16. nóv. 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið
Ríki vilja halda hitastigi undir 1,5 gráðum
Á loftslagsráðstefnunni COP26 sem lauk í Glasgow um helgina, staðfestu aðildarríki loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna mikilvægi þess að halda hækkun hitastigs jarðar undir 1,5°C. Staðfestingin er mikilvæg fyrir áframhaldandi baráttu gegn loftslagsbreytingum.