuneytið

    Ísland tekur sérstaklega á móti fjölskyldum ungra afganskra flóttamanna - áhersla á einstæðar mæður

    Horft til fjölskyldusameiningar við einstaklinga sem fengu alþjóðlega vernd hér á landi eftir 18 ára aldur.

    16. maí 2022Utanríkismál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Sameiginleg yfirlýsing forsætisráðherra Íslands, Danmerkur og Noregs

    Forsætisráðherrar Íslands, Danmerkur og Noregs hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir ítreka stuðning við ákvörðun Finnlands og Svíþjóðar að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu, sem tilkynnt var um í gær og í dag.

    12. maí 2022Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Ísland hækkar um fimm sæti á Regnbogakorti ILGA Europe og er komið í topp tíu

    Ísland hækkar um fimm sæti á milli ára á Regnbogakorti ILGA Europe. Ísland er nú komið í 9. sæti en var í 14. sæti í fyrra (2021).

    07. maí 2022Forsætisráðuneytið

    Listaverkið Himinglæva afhjúpað við tónlistarhúsið Hörpu

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri afhjúpuðu útilistaverkið Himinglæva fyrir framan Hörpu í dag. Listaverkið er eftir Elínu Hansdóttur myndlistarkonu og er fagurlega formað hljóðfæri. Verkið var valið í samkeppni um list í opinberu rými við Hörpu árið 2008 og er gjöf frá íslenska ríkinu og Reykjavíkurborg í tilefni af 10 ára afmæli Hörpu í október í fyrra.

    06. maí 2022Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Þjóðarhöll rís í Laugardal

    Ríki og Reykjavíkurborg eru sammála um að ráðast í byggingu þjóðarhallar í innanhússíþróttum í Laugardal. Stefnt er að því að framkvæmdum ljúki 2025.

    06. maí 2022Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ríkisstjórnin samþykkir mótvægisaðgerðir vegna verðbólgu

    Ráðist verður í mótvægisaðgerðir til að draga úr áhrifum verðbólgu á lífskjör viðkvæmustu hópa samfélagsins. Tillaga þess efnis frá forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, innviðaráðherra, félags- og vinnumarkaðsráðherra og menningar- og viðskiptaráðherra var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

    05. maí 2022Úkraína, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Einn milljarður króna í aðstoð til Úkraínu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í framlagaráðstefnu til stuðnings Úkraínu sem fram fór í Varsjá í Póllandi.

    04. maí 2022Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra á leiðtogafundi Norðurlandanna og Indlands

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók í dag þátt í leiðtogafundi Norðurlandanna og Indlands sem fram fór í Kaupmannahöfn. Þetta er í annað sinn sem forsætisráðherrar ríkjanna hittast en fyrri fundur var í Stokkhólmi árið 2018. Fundinn sátu allir forsætisráðherrar Norðurlandanna auk Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands.

    26. apr. 2022Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra fundaði með lögmanni Færeyja

    ​Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundaði í dag með Bárði á Steig Nielsen, lögmanni Færeyja, í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.

    26. apr. 2022Forsætisráðuneytið

    Dagný Jónsdóttir og Henný Hinz aðstoða ríkisstjórnina

    Dagný Jónsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar um samhæfingu mála. Þá mun Henný Hinz áfram gegna stöðu aðstoðarmanns ríkisstjórnarinnar á sviði vinnumarkaðs-, efnahags- og loftslagsmála.

    26. apr. 2022Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Vistheimili á Hjalteyri og vöggustofur í Reykjavík falli undir lög um sanngirnisbætur

    Lög um sangirnisbætur verða endurskoðuð með það að markmiði að mál sem tengjast vistheimilinu á Hjalteyri og vöggustofum á vegum Reykjavíkurborgar falli undir lögin.

    22. apr. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1076/2022. Úrskurður frá 31. mars 2022

    Hagstofa Íslands synjaði kæranda um aðgang að upplýsingum um árlegar tölur með skiptingu í allar flokkunarbreytur fyrir fjölda foreldra sem andast eftir kyni, aldursflokkum og dánarorsökum. Synjun Hagstofunnar byggist á 1. mgr. 10. gr. laga um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007, þar sem kveðið er á um þagnarskyldu um allar upplýsingar sem Hagstofan safnar til hagskýrslugerðar og snerta tilgreinda einstaklinga eða lögaðila. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að líta bæri á tilvitnað ákvæði sem sérstakt ákvæði um þagnarskyldu í framangreindum skilningi, sem gengi framar ákvæðum upplýsingalaga. Var því óhjákvæmilegt að vísa kærunni frá úrskurðarnefndinni.

    22. apr. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1075/2022. Úrskurður frá 31. mars 2022

    Deilt var um afgreiðslu Borgarbyggðar á beiðni um gögn sem varða lokun starfsemi og sölu húsnæðis við Brákarbraut sem var í eigu sveitarfélagsins. Beiðni kæranda um yfirlit úr málaskrá yfir öll gögn sveitarfélagsins vegna málsins á tilteknu tímabili var hafnað. Þá taldi sveitarfélagið sér óheimilt að veita kæranda aðgang gögnum varðandi tilboð sem sveitarfélaginu hefði borist í eignir við Brákarbraut með vísan til 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að Borgarbyggð væri skylt að veita kæranda aðgang að yfirliti yfir gögn í málaskrá sem varða lokun á starfsemi við Brákarbraut.…

    22. apr. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1074/2022. Úrskurður frá 31. mars 2022

    Sjúkratryggingar Íslands synjuðu beiðni kæranda um aðgang að samningi stofnunarinnar við Íslandshótel hf. um afnot af fasteign við Þórunnartún í Reykjavík um sérstaka hótelþjónustu fyrir einstaklinga í sóttkví vegna Covid-19-faraldursins. Ákvörðun Sjúkratrygginga byggðist á því að óheimilt væri að veita aðgang að samningnum á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að um aðgang kæranda að samningnum færi skv. 14. gr. upplýsingalaga þar sem kærandi væri eigandi fasteignarinnar. Hagsmunir kæranda af því að fá aðgang að samningnum voru taldir vega þyngra en hagsmunir Íslandshótela af því að hann færi leynt, m.a. þar sem samningurinn hefði verið gerður án samþykkis kæranda.…

    22. apr. 2022Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1073/2022. Úrskurður frá 31. mars 2022

    Kærandi óskaði eftir gögnum um hlutabótaleið stjórnvalda hjá Vinnumálastofnun. Stofnunin afhenti kæranda hluta af gögnunum en taldi sér ekki skylt að útbúa ný gögn eða samantektir til að verða við beiðni um fjölda starfsmanna einstakra fyrirtækja sem hefðu sótt um hlutabætur og heildarfjárhæð sem greidd hefði verið til starfsmanna einstakra fyrirtækja. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að af svörum Vinnumálastofnunar yrði ekki annað ráðið en að í kerfum stofnunarinnar lægju upplýsingarnar fyrir og að þær væri unnt að kalla fram með tiltölulega einföldum hætti. Ekki yrði séð að vinna við samantekt gagnanna væri frábrugðin eða eðlisólík þeirri vinnu sem upplýsingalög krefðust almennt af stjórnvöldum við afgreiðslu beiðna um upplýsingar.…

    22. apr. 2022Úkraína, Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Ísland tekur sérstaklega á móti allt að 140 einstaklingum í viðkvæmri stöðu frá Úkraínu

    Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra, félags- og vinnumarkaðsráðherra, dómsmálaráðherra, utanríkisráðherra, heilbrigðisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra um að fallast á útfærslu flóttamannanefndar um móttöku viðkvæmra hópa flóttafólks frá Úkraínu vegna þess ástands sem hefur skapast í landinu í kjölfar innrásar Rússlands.

    19. apr. 2022Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og fjölskyldumál

    Allt að 750 milljónir í aðgerðir til að bregðast við félags- og heilsufarslegum afleiðingum COVID-19

    Allt að 750 m.kr. verður varið á þessu ári til sértækra aðgerða til að mæta félags- og heilsufarslegum afleiðingum COVID-19. Þetta var ákveðið á síðasta fundi ríkisstjórnarinnar fyrir páska. Stjórnvöld hafa frá upphafi heimsfaraldursins lagt ​áherslu á að vinna gegn félagslegum og heilsufarslegaum áhrifum hans, einkum á viðkvæma hópa og eru þessar aðgerðir liður í því.

    19. apr. 2022Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Íslandsbanki

    Yfirlýsing vegna sölu á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka

    Yfirlýsing frá formönnum stjórnarflokkanna vegna sölu á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka.

    12. apr. 2022Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Drög að forgangslista vegna hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB

    Í Samráðsgátt stjórnvalda hafa nú verið birt drög að forgangslista fyrir hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB vegna aðildar Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Frestur til að veita umsagnir er til 29. apríl nk.

    08. apr. 2022Forsætisráðuneytið

    Fulltrúar lettneskrar stofnunar sem vinnur gegn spillingu heimsóttu forsætisráðuneytið

    Fulltrúar frá KNAB, stofnun á vegum lettneskra stjórnvalda sem vinnur gegn spillingu, heimsóttu forsætisráðuneytið í vikunni. Markmið heimsóknarinnar var að skiptast á upplýsingum og styrkja samstarf Íslands og Lettlands á sviði opinberra heilinda og varna gegn spillingu.

    06. apr. 2022Forsætisráðuneytið

    Margrét Hallgrímsdóttir skipuð skrifstofustjóri á skrifstofu innri þjónustu

    Forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa Margréti Hallgrímsdóttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu innri þjónustu í forsætisráðuneytinu. Skipað er í embættið til fimm ára en umsækjendur voru alls 23. Tveir umsækjendur drógu umsókn sína til baka á meðan á ráðningarferlinu stóð.

    • First
    • Prev
    • 24
    • 25
    • 26
    • 27
    • 28
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband