19. okt. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Veitir Foreldrahúsi styrk
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur veitt Foreldrahúsi styrk að upphæð þremur milljónum króna. Foreldrahús býður upp á ráðgjöf fyrir foreldra, fjölskylduráðgjöf og foreldrahópa, auk sjálfsstyrkingarnámskeiða fyrir foreldra, börn og unglinga.