05. sep. 1998Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa
Stefnumótun í upplýsingamálum innan heilbrigðiskerfisins
<p>Ríkisstjórnin ákvað á árinu 1995 að leggja aukna áherslu á upplýsingamálin og mótun stefnu um upplýsingaþjóðfélagið. Mörkuð var sú stefna að Íslendingar verði í fremstu röð þjóða í þróun upplýsingasamfélagsins, bæði sem veitendur og neytendur. Í þessari stefnumörkun felst m.a. áhersla á að kostir upplýsingatækni verði að fullu nýttir til að efla hag þjóðarinnar, menningu, atvinnuvegi, stjórnsýslu og þjónustu hins opinbera.</p>