26. mar. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Samgöngur og fjarskipti, Rekstur og eignir ríkisins
Fjarskiptaöryggi Íslands stóraukið með fjármögnun nýs sæstrengs
Fjármögnun á nýjum fjarskiptasæstreng milli Íslands og Írlands hefur verið tryggð með aðkomu ríkisins. Ráðgert er að taka strenginn í notkun fyrir árslok 2022, en honum er ætlað að stórauka öryggi í fjarskiptasamböndum Íslands við Evrópu í samræmi við stefnumótun ríkisstjórnarinnar í fjarskiptum fram til ársins 2033.