22. sep. 2023Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál
Ráðherra á viðburði um loftslagsmál og vinnumarkað
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, sótti í dag viðburð í Santiago de Compostela á Spáni þar sem fjallað var um það hvernig stjórnvöld og aðilar á vinnumarkaði geta mætt grænum umskiptum, greitt fyrir framgangi loftslagsmarkmiða og tekist á við tæknibreytingar með samtali allra aðila. Fundinn sátu ráðherrar, háttsettir embættismenn og aðilar vinnumarkaðarins á Spáni og annars staðar í Evrópu.