Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN

    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 201–250 af 2497
    Raða eftir:
    10. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mat á heilbrigðisviðbúnaði við bráðri lýðheilsuvá á Íslandi

    Fulltrúar Sóttvarnastofnunar Evrópu (ECDC), Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og Evrópusambandsins (EU) luku nýlega mati á stöðu heilbrigðisviðbúnaðar Íslands við bráðum lýðheilsuógnum. Matið var unnið í samræmi við ákvæði reglugerðar ESB um alvarlegar heilbrigðisógnir þvert á landamæri. Aðildarríki EES samningsins undirgangast slíkt mat á þriggja ára fresti. Niðurstaðan liggur nú fyrir í meðfylgjandi skýrslu. Skýrslan sem er á ensku verður þýdd á íslensku og birtist þýðingin innan tíðar.

    09. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Drög að frumvarpi tengt breyttu skipulagi heyrnar- og talmeinaþjónustu til umsagnar

    Unnið er að breytingum á fyrirkomulagi heyrnar- og talmeinaþjónustu sem til fjölda ára hefur verið á hendi Heyrnar og talmeinastöðvar. Sett verður á fót sérhæfð, þverfagleg þjónustueining innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) sem tekur að mestu við verkefnum Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar sem verður lögð niður. Drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um niðurlagningu Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

    09. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Innsýn í þingmál heilbrigðisráðherra á 157. löggjafarþingi

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra er með þrettán þingmál á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir 157. löggjafarþing. Þar af eru tíu lagafrumvörp, ein þingsályktunartillaga og tvær skýrslur til Alþingis. Sjö lagafrumvarpanna er áformað að leggja fram á Alþingi fyrir áramót. Þrjú þeirra hafa þegar verið samþykkt í ríkisstjórn og tvö af þeim voru lögð fram á Alþingi við setningu þingsins í gær.

    06. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Aðgerðaáætlun gegn sýklalyfjaónæmi – eftirlit með innleiðingu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku- og loftslagsmálaráðherra hafa staðfest áætlun um eftirlit með innleiðingu og framvindu verkefna aðgerðaáætlunar gegn sýklalyfjaónæmi.

    04. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Áformar að leggja niður stjórn Sjúkratrygginga Íslands

    Birt hafa verið til umsagnar áform heilbrigðisráðherra um lagabreytingu þess efnis að stjórn Sjúkratrygginga Íslands verði lögð niður. Hlutverk forstjóra verður jafnframt skýrt nánar í lögum og hann gerður ábyrgur fyrir þeim verkefnum sem stjórninni hefur hingað til verið falið. Þetta er í samræmi við stefnu stjórnvalda á liðnum árum um að einfalda yfirstjórn stofnana og styður einnig markmið um hagræðingu í ríkisrekstri.

    03. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilsuskóla LSH tryggt aukið fjármagn til að efla þjónustu við börn

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur tryggt 36 milljóna kr. aukið framlag til Heilsuskóla Barnaspítala Hringsins á þessu ári til að styrkja þverfaglega þjónustu fyrir börn í verulegri ofþyngd og fjölskyldur þeirra. Markvisst er unnið að því að stytta bið barna eftir þessari þjónustu og mæta betur sértækum þörfum þeirra. Eins hefur þörf fyrir aðkomu sérfræðinga að meðferð aukist, m.a. með tilkomu nýjunga á sviði lyfjameðferðar við offitu.

    02. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Stafræn heilsa: Ný miðlæg eining til að efla nýsköpun í heilbrigðisþjónustu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra kynnti í gær, á fyrstu nýsköpunarráðstefnu heilbrigðisráðuneytisins og ráðuneytis nýsköpunarmála, ákvörðun um að sett verði á fót ný miðlæg þróunar- og þjónustumiðstöð fyrir allt heilbrigðiskerfið undir heitinu Stafræn heilsa. Hlutverk hennar verður að samhæfa öll stafræn verkefni, styðja við nýsköpun, þar með aðkomu einkaaðila og tryggja yfirsýn. Samhliða verður ráðist í styrkingu stjórnkerfis og stýringar stafrænnar heilbrigðisþjónustu.

    02. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Starfshópur skipaður um fóstur- og nýburaskimun

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem gera á tillögu að stefnu um fóstur- og nýburaskimun. Í stefnunni skal koma fram fyrir hverju eigi að skima, hvenær skuli boðið upp á skimun, hvernig hún skuli framkvæmd og hvar. Hópnum er einnig ætlað að fjalla um fósturvísagreiningar. Formaður starfshópsins er Henry Alexander Henrysson.

    02. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Takmörkun á beitingu nauðungar – frumvarp til umsagnar

    Birt hafa verið til umsagnar drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga. Með frumvarpinu er ætlunin að lögfesta meginregluna um bann við beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu og móta lagaramma um verklag þegar nauðsynlegt þykir að víkja frá meginreglunni. Einnig eru lögð til ný ákvæði sem skilgreina nauðung og fjarvöktun auk málsmeðferðarreglna sem fylgja þarf við og í kjölfar beitingar slíkra inngripa. Markmið frumvarpsins er að tryggja betur réttindi sjúklinga og er liður í viðbrögðum við athugasemdum umboðsmanns Alþingis og ítrekaðra tilmæla alþjóðlegra eftirlitsaðila um nauðsyn þess að settur verði skýr lagarammi um beitingu nauðungar.

    26. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Lyfjamál, Hagsýn í rekstri

    Breytingar á greiðsluþátttöku í lyfjakostnaði um næstu áramót

    Í kjölfar endurskoðunar á greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í lyfjakostnaði hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að gera breytingar á greiðsluþátttökukerfinu um næstu áramót.

    25. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Blóðbankinn fluttur í Kringluna

    Blóðbankinn hefur flutt starfsemi sína í Kringluna. Tímamótunum var fagnað með stuttu opnunarhófi í dag. Vonir eru bundnar við að staðsetning blóðbankans á einum fjölfarnasta stað höfuðborgarinnar verði til þess að fjölgi í hópi blóðgjafa. Til að mæta lágmarksþörfum heilbrigðiskerfisins þarf blóðbankinn um 16.000 blóðgjafir á ári, eða um 70 blóðgjafir á dag. Þörf er á 2.000 nýjum blóðgjöfum á ári í stað þeirra sem hætta að gefa vegna aldurs eða af öðrum ástæðum.

    24. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Læknamönnun á heilbrigðisstofnunum og lögmæti verktakasamninga

    Vegna frétta um uppsögn Sjúkrahússins á Akureyri á verktakasamningum við lækna sem nefndir hafa verið ferliverkasamningar, vill heilbrigðisráðuneytið koma á framfæri nokkrum atriðum sem greina á milli hefðbundinna verktakasamninga og samninga sem bera einkenni gerviverktöku og eru ólögmætir.

    22. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vinnustofa um stefnu í áfengis- og vímuefnavörnum

    Nýverið stóð stýrihópur um áfengis- og vímuefnameðferðarkerfið fyrir heilsdags vinnustofu með helstu haghöfum áfengis- og vímuefnameðferðarkerfisins og annarra velferðarkerfa. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra skipaði stýrihópinn í mars síðastliðnum og fól honum það hlutverk að efla samskipti og samhæfingu milli þjónustuveitenda og stuðla að tímanlegri þjónustu fyrir notendur. Vinnustofan var haldin sem liður í því verkefni.

    18. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýbygging fyrir geðþjónustu Landspítala verði í Fossvogi

    Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur fallist á umsókn Nýs Landspítala ohf. (NLSH) um að hefja deiliskipulagsgerð í Fossvogi með það fyrir augum að þar rísi framtíðarhúsnæði geðþjónustu Landspítala. Skipulagslýsing vegna verkefnisins var samþykkt á fundi ráðsins í gær. „Þetta eru stór tíðindi og gleðileg því varla er hægt að hugsa sér betri staðsetningu og umhverfi til að byggja upp húsnæði fyrir geðþjónustu sem uppfyllir nútíma kröfur um batamiðaða hönnun“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

    12. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Styrkja Bergið-headspace um 20 milljónir króna

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Guðmundur Ingi Kristinsson mennta- og barnamálaráðherra og Eva Rós Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins-headspace undirrituðu í dag styrktarsamning sem kveður á um 20 milljóna króna fjárframlag ráðuneytanna til að styðja við starfsemi Bergsins. Hvort ráðuneyti um sig leggur til 10 milljónir króna. Samningurinn gildir til loka þessa árs.

    11. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðherra heimsótti Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra heimsótti í liðinni viku Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, skoðaði aðstæður stofnunarinnar á Ísafirði þar sem er rekin sjúkradeild og heilsugæsla, auk þess að heimsækja hjúkrunarheimilið Eyri og hjúkrunarheimilið Berg í Bolungarvík. Ráðherra nýtti jafnframt ferðina vestur til að heimsækja höfuðstöðvar Kerecis á Ísafirði.

    10. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Drög að frumvarpi tengt breyttu skipulagi heyrnar- og talmeinaþjónustu til umsagnar

    Unnið er að breytingum á fyrirkomulagi heyrnar- og talmeinaþjónustu sem til fjölda ára hefur verið á hendi Heyrnar og talmeinastöðvar. Sett verður á fót sérhæfð, þverfagleg þjónustueining innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) sem tekur að mestu við verkefnum Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar sem verður lögð niður. Drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um niðurlagningu Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

    10. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Innsýn í þingmál heilbrigðisráðherra á 157. löggjafarþingi

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra er með þrettán þingmál á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir 157. löggjafarþing. Þar af eru tíu lagafrumvörp, ein þingsályktunartillaga og tvær skýrslur til Alþingis. Sjö lagafrumvarpanna er áformað að leggja fram á Alþingi fyrir áramót. Þrjú þeirra hafa þegar verið samþykkt í ríkisstjórn og tvö af þeim voru lögð fram á Alþingi við setningu þingsins í gær.

    09. sep. 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Mat á stafrænni þróun á landsvísu

    september 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Mat á stafrænni þróun á landsvísu Mat á stafrænni þróun á landsvísu

    09. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Stafræn heilsa

    Stafræn þróun í heilbrigðiskerfinu – vegvísir til framtíðar

    Yfirgripsmikilli vinnu á vegum heilbrigðisráðuneytisins við formlegt mat á stafrænni þróun og gagnamálum í heilbrigðiskerfinu er lokið og hefur lokaskýrsla verkefnisins nú verið birt. Í skýrslunni eru settar fram tillögur sem miða að skýrari forgangsröðun og samfellu í þjónustu, auknu aðgengi að gögnum og sameiginlegum innviðum sem tryggja skilvirkan og öruggan rekstur. Greiningunni og þeim tillögum sem birtast í skýrslunni er ætlað að vera vegvísir að stefnu til framtíðar.

    05. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Forvörn gegn RS veiru tekin í almenna notkun fyrir ungbörn í fyrsta sinn á Íslandi

    Öllum ungbörnum undir sex mánaða aldri verður boðin forvörn gegn RS veirusýkingu frá og með október næstkomandi. Þetta er nýmæli. RS-veiran er algeng orsök öndunarfærasýkinga, sem leggst sérstaklega þungt á börn á fyrsta aldursári, og veldur árlega fjölda innlagna á sjúkrahús hérlendis og erlendis. Í alvarlegum tilvikum þurfa börn að leggjast inn á gjörgæslu og fá öndunarvélarstuðning. Mótefnið verður gefið á sjúkrastofnunum þar sem fara fram fæðingar eða 5 daga skoðun, sem og í ungbarnavernd á heilsugæslum. Eldri börn í áhættuhópum geta einnig fengið mótefnið á sjúkrahúsum eða heilsugæslum. Frá þessu er greint á vef embættis landlæknis.

    03. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lífsstílsmóttaka á heilsugæslu HSU fyrir börn með offitu gæti orðið fyrirmynd

    Undanfarin misseri hefur Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) unnið að þróunar- og rannsóknarverkefni fyrir svokallaða lífsstílsmóttöku fyrir börn á heilsugæslustöðvum í umdæminu. Verkefnið hefur yfirskriftina ,,Kraftmiklir krakkar” og hefur það markmið að fást við offitu meðal barna á markvissan hátt. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir frumkvæði HSU mikilsvert framtak. Verkefnið lofi góðu og hún telji það geta orðið fyrirmynd að sambærilegri þjónustu á heilbrigðisstofnunum um allt land. Horft verði til þess við mótun aðgerðaáætlunar gegn offitu sem unnið sé að í ráðuneytinu.

    02. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sálfræðiþjónusta við fullorðna – gildistími tilvísana tvöfaldaður

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tvöfalda gildistíma tilvísana frá heilsugæslu sem er skilyrði fyrir meðferð fullorðinna hjá sjálfstætt starfandi sálfræðingum á samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Gildistíminn hefur verið sex mánuðir en verður tólf. Reglugerð ráðherra þessa efnis tekur gildi 15. september.

    02. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Hagræðing og tiltekt í heilbrigðiskerfinu

    Í upphafi árs tók heilbrigðisráðherra ákvörðun um að ráðast í 38 aðgerðir til hagræðingar og einföldunar í heilbrigðiskerfinu í samræmi við markmið ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um hagræðingu og hagsýni í ríkisrekstri. Aðgerðirnar eru mislangt komnar, fimm er þegar lokið en ráðuneytið hefur mótað skýra sýn á framhald þeirra aðgerða sem áfram er unnið að.

    01. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Breytingar á sjúklingatryggingu tóku gildi 1. janúar

    Ný lög um sjúklingatryggingu tóku gildi 1. janúar síðastliðinn, ásamt nýrri reglugerð um iðgjöld vegna sjúklingatryggingar. Lögin fela í sér ýmsar breytingar sem styrkja réttarstöðu sjúklinga sem verða fyrir heilsutjóni í tengslum við veitta heilbrigðisþjónustu. Verklag við meðferð bótamála hefur verið samræmt og hámarksbætur hækkaðar um 50%, úr u.þ.b. 14 m.kr. í 21 m.kr.

    29. ágú. 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Geislameðferð - Skýrsla spretthóps sumarið 2025

    ágúst 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Geislameðferð - Skýrsla spretthóps sumarið 2025 Geislameðferð - Spretthópur sumarið 2025

    28. ágú. 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Geislameðferð - skýrsla spretthóps

    ágúst 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Geislameðferð - skýrsla spretthóps Geislameðferð - skýrsla spretthóps

    27. ágú. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vinnuhópur stofnaður um þjónustu við sjúklinga með ME, langvinnt COVID, POTS og skylda sjúkdóma

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur falið landlækni að setja á fót og leiða vinnuhóp til að fjalla um heilbrigðisþjónustu við sjúklinga með sjúkdómaheilkenni sem á ensku kallast post-acute infection syndromes, skammstafað PAIS. Undir þetta falla meðal annars langvinnt COVID, ME-sjúkdómur og POTS en talsverð skörun getur verið þarna á milli og einkenni geta verið afar fjölbreytt og mismunandi.

    26. ágú. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sveinn Magnússon skipaður formaður stjórnar Landspítala

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað Svein Magnússon, lækni og fyrrverandi skrifstofustjóra í heilbrigðisráðuneytinu, formann stjórnar Landspítala út skipunartíma sitjandi stjórnar sem er 11. júlí 2026. Sveinn Magnússon er menntaður í lyflækningum og heimilislækningum. Hann á að baki langan starfsferil sem héraðslæknir og heilsugæslulæknir, m.a. sem framkvæmdastjóri heilsugæslunnar í Garðabæ. Árið 1998 var hann skipaður skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu yfir málefnum heilsugæslu, sjúkrahúsa og öldrunarmála allt til ársins 2011 þegar velferðarráðuneytið varð til við sameiningu ráðuneyta félags- og heilbrigðismála. Í velferðarráðuneytinu var hann skrifstofustjóri á skrifstofu ráðuneytisstjóra og staðgengill hans til starfsloka árið 2018.

    18. ágú. 2025Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Drög að stefnu um einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu (EHÞ)

    ágúst 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Drög að stefnu um einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu (EHÞ) Drög að stefnu um einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu (EHÞ) - Skýrsla starfshóps

    18. ágú. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Einstaklingssniðin heilbrigðisþjónusta – drög að stefnu kynnt á morgunverðarfundi

    Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að móta drög að stefnu um einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu (EHÞ) hefur skilað skýrslu sinni til ráðherra. Formaður starfshópsins var Kári Stefánsson fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. EHÞ felur í sér að forvarnir, greining og meðferð er sniðin sérstaklega að hverjum einstaklingi, eftir því sem kostur er, m.a. á grunni erfðafræði, lífvísa og klínískra upplýsinga. Markmiðið er að velja besta meðferðarkostinn á hverjum tíma, forðast ónauðsynlegar meðferðir og draga úr aukaverkunum. Ráðherra boðar til morgunverðarfundar 27. ágúst þar sem skýrslan verður kynnt og rætt um málefnið frá ýmsum sjónarhornum.

    12. ágú. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vill draga úr vottorðaskrifum vegna veikindafjarvista

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra telur brýnt að skoða með haghöfum hvernig fækka megi veikindavottorðum og breyta verklagi við útgáfu þeirra með skilvirkni og gæði þjónustunnar að leiðarljósi. Heilbrigðisráðuneytið vinnur að því að fækka útgáfum vottorða og tilvísana til að draga úr skriffinnsku og hafa þegar verið stigin skref í þá átt. Markmiðið er að auka tíma lækna og annars heilbrigðisstarfsfólks til að sinna sjúklingum, bæta þannig aðgengi að heilsugæslunni og styrkja hlutverk hennar sem fyrsta viðkomustaðar fólks í heilbrigðiskerfinu.

    12. ágú. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrstu langtímasamningarnir um liðskiptaaðgerðir og fleiri skurðaðgerðir

    Sjúkratryggingar Íslands, Klíníkin Ármúla ehf. og Stoðkerfi ehf. í samstarfi við Læknahúsið DEA Medica hafa gert með sér samning um framkvæmd liðskipta-, bak-, kviðsjár-, og brjóstaminnkunaraðgerða með greiðsluþátttöku sjúkratrygginga til næstu þriggja ára. Heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og forsvarsmenn þjónustuveitenda staðfestu samninginn í höfuðstöðvum SÍ í dag. Bætt aðgengi sjúklinga að nauðsynlegri þjónustu, skýrari umgjörð hennar og stytting biðlista eru helstu markmið samningsins.

    08. ágú. 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Fjármögnunarlíkan heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu - júlí 2025

    ágúst 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Fjármögnunarlíkan heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu - júlí 2025 Fjármögnunarlíkan heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu júlí 2025

    08. ágú. 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Fjármögnunarlíkan heilsugæslu á landsbyggðinni - júlí 2025

    ágúst 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Fjármögnunarlíkan heilsugæslu á landsbyggðinni - júlí 2025 Fjármögnunarlíkan heilsugæslu á landsbyggðinni - júlí 2025

    07. ágú. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Unnið að verkefnum til að stytta bið barna eftir greiningum og þjónustu

    Heilbrigðisráðuneytið hefur á liðnum mánuðum unnið að umfangsmikilli greiningu á geðheilbrigðisþjónustu við börn á öllum þjónustustigum heilbrigðiskerfisins. Markmiðið er að skipuleggja umbreytingar með áherslu á að stytta biðtíma, einfalda boðleiðir, auka skilvirkni og bæta þjónustu. Gert er ráð fyrir að hægt verði að kynna fyrsta áfanga fyrirhugaðra breytinga í haust.

    05. ágú. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stækkun bráðamóttöku Landspítala – verklok í desember

    Bráðamóttaka Landspítala í Fossvogi verður stækkuð með 700 fermetra viðbótarhúsnæði sem á að vera tilbúið í fyrir lok þessa árs. Samningur Nýs Landspítala og Verkheima ehf. um verkið var undirritaður í dag. „Þetta mun stórbæta aðstæður sjúklinga og starfsfólks og skipta sköpum fyrir þessa mikilvægu starfsemi þar til ný bráðamóttaka verður opnuð í meðferðarkjarnanum við Hringbraut“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

    05. ágú. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samstíga um málefni offitu á Íslandi

    Heilbrigðisráðuneytið stóð fyrir þverfaglegri vinnustofu undir heitinu Samstíga um málefni offitu á Íslandi þann 5. maí síðastliðinn á veitingastaðnum Nauthól. Vinnustofan er hluti af vinnu við innleiðingu tillagna starfshóps ráðuneytisins um stefnumarkandi áherslur í forvörnum, heilsueflingu og meðferð, sem lagðar voru fram í skýrslu í mars 2024. Alls voru þátttakendur 60, frá 12 stofnunum og þremur félagasamtökum, fólk með fjölbreyttan bakgrunn og breiða þekkingu.

    • First
    • Prev
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • 7
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband