08. maí 2013Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
A-479/2013. Úrskurður frá 3. maí 2013
<p>Tryggingamiðstöðin hf. kærði synjun Þjóðskjalasafns Íslands, dags. 5. júlí, á beiðni félagsins. Sú beiðni laut í fyrsta lagi að öllum gögnum er varða málið: „Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis“. Í öðru lagi laut hún að aðgangi að tilteknum gögnum, í 23 nánar tilgreindum töluliðum, frá nefndinni. Í þriðja lagi laut hún að aðgangi að gögnum nefndarinnar, tengdum einstökum gerningum og/eða samningum, sem voru talin upp í 46 nánar tilgreindum töluliðum. Í fjórða lagi laut hún að aðgangi gögnum nefndarinnar í 29 sérstaklega tilgreindum töluliðum. Kveðinn var upp úrskurður nr. A-479/2013 um að staðfesta þá ákvörðun Þjóðskjalasafnsins að synja um aðgang að öllum gögnum sem rannsóknarnefnd Alþingis nýtti við gerð skýrslu sinnar.…