Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 1601–1650 af 2063
    Raða eftir:
    31. ágú. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Framlög til tannlækninga aldraðra og öryrkja aukin um rúm 140%

    Nýr samningur um tannlæknaþjónustu við aldraða og öryrkja tekur gildi á morgun. Heilbrigðisráðherra segir samninginn mikilvæga kjarabót og réttarbót fyrir aldraða og öryrkja. Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga hækkar almennt úr 27% í 50%. Tannlæknaþjónusta við langveika aldraða og öryrkja á stofnunum verður þeim að kostnaðarlausu.

    30. ágú. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar: „Verkefnum fjölgar – úr vörn í sókn“

    Þetta er yfirskrift blaðagreinar Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í dag þar sem hún fjallar um mikilvæg verkefni á sviði heilbrigðisþjónustu, stefnumótun fyrir heilbrigðiskerfið og forgangsröðun fjármuna. Í greininni kemur fram að ráðherra muni boða til heilbrigðisþings í nóvember þar sem þessi mál verða til umræðu.

    30. ágú. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Vestnorrænir heilbrigðisráðherrar funduðu í Reykjavík

    Árlegur fundur heilbrigðisráðherra Íslands, Færeyja og Grænlands var haldinn í Reykjavík 28. og 29. ágúst. Svandís Svavarsdóttir stýrði fundinum þar sem ráðherrarnir gerðu hver um sig grein fyrir ýmsum áherslumálum og mikilvægum verkefnum á sviði heilbrigðismála í heimalöndum sínum.

    28. ágú. 2018Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og fjölskyldumál

    Forsætisráðherra tók við armbandinu #égábaraeittlíf í minningu Einars Darra

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók á móti fjölskyldu Einars Darra Óskarssonar í dag í forsætisráðuneytinu. Einar Darri var 18 ára þegar hann varð bráðkvaddur á heimili sínu vegna lyfjaeitrunar í maí sl.

    24. ágú. 2018Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Fjölskylda Einars Darra kynnti heilbrigðisráðherra forvarnarverkefnið #égábaraeittlíf

    Fjölskylda Einars Darra Óskarssonar afhenti í dag heilbrigðisráðherra armbönd, eða kærleiksgjöf, frá minningarsjóði Einars Darra sem lést aðeins 18 ára gamall í maí síðastliðnum eftir neyslu róandi lyfja. Í kjölfar andláts Einars Darra stofnuðu ættingjar hans minningarsjóð sem hefur það markmið að styðja við ungmenni í fíknivanda og sinna forvarnarfræðslu um skaðsemina sem fylgir misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja.

    23. ágú. 2018Líf og heilsa, Lýðheilsa og forvarnir, Heilbrigðisráðuneytið

    Reglugerð varðandi tilkynningar um markaðssetningu rafrettna til umsagnar

    Drög að reglugerð heilbrigðisráðherra um tilkynningar til Neytendastofu um markaðssetningu rafrettna og áfyllinga fyrir rafrettur hefur verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

    22. ágú. 2018Líf og heilsa, Lyfjamál, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðir gegn misnotkun lyfja

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um aðgerðir til að sporna við misnotkun lyfja sem valdið geta ávana og fíkn, í blaðagrein sem birtist í dag. Hún segir heilbrigðisyfirvöld verða að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að sporna gegn þessum vanda og rekur í greininni það sem þegar hefur verið gert í þessu skyni og hvaða aðgerðir eru í bígerð.

    21. ágú. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Úttekt á smásölu lyfja á Íslandi

    Velferðarráðuneytið hefur samið við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands um gerð úttektar á smásölu lyfja hér á landi. Skoðað verður hvernig markaðurinn hefur þróast frá því að verslun með lyf var gefin frjáls árið 1996 og hvort helstu markmiðum lyfjalaga sé framfylgt.

    20. ágú. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Drög að reglugerð um skömmtun lyfja til umsagnar

    Drög að endurskoðaðri reglugerð heilbrigðisráðherra um skömmtun lyfja hefur verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 10. september næstkomandi.

    16. ágú. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa

    Viðvaranir Embættis landlæknis vegna misnotkunar lyfja

    Vegna frétta undanfarið um notkun ungmenna á ávanabindandi lyfjum hefur embættið tekið saman upplýsingar um alvarleg áhrif og afleiðingar misnotkunar. Fjallað er um bráðar og óafturkræfar afleiðingar sem hlotist geta af því að taka inn of stóran skammt af tilteknum lyfjum.

    24. júl. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og fjölskyldumál

    Framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 2018

    Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2018. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

    03. júl. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fagleg samræða um þjónustu sérgreinalækna

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra stóð fyrir fundi í velferðarráðuneytinu í gær þar sem efnt var til samræðu um þjónustu sérgreinalækna og faglegt fyrirkomulag hennar með stefnumótun til framtíðar að leiðarljósi. Þátttakendur í fundinum voru fulltrúar helstu veitenda heilbrigðisþjónustu í landinu.

    25. jún. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skipun í ráðgjafarnefnd Landspítala

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Landspítalanum ráðgjafarnefnd til næstu fjögurra ára, í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu. Formaður nefndarinnar er Kristín Ingólfsdóttir, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands.

    22. jún. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Gylfi Ólafsson skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Gylfa Ólafsson forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við niðurstöðu lögskipaðrar nefndar sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana.

    20. jún. 2018Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Almannatryggingar og lífeyrir

    Breytt greiðsluþátttökukerfi fyrir heilbrigðisþjónustu - Úttekt á fyrsta árinu eftir gildistöku

    júní 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Breytt greiðsluþátttökukerfi fyrir heilbrigðisþjónustu - Úttekt á fyrsta árinu eftir gildistöku Breytt greiðsluþátttökukerfi fyrir heilbrigðisþjónustu - Úttekt á fyrsta árinu eftir gildistöku

    20. jún. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Almannatryggingar og lífeyrir

    Markmiðin með nýju greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustu hafa náðst

    Nýtt greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustu hefur aukið jöfnuð eins og að var stefnt og varið þá sem veikastir eru fyrir fyrir miklum útgjöldum. Útgjöld barnafjölskyldna hafa lækkað og hlutverk heilsugæslunnar sem fyrsti viðkomustaður fólks í heilbrigðiskerfinu styrkst. Þetta er niðurstaða úttektar um reynslu af kerfinu ári eftir innleiðingu þess.

    18. jún. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frá vinnustofu um málefni barna sem glíma við neysluvanda

    Velferðarráðuneytið efndi nýlega til vinnustofu um málefni barna og ungmenna sem glíma við neysluvanda. Til fundarins voru boðaðir þeir sem helst koma að málefnum hópsins, enda ljóst að viðfangsefnið krefst samvinnu margra aðila.

    15. jún. 2018Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Frumvarp um rafrettur orðið að lögum

    Ný lög um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur taka gildi 1. mars 2019. Frumvarp heilbrigðisráðherra sem fjallar um innflutning, markaðssetningu, notkun og öryggi þessa varnings og ráðstafanir til að sporna við notkun barna á rafrettum var samþykkt á Alþingi í vikunni.

    14. jún. 2018Menningarmál, Líf og heilsa, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Íþróttamál og einmanaleiki til umræðu í London

    Aðgengi ungs fólks að íþróttum, þátttaka barna af erlendum uppruna í íþróttastarfi og vaxandi einmanaleiki í samfélaginu var aðal fundarefni Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og Tracey Crouch, íþróttamálaráðherra Bretlands í London í dag.

    12. jún. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti forstjóra Sjúkratrygginga Íslands

    Ellefu sóttu um embætti forstjóra Sjúkratrygginga Íslands sem auglýst var laust til umsóknar 18. maí síðastliðinn. Heilbrigðisráðherra mun skipa í stöðuna frá 1. nóvember 2018 til fimm ára að fenginni tillögu stjórnar Sjúkratrygginga Íslands, líkt og kveðið er á um í lögum um sjúkratryggingar.

    12. jún. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum

    Frumvarp heilbrigðisráðherra um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum varð að lögum frá Alþingi í gær. Markmiðið er að koma í veg fyrir að tiltekin efni og lyf séu notuð til að bæta líkamlega frammistöðu, fyrirbyggja heilsutjón vegna notkunar þeirra og koma í veg fyrir ólögmæta markaðssetningu þeirra.

    12. jún. 2018Lyfjamál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Breyting á lyfjalögum til að sporna við því að fölsuð lyf komist á markað

    Alþingi samþykkti nýlega frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingu á lyfjalögum sem hefur það markmið að sporna við því að fölsuð lyf komist á markað.

    11. jún. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Starfshópur um ákominn heilaskaða

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að greina stöðu þjónustu við fólk með ákominn heilaskaða og gera tillögur til úrbóta eftir því sem þörf krefur. Fagráð um heilaskaða og Hugarfar sem eru félagasamtök um málefni þessa hóps hafa óskað eftir vinnu sem þessari en báðir aðilar telja skort á greiningu, meðferð og þjónustu fyrir þá sjúklinga sem um ræðir.

    11. jún. 2018Líf og heilsa, Lyfjamál, Heilbrigðisráðuneytið

    Kynning fyrir notendur ADHD-lyfja vegna breytinga varðandi lyfjaávísanir og afhendingu lyfja sem taka gildi 1. júlí

    Þann 1. júlí 2018 tekur gildi ný reglugerð um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja sem leiðir til ýmissa breytinga sem varða einstaklinga sem nota lyf við ADHD (athyglisbresti með ofvirkni) sem innihalda metýlfenidat. Hér fylgir kynning á breytingunum.

    07. jún. 2018Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Kynning á lýðheilsuvísum ársins 2018

    Embætti landlæknis kynnti í gær lýðheilsuvísa ársins 2018 eftir heilbrigðisumdæmum. Þetta er í þriðja sinn sem embættið birtir lýðheilsuvísa. Vísarnir eru safn mælikvarða sem gefa vísbendingar um heilsu og líðan landsmanna og draga einnig fram hvort munur sé milli umdæma í einhverjum efnum.

    06. jún. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Ætlað samþykki fyrir líffæragjöf leitt í lög

    Með breytingu á lögum um brottnám líffæra verður framvegis miðað við ætlað samþykki látins einstaklings fyrir líffæragjöf nema annað liggi fyrir. Lagabreyting þessa efnis var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á Alþingi í dag.

    05. jún. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heyrnarfræðingar löggiltir sem heilbrigðisstétt

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð sem kveður á um menntun, réttindi og skyldur heyrnarfræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi. Reglugerðin felur í sér löggildingu stéttarinnar og hefur sá einn rétt til að kalla sig heyrnarfræðing og starfa sem slíkur hér á landi sem hefur fengið til þess leyfi landlæknis.

    04. jún. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Kröfur landlæknis um öryggi við veitingu fjarheilbrigðisþjónustu

    Embætti landlæknis hefur tekið saman skjal þar sem lýst er kröfum embættisins um öryggi við veitingu fjarheilbrigðisþjónustu. Skjalið hefur verið birt til umsagnar á Samráðsgátt stjórnvalda áður en það verður lagt fyrir heilbrigðisráðherra til staðfestingar. Umsagnarfrestur er til 18. júní næstkomandi.

    01. jún. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Lyfjamál, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Fyrsta samnorræna lyfjaútboðið í augsýn

    Undirbúningur að sameiginlegu útboði Danmerkur, Noregs og Íslands vegna kaupa á völdum lyfjum til notkunar á sjúkrahúsum er á lokastigi og stefnt að útboði í haust. Vonir eru bundnar við að með stærri markaði skapist samlegðaráhrif sem leiði til aukinnar hagkvæmni og lægra lyfjaverðs og tryggi betur fullnægjandi framboð lyfja hjá hlutaðeigandi þjóðum.

    31. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Lyfjamál, Líf og heilsa

    Víðtækar breytingar á sviði lyfjamála

    Heilbrigðisráðherra hefur sett sjö reglugerðir sem fela í sér víðtækar breytingar á sviði lyfjamála vegna löggjafar Evrópusambandsins, meðal annars vegna innleiðingar tilskipunar 2011/62/ESB um fölsun lyfja og tilskipunar 2012/26/ESB að því er varðar lyfjagát. Markmið breytinganna er að auka öryggi lyfja á markaði og umsýslu með þau í þeim tilgangi að vernda sjúklinga.

    31. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Tillaga að stefnu í tóbaksvörnum kynnt í haust

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fullvinna stefnu í tóbaksvörnum til næstu ára og stefnir að því að drög henni verði birt til umsagnar innan fárra vikna. Ráðherra segir ánægjulegt að geta kynnt þessa ákvörðun á alþjóðlega tóbaksvarnardeginum sem er í dag, 31. maí.

    30. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Líf og heilsa

    Reglugerð um skipulag vísindarannsókna á heilbrigðissviði

    Heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð um skipulag vísindarannsókna á heilbrigðissviði á grundvelli laga nr. 44/2014 um slíkar rannsóknir sem tóku gildi 1. janúar 2015.

    25. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra býður fulltrúa smáríkja í Evrópu velkomna til fundar á Íslandi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra bauð fulltrúa smáríkja í Evrópu velkomna til fundar sem haldinn verður á Íslandi í sumar, í móttöku sem Harald Aspelund, sendiherra og fastafulltrúa Íslands við Sameinuðu þjóðirnar í Genf hélt í sendiherrabústaðnum þar í borg í tilefni af 71. þingi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).

    24. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Leiðir til að sporna við mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja

    Starfshópur sem falið var að gera tillögur um aðgerðir til að stemma stigu við mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja skilaði heilbrigðisráðherra í dag skýrslu með tillögum sínum. Í samræmi við skipunarbréf var í störfum hópsins gætt að hagsmunum þeirra sjúklinga sem gagn hafa af viðkomandi lyfjum vegna meðferðar.

    24. maí 2018Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðir til að sporna við misnotkun lyfja sem geta valdið ávana og fíkn.

    maí 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðir til að sporna við misnotkun lyfja sem geta valdið ávana og fíkn. Aðgerðir til að sporna við misnotkun lyfja sem geta valdið ávana og fíkn

    23. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Embætti forstjóra Sjúkratrygginga Íslands laust til umsóknar

    Velferðarráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Sjúkratrygginga Íslands. Umsóknarfrestur er til 10. júní.

    23. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra á 71. þingi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sagði frá aðgerðum íslenskra stjórnvalda til að bregðast við hvatningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um að bæta aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu og draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga, þegar hún ávarpaði 71. þing WHO sem nú stendur yfir í Genf.

    18. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Þróunarmiðstöð heilsugæslu á landsvísu sett á fót

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti í dag ákvörðun sína um að auka til muna fjármuni til að efla og þróa heilsugæsluþjónustu um allt land: „Markmiðið er ekki síst að jafna aðgengi landsmanna að þessari mikilvægu grunnþjónustu hvar sem fólk býr, efla gæði þjónustunnar og stuðla að nýjungum“ segir ráðherra.

    18. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða

    Þrír umsækjendur eru um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða sem velferðarráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í apríl síðastliðnum.

    17. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Áherslur heilbrigðisráðherra á ársfundi Landspítala

    Landspítalinn er ekki eyland, heldur miklu fremur meginland og hluti af mikilvægri heild sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra á ársfundi Landspítalans í gær. Hún ræddi m.a. um margþætt hlutverk spítalans og hvernig skoða verði alla þætti heilbrigðiskerfisins í samhengi og taka ákvarðanir í samræmi við það.

    17. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fundur heilbrigðisráðherra og fulltrúa samráðsvettvangs geðúrræða

    Samráðsvettvangur geðúrræða á höfuðborgarsvæðinu átti fund með Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra á þriðjudag. Á fundinum kynnti hópurinn hugmyndir sínar um samstarf í þágu einstaklingsbundinnar, þverfaglegrar og samfelldrar þjónustu við fólk með geðrænan vanda.

    17. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Gagngerar endurbætur á hjúkrunarrýmum í Stykkishólmi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Sturla Böðvarsson bæjarstjóri undirrituðu í dag samning um endurbætur og uppbyggingu á hjúkrunarrýmum í húsnæði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í Stykkishólmi.

    17. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samið um byggingu nýs hjúkrunarheimilis í Hornafirði

    Nýtt hjúkrunarheimili með rýmum fyrir 30 íbúa verður byggt á Höfn í Hornafirði. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri, undirrituðu samning þessa efnis í velferðarráðuneytinu í dag.

    16. maí 2018Mannréttindi og jafnrétti, Menningarmál, Menntamál, Líf og heilsa, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    „Láttu þér líða vel“

    Heimili og skóli - Landsamtök foreldra afhentu hvatningarverðlaun sín í vikunni. Foreldraverðlaun þeirra hlaut geðræktarverkefni í Vogaskóla.

    14. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tillögur um nýtingu erfðaupplýsinga í einstaklingsmiðuðum forvörnum

    „Virða þarf rétt þeirra sem ekki vilja vita, en það má ekki verða til þess að þeir sem vilja og þurfa að vita fái ekki upplýsingarnar.“ Þetta var áherslan í vinnu starfshóps sem falið var að gera tillögur um nýtingu erfðaupplýsinga í einstaklingsmiðuðum forvörnum. Sérstaklega var fjallað um stökkbreytingar í BRCA genum sem auka verulega hættu á brjóstakrabbameini. Fulltrúar starfshópsins kynntu niðurstöður sínar fyrir Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra á fundi fyrir nýliðna helgi.

    14. maí 2018Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýting erfðaupplýsinga í einstaklingsmiðuðum forvörnum

    maí 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Nýting erfðaupplýsinga í einstaklingsmiðuðum forvörnum Nýting erfðaupplýsinga í einstaklingsmiðuðum forvörnum - Tillögur starfshóps, maí 2018

    08. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tillögur um að beita efnahagslegum hvötum í lýðheilsuskyni

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti fyrir ríkisstjórn í dag tillögur Embættis landlæknis um að breyta álögum á tiltekin matvæli til bæta neysluvenjur landsmanna. Tillögurnar eru í samræmi við ráðleggingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um aðgerðir til að efla lýðheilsu og draga úr heilsufarslegum ójöfnuði.

    04. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Afrakstur nýsköpunarstofu um þjónustu við aldraða á höfuðborgarsvæðinu

    Fjórar ýtarlegar tillögur um aðgerðir til að bæta þjónustu við aldraða eru afrakstur nýsköpunarstofu um þessi mál sem haldinn var í Höfða í lok apríl. Aðstandendur nýsköpunarstofunnar hafa ákveðið að efna til formlegs samstarfs til að vinna nánar úr tillögunum og hrinda þeim í framkvæmd.

    04. maí 2018Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi - tillögur starfshóps

    maí 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi - tillögur starfshóps Tillögur starfshóps til heilbrigðisráðherra um aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi. Starfhópurinn var skipaður af Embætti landlæknis í samræmi við þingsályktun um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára

    04. maí 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi

    Starfshópur sem unnið hefur tillögur að aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi hefur skilað heilbrigðisráðherra niðurstöðum sínum. Aðgerðaáætlunin verður kynnt á málþingi geðsviðs Landspítala um sjálfsvígsfornarnir í dag.

    • First
    • Prev
    • 31
    • 32
    • 33
    • 34
    • 35
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband