Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1601–1650 af 3013
    Raða eftir:
    01. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19

    COVID-19: Vinnuhópur um gagnkvæma viðurkenningu vottorða

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað vinnuhóp til að skoða m.a. hvort stjórnvöld geti viðurkennt erlend vottorð um að einstaklingar hafi sýkst af SARS-CoV-2 veirunni og þar með undanskilið viðkomandi frá kröfum um skimun á landamærum. Liður í þessari vinnu er að kanna hvort taka megi gild vottorð um nýleg neikvæð PCR-próf og jafnvel vottorð sem sýna fram á að einstaklingur hafi myndað mótefni fyrir SARS-CoV-2.

    01. sep. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Greining á kynbundnum mun á heilsu og heilbrigðisþjónustu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að láta kortleggja heilsufar landsmanna út frá kynja- og jafnréttissjónarmiðum og gera mat á því hvort heilbrigðisþjónustan taki mið af ólíkum þörfum kynjanna. Byggt verður á fyrirliggjandi gögnum úr heilbrigðiskerfinu og almannatryggingakerfinu og niðurstöðum ýmissa kannana sem tengjast lífsháttum og lýðheilsu. Fyrirmynd að verkefninu er sótt í niðurstöður nefndar heilbrigðisráðherra um heilsufar kvenna frá árinu 2000.

    01. sep. 2020Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Óbreytt klukka á Íslandi

    Klukkan á Íslandi verður óbreytt eftir ítarlega skoðun á kostum og göllum þess að seinka henni um klukkustund.

    31. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Endurnýjun myndgreiningarbúnaðar við Sjúkrahúsið á Akureyri

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Sjúkrahúsinu á Akureyri 71 milljón króna til endurnýjunar á myndgreiningarbúnaði sínum á þessu ári. Spítalinn fær enn fremur heimild til að taka þátt í útboði með Landspítala innan tveggja til þriggja ára til kaupa á nýju segulómtæki. Markmiðið með þátttöku í slíku útboði er að ná betri kjörum en ella.

    28. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Kaup á bóluefni vegna COVID-19 rædd í ríkisstjórn

    Ákveðið hefur verið að kaup bóluefna gegn COVID-19 hér á landi fari fram á grundvelli samninga Evrópusambandsins við lyfjaframleiðendur. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) hefur þegar gert samning við sænsk-breska fyrirtækið AstraZeneca um kaup á bóluefni og samningaviðræður ESB við fleiri framleiðendur bóluefna standa yfir. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti málið á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Ísland mun njóta góðs af Evrópusamstarfinu fyrir milligöngu Svíþjóðar sem hefur heimild til að framselja ríkjum EES, þar á meðal Íslandi og Noregi, bóluefni á grundvelli samninga ESB og hefur lýst sig reiðubúið til þess. Norsk stjórnvöld hafa einnig ákveðið að fara þessa leið til að tryggja aðgengi að bóluefni fyrir sína landsmenn.…

    28. ágú. 2020Innviðaráðuneytið, Byggðamál, Heilbrigðismál, Sveitarstjórnir og byggðamál, Heilbrigðisráðuneytið

    Samið við Ljósið um þjónustu við fólk á landsbyggðinni

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur styrkt Ljósið um 34 milljónir kr. til að veita fólki með krabbamein, sem búsett er á landsbyggðinni, og aðstandendum þeirra þjónustu.

    28. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Stýrihópur skipaður um skipulag framkvæmda við Landspítala

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað stýrihóp til að annast umsjón og samþættingu allra þátta skipulags við framkvæmdir vegna uppbyggingar Landspítala við Hringbraut. Formaður hópsins er Unnur Brá Konráðsdóttir.

    27. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisstofnun Suðurlands gert kleift að opna 4 rými fyrir líknandi meðferð

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tryggja Heilbrigðisstofnun Suðurlands aukið fjármagn til að koma á fót 4 rýmum þar sem unnt verður að veita líknar- og lífslokameðferð. Ákvörðunin er í samræmi við tillögur starfshóps um framtíðarskipan líknarþjónustu á Íslandi, þar sem lagt er til að heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni setji á fót líknarrými til að veita almenna líknarmeðferð fyrir íbúa umdæmisins sem þess þurfa með. Þetta er jafnframt liður í aðgerðum til að draga úr vanda bráðamóttöku Landspítala, samanber tillögur átakshóps þess efnis fyrr á árinu, og bæta um leið aðbúnað sjúklinga sem þurfa á líknar- og lífslokameðferð að halda við lok lífs og aðstandenda þeirra.

    25. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu kynnt í ríkisstjórn

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar í dag aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu til næstu fimm ára. Þar eru sett fram þau meginmarkmið að kaup á heilbrigðisþjónustu tryggi að fjármunum sé varið til þeirrar þjónustu sem mest er þörf fyrir á hverjum tíma, að nýtt þjónustutengt fjármögnunarkerfi verði tekið í notkun fyrir opinber sjúkrahús og sambærilega einkarekna þjónustu, að nauðsynlegar kröfur séu gerðar um aðgengi, gæði og öryggi sjúklinga og að notendur heilbrigðisþjónustu hafi gott aðgengi að upplýsingum til að taka upplýstar ákvarðanir um val á heilbrigðisþjónustu.

    25. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Ný auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar

    Ný auglýsing heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar tekur gildi 28. ágúst næstkomandi og gildir til og með 10. september. Litlar breytingar verða á þeim takmörkunum sem nú gilda og er það í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra sem fram koma í meðfylgjandi minnisblaði. Þær breytingar sem þó verða gerðar eru raktar hér að neðan. Efnið var kynnt á fundi ríkisstjórnar í dag.

    25. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Auglýsing um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar

    Heilbrigðisráðherra hefur, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við mennta- og menningarmálaráðherra, birt auglýsingu um takmörkun á skólastarfi og hefur hún þegar tekið gildi. Markmiðið er að raska skólastarfi vegna COVID-19 sem minnst þrátt fyrir að gætt sé að sóttvarnasjónarmiðum. Talið var nauðsynlegt að fjalla um takmarkanir á skólahaldi í sérstakri auglýsingu en fyrir gildistöku hennar féllu ákvæði þar að lútandi undir auglýsingu um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

    25. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Reglugerð um heimild hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra til að ávísa getnaðarvörnum

    Heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð um heimild hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra til að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum. Markmiðið er að auka aðgengi að getnaðarvörnum og stuðla með því að auknu kynheilbrigði fólks. Í reglugerðinni er einnig kveðið á um skilyrði fyrir heimild til að ávísa þessum lyfjum og um námskröfur.

    19. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Líf og heilsa

    Að lifa með veirunni - dagskrá samráðsfundar 20. ágúst

    Heilbrigðisráðherra í samvinnu við forsætis- og dómsmálaráðuneytið efnir til samráðsfundar í formi vinnustofu fimmtudaginn 20. ágúst um áframhaldandi aðgerðir vegna Covid-19 til lengri tíma litið. Efnt er til samráðsins í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Streymt verður frá fundinum á vef Stjórnarráðsins og bein útsending verður á RÚV 2.

    19. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisstofnun Norðurlands tekur tímabundið við rekstri Öldrunarheimila Akureyrar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fela Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) að taka tímabundið við rekstri Öldrunarheimila Akureyrar (ÖA) frá og með næstu áramótum. ÖA reka heimili fyrir um 180 íbúa á tveimur stöðum á Akureyri, í Hlíð og Lögmannshlíð.

    18. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Breyttar reglur um sóttkví, einangrun og sýnatöku á landamærum

    Farþegar sem koma til Íslands frá og með 19. ágúst geta valið á milli þess að fara í tvær sýnatökur vegna COVID-19 með 5 daga sóttkví á milli þar til niðurstaða seinni sýnatöku liggur fyrir, eða sleppa sýnatöku og sitja í 14 daga sóttkví frá komunni til landsins. Reglugerð heilbrigðisráðherra þessa efnis tekur gildi á miðnætti. Krafa um skimun og sóttkví nær til þeirra sem hafa dvalið í meira en sólarhring síðastliðna 14 daga í löndum sem skilgreind eru af sóttvarnalækni sem áhættusvæði en sem stendur gildir það um öll lönd. Börn fædd árið 2005 eða síðar eru undanþegin sýnatöku og sóttkví og sama gildir um þá sem íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa staðfest með PCR-prófi að hafi áður fengið COVID-19 sýkingu og lokið einangrun, eða ef COVID-19 sýking hefur verið staðfest með mótefnamælingu.…

    18. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Ræður og greinar

    Samtal um leiðarljós

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Á fimmtudaginn næstkomandi, 20. ágúst, boða ég til samráðsfundar í formi vinnustofu, í samstarfi við forsætis-, dóms- og menntamálaráðuneyti, með lykilaðilum af hinum ýmsu sviðum samfélagsins. Markmið fundarins er að ræða áframhaldandi stefnu og aðgerðir vegna Covid-19 til lengri tíma litið. Efnt er til samráðsins í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Markmiðið er að að stilla saman strengi og móta áherslur sem geti nýst í áframhaldandi vinnu við mótun aðgerða vegna Covid-19 á næstu misserum. Vegna sóttvarnarsjónarmiða verður fjöldi þátttakenda takmarkaður en þeim mun meiri áhersla verður lögð á það að öll sem vilja og hafa áhuga geti tekið þátt í fundinum á netinu.

    18. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa, Ræður og greinar

    Samtal um leiðarljós

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Á fimmtudaginn næstkomandi, 20. ágúst, boða ég til samráðsfundar í formi vinnustofu, í samstarfi við forsætis-, dóms- og menntamálaráðuneyti, með lykilaðilum af hinum ýmsu sviðum samfélagsins. Markmið fundarins er að ræða áframhaldandi stefnu og aðgerðir vegna Covid-19 til lengri tíma litið. Efnt er til samráðsins í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Markmiðið er að að stilla saman strengi og móta áherslur sem geti nýst í áframhaldandi vinnu við mótun aðgerða vegna Covid-19 á næstu misserum. Vegna sóttvarnarsjónarmiða verður fjöldi þátttakenda takmarkaður en þeim mun meiri áhersla verður lögð á það að öll sem vilja og hafa áhuga geti tekið þátt í fundinum á netinu.

    18. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðist greiningu á rekstrarkostnaði hjúkrunarheimila

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að greina raungögn um rekstur og rekstrarkostnað hjúkrunarheimila. Skipun hópsins er í samræmi við samkomulagi milli Sjúkratrygginga Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu frá í desember 2019. Formaður hópsins er Gylfi Magnússon en þar sitja einnig fulltrúar frá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Sjúkratrygginga Íslands og heilbrigðisráðuneytisins. Verkefnastjórnin skal skila niðurstöðum sínum eigi síðar en 1. nóvember 2020. ​

    17. ágú. 2020Rit og skýrslur, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Mönnun hjúkrunarfræðinga

    ágúst 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Mönnun hjúkrunarfræðinga Mönnun hjúkrunarfræðinga (skýrsla með tillögum starfshóps) Glærukynning með helstu niðurstöðum

    17. ágú. 2020Rit og skýrslur, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Mönnun hjúkrunarfræðinga - skýrsla með tillögum starfshóps

    ágúst 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Mönnun hjúkrunarfræðinga - skýrsla með tillögum starfshóps Mönnun hjúkrunarfræðinga - skýrsla með tillögum starfshóps

    17. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Mönnun hjúkrunarfræðinga – tillögur starfshóps

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að leggja mat á raunhæfar aðgerðir til að bæta mönnun hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstétta í heilbrigðiskerfinu hefur skilað ráðherra skýrslu með niðurstöðum sínum og tillögum. Byggt var á niðurstöðum könnunar meðal níu stærstu heilbrigðisstofnana á landinu, skýrslu Ríkisendurskoðunar og ýmsum fleiri upplýsingum sem tengjast þessu efni. Í vinnu sinni tók starfshópurinn einnig mið af markmiðum heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

    15. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Endurnýjun sjúkrabílaflotans raungerist – 25 nýir bílar

    Formleg afhending nýrra sjúkrabíla Rauða krossins á Íslandi fór fram í gær. Þar með raungerist endurnýjun sjúkrabílaflotans í samræmi við samkomulag Sjúkratrygginga Íslands og Rauða krossins á Íslandi frá 11. júlí á liðnu ári. „Þetta er stór dagur sem markar tímamót í þjónustu við landsmenn á sviði sjúkraflutninga og skiptir jafnframt miklu máli fyrir þá sem sinna þessu mikilvæga verkefni“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

    14. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Covid-19, Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Að lifa með veirunni – samráðsfundur 20. ágúst

    Heilbrigðisráðherra í samvinnu við forsætis- og dómsmálaráðuneytið efnir til samráðsfundar í formi vinnustofu 20. ágúst með lykilaðilum í samfélaginu um áframhaldandi aðgerðir vegna Covid-19 til lengri tíma litið. Efnt er til samráðsins í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Streymt verður beint frá fundinum sem markar upphaf samráðsins en afraksturinn verður birtur í samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið er að móta áherslur og leiðarljós sem geti nýst í áframhaldandi vinnu við mótun aðgerða vegna Covid-19 á næstu misserum.

    14. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Endurnýjun sjúkrabílaflotans raungerist – 25 nýir bílar

    Formleg afhending nýrra sjúkrabíla Rauða krossins á Íslandi fór fram í dag. Þar með raungerist endurnýjun sjúkrabílaflotans í samræmi við samkomulag Sjúkratrygginga Íslands og Rauða krossins á Íslandi frá 11. júlí á liðnu ári. „Þetta er stór dagur sem markar tímamót í þjónustu við landsmenn á sviði sjúkraflutninga og skiptir jafnframt miklu máli fyrir þá sem sinna þessu mikilvæga verkefni“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

    14. ágú. 2020Forsætisráðuneytið, Covid-19, Dómsmálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Allir komufarþegar fari í tvöfalda skimun og 5-6 daga sóttkví

    Ríkisstjórnin ákvað á fundi í dag að eigi síðar en frá og með miðvikudeginum 19. ágúst næstkomandi verði allir komufarþegar skimaðir tvisvar við komuna til Íslands.

    12. ágú. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Evrópusamstarf um málefni fólks með heilabilun formgert

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að staðfesta samstarfsyfirlýsingu sem kveður á um formlega aðild heilbrigðisráðuneytisins að faglegum samstarfsvettvangi evrópsk sérfræðingahóps um málefni einstaklinga með heilabilun (The European Group og Governmental Experts on Dementia). Ráðuneytið hefur tekið þátt í samstarfinu undanfarið eitt og hálft ár og hefur það nýst vel, meðal annars við stefnumótun og gerð aðgerðaáætlunar um þjónustu við einstaklinga með heilabilun sem birt var í apríl síðastliðnum. Með undirritun yfirlýsingarinnar er samstarfið formgert en þar er skilgreint hvað í því felst, fjallað um einstaka efnisþætti og verkþætti, stjórnun og fjármögnun samstarfsins.

    12. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Breyttar reglur um takmörkun á samkomum taka gildi 14. ágúst

    Samkvæmt nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem tekur gildi 14. ágúst verða reglur um nálægðartakmörk í framhalds- og háskólum rýmkaðar og sömuleiðis í íþróttum. Að öðru leyti gildir áfram meginreglan um 2 metra nálægðarmörk. Við aðstæður þar sem eðli starfsemi krefst meiri nálægðar milli einstaklinga en tveggja 2 metra og í almenningssamgöngum þar sem ferð varir í 30 mínútur eða lengur skal nota andlitsgrímu. Hjúkrunarheimilum, öðrum heilbrigðisstofnunum og sambærilegum stofnunum er gert skylt að setja reglur um starfsemi sína, svo sem um heimsóknir utanaðkomandi að heimilum og stofnunum. Fjöldatakmörk miðast áfram við 100 manns að hámarki.…

    10. ágú. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lifum með veirunni

    10 ágúst 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Lifum með veirunni Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Síðan í lok febrúar á þessu ári höfum við á Íslandi glímt við Covid-19. Glíman hefur falið í sér áskoranir fyrir samfélagið allt, þar á meðal heilbrigðiskerfið og efnahagskerfið, og hefur haft í för með sér miklar breytingar á daglegu lífi okkar allra. Meta þarf stöðuna á hverjum degi og sóttvarnalæknir og heilbrigðisyfirvöld eru sífellt að meta ástandið, bregðast við, upplýsa og fræða almenning

    10. ágú. 2020Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu 2021 til 2025

    ágúst 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu 2021 til 2025 Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu 2021 til 2025

    10. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Önnur aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu lögð fyrir Alþingi

    Fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra um framkvæmd heilbrigðisstefnu hefur verið lögð fram á Alþingi. Aðgerðaáætlunin tekur til áranna 2021 – 2025. Fyrsta aðgerðaáætlunin var lögð fram í júní í fyrra, skömmu eftir að Alþingi samþykkti þingsályktun um heilbrigðisstefnu til ársins 2030, en samkvæmt henni skal uppfærð aðgerðaáætlun til fimm ára lögð fyrir þingið ár hvert.

    07. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið

    Að lifa með veirunni

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að boða til samráðs helstu lykilaðila um áframhaldandi aðgerðir gegn Covid-19 í formi vinnustofu þann 20. ágúst nk. Þar verður rætt hvernig móta megi aðgerðir og stefnu til lengri tíma litið.

    04. ágú. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Breyting á auglýsingu um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að gera breytingar á auglýsingu þeirri sem tók gildi 31. júlí síðastliðinn.

    30. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar birt í Stjórnartíðindum

    Birt hefur verið í Stjórnartíðindum auglýsing heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem tekur gildi á hádegi á morgun 31. júlí og gildir til og með 13. ágúst nk. Meginbreytingin felst í því að fjöldatakmörkun á samkomum lækkar úr 500 í 100 og 2 metra reglan tekur aftur gildi á milli þeirra einstaklinga sem ekki deila heimili. Þá hefur ný reglugerð heilbrigðisráðherra sem fellir úr gildi fyrri reglugerð um sóttkví, einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19 verið birt í Stjórnartíðindum.

    30. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Hertar aðgerðir innanlands og á landamærum vegna COVID-19 frá hádegi 31. júlí nk.

    Á hádegi þann 31. júlí næstkomandi taka gildi hertar aðgerðir innanlands og á landamærum vegna COVID-19 sem standa í tvær vikur, út 13. ágúst nk. Ákvörðunin er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis sem heilbrigðisráðherra hefur samþykkt.

    29. júl. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Förum varlega áfram

    29 júlí 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Förum varlega áfram Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Fyrsta Covid-19-smitið greindist hérlendis 28. febrúar síðastliðinn og faraldurinn náði hámarki hér í byrjun apríl. Okkur tókst að bæla faraldurinn niður með markvissum aðgerðum; sýnatökum, sóttkví, einangrun og þátttöku almennings í sóttvarnaaðgerðum

    29. júl. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Förum varlega áfram

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. júlí 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Förum varlega áfram Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Fyrsta Covid-19-smitið greindist hérlendis 28

    29. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sjúkraflug tryggt fyrir ósjúkratryggða sjúklinga

    Heilbrigðisráðherra hefur gert breytingu á reglugerð um heilbrigðisþjónustu við þá sem ekki eru sjúkratryggðir á Íslandi og greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustuna, með þeim hætti að nú er kveðið á um sjúkraflug fyrir ósjúkratryggða sjúklinga.

    28. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Óbreyttar reglur um takmarkanir á samkomum vegna COVID-19 til 18. ágúst

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að framlengja núgildandi auglýsingu um takmörkun á samkomum til 18. ágúst.

    21. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Óbreyttar reglur um takmarkanir á samkomum vegna COVID-19 til 4. ágúst

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að framlengja núgildandi auglýsingu um takmörkun á samkomum óbreytta til 4. ágúst. Fjöldatakmörk á samkomum miðast því áfram við 500 manns. Opnunartími spilasala og veitingastaða með vínveitingaleyfi verður einnig óbreyttur og heimilt að hafa opið til 23.00 á kvöldin.

    20. júl. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Lýðheilsuvísar fyrir árið 2020 kynntir

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. júlí 2020 / Heilbrigðisráðuneytið Lýðheilsuvísar fyrir árið 2020 kynntir Heilbrigðisráðuneytið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skrifar: Í lok júní voru lýðheilsuvísar fyrir árið 2020 kynntir

    17. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Fyrirmæli landlæknis um mótefnamælingar vegna COVID-19

    Þann 15. júlí tóku gildi fagleg fyrirmæli landlæknis sem ráðherra hefur staðfest, um mótefnamælingar til greiningar og eftirfylgni á COVID-19 sjúkdómnum auk þess sem breyting á reglugerð um sóttvarnaráðstafanir tók gildi.

    15. júl. 2020Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Ferðaþjónusta, Covid-19

    Ferðamenn frá Danmörku, Noregi, Finnlandi og Þýskalandi verða undanþegnir kröfum um skimun og sóttkví

    Ferðamenn frá Danmörku, Noregi, Finnlandi og Þýskalandi bætast á lista með Færeyjum og Grænlandi og verða frá og með fimmtudeginum 16. júlí undanþegnir kröfum um skimun og sóttkví vegna Covid-19.

    10. júl. 2020Covid-19, Heilbrigðisráðuneytið

    Heimkomusmitgát vegna COVID-19

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnarlæknis, að frá og með 13. júlí nk. skuli þeir sem eru búsettir hér á landi eða eru íslenskir ríkisborgarar og hafa valið að fara í sýnatöku við komuna til landsins viðhafa svokallaða heimkomusmitgát í fimm daga eða þar til niðurstöður úr síðari sýnatöku liggja fyrir. Er þetta gert til að minnka líkurnar á að röng niðurstaða á prófi á landamærum geti leitt til stærri hópsmita á Íslandi.

    03. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    COVID-19: Ákvörðun um breyttar reglur vegna skimunar á landamærum

    Sóttvarnalæknir hefur lagt til við heilbrigðisráðherra að breyta reglum um skimun á landamærum vegna COVID-19. Breytingin snýr eingöngu að íslenskum ríkisborgurum og þeim sem eru búsettir hér á landi. Sem fyrr verður hægt að velja á milli 14 daga sóttkvíar eða skimunar á landamærum en gert er ráð fyrir að einstaklingar úr fyrrnefndum hópi sem velja skimun þurfi að fara aftur í skimun 4 – 5 dögum eftir komuna til landsins og vera í sóttkví þar til niðurstaða seinni sýnatökunnar liggur fyrir. Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis þessa efnis og er stefnt að því að breytingin komi til framkvæmda eigi síðar en 13. júlí.

    03. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa

    Óbreyttar reglur um takmarkanir á samkomum vegna COVID-19

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að framlengja auglýsingu um takmörkun á samkomum óbreytta um þrjár vikur, þ.e. til 26. júlí. Fjöldatakmörk á samkomum miðast því áfram við 500 manns. Opnunartími spilasala og veitingastaða með vínveitingaleyfi verður einnig óbreyttur og heimilt að hafa opið til 23.00 á kvöldin. Upplýsingagjöf til almennings um einstaklingsbundnar sýkingavarnir verður efld.

    01. júl. 2020Heilbrigðisráðuneytið

    Starfshópur semji drög að frumvarpi varðandi iðnaðarhamp

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að yfirfara lög um ávana- og fíkniefni og gera drög að lagafrumvarpi þar sem kveðið verði á um skýrari lagagrundvöll og ábyrgð stofnana sem þurfa að koma að framkvæmd þegar kemur að leyfisveitingum og eftirliti með ræktun iðnaðarhamps.

    01. júl. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu

    Frumvarp til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu var samþykkt á Alþingi nýverið. Lagabreytingin tengist innleiðingu þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 þannig að lög um heilbrigðisþjónustu endurspegli þær áherslur sem fram koma í heilbrigðisstefnunni. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um þetta í blaðagrein sem birtist í dag.

    01. júl. 2020Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu

    Frumvarp til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu var samþykkt á Alþingi nýverið. Lagabreytingin tengist innleiðingu þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 þannig að lög um heilbrigðisþjónustu endurspegli þær áherslur sem fram koma í heilbrigðisstefnunni. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um þetta í blaðagrein sem birtist í dag.

    30. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lagabreyting varðandi vinnslu persónuupplýsinga samþykkt á Alþingi

    Frumvarp heilbrigðisráðherra sem lýtur að vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og miðlun þeirra hefur verið samþykkt á Alþingi. Með frumvarpinu eru gerðar nauðsynlegar breytingar á ýmsum lögum sem heyra undir málefnasvið heilbrigðisráðherra og varða mikilvæg réttindi borgaranna þegar vinna þarf með viðkvæmar persónuupplýsingar, svo sem upplýsingar um heilsufar, til að veita örugga og góða heilbrigðisþjónustu.

    30. jún. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Almannatryggingar og lífeyrir

    Breyting á lögum um sjúkratryggingar samþykkt á Alþingi

    Breytingar verða á stjórn og eftirlitsheimildum Sjúkratrygginga Íslands með breytingum á lögum um sjúkratryggingar en frumvarp heilbrigðisráðherra þess efnis var samþykkt á Alþingi í gær. Lögin öðlast þegar gildi. Heimildir stofnunarinnar til eftirlits verða efldar. Einnig er sú breyting gerð að stjórnin hefur ekki lengur það lögbundna hlutverk gera tillögu til ráðherra um skipun forstjóra.

    • First
    • Prev
    • 31
    • 32
    • 33
    • 34
    • 35
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband