23. apr. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Covid-19
Tíu milljarðar greiddir í tekjufallsstyrki
Hátt í tíu milljarðar króna hafa verið greiddir út í tekjufallsstyrki sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þ.m.t. einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Um 2,3 milljarðar til viðbótar hafa verið greiddir í viðspyrnustyrki. Skattinum, sem fer með framkvæmd úrræðanna, hafa alls borist um 4.700 umsóknir um þau og hafa um 85% umsóknanna verið afgreiddar.