Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
EN
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
Close navigation
Efnisorð
Efnisorð

Ekkert fannst

Tegund
Tegund

Leita eftir efnisorðum

Sýnir 3251–3300 af 4327
Raða eftir:
10. nóv. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Þjóðhátíðardagur Þýskalands og tuttugu ár frá falli Berlínarmúrsins

Ræða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra í tilefni af þjóðhátíðardegi Þýskalands og því að tuttugu ár eru liðin frá falli Berlínarmúrsins, haldin í Háskólabíói 10. nóvember 2014.

10. nóv. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Leiðréttingin í höfn

„Í dag verða niðurstöður leiðréttingar á verðtryggðum húsnæðislánum kynntar og á morgun verða niðurstöðurnar birtar 69 þúsund heimilum á heimasíðu verkefnisins, leiðrétting.is. Þetta er gleðistund fyrir heimilin í landinu.“ segir meðal annars í grein Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem birtist í Morgunblaðinu 10. nóvember 2014.

31. okt. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Forsætisráðherra heldur opnunarávarp í Hringborði norðurslóða

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra flutti í dag opnunarerindi í Hringborði norðurslóða, Arctic Circle, sem haldið er í Hörpu um helgina, en um 1.400 þátttakendur frá um 40 löndum sækja ráðstefnuna.

28. okt. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra á þingi Norðurlandaráðs

Ræða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra í þemaumræðu á 66. þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi, þriðjudaginn 28. október 2014.

24. okt. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp á málþingi Jafnréttissjóðs, Kyn og fræði - ný þekking verður til

Ávarp forsætisráðherra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á málþingi Jafnréttissjóðs Kyn og fræði - ný þekking verður til sem haldið var á kvennafrídeginum 24. október á Grand Hótel Reykjavík. Þar afhenti forsætisráðherra styrki til rannsókna á sviði jafnréttismála úr Jafnréttissjóði.

13. okt. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

542/2014. Úrskurður frá 8. október 2014

A kærði þá ákvörðun landlæknis að færa tiltekin gögn, sem hann hafði fallist á að afhenda kæranda á stafrænu formi, á annað snið en þau voru þá á. Það gerði hann í því skyni að læsa þeim,þ.e. gera þau óbreytanleg. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál leit m.a. lagaákvæða endurnot opinberra upplýsinga og féllst ekki á að landlækni hafi verið heimilt að breyta sniði gagnanna svo „tryggt væri að ekki væri unnt að breyta þeim eftir afhendingu“.

13. okt. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

541/2014. Úrskurður frá 8. október 2014

Í framhaldi af ákvörðun úrskurðarnefndar um upplýsingamál, um að endurupptaka mál varðandi kæru [A] yfir þeirri ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að synja um aðgang að skýrslu sem ber heitið: „Samantekt á skipulagi lögreglu við mótmælin 2008 til 2011“ var málið tekið til úrskurðar að nýju. Eftir nýja yfirferð á efni skýrslunnar varð það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að veita bæri aðgang að henni, en með þeim takmörkunum sem taldar eru upp í úrskurðarorði.  Í úrskurðinum er ekki tekin afstaða til þess hluta skýrslunnar sem kærandi hafði þegar fengið í hendur (um uppl. sem höfðu birst í fjölmiðlum).

13. okt. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

540/2014. Úrskurður frá 8. október 2014

Mál þetta varðaði tvær kærur. Sú fyrri laut að því að FME hafi ekki svarað beiðni A um gögn. Við meðferð málsins kom í ljós að beiðninni hafði verið svarað, þ.e. með ákvörðun dags. 4. júlí. Því var sú kæra ekki talin eiga við rök að styðjast og var henni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Sú seinni laut að efni ákvörðunarinnar frá 4. júlí. Þar sem sú kæra hafði ekki borist fyrr en að liðnum kærufresti var henni einnig vísað frá.

13. okt. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

539/2014. Úrskurður frá 8. október 2014

Tryggingamiðstöðin hf. kærði þá ákvörðun FME að synja félaginu um aðgang að upplýsingum um Glitni. Gagnabeiðnin tengdist málaferlum vegna stjórnendatryggingar, sem Glitnir keypti fyrir stjórnendur bankans vorið 2008, en kærandi hafði hafnað gildi tryggingarinnar, m.a.  vegna meints brots á reglum um upplýsingaskyldu. Úrskurðarnefndin taldi umrædd gögn lúta reglum um sérstaka þagnarskyldu, en sú skylda færðist yfir á FME vegna upplýsinga sem það tæki við, og staðfesti því synjun FME um að veita aðgang að gögnunum.

13. okt. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

538/2014. Úrskurður frá 8. október 2014

B kærði þá ákvörðun framkvæmdanefndar búvörusamninga að synja honum um afrit af fundargerðum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að þótt fundargerð teldist vera vinnuskjal gæti bókun í henni átt að vera aðgengileg almenningi, að hluta eða öllu leyti, ef hún hefði að geyma endanlega niðurstöðu um afgreiðslu mála. Það ætti að hluta til við í þessu tilviki. Því lagði nefndin fyrir framkvæmdanefnd búvörusamninga að afhenda kæranda afrit af tveimur fundargerðum. Synjun um aðgang að einni fundargerð var staðfest.

25. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Lokaorð forsætisráðherra á málþingi SÞ um vopnaviðskiptasamninginn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hélt ræðu á málþingi um vopnaviðskiptasamninginn, sem haldið var til hliðar við allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna, en Ísland var fyrsta ríkið til að fullgilda samninginn sem hamla mun gegn ólögmætum vopnaviðskiptum og treysta mannréttindi og mannúðarlög frekar í sessi.

24. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra á ársfundi Íslensk-ameríska verslunarráðsins

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra flutti erindi á ársfundi Íslensk-ameríska verslunarráðsins í Scandinavian House í New York, 24. september 2014. Í erindi sínu fjallaði ráðherra um samskipti Íslands og Bandaríkjanna, ekki síst á sviði verslunar og viðskipta, og aukin tækifæri þar að lútandi.

23. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra á leiðtogafundi um loftslagsmál

Í ræðu sinni fór ráðherra yfir áherslur Íslands í loftslagsmálum, m.a. á sviði jarðhita og landgræðslu. Hvatti forsætisráðherra þjóðir heims til að ganga til liðs við alheimsbandalag á sviði jarðhitanýtingar og tilkynnti um stuðning íslenskra stjórnvalda til sérstakrar jarðhitaáætlunar sem unnin er í samvinnu við Alþjóðabankann.

22. sep. 2014Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið, Lagasetning, Lög og réttur

Ríkisstjórnin tekur fyrir stöðuskýrslu um einfaldara regluverk

Á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudaginn var tekin fyrir stöðuskýrsla um einföldun gildandi regluverks. Stjórnvöld hafa lagt áherslu á að einfalda regluverk og er það verkefni sérstaklega tekið upp í núverandi stjórnarsáttmála.

12. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra í tilefni opnun sýningarinnar Hallgrímur Pétursson – 400 ára

Ávarp Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra 11. september 2014 í tilefni opnun sýningarinnar Hallgrímur Pétursson – 400 ára.

12. sep. 2014Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Stjórnarskrárnefnd kallar eftir athugasemdum við fyrstu áfangaskýrslu

Stjórnarskrárnefnd gaf út sína fyrstu áfangaskýrslu í júní síðastliðnum, í þeim tilgangi að skapa forsendur fyrir samráði og frekari faglegri greiningu áður en lengra er haldið. Gefinn var athugasemdafrestur til 1. október

12. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

552/2014. Úrskurður frá 9. september 2014

Þess var krafist af hálfu A að fá, frá Reykjavíkurborg, afhent útboðsgögn – þ.e. án þess að af þeim hefðu áður verið afmáðar upplýsingar um einingarverð og sundurliðaðar fjárhæðir. Niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál varð sú að Reykjavíkurborg bæri að afhenda kæranda gögnin með þeim hætti sem hann bað um.

12. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

551/2014. Úrskurður frá 9. september 2014

Brit Insurance Ltd., QBE Insurance (Europe) Ltd., Liberty Mutual Insurance Europe Ltd., Allianz Global Corporate & Specialty AG, Novae Syndicate 2007, Dan Re Syndicate 1400 og QBE Syndicate 1886 kærðu ákvörðun Fjármálaeftirlitsins („FME“) um að vísa frá beiðni um aðgang að gögnum í ellefu liðum. Beiðnin laut að nánar tilteknum gögnum varðandi einn aðila á ákveðnu tímabili. Nefndin taldi FME ekki hafa afgreitt beiðnina með fullnægjandi hætti og féllst ekki á varakröfu FME um að beiðninni mætti synja á grundvelli 1. tl. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga. Nefndin taldi beiðnina ekki hafa hlotið þá umfjöllun hjá FME, sem kæruheimild 20. gr. upplýsingalaga, og almennar reglur stjórnsýsluréttar um kæruheimildir á stjórnsýslustigi, gera ráð fyrir.…

12. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

550/2014. Úrskurður frá 9. september 2014

Málið varðaði þríþætta kæru A vegna Vestmannaeyjabæjar. Í fyrsta lagi kæru yfir að bærinn hafi ekki svarað A, í öðru lagi yfir að A hafi ekki fengið tilteknar upplýsingar varðandi ráðningu í starf forstöðumanns og í þriðja lagi yfir að hafa ekki fengið upplýsingar varðandi stefnumótun og starfshætti bæjarins. Fyrsta liðnum var vísað frá nefndinni, þar sem fyrir lá að A hafði verið svarað. Varðandi annan liðinn var lagt fyrir Vestmannaeyjabæ að veita A nákvæmar upplýsingar um laun forstöðumannsins. Þriðji þátturinn þótti ekki varða nægilega vel tilgreind gögn og varð honum vísað frá.

09. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Stefnuræða forsætisráðherra við upphaf 144. löggjafarþings

Stefnuræða forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, við upphaf 144. löggjafarþings, 9. september 2014.

08. sep. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

549/2014. Úrskurður frá 1. september 2014

Hinn 24. júlí 2014 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp úrskurð nr. A-540/2014 í máli ÚNU 13070006. Síðar barst beiðni um frestun á réttaráhrifum úrskurðarins. Við meðferð þess máls kom í ljós að hann hafði ekki verið byggður á réttum lagagrundvelli og var þá ákveðið að fella hann úr gildi. Af sömu ástæðum varð að vísa umræddri kæru frá nefndinni.

15. ágú. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

548/2014. Úrskurður frá 13. ágúst 2014

Þess var krafist af hálfu sveitarfélags að réttaráhrifum úrskurðar nr. 541/2014, sem kveðinn var upp 24. júlí 2014, í máli ÚNU 14040010, yrði frestað. Að mati úrskurðarnefndarinnar var frestur til að gera slíka kröfu runninn út og því var henni vísað frá.

29. júl. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-547/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

Brit Insurance Limited, Great Lakes Reinsurance (UK) Plc., Chubb Insurance Company of Europe SE, Aspen Insurance UK Limited og fleiri erlendir vátryggjendur kærðu synjun Fjármálaeftirlitsins („FME“) á beiðni um aðgang að gögnum. Deilt var um hvort ákvæði 5. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 ætti við. Nefndin taldi svo ekki vera en mat hvort umbeðin gögn væru háð þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. þeirrar greinar og 1. og 2. mgr. 58. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Það var niðurstaðan að svo væri. Því hafi FME verið rétt að synja kærendum um aðgang að skýrslu um útlánaáhættu Kaupþings banka hf., umfram þá hluta hennar sem kærendur hefðu þegar fengið aðgang að. Þau sjónarmið ættu við um svo stóran hluta skýrslunnar að ekki kæmi til greina að veita aðgang að hluta, sbr. 3. mgr. 5. gr.…

29. júl. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-546/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

Brit Insurance Limited, Great Lakes Reinsurance (UK) Plc., Chubb Insurance Company of Europe SE, Aspen Insurance UK Limited og fleiri erlendir vátryggjendur kærðu þá ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja þeim um aðgang að 15 fundargerðum lánanefndar samstæðu Kaupþings banka hf. og lánanefndar stjórnar bankans. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að þagnarskylda samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 færðist yfir á Þjóðskjalasafnið vegna upplýsinga sem stofnunin tæki við, sbr. 2. mgr. greinarinnar. Allar fundargerðirnar innihéldu umsóknir viðskiptamanna Kaupþings banka hf.…

29. júl. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-545/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

A kærði þá ákvörðun Isavia ohf. að veita honum ekki aðgang að samningi um leigu á húsi til farþegaafgreiðslu. Fyrir lá að þetta skjal varð til fyrir gildistöku nýrra upplýsingalaga, eða árið 2009. Féll ágreiningur um aðgang að því þar með utan valdssviðs úrskurðarnefndar um upplýsingamál, eins og það er afmarkað í 20. gr. laganna, og varð að vísa málinu frá.

29. júl. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-544/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

Brit Insurance Limited, Great Lakes Reinsurance (UK) Plc., Chubb Insurance Company of Europe SE, Aspen Insurance UK Limited og fleiri erlendir vátryggjendur kærðu synjun Fjármálaeftirlitsins („FME“) á beiðni um aðgang að gögnum. Deilt var um hvort ákvæði 5. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1998 ætti við. Nefndin taldi svo ekki en lagði mat að það hvort umbeðin gögn væru háð þagnarskyldu samkvæmt 1. mgr. greinarinnar og 1. og 2. mgr. 58. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Það var niðurstaðan að svo væri og FME bæri ekki að veita aðgang að skýrslu endurskoðunarfyrirtækisins PWC, að undanskildum þeim hlutum sem kærendum hafði þegar verið veittur aðgangur að, en það átti við um svo stóran hluta hennar að ekki kom til álita að leggja fyrir FME að afhenda hana að hluta.…

29. júl. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-543/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

A kærði ákvörðun Orkustofnunar um að synja beiðni um aðgang að skýrslum stofnunarinnar skv. 2. mgr. 31. gr. raforkulaga nr. 65/2003. Synjunin byggðist á því að umbeðnar skýrslur væru „flestar lokaðar skýrslur“ og því þyrfti „verkkaupi að afhenda efnið“. Var kæranda því bent á að senda beiðni sína til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.  Úrskurðarnefnd taldi, með vísun til 16. gr. upplýsingalaga, að Orkustofnun hafi ekki verið heimilt að áframsenda beiðnina til annars stjórnvalds, sem einnig hefði umbeðin gögn í sínum vörslum, og lagði fyrir hana að fjalla um og taka afstöðu til gagnabeiðni A.

29. júl. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-542/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

Kærð var synjun mennta- og menningarmálaráðuneytisins á beiðni um aðgang að gögnum um gerð skýrslu um stjórnsýslu fornleifarannsókna og fornleifaverndar. Meta varð hvort sá sem vann skýrsluna hafi verið „verkefnaráðinn“ eða „starfsmaður“ í skilningi upplýsingalaga. Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar var sú að á meðan ráðningarsamband hans við ráðuneytið stóð yfir hafi hann verið starfsmaður . Tiltekin gögn um kostnað vegna verkefnisins, m.a. um „þóknanir“ til hans vegna forvinnu og tölvunotkunar, væru því undanþegin upplýsingarétti þótt veita bæri upplýsingar um föst launakjör. Nefndin féllst ekki á að viss gögn og tölvupóstar, ritaðir áður en C varð starfsmaður ráðuneytisins, og eftir að hann hætti, væru vinnugögn sem ráðuneytið hafi mátt synja um aðgang að.…

29. júl. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-541/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

Íslenska gámafélagið hf. kærði synjun Sveitarfélagsins Ölfuss á beiðni um aðgang að tilboðsgögnum Gámaþjónustunnar hf. Sveitarfélagið hafði hvorki leiðbeint um kæruheimild né um kærufrest. Með vísan til 1. töluliðar 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 var kærunni því ekki vísað frá. Kærandi var einn tilboðsgjafa í umræddu útboði og naut því réttar samkvæmt ákvæði 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Þá taldi nefndin umbeðin gögn ekki falla undir 6. gr. laganna og aðgangur yrði ekki takmarkaður á grundvelli 10. gr. Ákvæði 1. mgr. 17. gr. laga nr.…

29. júl. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-540/2014. Úrskurður frá 24. júlí 2014

Gámaþjónustan hf. kærði afgreiðslu A (sem er í eigu Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf., sem er alfarið í eigu Seðlabanka Íslands) á beiðni um svör við því hvort tiltekinn eignarhlutur í Íslenska gámafélaginu hf. hefði verið auglýstur til sölu og ef svo væri, hvar og hvenær, hversu stór eignarhluturinn hefði verið, hvert söluverðið hefði verið, hver hefði verið kaupandi og hvernig greiðslum hefði verið háttað. Kærandi hafði aðeins fengið tiltekin svör. Seðlabankinn bar í fyrsta lagi fyrir sig ákvæði um þagnarskyldu, en nefndin taldi það ekki eiga við. Þá vísaði bankinn til samkomulags um trúnað sem nefndin taldi hann ekki heldur geta borið fyrir sig. Í þriðja lagi vísaði hann til 9. gr. upplýsingalaga, enda væri um að ræða viðkvæmar upplýsingar fyrir viðskiptamenn A.…

26. jún. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-539/2014. Úrskurður frá 24. júní 2014

A kærði þá ákvörðun Reykjavíkurborgar að synja honum um aðgang að niðurstöðum PISA-könnunar 2012, sundurliðuðum eftir grunnskólum borgarinnar. Reykjavíkurborg synjaði beiðninni m.a. á þeim forsendum að um vinnugögn væri að ræða. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á það. Þá taldi hún ekki vera í þeim upplýsingar sem féllu undir lög um persónuvernd. Því bæri Reykjavíkurborg að afhenda kæranda afrit af gögnunum.

26. jún. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-538/2014. Úrskurður frá 24. júní 2014

A kærði afgreiðslu Háskóla Íslands á beiðnum hans um aðgang að gögnum varðandi ráðningar í tiltekin störf. Fyrir lá að hann hafði verið meðal umsækjenda og var því aðili máls í skilningi stjórnsýslulaga. Það með taldi nefndin að hann nyti þess ríka réttar sem þau lög veita slíkum aðilum. Þegar af þeirri ástæðu taldi nefndin hann ekki geta borið málið undir hana og var kærum hans vísað frá.

26. jún. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-537/2014. Úrskurður frá 24. júní 2014

A kærði með hvaða hætti landlæknir hefði í hyggju að fara að tilteknum úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Við meðferð málsins kom í ljós að bæði kærandi og embætti landlæknis voru því samþykk því að umrædd gögn yrðu brennd á óendurskrifanlegan geisladisk og afhent þannig. Taldi nefndin þá ekki vera efni til frekari umfjöllunar um málið og vísaði því frá nefndinni.

26. jún. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-536/2014. Úrskurður frá 24. júní 2014

A kærði þá ákvörðun Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis, að synja beiðni hans um afrit af endurskoðunarskýrslu vegna ársreiknings Höfða fyrir árið 2011. Synjunin hafði byggst á því að um viðkvæmar upplýsingar væri að ræða, m.a. samkeppnisupplýsingar. Það var niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að Höfða bæri að veita kæranda aðgang að endurskoðunarskýrslu vegna umrædds ársreiknings.

26. jún. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-535/2014. Úrskurður frá 24. júní 2014

A kærði þá ákvörðun Isavia ohf. að veita honum ekki aðgang að samningi við Mýflug hf., þ.e. að samningi um leigu á flugvél í eigu Isavia ohf. Fyrir lá að þetta skjal varð til fyrir gildistöku nýrra upplýsingalaga, eða árið 2009. Féll ágreiningur um aðgang að því þar með utan valdssviðs úrskurðarnefndar um upplýsingamál, eins og það er afmarkað í 20. gr. laganna, og var málinu því vísað frá.

17. jún. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra í Þingvallakirkju 17. júní 2014

Ræða forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem hann flutti 17. júní 2014 í Þingvallakirkju í tilefni 70 ára afmælis lýðveldisins.

17. jún. 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra á Austurvelli 17. júní 2014

Ávarp forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, á Austurvelli 17. júní 2014.

04. jún. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-531/2014. Úrskurður frá 30. maí 2014

A kærði, f.h. Hagsmunasamtaka heimilanna (HH), synjun Fjármálaeftirlitsins (FME) á beiðni um aðgang að gögnum varðandi yfirfærslu lánasafna frá gömlu bönkunum yfir í þá nýju. Í fyrsta lagi var óskað aðgangs að tilteknum skýrslum. FME kvað þá beiðni vera endurtekna, henni hafi efnislega verið synjað árið áður og kærufrestur væri útrunninn. HH sögðu fyrri beiðni sína aðeins hafa tekið til hluta skýrslnanna. Það varð niðurstaða nefndarinnar að HH hafi mátt beina nýrri beiðni að FME, enda hefði eftirlitið sjálft ákveðið að taka afstöðu til aðgangs að skýrslunum í heild.…

04. jún. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-534/2014. Úrskurður frá 30. maí 2014

A kærði Vestmannaeyjabæ fyrir að hafa ekki afhent sér tiltekinn ársreikning útprentaðan, þ.e. á pappír. Af svörum bæjarins mátti ráða að bærinn væri reiðubúinn til að afhenda kæranda gögnin á þannig formi ef hann myndi biðja um það. Því voru ekki forsendur til frekari umfjöllunar um kæruna og var henni vísað frá nefndinni.

04. jún. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-533/2014. Úrskurður frá 30. maí 2014

A kærði, f.h. eitt hundrað tilgreindra einstaklinga, afgreiðslu mennta- og menningarmálaráðuneytisins á beiðni um aðgang að upplýsingum um öll leyfisbréf til kennara útgefin á tilteknu tímabili. Úrskurðarnefndinni höfðu ekki verið látnar í té hinar umbeðnu upplýsingar, en af hálfu ráðuneytisins var á því byggt að ekki væri unnt að kalla þær fram með góðu móti. Nefndin taldi sig því ekki hafa forsendur til að fallast á afstöðu ráðuneytisins. Var ákvörðun mennta- og menningarmálaráðuneytisins felld úr gildi og lagt fyrir það að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar.

04. jún. 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-532/2014. Úrskurður frá 30. maí 2014

A kærði, f.h. B og C,  synjun Snæfellsbæjar (S) á beiðni um aðgang að útboðsgögnum. Ekki varð ráðið að C hafi staðið að upphaflegri beiðni og kæru hans var vísað frá. Kæra B laut m.a. að upplýsingum um hver hafi framleitt þá steypu sem notuð var í umrætt verk, en ekki lá fyrir að S hefði þær upplýsingar undir höndum. Því var beiðni um þau vísað frá. S hafði í fyrsta lagi vísað til þagnarskylduákvæðis í lögum um opinber innkaup, en nefndin taldi það vera almennt þagnarskylduákvæði og synjun yrði ekki á því byggð. Í öðru lagi hafði S vísað til 9. gr. upplýsingalaga. B hafði hins vegar verið þátttakandi í útboðinu, og naut réttar samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga. Því taldi nefndin S ekki geta byggt synjun á 9. gr. laganna. Takmarkanir á upplýsingarétti B yrðu aðeins reistar á 2. eða 3.…

30. maí 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

B-528/2014. Úrskurður frá 27. maí 2014

Vinnueftirlitið krafðist þess að frestað yrði réttaráhrifum úrskurðar nr. A-528/2014, í máli ÚNU 13070007, sem kveðinn var upp 5. maí 2014. Kröfunni var hafnað.

23. maí 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Opnun nýsköpunartorgs Samtaka iðnaðarins

Ávarp Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra við opnun nýsköpunartorgs Samtaka iðnaðarins í húsnæði Háskólans í Reykjavík, 23. maí 2014.

22. maí 2014Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra – Stefna og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs

Ávarp Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í tilefni af útgáfu stefnu og og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs.

22. maí 2014Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Framlög til vísinda og nýsköpunar efld verulega

Á fundi Vísinda- og tækniráðs, sem haldinn var í dag, var samþykkt aðgerðaáætlun sem ætlað er að styðja við og efla samkeppnishæfni atvinnulífsins og gagnsæja nýtingu opinbers fjár.

09. maí 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-530/2014. Úrskurður frá 5. maí 2014

A kærði afgreiðslu landlæknis á beiðni um aðgang að reikningum fyrir prentun á bæklingum yfir MMR og önnur bóluefni. Landlæknir hafði synjað beiðni A því það myndi kosta embættið of mikla vinnu að verða við beiðninni. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi landlækni hafa brugðist við gagnabeiðninni, með þeim hætti sem gert var, vegna þess að hún kom frá A en ekki einhverjum öðrum einstaklingi. Synjunin hafi því verið  byggð á ómálefnalegum sjónarmiðum. Lagt var fyrir  landlækni að taka málið til nýrrar meðferðar.

09. maí 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-529/2014. Úrskurður frá 5. maí 2014

A kærði afgreiðslu innanríkisráðuneytisins á beiðni hans um aðgang að verklagsreglum lögreglu um beitingu skotvopna. Upphaflega hafði beiðninni verið beint að embætti ríkislögreglustjóra, sem hafði haft hin umbeðnu gögn í sínum vörslum, en hafði þó framsent beiðnina til innanríkisráðuneytisins. Nefndin taldi embættinu ekki hafa verið rétt að gera það, en taldi sér þó vera skylt að taka afstöðu til kærunnar, í stað þess að hafa bein afskipti af málsmeðferðinni. Þar sem reglurnar hefðu að geyma lýsingu á verklagi lögreglu, þegar upp kæmu alvarleg mál á sviði löggæslu, þar sem beita yrði valdi, og þær hefðu að geyma upplýsingar um skipulag löggæslu, gæti það raskað almannahagsmunum að veita almenningi aðgang að þeim. Var ákvörðun innanríkisráðuneytisins því staðfest.

09. maí 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-528/2014. Úrskurður frá 5. maí 2014

I kærði synjun Vinnueftirlitsins á beiðni um aðgang að gögnum varðandi tiltekið vinnuslys. Vinnueftirlitið hafði m.a. byggt synjun sína á 2. málsl. 1. mgr. og 2. mgr. 83. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Nefndin kvað 2. málslið 1. mgr. 83. gr. ekki fela í sér sérstaka þagnarskyldureglu. Í 2. mgr. 83. gr. (varðandi eftirlitsferðir) í væri slík regla en ekki yrði séð að hún gæti átt við. Málið félli undir 14. gr. upplýsingalaga, en undanþágan í 3. mgr. hennar ætti ekki heldur við. Því ætti I rétt til aðgangs að tilgreindum gögnum. Varðandi önnur gögn sem um var deilt, kvað nefndin upplýsingalög ekki geta staðið því í vegi að aðili fengi þau.…

09. maí 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-527/2014. Úrskurður frá 5. maí 2014

A kærði með hvaða hætti Höfði, hjúkrunar- og dvalarheimili brást við úrskurði nefndarinnar, nr. A-514/2014, þess efnis að því bæri að veita A aðgang að endurskoðunarskýrslu vegna ársreiknings fyrir árið 2012. Höfði hugðist gera það með því einu að leyfa A að lesa skýrsluna á starfstöð sinni. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál kvað Höfða ekki geta uppfyllt skyldu sína samkvæmt úrskurðinum með því einu, heldur bæri heimilinu að afhenda kæranda afrit af  umræddri skýrslu.

09. maí 2014Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-526/2014. Úrskurður frá 5. maí 2014

A kærði Tryggingastofnun ríkisins fyrir að verða ekki við beiðni hans um gögn um þjónustuhlutverk stofnunarinnar, um tilflutning peningasendinga frá launþegum til atvinnurekenda o.fl. Málið varðaði annars vegar beiðni A um svar við tiltekinni spurningu sem TR kvaðst hafa svarað. Hins vegar varðaði það beiðni A um upplýsingar úr skilaskýrslum Innheimtustofnunar sveitarfélaga til TR, en TR kvaðst ekki hafa yfir þeim upplýsingum að ráða. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi þar með ekki vera skilyrði fyrir kæru og ákvað að vísa málinu frá.

• First
• Prev
• 64
• 65
• 66
• 67
• 68
• Next
• Last
Logo
• Um vefinn
• Áskrift
• Veftré
• Fyrirvari
+354 545 8000
Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
Hafa samband

Hafa samband