Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2801–2850 af 3245
    Raða eftir:
    03. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Brexit

    Brexit í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Íslands og Bretlands

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Jeremy Hunt, utanríkisráðherra Bretlands, ræddu útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, fríverslunarmál og tvíhliða samskipti á fundi sínum í Birmingham í dag. Þetta er fyrsti tvíhliða fundur ráðherranna síðan Hunt tók við embætti sínu í sumar.

    03. okt. 2018Atvinnuvegaráðuneytið, Sjávarútvegur, Utanríkisráðuneytið

    Samningur um stjórn fiskveiða og samstarf um fiskirannsóknir í Norður Íshafi

    Samningurinn nær til úthafsins og felur í sér að aðilar hans munu skuldbinda sig til að heimila ekki veiðar á samningssvæðinu fyrr en vísindarannsóknir hafa lagt grunn að sjálfbærum fiskveiðum ef ísinn þar hopar enn frekar og möguleikar til fiskveiða skapast. Einnig eru ákvæði um vísindasamstarf, fyrirkomulag tilraunaveiða, vöktun fiskistofna og umhverfis, upplýsingaskipti, og um ákvarðanatöku varðandi hvort og hvenær skal koma á fót svæðisbundinni fiskveiðistjórnunarstofnun.

    02. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundaði með aðalframkvæmdastjóra UNESCO

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ræddi framboð Íslands til framkvæmdastjórnar UNESCO og lýsti áhuga á enn nánara samstarfi á fundi með aðalframkvæmdastjóra UNESCO í París í morgun. Ráðherra fundaði jafnframt með stjórnendum OECD og tók svo þátt í rakarastofuráðstefnu um jafnréttismál í höfuðstöðvum stofnunarinnar.

    02. okt. 2018Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Japan tekur gildi 31. október 2018

    Þann 1. október 2018 fóru fram í Reykjavík skipti á fullgildingarskjölum vegna nýs tvísköttunarsamnings við Japan sem undirritaður var þann 15. janúar 2018.

    01. okt. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Norðurslóðir, Utanríkismál

    EES-mál í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Íslands og Frakklands

    Öryggismál á norðurslóðum, EES-mál, útganga Breta úr Evrópusambandinu og tvíhliða samskipti voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Jean-Yves Le Drian, utanríkisráðherra Frakklands í París í morgun.

    29. sep. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Mannréttindi, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra flutti ræðu á allsherjarþingi SÞ

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í kvöld. Mannréttindamál, sjálfbær þróun og stríð í Sýrlandi og Jemen voru á meðal þess sem ráðherra fjallaði um í ræðu sinni.

    28. sep. 2018Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Fundarlotu mannréttindaráðsins lokið – 23 ályktanir samþykktar

    fundarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf lauk í dag. Ísland tók þátt sem aðildarríki ráðsins í fyrsta skipti eftir að hafa verið kosið í ráðið í sérstökum aukakosningum í New York í sumar.

    27. sep. 2018Loftslagsmál, Sameinuðu þjóðirnar, Mannréttindi, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Mannréttindi, öryggismál og loftslagsaðgerðir rædd í Sameinuðu þjóðunum

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, tekur þátt í störfum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir.

    25. sep. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna

    Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna var sett í dag í 73. sinn. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra var viðstaddur setningu þingsins.

    19. sep. 2018Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál

    Varnaræfingin Trident Juncture 2018 á Íslandi

    Varnaræfing Atlantshafsbandalagsins, Trident Juncture 2018, verður haldin á Norður-Atlantshafi, í Noregi og á Íslandi í október og nóvember næstkomandi. Í aðdraganda aðalæfingarinnar í Noregi fer fram minni æfing hér á landi undir merkjum Trident Juncture 2018.

    18. sep. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Öryggis- og varnarmál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Annir í utanríkisráðuneytinu

    Fundur með þingmannanefnd um Evrópumál, pólitískt samráð við Japan, fríverslunarfundur með kínverskri sendinefnd og viðræður um varnar- og öryggismál við varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna voru á meðal verkefna utanríkisráðherra og starfsfólks utanríkisráðuneytisins í dag.

    12. sep. 2018Rit og skýrslur, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Ársskýrsla 2017 - Utanríkisráðherra

    Ársskýrsla ráðherra í samræmi við 62.grein laga nr. 123/2015 um opinber fjármál.

    11. sep. 2018Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Fjárlagafrumvarpið: Aukin hagsmunagæsla vegna EES

    Aukin hagsmunagæsla vegna EES-samstarfsins, formennska Íslands í Norðurskautsráðinu og norrænu ráðherranefndinni og aukin framlög til þróunarsamvinnu eru á meðal helstu áherslna á málefnasviði utanríkisráðherra sem birtast í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2019.

    11. sep. 2018Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi, Utanríkismál

    Fyrsta fundarlota Íslands í mannréttindaráðinu hafin

    Ísland leggur áherslu á aðildarríki, ekki síst þau sem kosin hafa verið í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna, standi við mannréttindaskuldbindingar sínar.

    07. sep. 2018Utanríkisráðuneytið

    Viðskiptasamningar undirritaðir í Kína

    Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra skrifaði í dag undir samkomulag við kínversk stjórnvöld um aukið samstarf á sviði jarðvarma og rafrænna viðskipta. Þá var hindrunum á lambakjötsútflutningi til Kína rutt úr vegi á fundi utanríkisráðherra með ráðherra tollamála í Kína.

    06. sep. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Mannréttindi, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór fundaði með utanríkisráðherra og varaforseta Kína

    Aukin viðskipti Íslands og Kína, jarðhitasamstarf, loftslagsmál, norðurslóðamál og mannréttindi voru helstu umræðuefnin á fundum sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti með varaforseta og utanríkisráðherra Kína í Peking í dag.

    04. sep. 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Norrænt samstarf

    Fyrirmynd að svæðisbundnu samstarfi ríkja

    Ýmis sameiginleg hagsmunamál vestnorrænu ríkjanna voru til umræðu á fundum sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti með Poul Michelsen, utanríkisráðherra Færeyja, og Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, í tengslum við ársfund Vestnorræna ráðsins í Þórshöfn í Færeyjum í dag.

    01. sep. 2018Utanríkisráðuneytið

    Samkomulag um vinnudvöl ungs fólks í Japan og á Íslandi tekur gildi

    Í dag tekur gildi samkomulag um gagnkvæm tímabundin atvinnuréttindi ungs fólks á milli Japans og Íslands. Samkomulagið gerir ungu fólki frá Japan og Íslandi kleift að sækja um skammtíma dvalarleyfi sem gerir þeim kleift að taka að sér tilfallandi vinnu meðan á tímabundinni dvöl í hinu landinu stendur.

    31. ágú. 2018Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Styrkir til mannúðarverkefna í Sýrlandi

    Utanríkisráðuneytið kallar eftir umsóknum um styrki til mannúðarverkefna borgarasamtaka til að bregðast við neyðarástandi vegna átakanna í Sýrlandi.

    30. ágú. 2018Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra skipar starfshóp um EES-skýrslu

    Utanríkisráðherra hefur skipað starfshóp sem vinna á skýrslu um aðild Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Hópurinn er skipaður þremur einstaklingum sem hafa víðtæka þekkingu og fjölbreytta reynslu á þessu sviði.

    29. ágú. 2018Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Samráðsgátt: þróunarsamvinnustefna 2019-2023

    Utanríkisráðuneytið óskar eftir athugasemdum eða hugmyndum almennings og annarra haghafa um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2019–2023

    20. ágú. 2018Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Forsætisráðuneytið

    Elíza Gígja spennt að sjá Úganda með augum unglingsins

    Elíza Gígja Ómarsdóttir fimmtán ára reykvísk stúlka hefur verið valin til að taka þátt í gerð heimildarmyndar um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem utanríkisráðuneytið fyrir hönd íslenskra stjórnvalda stendur að í samvinnu við auglýsingastofuna Hvíta húsið og RÚV. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tilkynnti Elízu Gígju óvænt niðurstöðuna í gær á Víkingsvellinum í Fossvogi. “Fimmtán ára stúlka trúði vart sínum eigin augu og eyrum í dag þegar forsætisráðherra tilkynnti henni óvænt að hún færi fyrir Íslands hönd til Úganda,” sagði í frétt RÚV í gærkvöldi.

    15. ágú. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Landbúnaður, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Norski utanríkisráðherrann í vinnuheimsókn

    Utanríkisráðherra Noregs heimsótti í dag bændur í Borgarfirði sem ætla að selja hey til norskra bænda. Þau Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra ræddu ýmis málefni í vinnuheimsókn hennar hingað til lands.

    09. ágú. 2018Utanríkisráðuneytið, Borgaraþjónusta, Utanríkismál

    Vegna ferðalaga til Indónesíu

    Nokkuð hefur verið um að fólk hafi haft samband við borgarþjónustu utanríkisráðuneytisins að undanförnu vegna jarðskjálftanna í Indónesíu. Utanríkisráðuneytið gefur sjaldan út ferðaviðvaranir en bendir í staðinn á viðvaranir helstu samstarfsþjóða.

    18. júl. 2018Utanríkisráðuneytið

    Ísland undanþegið verndartollum ESB

    EFTA-ríkin innan EES, þar með talið Ísland, eru undanþegin tímabundnum verndartollum ESB á stálvörum sem tilkynnt var um í dag. Undanþágan, sem veitt er á grundvelli EES-samningsins, skapar fordæmi og mun einnig gilda um mögulega verndartolla á innflutning á áli til ESB sem nú eru til skoðunar.

    13. júl. 2018Utanríkismál, Mannréttindi, Utanríkisráðuneytið

    Ísland kjörið í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna

    Ísland var í dag kjörið í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna með 172 af 178 greiddum atkvæðum í kosningum sem fóru fram í allsherjarþingi SÞ í New York. Ísland hefur því tekið sæti í ráðinu sem Bandaríkin létu eftir nýverið og mun sitja út kjörtímabilið til ársloka 2019.

    12. júl. 2018Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál

    Árangursríkum leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins lokið

    Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins lauk nú síðdegis en Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra sóttu fundinn.

    10. júl. 2018Forsætisráðuneytið, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Brussel

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Brussel sem hefst á morgun, miðvikudaginn 11. júlí og stendur fram á fimmtudag, 12. júlí.

    06. júl. 2018Utanríkisráðuneytið, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Innleiðingarhallinn ekki verið minni í átta ár

    Mjög hefur dregið úr innleiðingarhalla Íslands á tilskipunum Evrópusambandsins. Samkvæmt nýbirtu frammistöðumati ESA nemur hann hann einu prósenti en fyrir fimm árum var hann 3,2 prósent.

    02. júl. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Ráðherrarnir ræddu öryggismál

    Tvíhliða samskipti Íslands og Danmerkur, öryggismál og leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins í næstu viku voru meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, og Anders Samuelsen, utanríkisráðherra Danmerkur, sem fram fór á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í dag.

    29. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Mannréttindi

    Samstaða um að Ísland taki sæti í mannréttindaráði SÞ

    Samstaða hefur náðst í ríkjahópi Vesturlanda hjá Sameinuðu þjóðunum að Ísland gefi kost á sér til að taka það sæti sem losnaði í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna við úrsögn Bandaríkjanna úr ráðinu nýverið.

    29. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Utanríkismál, Alþjóðamál, Barnaréttur, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Bragi kjörinn í barnaréttarnefnd SÞ

    Bragi Guðbrandsson var í dag kjörinn í nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins til næstu fjögurra ára. Atkvæðagreiðslan fór fram á fundi aðildarríkja Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem haldinn var í New York í dag.

    27. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Evrópusamvinna, Norrænt samstarf, Orka, Auðlindir

    Guðlaugur Þór fundaði með Ann Linde

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, átti í dag fund með Ann Linde, utanríkisviðskipta- og Evrópumálaráðherra Svíþjóðar, en hún er stödd hér á landi í vinnuheimsókn. Fyrr í dag opnuðu ráðherrarnir nýja lágvarmavirkjun á Flúðum.

    26. jún. 2018Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Menntun fyrir alla, Atvinnuvegaráðuneytið, Heimsmarkmiðin, Forsætisráðuneytið

    Forgangsmarkmið Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna samþykkt

    Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að forgangsraða 65 af 169 undirmarkmiðum Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna við innleiðingu þeirra á Íslandi.

    25. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Ráðherrafundi EFTA á Sauðárkróki lokið

    Fríverslunarsamningur við Ekvador og uppfærður fríverslunarsamningur við Tyrkland voru undirritaðir á ráðherrafundi Fríverslunarsamtaka Evrópu sem haldinn var á Sauðárkróki í dag. Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra stýrði fundinum en Ísland fer með formennsku í EFTA um þessar mundir.

    25. jún. 2018Rit og skýrslur, Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Stöðuskýrsla 2018 um framgang heimsmarkmiðanna á Íslandi

    Verkefnastjórn heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna ritaði skýrslu um stöðu Íslands gagnvart markmiðunum á innlendum og erlendum vettvangi. Í skýrslunni eru kortlögð helstu verkefni, áætlanir og áskoranir stjórnvalda gagnvart tilteknum markmiðum en á grunni þeirrar vinnu lagði verkefnastjórnin jafnframt fram forgangsmarkmið sem munu vísa stjórnvöldum veginn við innleiðingu markmiðanna næstu árin.

    25. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Borgaraþjónusta, Utanríkismál

    Guðlaugur Þór fundaði með efnahagsmálaráðherra Tyrklands

    Mannréttindi og mál Hauks Hilmarssonar voru á meðal þess sem Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, og Nihat Zeybekci, efnahagsmálaráðherra Tyrklands, ræddu á fundi í Skagafirði í morgun. Guðlaugur Þór kom ennfremur á framfæri gagnrýni á hernað Tyrkja í Norður-Sýrlandi.

    19. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Ráðherra leiddi umræður um viðskiptamál á fundi með Visegradríkjum

    Staða mála gagnvart Rússlandi, öryggis- og varnarmál, samskiptin við Bandaríkin og þróun mála í Evrópu voru á meðal dagskrárefna á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna, Eystrasaltsríkja og Visegradríkjanna svonefndu (Póllands, Ungverjalands, Slóvakíu og Tékklands) í Stokkhólmi sem lauk nú fyrir stundu.

    18. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrafundi Eystrasaltsráðsins lokið

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, lagði áherslu á mikilvægi svæðisbundinnar samvinnu og frjálslynd og lýðræðisleg gildi á utanríkisráðherrafundi Eystrasaltsráðsins, sem haldinn var í Stokkhólmi í dag.

    17. jún. 2018Utanríkismál, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Frábær stemmning í Zaryadye-garði

    Upphitunargleði stuðningsmanna íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu fyrir fyrsta leik þess á heimsmeistaramótinu í Rússlandi fór fram í Zaryadye-garðinum í Moskvu í gær.

    15. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Evrópusamvinna, Norrænt samstarf, Menningarmál, Brexit

    EFTA/EES-ríkin meta sameiginlega hagsmuni vegna Brexit

    Utanríkisráðherrar Íslands, Liechtenstein og Noregs ákváðu á fundi sínum í Ósló í morgun að hefja sameiginlega kortlagningu á hagsmunum sínum vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Íslenskur markaður og fullveldishátíð voru opnuð í norsku höfuðborginni í dag.

    07. jún. 2018Utanríkisráðuneytið, Norrænt samstarf, Utanríkismál, Þróunarsamvinna

    Norðurlönd og Afríkuríki vinni saman að því að tryggja tækifæri fyrir ungt fólk

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði áherslu á tengsl kynjajafnréttis, friðar og öryggis í erindi sínu í morgun á árlegum fundi utanríkisráðherra Norðurlanda og Afríkuríkja í Kaupmannahöfn. Hann lagði einnig áherslu á samstarf þjóðanna í þágu ungs fólks.

    05. jún. 2018Utanríkisráðuneytið

    Guðlaugur Þór færði Pompeo heillaóskir

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra óskaði Mike Pompeo, nýjum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, velfarnaðar í embætti í samtali sem þeir áttu í síma fyrr í dag.

    31. maí 2018Utanríkisráðuneytið

    Aukin umsvif íslenskra fyrirtækja í Japan og tækifæri til ungmennaskipta

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, fór fyrir íslenskri viðskiptasendinefnd í ferð sinni til Japans sem lauk í dag.

    29. maí 2018Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið

    Fundur utanríkisráðherra Íslands og Japans í Tókýó

    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, fundaði í dag með Taro Kono, utanríkisráðherra Japans, í Tókýó. Fundurinn er hápunktur fjögurra daga vinnuferðar ráðherrans til Japans sem er hans fyrsta ferð til Asíu eftir að hann tók við embætti. Með ráðherra í för er viðskiptasendinefnd skipuð hátt í þrjátíu fulltrúum íslenskra fyrirtækja.

    23. maí 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Gagnlegur fundur EES-ráðsins með Barnier

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ítrekaði mikilvægi farsællar niðurstöðu Brexit-viðræðna á fundi með aðalsamningamanni Evrópusambandsins í Brussel í dag. Guðlaugur Þór stýrði fundi EES-ráðsins í Brussel fyrir hönd ríkjanna EFTA-ríkjanna þriggja sem eru aðilar að EES-samningnum. Á fundinum báru tveggja stoða kerfi EES og málefni Brexit hæst.

    18. maí 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Ráðherrafundi Evrópuráðsins lokið

    Árlegur ráðherrafundur Evrópuráðsins var haldinn í Helsingør í Danmörku í dag en Danir hafa farið með formennsku í ráðherranefnd Evrópuráðsins síðastliðið hálft ár. Kristján Andri Stefánsson, sendiherra og fastafulltrúi Íslands gagnvart Evrópuráðinu, fór fyrir sendinefnd Íslands.

    16. maí 2018Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Umhverfi og náttúruvernd

    Viljayfirlýsing um sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda

    Guðlaugur Þór Þórðarson undirritaði í dag viljayfirlýsingu um samstarf við Alþjóðabankann á sviðii sjálfbærrar nýtingar sjávarauðlinda og málefna hafsins. Staða Íslands í breyttu öryggisumhverfi var meginþema í ræðu sem hann flutti hjá hugveitunni CSIS í Washington fyrr í dag.

    15. maí 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra átti fund með Mattis í Pentagon

    Samvinna Íslands og Bandaríkjanna í öryggis- og varnarmálum og innan Atlantshafsbandalagsins voru meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, og James Mattis varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í Washington í dag.

    15. maí 2018Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Málefni frumbyggja á norðurslóðum í brennidepli

    Málefni frumbyggja, sjálfbær samfélög og sameiginlegar áskoranir á norðurslóðum voru til umræðu á málstofu í Norræna húsinu í dag. Utanríkisráðherra lagði í opnunarávarpi áherslu á að samvinna yrði lykilstef í formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu.

    • First
    • Prev
    • 55
    • 56
    • 57
    • 58
    • 59
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband